Morgunblaðið - 21.05.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.05.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985 Morgunblaöiö/RAX Frá upphafi fréttamannafundarins. TaliA frá vinstri: Gunnar S. Björnsson, Bragi Hannesson, Ólafur DavíAsson, Gísli Benediktsson og Jón Magnússon. 50 ár frá stofnun Iðnlánasjóðs: Ráðstöfunarfé 560 milljónir á þessu ári IÐNLÁNASJÓÐUR er 50 ára á þessu ári.Samkvsmt lögum er tilgangur lAnlánasjóAs aA styðja íslenskan iAnaA með hagkvemum stofnlánum, sem veitt eru til véla- og tækjakaupa fyrir iAnaAinn, til byggingar verksmiAju- og iAnaAarhúsa, endurskipulagningar iAnfyrirtækja, hagrsAingar í iAnrekstri og til framkvsmda er auka hollustu og öryggi og bsta starfsumhverB á vinnu- stöðum. Þeir, sem greiða gjald til IðnlánasjóAs af rekstri sínum, hafa forgang að lánum úr sjóðnum. Á fundi með fréttamönnum kom fram að veruleg »ukning varð á eft- irspurn eftir lánum úr sjóðnum seinni hluta ársins 1983. Sú þróun hefur haldið áfram og hefur sjóður- inn þurft að synja mörgum láns- beiðnum, sem undir vénjulegum kringumstæðum hefðu fengið já- kvæða afgreiðslu. Annað kom einn- ig til, því að á sama tíma var árlegt framlag ríkissjóðs fellt niður. Ráðstöfunarfé Iðnlánasjóðs er áætlað 560 milljónir króna á þessu ári. Á fyrstu 4 mánuöum þess hefur þegar verið sótt um lán úr sjóðnum að fjárhæð 400 milljónir króna. Tal- ið er að ef ekki koma heimildir til lántöku sjóðsins til endurlána verði að lækka lánshlutfall og synja mörgum umsækjendum um lán. Bú- ist er við að á þessu ári verði sótt um lán úr sjóðnum samtals að upp- hæð einn milljarður króna. Tap á rekstri Iðnlánasjóðs árið 1984 varð 70 milljónir króna. Þar af tapaði sjóðurinn 62 milljónum í gengislækkuninni í nóvember 1984. Tapinu hefur sjóðurinn reynt að mæta með vaxtahækkunum. Stjórn sjóðsins hefur sett sér það markmið að ekki verði gengið á eigið fé hans og íhugar hún nú leiðir til að draga úr áhættunni af gengissveiflum. Eigið fé sjóðsins var 410 milljónir króna í árslok 1984. Árið 1984 var Iðnlánasjóði falið að taka yfir verkefni Iðnrekstrar- sjóðs, sem þá var lagður niður. Stofnuð var ný deild við sjóðinn sem nefnist vöruþróunar- og markaðsdeild. Viðfangsefni deild- arinnar er að efla vöruþróun, örva nýsköpun og styðja markaðsleit og markaðssetningu íslenskrar iðnað- arvöru. Ráðstöfunarfé á þessu ári verður um 70 milljónir króna. Helmingur þess er fengið með skattlagningu iðnfyrirtækja, en ríkissjóður leggur til 28 milljónir. Iðnlánasjóður er i umsjá Iðnað- arbanka Islands. Bragi Hannesson bankastjóri annast daglega fram- kvæmdastjórn en bankastjórar Iðn- aðarbankans eru framkvæmda- stjórar sjóðsins. Iðnaðarráðherra skipar þrjá menn i stjórn sjóðsins. Þeir eru Jón Magnússon lögfræð- ingur, formaður stjórnarinnar, Ólafur Davíðsson framkvæmda- stjóri og Gunnar S. Björnsson formaðu Meistarasambands bygg- ingarmanna . Skrifstofustjóri er Gísli Benediktsson. í tilefni 50 ára afmælis Iðnlána- sjóðs hefur stjórn hans gefið út af- mælisskýrslu, þar sem greint er frá sögu sjóðsins auk annarra upplýs- inga. Ákveðið er að veita fjármagni til iðnaðarverkefnis sem Félag ís- lenskra iðnrekenda og Landssam- band iðnaðarmanna telja brýnt að ráðast í. Þá mun stjórnin standa fyrir fundahöldum um iðnþróun og fjármögnun í iðnaði og kemur Olav Grue, framkvæmdastjóri danska iðnlánasjóðsins, hingað til lands í september. Þá ætlar stjórnin að beita sér fyrir kynningu á starfsemi Iðnlánasjóðs og hlutverki hans í þróun íslensks iðnaðar. 