Morgunblaðið - 21.05.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.05.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985 Enginn slítur þau bönd Blá augun bíða við gluggann. Pabbi ég er að gefa þér blóm. Afundinn sting ég þreyttum fingrum út í vorið gríp sóldrukkið blómið og kasta því í daunillan kaffibotlann. Grátur barnsins þagnar við ritvélarkliðinn. Þessar fátæklegu ljóðlínur seytluðu innum gluggann minn á: Degi Ijóðsins, og segi menn svo að umhverfið hafi ekki áhrif á sálartötrið. Fyrir mér var þessi dagur sem há- tíðisdagur. Vor í lofti í fleiri en einum skilningi og mér leið eins og fyrrum heima á Norð- firði, þegar íslenski fáninn stóð grafkyrr yfir sundlaug- inni, þar sem bæjarstjórnin þreytti reiptog milli bakka eða aflakóngar kepptu í stakka- sundi. Og svo var drukkið súkkulaði á eftir með drifhvít- um rjóma sem var eins og skýjaflókarnir á fagurbláum himninum. Kannski verður slíkri stemmningu ekki lýst nema í ljóði? Þessu brothætta verkfæri andans sem sumir óttast nú að lendi undir járn- beltum myndvæðingarinnar. En ég spyr á móti: Hvert eig- um við að leita með þær rjómakenndu hugsanir er stundum glitra á himni sálar- innar, þegar ljóðið er ekki til staðar? Getum við filmað þessar hugsanir? Ekki kann ég svar við þeirri spurningu, en eitt er víst að þeir menn er hyggjast myndvæða ljóðið, verða að vera engu síðri skáld, en þeir menn er nú beita fyrir sig orðum í leit að súkkulaði- ilmi sálarinnar. Áhrif umhverfisins Ég sýndi ykkur hér í upp- hafi, lesendur góðir, hvílík áhrif: Dagur Ijóðsins hafði á þann er hér stýrir penna. Sá skáldskapur er þar spratt fram er vissulega ekki merki- legur, en hvað gæti ekki gerst meðal þjóðarinnar, ef dögum ljóðsins fjölgaði? Vafalaust fjölgaði leirskáldum til muna en ef til vill sætu einhver gullkorn eftir á gjárbotni. Hér gæti sjónvarpið okkar vissu- lega komið til hjálpar. Þar birtast nú dag hvern á skján- um huggulegar stúlkur, er hafa þann undarlega starfa með höndum að þylja dag- skrána. Skiptir þá engu máli þótt dagskráin hafi ljómað skýru letri sekúndubroti áður en blessuð fraukan birtist. Finnst sumum sem þessi enda- lausi dagskrárlestur mætti að skaðlausu víkja og þess í stað gætu blessaðar stúlkurnar til dæmis lesið Ijóð. Væri síðan ekki úr vegi að birta við og við myndskreytingar með Ijóðun- um og kynna þannig í senn ljóðskáldið og myndskáldið. Hvað segiði um þessa hug- mynd? Ölafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S JÓN VARP „Det er et yndigt land“ tækni og vísindi“ ■I „Det er et ynd- 35 >gt land“ nefn- “ ist þáttur um danska tónlist, sem er á dagskrá rásar 1 i kvöld klukkan 22.35. Stiklað verður á stóru í sögu danskra tónskálda frá Buxtehude allt fram til Carl Nielsen og yngri tónskálda svo sem Per Nörgaard. Leikin verða sönglög og styttri verk fjölmargra tónskálda fyrir utan þau fyrrnefndu. I þættinum verður einnig leikinn í heild sinni blásarakvint- ett eftir Carl Nielsen en það er líklegast einhver þekktasti blásarakvintett sem sögur fara af. Umsjónarmaður þátt- arins er Sigurður Einars- „Nýjasta ■i „Nýjasta tækni 50 og vísindi" er á — dagskrá sjón- varps í kvöld klukkan 20.50 í umsjá Sigurðar H. Richter. Sigurður sagði í samtali við Mbl. að í kvöld yrðu sýndar átta myndir. Tvær þeirra eru frá Bandaríkjunum og sex eru frá Bretlandi. „Fyrsta