Morgunblaðið - 09.05.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1985
37
Morgunbladið/Ol.K.Mag.
Dregið í happdrætti skáta
í dag verður dregið í happdrætti margir bílar. I gær vöktu skátarn-
Hjálparsveita skáta og eru því síð- ir athygli á happdrættinu á Lækj-
ustu forvöð að kaupa miða. 1 boði artorgi.
eru 95 vinningar, þar á meðal
Börkur NK
seldi í Grimsby
— skemmdist lítillega í árekstri við skozkan fiskibát
TVÖ skip seldu afla sinn er-
lendis á miðvikudag og fengu
þau þokkalegt verð fyrir
hann. Eitt íslenzkt skip til
viðbótar mun selja afla sinn í
Englandi í lok vikunnar.
Karlsefni RE seldi 213 lestir,
mest karfa og grálúðu, í Cux-
haven. Heildarverð var 5.220.200
krónur, meðalverð 24,51. Mikið
framboð af fiski hefur verið í
Þýzkalandi þessa viku og hefur
það dregið mögulegt verð nokkuð
niður.
Börkur NK seldi 134,2 lestir í
Grimsby, mest þorsk, en einnig
nokkuð af ufsa. Heildarverð var
5.192.600 krónur, meðalverð 38,68.
Á leið sinni til Grimsby varð
Börkur fyrir því óhappi, að lenda
í árekstri við skozkan fiskibát.
Litlar sem engar skemmdir urðu
á Berki, en skozki fiskibáturinn
skemmdist talsvert. Engin slys
urðu á mönnum. Óhappið tafði
ferðir Barkar ekki svo nokkru
næmi. Sjópróf vegna óhappsins
höfðu ekki farið fram á miðviku-
dag.
Úthlutun starfslauna listamanna 1985:
3,4 milljónir til
38 listamanna
Morgunblaöinu hefur bor-
ist eftirfarandi frétt frá út-
hlutunarnefnd starfslauna
listamanna:
í fjárlögum fyrir árið 1985 eru
ætlaðar 3,4 milljónir til starfs-
launa listamanna. Starfslaunin
miðast sem næst við byrjunar-
laun menntaskólakennara.
Umsóknir voru að þessu sinni
128.
Þessir hlutu starfslaun, sam-
tals 38:
12 mánaða laun:
Brynhildur Þorgeirsdóttir
myndlistarmaður,
Guðrún Tryggvadóttir myndlist-
armaður,
Áskell Másson tónlistarmaður,
Karólína Eiríksdóttir tónlistar-
maður.
6 mánaða laun:
Gylfi Gíslason myndlistarmaður,
Jóhanna Bogadóttir myndlistar-
maður,
Jón Gunnar Árnason myndlistar-
maður,
Kjartan ólason myndlistarmað-
ur,
Kolbrún Björgólfsdóttir mynd-
listarmaður,
Sigurður Örlygsson myndlistar-
maður,
Pétur Einarsson leikari,
Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndagerðarmaður.
3 mánaða laun:
Bergþóra Árnadóttir tónlistar-
maður,
Helga Ingólfsdóttir tónlistar-
maður,
Hlíf Sigurjónsdóttir tónlistar-
maður,
Marteinn H. Friðriksson tónlist-
armaður,
Pétur Jónasson tónlistarmaður,
Ása Ólafsdóttir myndlistarmað-
ur,
Daði Guðbjörnsson myndlistar-
maður,
Guðmundur Benediktsson mynd-
listarmaður,
Hannes Lárusson myndlistar-
maður,
Harpa Björnsdóttir myndlistar-
maður,
Ingólfur Örn Arnarson myndlist-
armaður,
ívar Valgarðsson myndlistar-
maður,
Jón Axel Björnsson myndlistar-
maður,
Kristinn G. Harðarson myndlist-
armaður,
Lísa K. Guðjónsdóttir myndlist-
armaður,
ólafur Lárusson myndlistarmað-
ur,
Ragnhildur Stefánsdóttir mynd-
listarmaður,
Valgarður Gunnarsson myndlist-
armaður,
Vignir Jóhannsson myndlistar-
maður,
Messíana Tómasdóttir leik-
myndahönnuður,
Kristín Bjarnadóttir leikkona,
Filippía Kristjánsdóttir rithöf-
undur,
Guðmundur Halldórsson rithöf-
undur,
Ingólfur Jónsson rithöfundur,
tJlfar Þormóðsson rithöfundur,
Valgerður Þóra Másdóttir rithöf-
undur.
Úthlutunarnefnd skipuðu:
Magnús Þórðarson, Þorkell Sig-
urbjörnsson og Knútur Hallsson
formaður.
