Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 37

Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAt 1985 37 Skagfirðingar áfrýjudu ítölu Eyvindarstaðaheiðar Eru þó vongóðir um að samningar náist Hinn slasaði Sovétmaður fluttur í Borgarapítalann. Morgunbladið/Júlíus Varnarliðið sótti slasaðan sovéskan sjómann á haf út Meiðsli mannsins reyndust ekki eins alvarleg og óttast var HREPPSNEFNDIR Seylu- og Lýtingsstaftahreppa í Skaga- firði hafa áfrýjað úrskurði ítölunefndar fyrir Eyvindar- staðaheiði. í gær rann út áfrýj- unarfrestur og sendi oddviti Seyluhrepps þá skeyti til land- búnaðarráðuneytisins þar sem yfirítölumats er óskað, en þaö hafði Lýtingsstaðahreppur þeg- ar gert. Óskir hreppanna eru með því fororði að þær verði dregnar til baka ef viðunandi samkomulag um framkvæmd ítölunnar næst. Samningaum- leitanir hafa að undanförnu átt sér stað og voru forsvarsmenn Skagfirðinga sem rætt var við í gær vongóðir um að samningar gætu tekist. Andrés Arnalds gróðureftir- litsmaður Landgræðslunnar var fyrir norðan i síðustu viku og lagði ákveðinn samkomulags- ÞYRLA Varnarliðsins sótti á sunnudag slasaðan sjómann um borð í sovéska skipið Ostrye, sem var um 240 mflur suð- vestur af Reykjanesi. Flogið var með manninn til Reykjavíkur og hann lagður í sjúkrahús. Sovéski sjómaðurinn var að vinnu I lest skipsins þegar fiskkassastæða féll yflr hann. Hann hlaut áverka á kviði og brjóstholi og var óttast aö hann hefði hryggbrotnað og hlotið mænuskaða. Við læknisrann- sókn kom í Ijós, að áverkar mannsins, sem er 35 ára gam- all, voru minni en óttast var — hann reyndist hvorki hryggbrot- inn né mænuskaddaður. Það var um tvöleytið aðfara- nótt sunnudagsins, að Slysa- varnafélagi íslands barst hjálp- arbeiðni frá Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, sem er umboðs- aðili sovéskra skipa hér á landi. Tilkynnt var um slasaðan sjó- mann um borð í Ostrye. Meiðslin voru talin það alvarleg, að ástæða þótti að sækja manninn. Veðurskilyrði voru góð og var ákveðið að þyrla Varnarliðsins sækti manninn. Þyrlan lagði upp frá Keflavík- urflugvelli klukkan fimm um nóttina með lækni innanborðs. Hercules-flugvél fylgdi þyrlunni. Þegar vélarnar nálguðust sov- Mallorkaveður í Skagafirði Bae, Ilöróaströnd 20. maf Hér í Skagafirði hefur verið sú ein- munablíða að líkt hefur verið við Mall- orkaveður, 15-20 gráður jafnvel í for- sælu marga daga. Sumir eru þó jafnvel farnir að óska eftir smi rigningu svo vel grói. Túnin eru þó orðin vel gr»n. Geidneyti sér maður jafnvel úti þó nægar séu heybirgðir. Víða er búið að setja niður kart- öflur og er það viku fyrr en á sfðasta ári þó að þá viðraði vel. Sauðburður hefur gengið vel og er hann langt kominn eða jafnvel búinn. Óvenju- mikið hefur verið veitt af silungi í vetur og vor í vötnum Skagafjarðar og virðist að einhver framtíðarveiði sé og einnig markaður. Lífríki Skagafjarðar hefur ekki verið jafn gott í fjölda ára, sjórinn er hlýrri en áður og áta mikil. Fiskur er einnig töluverður hér á innmiðum Skaga- fjarðar, sem hefur ekki verið undan- farin ár. Grásleppuveiði hefur verið góð og æðarvarp kemur út með betra móti. Allt er þetta til að gefa góðar vonir um bjarta og góða tíma hér í Skagafirði. Björn éska skipið versnuðu aðstæður mjög, svartaþoka lagðist yfir. Þyrlan fékk eldsneyti frá Herc- ules-vélinni og biðu menn eftir að þokunni létti. Þegar