Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 49
MORGUKBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1985
49
Hlutavelta á
Sauðárkróki
Krakkarnir á þessari mynd eiga
allir heima á Sauðárkróki. Þeir
héldu tombólu og sögðust ætla
að láta ágóðann renna til ein-
hvers góðs málefnis, en ákvörð-
un um það yrði ekki tekin fyrr en
búið væri að telja í kassanum.
Þau heita talið frá vinstri: Dag-
ur Jónsson, Arna Björnsdóttir,
Emma Björnsdóttir, Ásberg
Jónsson og fyrir framan þau
stendur Björn Jónsson.
AF STAÐ!
. . . í hverju?
Nýjum bíl frá Bílatorgi
Mikið úrval góðra og notaðra bfla
„Neöst i Nóatúni DMt Jk
eru viðskiptavinir okkar m
efstir á blaði. NÓATÚNI 2 • S(MI: 621033
Nýtt — Nýtt
Pils og blússur frá Sviss og Þýskalandi.
Glugginn, Laugavegi 40,
við hliöina á Kúnst, sími 12854.
Ágústínus
og kristnar
legendur
*
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
G.R. Evans: Augustine on Evil. Cam-
bridge University Press 1982. Dict-
ionary of Christian Lore and Legend
— John Metford. Thames and Hud-
son 1983.
Evans leitast við í þessu riti að
rekja hugmyndir Ágústínusar um
illskuna. Ágústínus „fjallar um
þetta efni meira og minna í tæpa
hálfa öld ... og eins og önnur efni
sem hann fjallar um verða svör
hans og útlistanir stöðugt tilefni
til enn frekari spurninga... “ .
Hann var sá sem leitaði og fann
oft einmitt það sem ekki var upp-
haflegur tilgangur leitarinnar. í
lokin komst Ágústínus að þeirri
niðurstöðu, að illskan sé fólgin í
fráhvarfi mannanna, sem hafi
frjálsan vilja og hverfi frá Guði.
Fall Adams varð upphaf syndar-
innar, allt mannkyn, afkomendur
Adams, varð „massa damnata".
Samkvæmt kenningum Ágúst-
ínusar er það algjörlega á valdi
Guðs hver verður hólpinn, enginn
getur verið viss um náðina.
Evans rekur tvær kenningar um
illskuna, að hún sé grilla, sem geti
ekki verið til innan sköpunarinnar
né að hún eigi sér sjáífstæða til-
veru; og kristna tvíhyggju-kenn-
ingu, þar sem barátta Guðs og
Satans standi þar til krossdauðinn
og upprisan sigrist á illskunni.
Kalvinistar studdust við kenn-
ingar Ágústínusar i kenningum
sinum um fyrirhugnunarkenning-
una, eða óbifanleg forlög. Höfund-
urinn rekur þróun kenninga Ág-
ústinusar um þessi efni og önnur
sem tengdust þeim og þar sem all-
ar lykilkenningar kirkjuföðurins
koma fram.
Metford starfaði og starfar við
háskólann í Bristol, þar sem hann
var forstöðumaður spænsku deild-
arinnar. í þessu uppsláttarriti um
kristnar kenningar og helgisagnir
skýrir hann fjölda hugtaka og
kenninga i um 1700 lengri og
styttri greinum ásamt tilvísunum
til þeirra listaverka sem eiga þar
kveikju sína, einnig tengir hann
þessu bókmenntaverk og skáld-
skap.
Höfundurinn segir i formála,
„að i nær þvi tvö þúsund ár hafi
kristnin verið kveikja listamanna,
skálda og tónsnillinga" til verka
sem eru blómi vestrænnar menn-
ingar og menningararfs austur-
kirkjunnar. Rit þetta er því jafn-
framt uppsláttarrit um listir og
bókmenntir, myndir eru á hverri
opnu.
Sem dæmi um uppsláttarhugtök
og orð: Armageddon, Hvað er hjól
heilagrar Katrínar, hvað er ambo?
Hvað er Labanum?
- koma í veg fyrir steypuskemmdir eöa
lagfæra þær með réttri meðhöndlun
Sprungur geta myndast í heilbrigðri steinsteypu pegar
ytraborð hennar mettast af vatnl sem síðan frýs og piðnar
á víxl í hinm umhleypíngasömu veðráttu okkar
Alkalivirk steínsteypa mettast af vatni og springur síðan
vegna efnafræðilegra hvata
Því parf að hindra að vatn smjúgi inn í steypuna svo
sem kostur er eri hún verður pó að geta andað.
DYNASYLAM BSM 40 er monosílan vatnsfæla sem
hlotið hefur meðmæli Rannsóknarstofnunar bygglng-
arlðnaðarlns.
DYNASYLAN BSM 40 er efni sem borið er jafnt á nýjan.
ómálaðan stem og sprunginri málaðan stem og hindrar
vatnsdrægm steypunnar
VITRÉTEX plastmálning er copolymer (akryl) máln-
Ing með mjög gott PAM gildl og andar þv( vel.
VITRETEX plastmálmng hefur verið á íslenskum markaði
í áratugi og sannað ágæti sitt. p.á m. í ströngustu veðurpols-
tilraunum.
Tvær yfirferðir með DYIMASYLAIM BSM 40 og síðan tvær
yfirferðir með VITRETEX plastmálningu tryggir
margra ára endingu.
Umboðsmenn um land alltl
Slippfélagió íReykjavíkhf
Málningarverksmidjan Dugguvogi
Simi 84255
VTTRETEX
■
YITEETEX
Plastmáínng