50 % f jölgun vín- sölustaða áVÁ ári - 87 % unglinga neyta áfengis SÍÐUSTU þrjú misseri hefur þeim stöðum þar sem áfengissala fer fram á íslandi fjölgaA um nærfellt 50%. Nærfellt 87 % íslenzkra unglinga á aldrinum 15—20 ára neyta áfengis, rúm 31% nota tóbak og rúm 18% nota kannabis- efni að einhverju marki. Fleiri stúlkur en piltar reykja á þessum aldri en piltar reykja þó talsvert fleiri vindlinga að jafnaði en stúlkurnar. Yfirleitt byrja unglingar aö reykja á aldrinum 14—17 ára en ætla má að 5—9% unglinga hefji reykingar 13—14 ára eða jafnvel yngri. Þessar upplýsingar komu fram á ráðstefnu Sambands íslenzkra sveitarfélaga um varnir gegn áfengis- og fíkniefnum sem hófst í Reykjavík I gær, en í máli dr. Guð- jóns Magnússonar, sem gegnir starfi landlæknis, kom m.a. fram varðandi áfengis- og fíkniefna- neyzlu unglinga, að milli 20 og 30% unglinga á Reykjavíkursvæð- inu teldu sig geta komizt yfir kannabisefni samdægurs ef því væri að skipta, ef marka mætti umfangsmikla könnun sem gerð var meðal unglinga í fyrra. Könnun sú sem hér um ræðir tók til tæplega 3 þúsund nemenda í unglingaskólum um land allt, en þátttakendur voru um 20% allra skólanema á aldrinum 15, 17 og 19 ára. 80% skiluðu svörum og verð- ur því að teljast að hér sé um að ræða marktækar niðurstöður. Spurt var um neyzlu áfengis, tób- aks, kannabisefna, lyfja og um „sniff", sem svo er nefnt. Einnig var spurt um félagslega aðstöðu og afstöðu til vímuefna. Lítill munur er á notkun tóbaks milli landshluta. Á Reykjavík- ursvæðinu nota 33,4% unglinga tóbak en 27,8% annars staðar á landinu. Um þriðjungur ungl- inganna, sem þátt tóku í könnun- inni, kváðu foreldra sína reykja og var þar nokkuð jafnt á komið með mæðrum og feðrum. í ljós kom að áfengisneyzla unglinga er almenn en 86,6% þeirra sem könnunin náði til neyta áfengis að marki. Milli 60 og 80% sögðust hafa neytt áfengis á síð- „Til hagsbóta fyrir alla aðila að greiða laun hálfsmánaðarlega" - segir Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu hf. í VELVAKANDA sl. miðvikudag skrifar „launþegi“ um ágæti þess fyrir- komulags að greiða starfslaun hálfsmánaðarlega, eins og gert sé hjá fyrir- tækinu Heklu hf. Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu hf., var í fram- haldi af þessu inntur eftir því hversvegna þetta fyrirkomulag hefði verið tekið upp og hvernig það hefði reynst fyrir starfsfólkið og fyrirtækið. „Þegar við tókum tölvu í notk- un árið 1975, hófum við að greiða starfsfólki fyrirtækisins sem var á mánaðarlaunum, hálfsmánað- arlega, þar sem við töldum að það yrði til hagsbóta fyrir alla aðila, bæði starfsfólkið og fyrirtækið," sagði Ingimundur. „Við sjáum svo sannarlega ekki eftir því nú að hafa tekið upp þetta fyrir- komulag, það hefur reynst mjög vel og starfsfólkið er mjög ánægt með það. Ég tel að með þessum hætti sjái starfsfólkið síður ástæðu til að óska eftir fyrirframgreiðslu launa sem mjög margir veigra sér líka við.“ „Bréfritari komst réttilega að orði í Velvakanda er hann sagði að hér miðaðist allt við mánaða- mót og svo að segja öll verslun og viðskipti færu fram í fyrstu viku hvers mánaðar. Ég tel að hér myndi skapast mun meira jafn- vægi ef öll laun yrðu greidd út hálfsmánaðarlega. Við teljum að þetta sé ólíkt betra fyrirkomulag en það sem við höfðum áður og við munum örugglega hafa þennan háttinn á áfram," sagði Ingimundur Sig- fússon. ustu þremur vikum áður en könn- unin fór fram og rúmur helmingur á sl. sjö dögum. Um þriðjungur unglinga í 9. bekk grunnskóla kvaðst neyta áfengis tvisvar eða þrisvar í mánuði. Skv. könnuninni virðist tíðni áfengisneyzlu aukast eftir því sem unglingarnir eru eldri en tíðnin var heldur meiri utan Reykjavíkursvæðis en innan