Morgunblaðið - 09.05.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MAl 1985
19
„Sjálfsögð mannréttindi
að fólk fái að drekka bjóru
— segir Ragnar Tryggvason, framleiðslustjóri hjá Sana á Akureyri
ÞAÐ ERU ekki einongis unnendur
áfengs bjórs sem bíða eftirvænt-
ingarfullir eftir því að bjórfrum-
varpið fii jákvæða afgreiðslu á Al-
þingi, því þeir sem hafa atvinnu
sína af því að framleiða öl eru nú í
viðbragðsstöðu, tilbúnir að ráðast í
stækkun verksmiðja sinna þegar
og ef bjórinn verður leyfður.
Blaðamaður Morgunblaðsins var á
ferð á Akureyri nú um daginn og
sótti þá Sana, ölgerðarverksmiðj-
una á Akureyri, heim og tók Ragn-
ar Tryggvason, framleiðslustjóra
Sana, tali.
„Það er alveg rétt að við bíðum
hér spennt eftir afgreiðslu þessa
frumvarps," segir Ragnar í sam-
tali við blm. „Við erum eiginlega
í viðbragðsstöðu, því ef frum-
varpið verður samþykkt þá mun-
um við þegar i stað ráðast í
stækkun verksmiðjunnar hér.“
Ragnar segir að þeir hjá Sana
treysti sér til þess að auka af-
kastagetu verksmiðjunnar á Ak-
ureyri um 100% fyrir 1. mars nk.
ef það verður samþykkt á Al-
þingi að leyfa bruggun og sölu
áfengs bjórs á tslandi. „Sam-
þykki þessa frumvarps yrði
geysileg lyftistöng fyrir þessa
verksmiðju," segir Ragnar, „því
ef hann verður leyfður, hefur
það í för með sér að hægt væri
að fjölga starfsfólki hér um
100%, þegar framleiðsla væri
komin í fullan gang. Það þýddi
það að hér myndu 60 manns
starfa í stað þeirra 30 sem starfa
hér nú.“
Ragnar bendir á að Sana sé
eitt af fáum fyrirtækjum á Ak-
ureyri sem ekki heyri KEA til
sem nú sé að berjast fyrir því að
færa út kvíarnar og auka fram-
leiðslu sína. „Maður bíður bara
spenntur og vonar að við fáum
sterkan bjór. Reyndar finnst
mér sem það séu sjálfsögð
mannréttindi að fólk fái að
drekka bjór, ef það vill,“ segir
Ragnar.
Þess má geta að Sana á Akur-
eyri hefur ráðið til sín danskan
bruggmeistara, sem kemur
reglulega hingað til lands, og
fylgist með brugguninni og legg-
ur á ráðin. Hann er frá þekktu
dönsku ráðgjafarfyrirtæki, sem
Ragnar segir hafa komið tveim-
ur stærstu bjórframleiðslufyr-
irtækjum veraldar á laggirnar.
Áfenga ölið sem Sana framleið-
ir, til útflutnings, fyrir fríhöfn
og skip í millilandasiglingum, er
þrennskonar: tegundirnar heita
Viking, Thule og Export Quality
Viking. Ragnar gefur öllum teg-
undunum góða einkunn, en segir
þó að samkvæmt frumvarpinu
geti ekki orðið mikið um brugg-
un á síðastnefndu tegundinni,
þar sem hún sé of sterk, eða
6,5%. Við fáum úr því skorið á
allra næstu vikum hvort Sana
þarf að drífa í stækkunar-
framkvæmdum og ráða til sín 30
starfskrafta, eða hvort bjór-
frumvarpið dagar upp á þingi,
eina ferðina enn. AB
Morgunblaóid/Agnes
Getum bætt viö okkur 30 manns í vinnu, verði bjórinn leyfður, segir
Ragnar Tryggvason, framleiðslustjóri Sana á Akureyri.
BANKAR
Á SAMA STAÐ
BÚNAÐARBANKINN OG LANDSBANKINN
KYNNA SAMSTARF UM REKSTUR
HRAÐBANKA
Afareiðslutækium 1 ■ I «711 ■Jli k I kTii k Nl verður komið
fyrir í áföngum á ýmsum stöðum á landinu í sumar og haust.
Þau lengja afgreiðslutímann og verða viðskiptamönnum
beggja bankanna til flýtis og hagræðis.
HRAÐBANKANUM
I HRAÐÐANKANUM
í munu viðskiptavinir
Búnaðarbankans og Landsbankans hafa aðgang að
sparisjóðs- og tékkareikningum sínum á sama afgreiðslustað,
en í pessum tveimur stærstu bönkum landsins er um 65% af
innlánsfé viöskiptabankanna varöveitt.
Sjálfsafgreiðsla í
eftirfarandi bankaþjónustu:
★ úttektar af bankareikningi
★ innborgunar á bankareikning
★ millifærslu milli bankareikninga
★ greiðslu á reikningum með peningum eða ávísun
★ greiðslu á reikningum með millifærslu af eigin
bankareikningi
★ upplýsinga um stöðu bankareiknings
mun ná til
m
I II V
yt r — }
Fitr HHI 1 iÆj
%
BÚIMAÐARBAIMKINIM
LAIMDSBAIMKINN