Morgunblaðið - 15.05.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Sjá roðann ...
að var átakanleg sjón er
blasti við augum i bresku
fréttamyndinni: Vopnin kvödd í Ví-
etnam en sú mynd var á dagskrá
sjónvarpsins á mánudagskveldið,
brennandi kofar og sviðnir akrar,
veinandi hermenn á skurðborði,
æpandi börn með sviðna líkami,
skelfingu lostin gamalmenni
skríðandi í var, brosandi valds-
menn skálandi undir glitrandi
ljósakrónum. Sum sé saga stríðs í
máli og myndum. Guði sé lof fyrir
þessar fréttamyndir sem öðru
fremur áttu þátt i því að dauða-
stríði þessa fólks linnti. Mér varð
raunar hugsað til Afganistan er
ég horfði á þá hryllilegu sýn er
stakk í augun í þessari mynd.
Hvernig stendur á því að við fáum
ekki myndir af dauðastríði afg-
önsku þjóðarinnar, af brennandi
kofum, sviðnum ökrum, veinandi
hermönnum, æpandi börnum með
sviðna líkami, gamalmennum er
skríða í var. Nei, slíkt er víst
bannað í heimi þar sem „öreigar
allra landa skulu sameinast" með
bros á vör. Þar sjáum við aðeins
valdsmenn skála undir glitrandi
ljósakrónum í víðum sölum sem
byggðir voru með blóði, svita og
tárum rússneskrar alþýðu. Hinir
alfullkomnu verndarar „öreig-
anna“ sem þar dreypa á kampa-
víni og skófla úr silfurskeiðum
styrjuhrognum á snittur, geta
ekki verið þekktir fyrir að sýna
syni alþýðuhersins rænandi og
ruplandi, myrðandi og brennandi
þann öreigalýð er ekki vill hverfa í
faðminn hlýja bakvið hina berg-
málslausu Kremlarmúra. Og hvað
er nú orðið um þá voldugu hreyf-
ingu er stakk blómum í byssu-
kjafta fyrir framan Hvíta húsið.
Er máski skárra að deyja fyrir
kúium úr byssu alþýðuhermanns-
ins en úr hlaupi heimsvaldasinn-
ans? Ætli litla afganska hnátan er
horfir á kofann sinn brenndan, ak-
urinn sviðinn og móðurina svi-
virta óski þess máski að falla fyrir
kúlu úr byssukjafti alþýðuher-
mannsins? Eða ætli slíkt barn
sem stendur nakið og varnarlaust
frammi fyrir stálhæl valdsins
spyrji hvort því sé ekki heimil inn-
ganga í alþýðuherinn mikla? Ætli
það biðji máski grátandi um byssu
til að skjóta heimsvaldasinna?
Skvldi stúlkan sú þekkja mun-
inn á heimsvaldasinnanum og al-
þýðuhermanninum, á Nixon eða
Gorbasjoff? Ætli hin sögulega
nauðsyn hinnar sósíalísku fram-
vindu, er leysa skal alla alþýðu úr
viðjum peningafurstanna, skipti
stúlku þessa miklu máli, þar sem
hún stendur nakin ofurseld
AK-47-hríðskotarifflinum. Réttið
henni Kommúnistaávarpið og hún
mun hólpin verða. Hví ekki svo
sem einn smáskammt af styrju-
hrognum og örlítið kampavín með,
svona til að hressa hana eftir hina
blóðugu leiksýningu? Ég er viss
um að Gorbasjoff sæi ekki eftir
slíku lítilræði oní litla öreiga-
stúlku er stendur allslaus við ræt-
ur þorpsins síns. Síðan mætti
máski senda hana í skóla öreig-
anna þar sem hún getur numið
fagnaðarboðskapinn af vörum
liðsmanna heimsbyltingarhersins.
Og þegar hún svo snýr heim aftur
til gamla þorpsins síns með vas-
ana fulla af skínandi rúblum verð-
ur hún glæsilegur liðsmaður í
unglingahreyfingunni, máski for-
ingi. Þar fyndi hún sér nýja móð-
ur, móður Rússíá, og að eilífu
blaktir hinn blóðrauði alþýðufáni
yfir dyrum Alþýðuhallarinnar í
miðju þorpsins og þar fær hún
máski stöðu sem þjálfari í hinum
nýja afganska alþýðuher, sem er
þess albúinn að berjast fyrir al-
þýðu heimsins, svo hún öðlist
frelsi og hamingju.
