Morgunblaðið - 21.05.1985, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.05.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985 45 Leikstjórarnir Benedikt Árnason og Ken Oldfield og AAaHeikkonurnar, Carol Nielsson og Sigríður Þorvaldsdóttir. Pilmi Gestsson og fleiri dansarar i aefingu. Þjóóleikhússtjóri, Gísli Alfreðsson, fylgjast með æflngu. Söngleikurinn Chicago á fjölum Þjóðleikhússins: Saga af ástríðumorði og fjölmiðlafári Alls koma um 30 manns fram í sýningu Þjóð- leikhússins i Chicago. Þarna er verið að lesa textann saman. Chicago árið 1924 Tvær stúlkur sitja í fangelsi, bið- ar ikærðar fyrir að myrða elskhuga sína. Þær eru svo fagrar og heill- andi, að fjölmiðlar gera sér mat úr örlögum þeirra, úr verður heilmikið fjölmiðlafir og öll þjóðin stendur i öndinni af eftirvæntingu meðan rétt- arhöldin fara fram. Stúlkurnar eru klókar, gera sér mat úr græðgi fjöl- miðlanna og setja i svið leiksýningu til að vinna almenning og kviðdóm- cndur i sitt band. Tveimur rainuð- um síðar eru þær sýknaðar og yflr- gefa svartholið, frjilsar ferða sinna. Eitthvað á þessa leið er at- burðarásin í söngleiknum Chic- ago, sem Þjóðleikhúsið frumsýnir nk. föstudag, 24. maí. Söngleikur- inn er eftir leikstjórann Bob Fosse, textahöfundinn Fred Ebb og tónskáldið John Kander, en þeir unnu verkið upp úr sam- nefndu leikriti blaðakonunnar Maurine Dallas Watkins. Leikrit Watkins er byggt á raunveru- legum atburðum sem urðu út af frægu sakamáli í Chicago árið 1924, sem hún fylgdist grannt með og skrifaði um sem fréttamaður. Leikritið var frumsýnt árið 1926 og naut mikilla vinsælda í New York, en Chicagobúar tóku því fá- lega. Hinar slæmu undirtektir i Chicago, borg sjálfra atburðanna, urðu til þess að Watkins ákvað að banna að leikritið yrði tekið aftur til sýninga, en þegar hún lést leyfðu erfingjar hennar sölu á sýningarréttinum, og ofannefndir höfundar söngleiksins tryggðu sér réttinn. Þann 3. júní 1975 var söngleikurinn Chicago frumsýnd- ur í New York, náði gífurlegum vinsældum og hefur síðan verið sýndur víða um heim. FólkiA á bak við uppfærslu Þjódleikhússins Til að setja Chicago á svið í Þjóðleikhúsinu hafa gestir komið til starfa frá Bretlandi, sem allir hafa unnið verkefni fyrir Þjóð- leikhúsið áður. Það eru þeir Kenn Oldfield, leikstjóri og dansahöf- undur, en hann og Benedikt Árna- son leikstýra verkinu, Robin Don, sem sér um leikmynd og búninga ásamt Guðrúnu Sigríði Haralds- dóttur, og útsetjarinn Terry Davi- es, en hann og Agnes Löve hafa yfirumsjón með tónlistinni, sem 14 manna hljómsveit leikur. Alls koma um 30 leikarar og dansarar fram í sýningunni, en með stærstu hlutverkin fara Sig- ríður Þorvaldsdóttir, Carol Niel- sen, Róbert Arnfinnsson, Margrét Guömundsdóttir, Pálmi Gestsson og Sigurður Sigunónsson. Þýðing- una gerði Flosi Olafsson, en lýs- ingin er í höndum Kristins Daní- elssonar. Sagan á bak við leikritið Hinir sannsögulegu atburðir sem leikritið og söngleikurinn byggja á eru svo ótrúlegir og flóknir, að menn þurfa að leiða hugann að því ástandi sem ríkti i Chicago á þriðja áratugnum til að geta kyngt því að þeir hefðu raunverulega átt sér stað — þeirri Chicago sem virtist nær eingöngu byggð byssubófum, melludólgum, gleðikonum og æsifréttariturum, segir í fréttatilkynningu Þjóð- leikhússins, þar sem sögunni á bak við verkið er lýst: Einn vordag árið 1924 skýtur frú Beulah Annan, ung og ægifög- ur kona, elskhuga sinn, Harry Kolstad, í bakið, fær sér i glas, setur vinsælan foxtrott á fóninn, hringir síðan í eiginmann sinn og biður hann að bjarga sér, því hún hafi drepið mann til að verja heið- ur sinn. Á meðan blæðir elskhug- anum út. Hún er ofurölvi þegar lögreglan kemur á staðinn og ját- ar strax sekt sína. Ástríðumorð voru daglegt brauð í Chicago bannáranna og þóttu lít- ill fréttamatur, en það var eitt- hvað óvenjulegt við þessa ungu, ólánssömu konu og „aðgerð“ henn- ar, sem vakti forvitni frétta- manna. Hún eignaðist samstundis vinkonu í fangelsinu, Belvu Gaert- er, sem einnig sat inni fyrir að skjóta elskhuga sinn. Daginn eftir morðið fengu blaðamenn færi á að leggja nokkrar spurningar fyrir þær stöllur og blaðaljósmyndarar tóku af þeim uppstilltar myndir. Það er skemmst frá þvi að segja að úr þessu varð hið mesta fjöl- miðlafár, sem fékk alla banda- rísku þjóðina til að standa á önd- inni og fylgjast með framvindu mála með eftirvæntingu og sam- úð. Myndir birtust af Beulah á for- síðum dagblaða vítt og breitt um Bandaríkin, og fyrr en varði tóku blóm, bréf og bónorð að streyma til hennar í fangelsið. Þessi sæta stelpa hafði heillað þjóðina og morðið var orðið aukaatriði. Réttarhöldin voru næsta óvenjuleg alveg frá byrjun, þar sem Beulah Ieit á þau sem leiksýn- ingu og gætti þess að hafa næga búninga og andlitsfarða svo „gerv- ið“ væri viðeigandi. Frammi fyrir kviðdómendum var hún hress, broshýr og glæsileg milli þess sem hún grét og bar sig aumlega. Sækjandinn bað kviðdóminn að láta ekki blekkjast og sleppa henni fyrir það eitt að hún var falleg, en allt kom fyrir ekki, 53 dögum eftir t morðið og eftir aðeins tveggja stunda íhugun gengu kviðdómend- ur í réttarsalinn og niðurstaðan var: saklaus. Skömmu síðar var stalla hennar, Belva Gaerter einn- ig sýknuð. Sem fyrr segir verður frumsýn- ingin nk. föstudag, en önnur sýn- ing verður á annan i hvitasunnu, 27. maí.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.