Morgunblaðið - 09.05.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MAl 1985
7
Morgunblaðið/Friðþjófur
Stúlkurnar þrettán, sem keppa til úrslita um titilinn Fegurðardrottning íslands 1985 og Fegurðardrottning
Reykjavíkur 1985 á annan í hvítasunnu. í fremri röð frá vinstri: Helga Melsted, Ragnheiður Borgþórsdóttir,
Vestmannaeyjura, Elín Hreiðarsdóttir, Keflavík, og Arnbjörg Finnbogadóttir.
í efri röð: Sigríður Þrastardóttir, Halldóra Steingrímsdóttir, Rósa Waagfjörð, Halla Einarsdóttir Vestmannaeyj-
um, Hrafnhildur Hafberg, Akureyri, Sigríður Jakobsdóttir, ísafírði, Halla Bryndís Jónsdóttir, Hólmfríður
Karlsdóttir og Sif Sigfúsdóttir. Allar eru frá Reykjavík nema annars sé getið.
Fegurðarsamkeppni íslands 1985:
Rod Stewart og
Berglind krýna
fegurðardrottninguna
í Broadway á annan í hvítasunnu
Rod Stewart verður gestur á krýn-
ingarkvöldinu.
Berglind Johansen, fegurðar-
drottning íslands 1984, sem krýnir
arftaka sinn.
Kristján Jóhannsson óperusöngv-
ari syngur með hljómsveit Gunn-
ars Þórðarssonar.
Fegurðardrottning íslands 1985
verður valin og krýnd í veitinga-
húsinu Broadway annan í hvíta-
sunnu, 27. maí næstkomandi. Feg-
urðardrottning Reykjavíkur ’85
verður sömuleiðis valin og krýnd
þetta kvöld. Það verður skoski
rokkkóngurinn Rod Stewart sem
krýnir Fegurðardrottningu íslands
1985 í félagi við drottningu fyrra
árs, Berglindi Johansen, að sögn
Baldvins Jónssonar, umboðs-
manns keppninnar hérlendis.
Þrettán stúlkur keppa til úr-
slita í Fegurðarsamkeppni ís-
lands í ár. Þær verða kynntar í
Broadway föstudagskvöldið 24.
maí næstkomandi. Þá munu
blaðaljósmyndarar velja ljós-
myndafyrirsætu ársins, stúlk-
urnar velja sjálfar þá vinsælustu
úr sinum hópi og efnt verður til
skoðanakönnunar meðal gesta
um líklegasta sigurvegarann.
Níu stúlknanna eru frá Reykja-
vík, tvær eru Vestmannaeyingar,
ein frá Akureyri og ein frá Isa-
firði. í Eyjum og á Akureyri hef-
ur verið valin fegurðardrottning
bæjanna og munu þær taka þátt
í úrslitakeppninni.
Baldvin Jónsson sagðist hafa
undanfarnar vikur unnið að því
að fá Rod Stewart, einn vinsæl-
asta rokksöngvara heims, til að
koma til íslands í boði fegurð-
arsamkeppninnar, Broadway og
Flugleiða og vera gestur keppn-
innar. í gærkvöldi staðfesti Rod
Stewart komu sína hingað ásamt
unnustu sinni og vinafólki og
munu þau gista á Hótel Loftleið-
um. Gestirnir koma til landsins
með einkaflugvél 27. maí og
verða í Broadway um kvöldið.
Daginn eftir er svo ráðgert að
þau fari í skoðunarferð í ná-
grenni Reykjavíkur og síðan á
landsleik íslands og Skotlands
um kvöldið.
Á kynningarkvöldinu 24. maí
mun Björgvin Halldórsson
syngja nokkur lög, sem Rod
Stewart hefur gert vinsæl víða
um heim, dansarar dansa „Til-
brigði við stef“ Gunnars Þórð-
arsonar við undirleik hljóm-
sveitar hans, hljómsveitin Rik-
shaw leikur nokkur lög (og held-
ur síðan til Lundúna, þar sem
hljómsveitin mun skemmta gest-
um næturklúbbsins Hippodrome
að kvöldi 29. maí), frumfluttur
verður dans eftir Sóleyju Jó-
hannsdóttur og sýnd verður nýj-
asta tíska frá verslununum
Karnabæ, Garbo og Bonaparte.
Á krýningarkvöldinu, sem
hefst kl. 19 á annan í hvíta-
sunnu, mun Kristján Jóhanns-
son óperusöngvari syngja nokk-
ur lög við undirleik 17 manna
hljómsveitar Gunnars Þórðar-
sonar en að öðru leyti verða
skemmtiatriði hin sömu og á
kynningarkvöldinu, að því und-
anskildu að hljómsveitin Rik-
shaw kemur ekki fram. Gestir
þetta kvöld verða auk Berglindar
Johansen og Rod Stewart þeir
Peter Stringfellow, veitingamað-
ur og diskókóngur í London,
Roger Howe, framkvæmdastjóri
veitingastaða hans, og Steven
Stride, framkvæmdastjóri enska
knattspyrnufélagsins Aston
Villa.
Hljómsveit Gunnars Þórðar-
sonar leikur fyrir dansi fram
eftir nóttu bæði kvöldin. Kynnir
á skemmtununum verður út-
varpsmaðurinn Páll Þorsteins-
son.
Spá Páls Bergþórssonar veðurfræðings:
Mikill heyfengur
Bændur ættu aö geta sparað 30%áburðar síðasta árs
HEYFENGUR landsmanna á komandi sumri verður mikill, eða rúmar fjórar
milljónir rúmmetra, sem er svipað og á sl. ári, ef spá Páls Bergþórssonar
veðurfræðings rætist. Páll hefur gert slíkar spár á hverju vori og byggir þær
á vetrarhita. Páll telur að almennt ættu bændur að geta minnkað notkun á
tilbúnum áburði um 30% frá fyrra ári og þó fengið fullan vetrarforða af heyi.