það ekki gerðist var flogið til Keflavíkur. Klukkan 11.15 lagði þyrlan aftur upp og þrátt fyrir fremur erfiðar aðstæður komust sjúkraliðar um borð í sovéska skipið um klukkan hálfeitt og hlúðu að hinum slas- aða sjómanni. Maðurinn var hífður um borð í þyrluna rétt um klukkan eitt og flogið áleiðis til Reykjavíkur. Þyrlan lenti við Borgarspítalann klukkan 14.25. og þar var gert að sárum mannsins. Líðan hans er góð eftir atvikum. Launamismunur greiddur út: 45 milljónir kr. til BHMR-félaga grundvöll fyrir heimamenn þar sem gert er ráð fyrir fjölgun ærgilda á heiðinni vegna lands sem ekki var tekið með í ítöl- unni, svo sem uppgræðslu Landsvirkjunar, en >hægt er að nýta næstu árin. „Ég vona svo sannarlega að samkomulag náist," sagði Páll Dagbjartsson í Varmahlíð, hreppsnefndarmaður í Seylu- hreppi, „hreppsnefndin tók já- kvætt í hugmyndir Landgræðsl- unnar um samkomulag og ákvað að reyna að ná samkomulagi. En það verður ekki á öðrum grund- velli en þeim að hross verða rek- in á heiðina." Sigurður Sigurðs- son á Brúnastöðum, oddviti Lýt- ingsstaðahrepps, var einnig vongóður um að samningar gætu tekist. Hann sagði að áberandi samstaða væri um að fara eftir beitartakmörkunum og menn stæðu nú í viðræðum um þau mál. Ríkisstarfsmenn í BHM fengu í gær greiddan launa- mismun skv. niðurstöðu Kjara- dóms í fyrra mánuði. Kjaradóm- ur úrskurðaði um laun BHMR-félaga frá 1. mars en fram til þessa hafa ríkisstarfs- menn í BHM fengið laun greidd eins og þau voru fyrir þann tíma. Samtals voru greiddar tæpar 45 milljónir króna, sem skiptast mjög misjafnlega niður á þessa 3000 ríkisstarfsmenn, að sögn Sigrúnar Ásgeirsdóttur launa- skrárritara. Einfalt meðaltal er um 14 þúsund krónur á mann en mjög margir fá talsvert meira, aðrir talsvert minna. Mismunur þessi hefur ekki verið greiddur út fyrr þar sem veruleg vinna hefur verið að skipa fólki í hina nýju flokka, sem Kjaradómur ákvað fyrr í vetur. £> INNLENT Góð tíð í Mý- vatnssveit Björk, Myvatnssveit. HÉR í Mývatnssveit hefur verið ágæt tíð að undanförnu, hiti farið í og yfir 20 stig, gróðri hefur fleygt fram og tré að verða laufg- uð, jörð er þó að verða fullþurr og væri kærkomið að fá úrkomu. Sauðburður stendur nú sem hæst og ekki vitað annað en að hann, hafi gengið vel og þegar eru sumir farnir að sleppa fé á fjall. ts fór ekki af Mývatni fyrr en um miðjan maí. — Kristján SUM ARN AMSKEIÐ 28. maí — 13. júní 3ja vikna 4x í viku eöa 2x í viku. • Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. • Morgun- dag- og kvöld- tímar. • Lausir tímar fyrir vakta- vinnufólk. • Sturtur — Sauna — Ljós — Vigtun — Mæling. • 50 mín. kerfi JSB. Allir finna flokk viö sitt hæfi í Suðurveri. Leitiö uppl. um flokk fyrir framhald, byrjendur eöa ró- legri æfingar. GJALD: 2x í viku kr. 960.- 4x í viku kr. 1.700.- Næsta námskeiö: 18. júní — 27. júní 2ja vikna 4x í viku. 28. maí — 6. júní 2ja vikna námskeiö 3x í viku 50 mín. tímar 9.15—13.30. 17.30— 18.30, 19.30— 20.30. GJALD KR. 960.- Ath.: Sæluvika í Bol- holti 7.—13. júní. 80 mín. hörku púl og svitatímar. 25 mín. Ijós, heilsudrykkur í setustofu á eftir. GJALD KR. 1.500.- LJÓSASTOFAJSB ER í BOLHOLTI Hinar geysivinsælu 25 mín. Sontegra-perur. Tímapantanir í síma 36645. innritun Suðurveri sími 83730 frá kl. 9.00—20.00 Innritun í Bolholti sími 36645 Sigrun Líkamsrækt JSB

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.