þess. Helztu ástæður þess að ungl- ingar neyta áfengis eru þær, að því er fram kom í svörunum, að „það kemur manni í gott skap“ og „ég losna við feimnina" — en al- gengustu ástæður þess að ungl- ingar neyttu ekki áfengis voru skv. svörunum, að áfengisneyzla væri skaðleg og að áfengi væri bragð- vont. Þá kom í ljós að piltar byrja fyrr að neyta áfengis en stúlkur. Unglingar á Reykjavíkursvæðinu byrja fyrr að neyta áfengis en unglingar í öðrum landshlutum. Þá gefa niðurstöðurnar til kynna að fólk byrjar að neyta áfengis sí- fellt yngra. Unglingarnir voru að því spurð- ir hvort um vandamál væri að ræða á heimilum þeirra vegna áfengisneyzlu. Um % svöruðu þeirri spurningu neitandi, rúm 16% kváðu svo vera stundum en um 6% sögðu oft um erfiðleika að ræða af þessari ástæðu. { erindi sínu á fyrrnefndri ráðstefnu rakti Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, það sem gert hefur verið á undanförnum tveim- ur árum til undirbúnings tillagna að stefnu hins opinbera í áfeng- ismálum í samræmi við þings- ályktunartillögu frá því í maí 1981, en hún grundvallaðist á því að dregið skyldi úr heildarneyzlu vínanda, skipulagðar rannsóknir, fræðsla og umræður um áfengis- mál stórauknar, skilgreind eðlileg meðferð áfengissjúklinga og að ríkisvaldið, sem verzlar með áfengi, skyldi vinna gegn ofneyzlu áfengis, m.a. með fræðslu og að- stoð við þá sem eiga við áfengis- vandamál að stríða. Ráðstefnan náði tilgangi - segir Þorleifur Einarsson jarðfræð- ingur um ráðstefnu Landverndar um Þingvelli — framtíð og friðun LANDVERND gekkst fyrir ráðstefnu um Þingvelli — framtíö og friðun á Hótel Valhöll á laugardaginn. Ráðstefnan hófst kl. 10 með því art Þorleifur Einarsson jarðfræðingur flutti setningarræðu. For- seti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, ávarpaði ráðstefnugesti og sírtan voru flutt erindi. Framsögumenn voru þeir Sig- urður Steinþórsson jarðfræðing- ur, Pétur M. Jónasson vatnalíf- fræðingur, Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur, Eyþór Ein- arsson formaður Náttúruvernd- arráðs, sr. Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður, Finnur Torfi Hjörleifsson lögfræðingur og Matthías Johannessen ritstjóri. Eftir hádegi fóru fram almennar umræður. Þorleifur Einarsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hann teldi að ráðstefnan hefði náð tilgangi sínum. „Þarna komu opinberir aðilar og ýmsir áhugamenn sem hafa oft á tíðum fjallað um Þingvelli. Rætt var saman I bróðerni og var þátttaka í umræðunum góð. Ég tel að þessar umræður hafi verið mjög gagnlegar. Þarna komu fram ýmsar hugmyndir sem m.a. gefa forsendur fyrir skipulagi Þingvalla sem nýlega var ákveðið að vinna að. 1 framsöguerindunum kom Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, f hópi ráðstefnugesta á Hótel Valhöll á laugardaginn. Morgunblaðid/Gautur Gunnarsson sínum ýmislegt óvænt í ljós, t.d. að ekki hefur verið unnið að fornleifa- uppgreftri á Þingvöllum nema einu sinni og það var fyrir 105 árum. Talað var um að lagfæra þurfi Lögberg, endurreisa Valhöll og þá ekki á sama stað og hún er nú. Einnig var rætt um að girð- ingar við sumarbústaði hindri umferð meðfram vatninu, en samkvæmt lögum er bannað að girða niður að vatnsbakka. Hugmyndir komu um að stækka þurfi friðlandið, auka friðunina og margt fleira. Alls komu um 130 manns, flestir sem láta sig Þingvelli og nágrenni einhverju skipta og ætti því þessi umræða að komast til skila," sagði Þorleifur að lok- um. Eins og áður segir hófst ráð- stefnan kl. 10 um morguninn og stóð hún til að ganga 6.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.