Morgunblaðið - 21.05.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLADIÐ, ÞRIPJUDAGUH 21. MAÍ1985
Minning:
Anna Arnfríður
Stefánsdóttir
Fædd 1. desember 1909
Dáin 29. janúar 1985
Nokkuð hefur tafist fyrir mér
að skrifa fáein minningarorð um
frænku mína og fyrrum velgjörð-
arkonu, Önnu Stefánsdóttur, er
bjó að Böggvisstöðum meðan ég
þekkti hana best, ásamt eftirlif-
andi manni sínum, Jóni Jónssyni
bónda og kennara.
n Anna var fædd að Völlum í
Svarfaðardal, hinum þjóðfræga
stað, er svo margir merkisprestar
hafa setið. Á sínum tíma, um 1200,
sat Guðmundur Arason hinn góði
Velli og löngu síðar séra Eyjólfur
Jónsson lærði, er ritaði annál
þann, sem við staðinn er kenndur.
Foreldrar Önnu voru Stefán
Arngrímsson frá Þorsteinsstöðum
(f. 18. júlí 1883 - d. 2. júní 1945)
og kona hans, Filippía Sigurjóns-
dóttir frá Gröf (f. 17. sept. 1875 —
d. 25. ágúst 1958). Þau Stefán og
Filippía voru bæði Svarfdælingar,
hann mikill myndar- og gáfumað-
ur, smiður góður. Ég sá Stefán
sjaldan og kynntist honum ekki,
enda var ég enn á unga aldri, er
hann andaðist. Filippíu frænku
minni kynntist ég aftur á móti vel,
er hún dvaldi í skjóli dóttur sinnar
og tengdasonar síðustu æviárin á
Böggvisstöðum. Filippía var við-
ræðugóð, snerpuleg, trúkona mikil
og vildi hverjum vel.
Stefán og Filippía fóru að búa
að Gröf árið 1913, og þar ólst
Anna upp. Á Gröf er landþröng
nokkur, bærinn stendur milli Hofs
og Brautarholts. Jörðin er þó
kostagóð og er búið þar með sóma
enn þann dag í dag. Inn og hátt
upp frá áðurnefndum bæjum rís
eitt stórfenglegasta fjall á Trölla-
skaga, heitir Rimar, en fram af
býlunum liðast áin um engjar
Svarfaðardals. Hér í þessu stór-
brotna umhverfi ólst Anna Stef-
ánsdóttir upp. Hún lifði tímamót,
eins og svo margir aðrir tuttug-
ustu aldar menn. Gamli timinn,
hvað tækni og búskaparhætti
varðaði, kvaddi um 1940, en hinni
nýi rann upp eftir að heimsstyrj-
öldinni lauk.
Þann 29. apríl 1934 giftist Anna
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Jóni Jónssyni. Hann er borinn og
barnfæddur Svarfdælingur. Ungu
hjónin bjuggu tvö ár að Völlum,
t
Ástkær eiginmaöur minn, faölr, tengdafaöir, afi og bróöir,
JÓHANNES MAGNÚSSON,
deildaratjóri,
Neshaga 4,
andaöist á heimili sínu 18. maí.
Ingveldur H. B. Húbertadóttir,
Húbert Nói Jóhanneason,
Sigrún Jóhanneadóttir,
Kriatin Síguröardóttir, Gunnar V. Jónaaon,
barnabörn og ayatkini.
t
Eiginmaður minn, faöir og tengdafaöir,
SIGURMUNDUR GUÐJÓNSSON,
Einarahöfn,
Eyrabakka,
andaöist í Sjúkrahúsi Suöurlands, laugardaginn 18. maí.
Ágúata Magnúadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Elginkona mín og móðir okkar,
(ELLA) HULDÍS INGADÓTTIR
fré Malarrifi,
lést í Landspitalanum 16. maí. Jaröarförin auglýst síöar.
Pétur Pétursson og börn.
L .6 ustelnar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
a S.HELGASONHF STEINSMKUA SKÉMMUVEGI 48 SM 76677
Tökum að okkur að rétta og
lagfæra legsteina í kirkjugörðum.