myndin er um orkuvinnslu úr iðrum jarðar — hvernig hægt er að nýta gufuorku til að framleiða rafmagn á svip- aðan hátt og við erum að gera við Kröflu. Sagt er frá orkuverum í Kali- forníu á svæði sem kallað er Geysers. Næst kemur mynd um hreinsun vatns úr sjó, en vatnsskortur er víða orð- inn vandamál. Bæði grunn- og yfirborðsvatn hefur farið minnkandi. Nú eru komnar svokallað- ar hálfgegndræpar himn- ur. Sjórinn er pressaður f gegn um himnurnar og skilur himnan úr sölt og önnur efni úr sjónum. Þriðja myndin fjallar um skjótar eldvarnir. Þær byggjast á skynjurum, sem skynja útfjólublátt ljós. Um leið og skynjar- arnir verða elds varir opna þeir slökkvitæki og þannig geta þeir kæft eld í fæðingu. Næst verður fjallað um myndatöku með hátíðni- hljóðum en það eru hinir svokölluðu sonar, sem ófrískar konur fara gjarn- an í. Sonar-tæknin er til- tölulega hættulaus, en röntgenmyndatöku fylgir viss hætta. Fimmta myndin segir frá útbúnaði sem kallast getur einkaskíðalyfta. Oft þurfa menn að bíða lengi eftir að komast í lyftuna, en nú hefur verið fram- leidd einskonar fallhlíf sem skíðamenn geta notað til að láta blása sér upp brekkurnar. Sjötta myndin fjallar um fjarskipti neðansjáv- ar, en það hefur verið vandamál fyrir t.d. kafara að geta ekki talað saman í vatni nema að hafa með- ferðis kapla á milli sín. Síðan kemur mynd um rannsóknir á hávaða- mengun. Sagt er frá rann- sóknarstofu í Frakklandi, sem rannsakar sérstak- lega hávaðamengun í heil- um hverfum. Lokamyndin fjallar um sæljón, sem bandaríski sjóherinn hefur tekið í þjónustu sína. son. Carl Nielsen tónskáld. „Þjóðlagaþáttur“ - Dubliners í heim- sókn á rás 2 ■■ Þjóðlagaþáttur 00 Kristjáns Sig- —— urjónssonar er á dagskrá rásar 2 í dag klukkan 16.00 og stendur hann yfir í klukkutíma að vanda. Kristján sagði í samtali við Mbl. að hljómsveitin The Dubliners, sem var hér á landi voru staddir yfir helgina, hefði litið inn á rásinni sl. fimmtu- dag. „Við settumst inn í stúdíóið og spjölluðum um heima og geima í um 20 mínútur. Eg ætla því að nota það efni í dag. Síðan spila ég lög með hljóm- sveitinni og öðrum írskum þjóðlagahljómsveitum, en The Dubliners eru írskir." Hljómsveitin hélt hér tónleika sl. fimmtudags- og föstudagskvöld, en þeir héldu aftur til síns heima ígær. Kristján sagði að The Dubliners væru með frægustu þjóðlaga- hljómsveitum í heimi. „Þeir eru búnir að starfa saman í ein 23 ár, fjórir saman en í fyrra lést einn aðalmaðurinn hjá þeim og eru þeir nú að ná sér aftur á strik eftir þann missi." ÚTVARP ÞRIDJUDAGUR 21. mal 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.20 Leikfimi. Tilkynningar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þattur Valdimars Gunnarssonar frá kvðldinu áður. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Arni Einars- son talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Bláa barnið" eftir Bente Lohne. Sigrún Björnsdóttir lýkur lestri þýöingar sinnar (12). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þing- fréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöur- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 10.45 „Ljáöu mér eyra.“ Málmfrlður Sigurðardóttir á Jaöri sér um þáttinn. (RÚV- AK). 11.15 Við Pollinn. Umsjón: Gestur E. Jónas- son. (RÚVAK). 