Ólafur M.
Jóhannesson
David Attenborough
„Lifandi heimur“
— margt býr í sjónum
■■■■ Breski heim-
Cþ | 15 ildamynda-
«A — flokkurinn
„Lifandi heimur" er á
dagskrá sjónvarpsins í
kvöld klukkan 21.15 og
nefnist þátturinn í kvöld
„Margt býr í sjónum".
Þátturinn er sá næst-
síðasti en alls eru þeir
tólf.
í kvöld lýsir Attenbor-
ough heimi hafdjúpanna
sem nær yfir 70% af yfir-
borði jarðar. Hann skýrir
m.a. fæðukeðjuna í hafinu
og sýnir ýmsa kynlega sæ-
búa. Þátturinn snýst um
hafið í sem víðustum
skilningi — allt frá
drukknuðum plöntum til
falinna fjalla neðan-
sjávar.
Þýðandi og þulur er
Óskar Ingimarsson.
Þórhallur Sigurðsson og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Örn Árnason
„Gætt’að hvað þú gerir maður“
— endursýndu. skemmtiþáttur
■■■i Skemmtiþáttur
OQ 10 er á dagskrá
“ sjónvarpsins í
kvöld og ber hann nafnið
„Gætt’ að hvað þú gerir
maður". Þátturinn var
tekinn upp hér og þar í
Reykjavík, en hann var
áður sýndur í sjónvarpinu
í mars 1984. Hann hefst
klukkan 23.10 og tekur um
35 mínútur.
Höfundar eru Bjarni
Dagur Jónsson, Guðný
Halldórsdóttir og Þórhall-
ur Sigurðsson. Leikendur
eru Sigrún Edda Björns-
dóttir, Þórhallur Sigurðs-
son og Örn Árnason. Upp-
töku stjórnaði Viðar Vík-
ingsson.
„Svarti hundurinn
— íslensk hrollvekjusaga
u
■■■■ Smásagan
91 30 „Svarti hund-
& A ““ urinn" er á
dagskrá rásar 1 klukkan
21.30 í kvöld. Sagan er eft-
ir Ásgeir Hvítaskáld og er
það höfundur sem les.
Ásgeir sagði i samtali
við Mbl. að sagan væri
draugasaga er gerðist i
vesturbænum. „Sagan
fjallar um svartan ósýni-
legan hund sem angrar þá
sem hafa óhreina sam-
visku. Þetta er hrollvekju-
saga í stíl við sögurnar
hans Edgars Allan Poe.
Það er orðið nokkuð liðið
síðan ég skrifaði söguna
en það var á þeim tímum
sem maður vonaði að það
væri til einhvers að skrifa
smásögur. En þær eiga
ekkert upp á pallborðið
lengur." Lesturinn tekur
25 mínútur.
Ásgeir Hvítaskáld
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
15. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.20 Leikfimi.
Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
páttur Sigurðar G. Tómas-
sonar trá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: — Úlfhildur
Grlmsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Bláa barnið" eftir Bente
Lohne. Sigrún Björnsdóttir
les þýðingu slna (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
1045 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Or ævi og starfi Islenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
1145 Islenskt mál. Endurtekinn
páttur Guðrúnar Kvaran frá
laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.20 Barnagaman. Umsjón:
Sigrún Jóna Kristjánsdóttir.
13.30 Alice Babs, Svend As-
mussen og Ulrik Neumann
syngja og leika.
14.00 „Sælir eru syndugir" eftir
W.D. Valgardson. Guðrún
Jörundsdóttir les þýðingu
slna (9).
14.30 Miðdegistónleikar. Kons-
ert f B-dúr fyrir fiðlu, strengi
og fylgirödd eftir Antonio Vi-
valdi. Pina Carmirelli leikur
með I Musici-sveitinni.
1445 Popphólfiö — Bryndis
Jónsdóttir.
15J30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Islensk tónlist.
a. „Fimm stykki fyrir planó"
eftir Hafliða H. Hallgrlmsson.