í fyrra var heildarheyfengur
landsmanna áætlaður 4,18 millj-
ónir rúmmetra en fór niður fyrir 3
milljónir rúmmetra í köldu árun-
um. Páll sagði að útkoman gæti
verið misjöfn eftir landshlutum en
spáði að heildarheyfengurinn yrði
rúmlega 4 milljónir rúmmetra,
eins og áður segir.
Páll sagði í samtali við Mbl. að
samhengið á milli vetrarhita og
heyfengs hefði verið býsna mikið á
undanförnum árum og áratugum.
í spádómum sínum sagðist hann
miða við meðalhitann á einni veð-
urathugunarstöð, Stykkishólmi, í
mánuðunum október til apríl. í
vetur hefði meðalhitinn verið 0,7
stig, sem væri svipað og á 30 ára
tímabilinu 1951 til 1980, en mun
hærra en verið hefur undanfarin
kuldaár, að síðastliðnu ári frá-
töldu. Sagði hann að meðalhitinn
hefði verið um mínus 0,5 stig síð-
ustu ár og heyfengur landsmanna
eftir því. f fyrra hefði heyfengur-
inn þó orðið meiri en vetrarhitinn
gaf tilefni til.
Páll sagði að flestir bændur
ættu nú talsverðar fyrningar og
þyrftu þess vegna ekki hey um-
fram vetrarforðann. Sagði hann
að spá sín benti til þess að þeir
gætu fengið þann heyfeng með því
að kosta ekki meiru til áburðar en
í fyrra, sem þýðir tæplega 30%
minni áburðarkaup vegna 40%
hækkunar tilbúins áburðar, og
fengið þó vetrarforða og verið vel
staddir næsta vor. Ástæðulaust
væri fyrir menn að fjárfesta í
áburði umfram þörfina fyrir fóður
næsta vetur, sú umframfjárfest-
ing myndi einungis liggja vaxta-
laus, eða því sem næst, í hlöðun-
um.
Seltjarnarnes horfir til framtíðarinnar:
Bæjarstjórnin
sækir um leyfi til
útvarpsrekstrar
— hyggst taka þátt í almenningshluta-
félagi um útvarps- og sjónvarpsstöð
B/EJARSTJÓRN Seltjarnarness
hefur sótt um leyfi til reksturs út-
varps- og sjónvarpsstöðvar, að
sögn Sigurgeirs Sigurðssonar,
bæjarstjóra. Liggur umsóknin hjá
menntamálaráðherra og bíður
þess væntanlega að útvarpslaga-
frumvarp ráðherrans fái fullnaðar-
afgreiðslu Alþingis.
Umsóknin var send ráðherra
að tillögu sjónvarpsnefndar
Seltjarnarness, sem skilaði bæj-
arstjórn lokaskýrslu sinni 24.
apríl sl. Bæjarstjórn gerði
niðurstöðu nefndarinnar að sínu
áliti, sagði Sigurgeir, „því við
viljum reyna að hafa einhver
áhrif á hvernig þessi mál þróast
í okkar bæjarfélagi. Hugmyndin
er ekki að við stofnum hér ein-
hverskonar bæjarstöð heldur er
ætlunin að stofna hér almenn-
ingshlutafélag um rekstur
stöðvarinnar og að bæjarfélagið
verði þar hluthafi. í framtíðinni
sjáum við möguleika á uppsetn-
ingu boðveitukerfis, sem gæti
nýst til margvíslegra hluta —
kennslu, upplýsingamiðlunar af
ýmsu tagi og fleiri þátta.“
Sjónvarpsnefnd Seltjarnar-
ness, undir formennsku Júlíusar
Sólness prófessors, lagði til við
bæjarstjórn að bæjarfélagið
leitaði sem fyrst eftir heimild til
almenns útvarpsrekstrar og
jafnframt að kannaður verði
áhugi íbúa á nesinu fyrir mót-
töku og dreifingu útvarps- og
sjónvarpsefnis. í niðurstöðum
nefndarinnar segir m.a., að rétt
sé að athuga hvort grundvöllur
sé fyrir því að stofnað verði al-
menningshlutafélag „sem taki
að sér að byggja og reka mót-
töku- og sendistöð ásamt dreifi-
kerfi fyrir bæinn". Vegna aug-
ljósra hagsmuna bæjarfélags-
ins, varðandi t.d. niðurgröft á
lögnum, upplýsingamiðlun til
bæjarbúa ofl., telji nefndin eðli-
legt, að Seltjarnarnesbær sé
hluthafi í slíku félagi.
Sigurgeir Sigurðsson sagði í
samtali við blaðamann Mbi., að
nefndinni hefði verið falið að
starfa áfram og halda kynn-
ingarfundi um málið á næstu
mánuðum, svo tryggt væri að
vilji bæjarbúa sjálfra lægi fyrir.
Fálkar verði þjálfað-
ir til veiða og seld-
ir erlendum aðilum
JÓN Sigurðsson, forstjóri Is-
lenska járnblendifélagsins hf.,
varpar fram þeirri tillögu í
grein sinni í blaðinu í dag, að
hér á landi verði komið upp
aðstöðu og þekkingu til að
þjálfa fálka til veiða, á vegum
ábyrgra aðila innanlands, s.s.
Náttúrufræðistofnunar ís-
lands. Fálkarnir yrðu síðan
seldir erlendum auðmönnum á
uppboðum að þvi leyti sem
fálkastofninn væri talinn geta
verið án þessara fugla.
Sjá nánar grein Jóns Sig-
urðssonar í blaðinu í dag
á bls. 26.