Sambandsfrystihúsin:
Frysting 18%meiri
á síöasta ári en 1983
— heildarvelta sjávarafuröadeildar Sambandsins jókst um 19,1 % milli ára
Heildarframleiðsla Sambands-
frystihúsanna af öllum frystum
sjávarafurðum var á síðasta ári
46.860 lestir sem er 18% aukning
frá árinu áður. Á sama tíma
minnkaði botnfiskafli landsmanna
um 8%. Heildarvelta Sjávarafurða-
deildar Sambandsins var á síðasta
ári 3,6 milljarðar króna og jókst
um 19,1 %frá árinu áður.
Upplýsingar þessar komu
meðal annars fram á aðalfundi
Félags Sambandsfiskframleið-
enda, sem haldinn var síðastlið-
inn þriðjudag. Þar kom enn-
fremur fram, að hlutdeild Sjáv-
arafurðadeildarinnar í útflutn-
ingi landsmanna á freðfiski í
fyrra var 34% og hefur hún ekki
orðið meiri til þessa. Af útflutt-
um freðfiski deildarinnar fóru
nær 24.000 lestir til Bandaríkj-
anna, rúmar 6.000 lestir til
Bretlands og 5.500 lestir til ann-
arra markaðslanda, en þar vegur
útflutningur til Japan mest.
Mikil sala freðfisks þangað hófst
á síðasta ári og var hlutur Sam-
bandsins í þeim viðskiptum
meiri en nokkurs annars útflytj-
anda hér á landi. Útflutningur á
frystri rækju tvöfaldaðist frá
fyrra ári og hélt deildin þar hlut
sínum og nokkru betur.
Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, flutti ávarp á
fundinum og ræddi meðal ann-
ars skuldasöfnun sjávarútvegs-
ins og þær skuldbreytingar, sem
þar hefðu staðið yfir undanfarið.
Hann kvað ljóst að til þess að
standa undir skuldum sínum
þyrfti sjávarútvegurinn að hafa
góða afkomu. Þá ræddi hann
stjórnun veiðanna og kvótakerf-
ið, sem hann sagði ekki galla-
laust, en hefði þó skilað árangri,
meðal annars í meiri verðmæt-
um afurða en ella. Ljóst væri að
kvótakerfið ætti ekki að leggja
niður, það væri framtíðin.
Árni Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri og formaður
SAFF, rakti meðal annars af-
komu frystihúsanna í landinu,
sem á síðasta ári hefðu verið
rekin með verulegu tapi, líklega
3 til 4% af veltu að meðaltali.
Afkoman væri þó, eins og áður
mismunandi eftir landshlutum
og aðstöðu. Það virtist ekki óal-
gengt að frystihús væru rekin
með 10% halla, en einnig væri
það til í dæminu að einstaka hús
væru rekin með hagnaði. Afkom-
an væri greinilega verst á vest-
urhluta landsins, en bezt norðan
lands. Hann vék sérstaklega að
umræðum um það að Sambandið
væri að leggja undir sig stöðugt
stærri hluta sjávarútvegsins.
Hann sagði, að fleiri frystihús
hefðu á undanförnum árum far-
ið frá Sambandinu eða verið
keypt þaðan en þau hús, sem
komið hefðu frá öðrum til Sam-
bandsins eða verið keypt af sam-
vinnufyrirtækjum. Ástæðan
fyrir framleiðsluaukningu Sam-
bandsfrystihúsanna lægi ein-
göngu í því, að þau væru í upp-
bygföngu, bæði varðandi tækni-
væðingu og hráefnisöflun. Árni
sagði einnig, að ýmiss konar
eðlileg fyrirgreiðsla til Sam-
bandsfrystihúsanna þætti
fréttnæm, þó svo engum þætti
ástæða til svo mikils sem að
minnast á sams konar fyrir-
gre'ðslu til annarra. Þessi
fréttaflutningur hefði orðið þess
valdandi, að almenningur hefði
fengið alranga mynd af því, sem
væri að gerast.
Iceland Seafood Corporation:
Selt fyrir 5 milljaröa
króna á síðastliðnu ári
ari grein, og þaðan eru sprottnar
ýmsar nýjungar sem komið hafa
íslenskum framleiðendum að
góðu gagni. Einnig er stöðugt
unnið að aukinni vélvæðingu í
fiskréttaverksmiðjunni, og í
sumar er áætlað að taka þar í
notkun nýjan búnað, sem mun
enn auka sveigjanleik og mögu-
leika á framleiðslu.
