Morgunblaðið - 04.04.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985
B 47
Veitingahusið
Gummi og Jórunn hafa opnaö
nýtt veitingahús
í hjarta borgarinnar
Laugavegi 126.
Bjóöum upp á fjölbreyttan matseöil viö
allra hæfi og Ijúffenga drykki.
Höfum opið frá kl. 10—23.30 alla daga.
Borðapantanir í síma 24631.
Flugfreyjur og flugþjónar
Flugleiðir útskrifuðu í gær þennan fríða og föngulega hóp af námskeiði sem staðið hefur undanfarið
fyrir flugfreyjur og flugþjóna. Myndina tók Ólafur K. Magnússon.
STEINÞÓR HELGASON
Ekki látinn, heldur maður vel látinn.
Glöggur og merkur aldraður
maður, Steinþór Helgason,
sem búsettur er á DAS í Hafnar-
firði, var af mistökum sagður lát-
inn hér í Morgunblaðinu fyrir
nokkru. Þó að leiðrétting hafi þeg-
ar birst fannst okkur viðeigandi
að líta til Steinþórs og eiga við
hann orðastað, þó ekki væri nema
um fyrrgreinda og heldur ótima-
bæra fregn um hann sjálfan.
Steinþór reyndist hinn allra
hressasti og hafði eftirfarandi að
segja, þegar hann var spurður,
hvernig honum hefði orðið við
þegar hann sá sig látinn á prenti.
— Ég tók þetta nú ekki mikið
nærri mér. Mér er alveg sama
hvort ég er sagður lifandi eða
dauður úr því sem komið er. Það
voru nú aðallega krakkarnir mínir
sem voru að amast eitthvað útaf
þessu. í rauninni er þetta ekkert
til að gera veður útaf, svona hlutir
geta alltaf komið fyrir.
— Hefurðu verið lengi hérna á
DAS?
— Það eru ein þrjú eða fjögur
ár síðan ég flutti suður frá Akur-
eyri en þar var ég búinn að vera
nokkuð lengi sem fisksali og í út-
gerð. Reyndar var ég búinn að
gera út 5 skip þar á 15 árum. Ég
hef víða komið við og ekki veriö
alltaf á Akureyri, m.a. hef ég verið
búsettur í Vestmannaeyjum og á
Siglufirði.
Það er fínt að vera hérna á DAS
og þetta er eins og hótelherbergi
gerast best.
— Nú hefur þú ritað sögur og
leikrit.
— Já ég hef ritað nokkur verk
undir nafninu Eysteinn ungi, nán-
ar tiltekið tvö leikrit og þrjár sög-
ur. Leikritin hafa ekki komið út
ennþá, en minn draumur er að
Iðnó reyni við leikrit mitt „Bænd-
ur“ einhverntíma. Það er alda-
mótaverk sem ég held að væri ekki
sem verst fyrir Iðnó að taka.
— Að svo mæltu kveðjum við
þennan hressa heiðursmann sem
hefur brugðið fyrir sig ýmsu um
dagana bæði á sviði lífsbjargar og
andlegra iðkana og við óskum
honum allra heilla að „kvöldi" í
norðurbænum.
Steinþór Helgason
Morvunblaðið/ Bjarni
COSPER
Þetta er vonlaust, við getum ekki lokað ferðatöskunni.
Auói
GOLF
JETTA
PASSAT
TRANSPORTER
AUDI100
Pýsku kostagiipiinii
50 ára reynsla
i bílainnílutningi og þjónustu
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Áskriftarsímmn er 83033