S S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
■ SKEMMLM33146 'iíMI 76677
en settu niður bú sitt að Gröf vor-
ið 1936. Jón gegndi á þessum árum
skólastjórastöðu við gagnfræða-
skólann á Siglufirði og dvaldi þar
ytra á veturna. Anna fór sjaldnast
með manni sínum til Siglufjarðar
og hvíldi þá ábyrgðin af stjórn
búsins að mestu á herðum hennar,
þótt hún ætti sér góða liðsvon þar
sem foreldrar hennar dvöldu hjá
henni.
Jón og Anna bjuggu að Gröf til
1947, en þá var heimilið orðið svo
þurftarfrekt, að stærri jörð og bú
þurfti til að framfleyta því. Hófu
þau hjón búskap að Böggvisstöð-
um, sem nú er í landi Dalvíkur.
cÞar var rýmra en í Gröf hvað
jarðnæði varðaði og þá ekki síður
hvað hýbýlakostinn áhrærði. Bæj-
arbyggingin var ein hin mesta í
dalnum. Þetta stóra hús var fullt
af lífi. Börn Jóns og önnu, frænds-
ystkini mín, eru þessi: Stefán,
Gunnar, Jón Anton, Helgi, Fil-
ippía, Gerður, Kristján Tryggvi,
Svanfríður og Hanna. Tveir elstu
synirnir eru fæddir að Völlum, en
tvær yngstu dæturnar að Böggv-
isstöðum. Öll eru systkinin búsett
á Dalvík, nema Gunnar, sem býr
að Brekku í Svarfaðardal og
Kristján, er flutti með fjölskyldu
sinni til Reykjavíkur árið 1984. Öll
hafa börn þeirra hjóna staðfest
ráð sitt og eiga afkomendur.
Það var á Böggvisstöðum, sem
ég kynntist önnu. Þar naut ég
hvað eftir annað greiða og gist-
ingar meðan ég átti enn heima að
Hlíð í Svarfaðardal. Svo vildi til,
að á unglingsárum og raunar leng-
ur, var ég mjög á faraldsfæti, uns
ég barst að fullu að heiman. Var
þá fyrsti áfanginn jafnan sá að
fara frá Hlíð niður í Böggvisstaði
og gista þar. Hlakkaði ég alltaf til
að hitta Önnu og Jón og þá ekki
síður til að eiga glaða stund með
frændsystkinum mínum. Liðu
kvöldin fljótt á hinu mannmarga
heimili. Ávallt mat ég það mikils,
þótt helst til seint sé að þakka nú,
að föðursystir mín, Soffía Sigur-
jónsdóttir, átti sér athvarf og
skjól hjá Önnu og Jóni bæði á
Böggvisstöðum og síðar á heimili
þeirra á Dalvík, eða þangað til líf
hennar var allt. Svo var einnig um
hálfsystur hennar, Filippíu, móð-
ur Önnu. Hún varð ekki viðskila
við dóttur sína og tengdason fyrr
en dauðinn kvaddi hana til brott-
farar. Af þessu má ráða að stór
fjölskylda átti heima á Böggvis-
stöðum og var það eitt fjölmenn-
asta heimili í Svarfaðardal þar
sem saman bjuggu í sátt og sam-
lyndi börn, unglingar, húsbændur
og aldurmenni.
Meðan Jón bjó að Böggvisstöð-
um stundaði hann kennslu við
Dalvíkurskóla. Eftir að hjónin
fluttu til Dalvíkur, kenndi hann
áfram. Bjuggu þau hjónin í húsi,
sem heitir að Sólgörðum, uns þau
vistuðust að Dalbæ, dvalarheimili
aldraðra, en þar dvelur Jón nú.
Hann veiktist alvarlega fyrir all-
mörgum árum, en hefur tekið
sjúkdómi sínum með mikilli karl-
mennsku.