I stjórn Iceland Seafood Corp-
ortation sitja þeir Erlendur Ein-
arsson forstjóri, Reykjavík, for-
maður, Guðjón B. Ólafsson
framkvæmdastjóri, varaformað-
ur, William D. Boswell lögfræð-
ingur í Bandaríkjunum, ritari,
Sigurður Markússon fram-
kvæmdastjóri, Reykjavík, Mart-
einn Friðriksson framkvæmd-
astjóri, Sauðárkróki og Þorst-
einn Sveinsson kaupfélagsstjóri,
Egilsstöðum. Framkvæmd-
astjóri Iceland Seafood Corpor-
ation er Guðjón B. Ólafsson.
Ný fræðslu-
og kynningarGtarfsemi
Á fundinum var frumsýnd ný
fræðslumynd á myndsegulbandi,
sem gerð hefur verið á vegum
Iceland Seafood Corporation og
lýsir ferli freðfisks frá því hann
fer um borð í skip til flutnings
og þar til hin endanlega afurð er
komin á borð neytandans. Þessi
mynd mun nú búin íslensku tali
og texta og verður hún síðan not-
uð í fræðslu- og kynningarskyni
í Sambandsfrystihúsunum víðs
vegar um land.
(Fréttatilkynning.)
Tryggvi Finnsson
kjörinn formaður SAFF
ICELAND Seafood Corporation,
sölufyrirtæki Sambandsins og
Sambandsfrystihúsanna í Banda-
ríkjunum, skilaði góðum árangri á
síðasta ári, og afkoma þess var
einnig góð.
Þetta kom fram á aðalfundi
fyrirtækisins, sem haldinn var í
Reykjavík 8. maí.
A síðasta ári tókst að halda
þeirri miklu söluaukningu, sem
fyrirtækið náði árið 1983, þrátt
fyrir síharðnandi samkeppni.
Sala þess 1984 nam 120 milljón-
um dollara, eða svipaðri upphæð
og árið á undan, en fullyrða má
að um 20% söluaukning þess það
ár hafi verið með ólíkindum,
þegar mið er tekið af kringum-
stæðum á markaðnum á þeim
tíma. I magni var salan 95,7
millj. lbs., sem var 3,6% aukning
frá 1983.
Á siðasta ári olli sterk staða
dollarans miklu innstreymi af
fiski til Bandaríkjanna. Af því
leiddi verulega harðnandi verð-
samkeppni á þarlendum mark-
aði, ekki síst af hálfu Kan-
adamanna. Fyrirtækinu tókst að
halda hlut sínum, og að því er
varðar tilbúna fiskrétti hélt það
markaðshlutdeild sinni. Að því
er varðar fiskflök, þá jók fyrir-
tækið markaðshlutdeild sína í
þeim lítið eitt, þrátt fyrir erfið-
an markað vestra, mestan hluta
ársins.
Iceland Seafood Corporation
rekur öfluga rannsókna- og
þróunardeild í tengslum við fisk-
réttaverksmiðju sína í Camp
Hill í Pennsylvaníu. Þessi ran-
nsókna- og þróunardeild er af
mörgum talin ein hin fullkomn-
asta hjá nokkru fyrirtæki í þess-
AÐALFUNDI Félags Sambands-
riskframleióenda (SAFF) lauk í
gær. Árni Benediktsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðni hf. í
Keykjavík, sem verið hefur for-
maður félagsins allt frá stofnun
þcss 1958, eða í 17 ár, gaf nú ekki
kost á sér til cndurkjörs. Var
Tryggvi Finnsson framkvæmda-
stjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur
hf. kosinn formaður í stað Árna.
í tilefni af þessum tímamótum
voru Árna þökkuð farsæl störf í
þágu félagsins og traust forysta
sem hann hefur veitt í félags-
málastarfi og hagsmunagæslu
fyrir Sambandsfrystihúsin í hátt
á annan áratug. Á þessum tíma
hefur starfsemi þeirra vaxið
hröðum skrefum. Þannig var
heildarframleiðsla þeirra af
frystum sjávarafurðum 15 þús-
und tonn árið 1968, en nær 47
þúsund árið 1984.
Með Tryggva Finnssyni í
stjórn sitja þeir Marteinn Frið-
riksson frkvstj., Sauðárkróki,
varaformaður, Ríkharð Jónsson
frkvstj., Reykjavík, ritari, Bjarni
Grímsson kaupf.stj., Þingeyri,
Gísli Jónatánssonn kaupf.stj.,
Fáskrúðsfirði, Hermann Hans-
son kaupf.stj., Höfn í Hornafirði,
og Jóhann Jónsson frkvstj.,
Þórshöfn.
(Fréttatilkynning.)