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12J0 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.20 Barnagaman. Umsjón: Sigrún Jóna Krist- jánsdóttir. 13.30 Leikið af nýjum erlendum hljómplöfum. 14.00 „Sælir eru synduglr" eftir W.D. Valgardson. Guö- rún Jörundsdóttir les þýö- ingu slna (12). 14.30 Miödegistónleikar. Fllharmonlusveitin „Humgar- ica" leikur „ Marosszéker"- dansa eftir Zoltán Kodálý; Antal Dorati stjórnar. 14j45 Upptaktur. — Guömundur Benedikts- son. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16J0 Slödegistónleikar. a. Flladelfluhljómsveitin leik- ur Spánska rapsódlu eftir Maurice Ravel; Riccardo Muti stjórnar. 19.25 Vinna og verömæti — hagfræöi fyrir byrjendur. Fjóröi þáttur. Breskur fræöslumynda- flokkur I fimm þáttum sem kynnir ýmis atriöi hagfræöi á Ijósan og lifandi hátt, m.a. meö teiknimyndum og dæmum úr daglegu Iffi. Guöni Kolbeinsson þýöir og les ásamt Lilju Ðergsteins- dóttur. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20J30 Auglýsingar og dagskrá. b. Hljómsveitin Fllharmonla leikur „En Saga" op. 9 eftir Jean Sibelius; Valdimir Ashkenazy stjórnar. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Slödegisútvarp. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til- kynningar. Daglegt mál. Sig- uröur G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 A framandi slóöum. Oddný Thorsteinsson segir frá Arabalöndum og leikur þarlenda tónlist. Fyrri hluti. (Aöur útvarpaö 1982). 20.30 Llftækni frá leikmanns- sjónarmiöi. SJÓNVARP ÞRIDJUDAGUR 21. maí 20.40 Kvikmyndahátlðin 1985. Umsjón og stjórn: Sigurður Sverrir Pálsson og Arni Þór- arinsson. 20.50 Nýjasta tækni og vlsindi. Umsjónarmaður Sigurður H. Richter. 21.25 Veröir laganna. Vonarpeningur. Bandarlskur framhalds- myndaflokkur um Iðgreglu- störf I stórborg. Aðalhlutverk: Daniel J. Trav- anti, Veronica Hamel og Sigurður H. Þorsteinsson uppeldisfræðingur flytur er- indi. 21.00 Islensk tónlist. a. Nlu sðnglög eftir Þorkel Sigurbjörnsson við kvæöi úr „Þorpinu" eftir Jón úr Vör. Ólöf Kolbrún Haröardóttir syngur viö undirleik höfund- ar. b. „Sumarmál" eftir Leif Þór- arinsson. Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir leika á flautu og sembal. 21.30 Utvarpssagan: „Langferö Jónatans" eftir Martin A. Hansen. Birgir Sig- urðsson rithöfundur les þýð- ingu slna (10). I Michael Conrad. Þýöandi Bogi Arnar Finnbogason. 22.15 Staöa Ijóðsins. Umræðuþáttur I beinni út- sendingu I tilefni af Degi Ijóðsins I Iðnó 18. þ.m. Fjall- aö veröur um stööu Ijóðsins I Islensku nútlmasamfélagi. Fjðgur Ijóðskáld og bókaút- gefandi taka þatt I umræö- unum en þeim stýrir Matthl- as Viöar Sæmundsson, bók- menntafræöingur. 23.15 Fréttir I dagskrárlok. 22.00 Tónleikar. 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22J5 „Det er et yndigt land." Dönsk tónlist fyrr og nú. Sig- uröur Einarsson sér um þátt- inn. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 21. mal 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 14.00—15.00 Vagg og velta Stjórnandi: Glsli Sveinn Loftsson. 15.00—16.00 Með slnu lagi Lög leikin af Islenskum hljómþlötum. Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00—17.00 Þjóölagaþáttur Stjórnandi: Kristján Sigur- jónsson. 17.00—18.00 Frlstund Unglingaþáttur. Stjórnandi: Eövarö Ingólfs- son. Þriggja mlnútna fréttir sagö- ar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.