Edda Erlendsdóttir leikur á
pfanó.
b. Svala Nielsen syngur Is-
lensk þjóðlög. Ólafur Vignir
Albertsson leikur á planó.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp
Tilkynningar
1845 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
1945 Málræktarþáttur. Baldur
Jónsson formaður Islenskrar
málnefndar flytur.
19.50 Horft I strauminn með
Auði Guðjónsdóttur. (RÚV-
AK).
20.00 Utvarpssaga barnanna:
Ragnheiður Gyöa Jónsdóttir
les arablskar sögur úr Þús-
und og einni nótt f þýðingu
Steingrlms Thorsteinssonar
(2).
20.20 Hvað viltu verða?
Starfskynningarþáttur I um-
sjá Ernu Arnardóttur og Sig-
rúnar Halldórsdóttur.
Planókonsert nr. 2 I G-dúr
op. 16 eftir Sergei Prokoffi-
ev. André Laplante leikur
með Sinfónfuhljómsveitinni (
Torontó. Andrew Davis
stjórnar.
21.30 „Svarti hundurinn", smá-
saga eftir Asgeir hvltaskáld.
Höfundur les.
21J5 Kammertónlist. Tilbrigði
op. 121a fyrir pianó, fiðlu og
selló, „Kakadu tilbrigðin",
eftir Beethoven um stef eftir
Wenzel Múller. Wilhelm
SJÓNVARP
18.00 Evrópukeppni bikarhafa I
knattspyrnu
Bein útsending frá Rotter-
dam þar sem ensku meistar-
arnir Everton og Rapid frá
Vlnarborg leika til úrslita.
20.10 Fréttaágrip á táknmáli
20.15 Fréttir og veður
2045 Auglýsingar og dagskrá
21.00 Hættum aö reykja
Þriðji þáttur
Námskeið til uppörvunar og
leiðbeiningar þeim sem vilja
hætta að reykja. Umsjönar-
maður Sigrún Stefánsdóttir.
21.15 Lifandi heimur
11. Margt býr I sjónum
Breskur heimildamynda-
flokkur I tólf þáttum.
i þessum þætti lýsir David
Attenborough heimi hafdjúp-
anna sem nær yfir 70% af
yfirborði jaröar. Hann skyrir
MIÐVIKUDAGUR
15. mal
m.a. fæðukeðjuna I hafinu
og sýnir ýmsa kynlega sæ-
búa.
Þýðandi og þulur Óskar Ingi-
marsson.
22J20 Allt fram streymir .. .
(All the Rivers Run)
Annar þáttur
Ástralskur framhaldsmynda-
flokkur I átta þáttum, geröur
eftir samnefndri skáldsögu
eftir Nancy Cato.
Leikstjórn: George Miller og
Pino Amenta. Leikendur:
Sigrid Thornton, John Wat-
ers, Charles Tingwell, Willi-
am Upjohn, Diane Craig,
Dinah Shearing og fleiri.
Efni fyrsta þáttar: Ung
stúlka, Philadelphia Gordon,
bjargast úr sjávarháska viö
Astrallu áriö 1890. Hún fer til
vistar hjá móðursystur sinni
og fjölskyldu hennar I bæ
ekki alllangt trá Melbourne.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
23.10 „Gætt’að hvað þú gerir
maöur"
Endursýning
Skemmtiþáttur sem tekinn
var upp hér og þar I Reykja-
vlk.
Höfundar: Bjarni Dagur
Jónsson, Guðný Halldórs-
dóttir og Þórhallur Sigurðs-
son (Laddi).
Leikendur: Sigrún Edda
Björnsdóttir, Þórhallur Sig-
urðsson og örn Arnason.
Stjórn upptöku: Viðar Vik-
ingsson. Aður sýnt I Sjón-
varpinu I mars 1984.
2345 Fréttir (dagskrárlok
Kempff, Henryk Szering og
Pierre Fournier leika.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Staldraö við á Arskógs-
strðnd. Jónas Jónasson talar
við fólk. 1. þáttur. (RUVAK)
23.15 Nútlmatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
2345 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
15. mal
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
16.00—17.00 Voröldln
Þáttur um tómstundir og úti-
vist.
Stjórnandi: Júlfus Einarsson.
17.00—18.00 Úr kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eða samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja mlnútna fréttir klukk-
an: 11.00, 15.00, 16.00 og
17.00.