Anna Stefánsdóttir var félags-
lynd kona. Hún var lengi virkur
meðlimur í kvenfélaginu Tilraun,
sem var stofnað í Svarfaðarda! ár-
ið 1915, og fyrst stýrt af Sólveigu
Eggerz, konu séra Stefáns Krist-
inssonar er sat staðinn frá 1901 til
1941. Anna var í stjórn félagsins
frá 1950—1960, en einmitt um
1960 skiptist félagið. Dalvíkurkon-
ur stofnuðu Vöku, en í sveitinni
starfaði Tilraun áfram og kaus
Anna að halda tryggð við sitt
gamla félag þótt hún ætti heima í
kaupstaðnum.
Árunum fjölgar síðan ég leitaði
heim til Böggvisstaða til gistingar
hjá frændfólki mínu, er ég var að
leggja af stað langvegu, eða koma
heim í dalinn úr fjarlægum stöð-
um. En eigi skyggir fyrir sólarsýn
minninganna, þótt árunum fjölgi.
Anna frænka mín tók ætið á móti
mér með sama hlýja viðmótinu,
hún var glaðbeitt og hispurslaus
og lítt var á henni að sjá, að hana
mæddi erfiðið við að stýra hinu
mannmarga heimili. Börnin voru
alltaf kát og kraftmikil með af-
brigðum. Jón var kletturinn og
kjölfestan, svipmikill húsbóndi og
virtur vel.
Síðustu æviárin átti Anna við
vanheilsu að stríða, sykursýki á
háu stigi. En óbuguð virtist mér
hún vera, er ég sá hana í síðasta
sinn fyrir þremur árum á heimili
sonar síns að Sólgörðum. Anna
lést á Sjúkrahúsi Ákureyrar eftir
skamma legu 29. janúar síðastlið-
inn.
Þessi minningarorð eru síðar
samin en vert væri, og eigi af
þeirri íþrótt er ég vildi. Þar sem
Anna var unnandi bókmennta og
upplesari svo góður að orð fór af,
er við hæfi að kveðja hana með
versi úr sálmi Einars Benedikts-
sonar.
Af elífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri’ en auga sér
mót öllum faðminn breiðir.
t
Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR,
Dalbraut 23,
veröur gerö frá Laugarneskirkju miövikudaginn 22. mai kl. 13.30.
Þeir sem vildu minnast hans eru vinsamlegast beðnir aö láta bygg-
ingasjóö KFUM og K í Reykjavik njóta þess.
Helga Jónsdóttir,
Magnús Guömundsson, Áslaug Sigurbjörnsdóttir,
Pétur Guömundsson, Steinunn Olafsdóttir,
Ragna Guömundsdóttir Moyer, Helga Júliana Vilhelmsdóttir
og barnabörn.
t
Móöir min og tengdamóöir,
(GUDJÓNÍA) ÞÓRA KRISTINSDÓTTIR,
Bogahlíö 7,
veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 23.
maí kl. 15.00.
Bergljót Einarsdóttir,
Rútur Eggartsson.
t
Eiginkona min, móöir og tengdamóöir,
GRÓA JÓNSDÓTTIR,
Dalbraut 21,
andaöist í Borgarspítalanum 19. maí.
Útförin veröur gerö frá Áskirkju þriöjudaginn 28. maí kl. 13.30.
Kristjén Jóhannsson,
börn og tengdabörn.
Kristján Jóhannsson
t
Innilegar þakkir til allra sem auösýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför eiglnmanns mins og sonar,
BENEDIKTS Þ. SNÆDAL,
Fífuhvammi 3,
Egilsstööum.
Fyrir hönd aöstandenda,
Þórdís Jörgansdóttir,
Þórdís Kristjénsdóttir.
t
Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vinarhug vegna andláts
SVÖVU GUÐBJARGAR GUOJÓNSDÓTTUR,
Merkisteini,
Stokkseyri,
Guörún Arnfinnsdóttir, Helgi Kristmundsson,
Guömunda Arnfinnsdóttir, Guömundur Einarsson,
barnabörn
og aörir vandamenn.
Blömastofa
fíiðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
tii kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öil tilefni.
Gjafavörur.
r O.wt