Morgunblaðið - 21.05.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985
53
Guðborg H. Hákonardóttir, eigandi Stofunnar.
MorgunblaAið/Bjarni
Ný hárgreiðslu-
stofa í Breiðholti
NÝLEGA var opnuð hárgreidslu-
stofa í Brekkuseli 13, Breiðholti
og ber hún heitið Ilada. Eigandi
hárgreiðslustofunnar er Guðborg
H. Hákonardóttir hár-
greiðslumeistari.
Á stofunni er veitt ðll hár-
snyrtiþjónusta fyrir dömur,
herra og börn. Opnunartími er
frá kl. 9—18, alla virka daga
nema fimmtudaga, þá er opið til
kl. 20.
Annað bindi
Landnáms Ing-
ólfs komið út
Annað hefti í ritröðinni Land-
nám Ingólfs, nýtt safn til sögu þess
er komið út. Að útgáfunni stendur
félagið Ingólfur, sem starfaði á ár-
unum 1934—1942 og var endur-
vakið árið 1982. í ritinu er að finna
fjórar greinar sem eiga það sameig-
inlegt að varpa Ijósi á atvinnusög-
una um síðustu aldamót. Þorkell
Jóhannesson og Óttar Kjartansson
lýsa gömlu verslunarleiðinni milli
Selvogs og Hafnarfjarðar og segja
frá námunum í Brennisteinsfjöll-
um, sem enskt félag starfrækti
seint á síðustu öld. Þórunn Valdi-
marsdóttir fjallar um mjólkursölu í
Keykjavík frá því hún hófst um síð-
ustu aldamót og þar til Mjólkur
samsalan var stofnuð. Bergsteinn
Jónsson ritar um smíði Ölfusárbrú-
ar sem Tryggvi Gunnarsson stjórn-
aði, en með þeirri smíð hófust nýir
tímar í samgöngum á landinu.
Magnús Grímsson skrifar einnig
um stórstígar framfarir í samgöng-
um er hann lýsir fyrstu vegagerð og
hestvagnaferðum á Suðvesturlandi.
í Landnámi Ingólfs er einnig
að finna safn erinda um byggð-
arsögu sem flutt voru á ráð-
stefnu Ingólfs á síðastliðnu vori.
Þau eru: Sögulegt yfirlit Stein-
gríms Jónssonar bókavarðar um
ritun og útgáfu héraðssögu á ís-
landi; erindi Gunnars Karlssonar
prófessors um hlutverk og tak-
markanir byggðarsögu; erindi
Árna Björnssonar þjóðhátta-
fræðings um þátt munnlegrar
geymdar í byggðarsögu; erindi
Lilju Árnadóttur deildarstjóra
þjóðminjasafns um verndun
gamalla húsa og þátt þeirra í
byggðarsögu; erindi Ingu Láru
Baldvinsdóttur cand. mag. um
notkun Ijósmynda við útgáfu
byggðarsögu; erindi Ármanns
Halldórssonar safnvarðar um
þátt héraðsskjalasafna í ritun
byggðarsögu; erindi Ingólfs Á.
Jóhannessonar kennara um
heimabyggð sem nýtt samfélags-
fræðinámsefni fyrir grunnskóla;
erindi Björns Þorsteinssonar
prófessors um hvers vegna ekk-
LANDNÁM
INGÓLFS
Nýtt safn til sögu þess
2
Félagiö Ingóliur gaf út
ert atvinnuskipt þéttbýli var á
íslandi; erindi Dr. Gísla Gunn-
arssonar um þróunina frá út-
höfnum til borgar og íslenska
þéttbýlismyndun; erindi Þórðar
Tómassonar safnvarðar um forn-
leifar og byggðarsögu; erindi
Sölva Sveinssonar ritstjóra um
Skagfirðingabók og söguritun
Skagfirðinga; erindi Jóns Þ. Þórs
cand. mag. um ritun byggðar-
sögu; erindi Ásgeirs Guðmunds-
sonar cand. mag. um ritun sögu
Hafnarfjarðar og erindi Björns
Teitssonar skólastjóra um
byggðarsögurannsóknir háskóla-
manna og eyðibýlarannsóknir.
Að lokum er birt erindi Jörns
Sandnes prófessors í Þrándheimi
um byggðarsögu í Noregi, en fé-
lagið Ingólfur bauð honum á
ráðstefnuna til þess að kynna hér
byggðarsöguritun Norðmanna.
Ritið prýða margar ljósmyndir,
þar af nokkrar í lit. Landnám
Ingólfs fæst keypt á félagsverði
hjá Sögufélagi, Garðastræti 13 B,
en því verður dreift í bókaversl-
anir innan tíðar.
FYRIR ÞETTA
kr. 174.700.-
ÞEGAR ÖLLJU ER Á BOTNINN HVOLFT ER SKODA
AUÐVITAÐ EINI BÍLLINN SEM TIL GREINA
KEMUR AÐ KAUPA.
í honum færöu sparneytið hörkutól sem gott er aö keyra. Sterkan bíl meö
miklu af aukahlutum, bíl sem hægt er aö treysta vegna gæöanna
og frábærrar varahluta- og viögeröarþjónustu.
En peningahliöin vegur auðvitað ekki hvaö minnst. Miöaö viö verö á
miölungsbílum af öörum tegundum sparar þú þér um 200.000.-
krónur meö því aö kaupa SKODA. Þaö má nú gera
sitthvaö fyrir tvö hundruð þúsund, t.d. kaupa
annan SKODA handa konunni. En bara vextirnir af þeirri upphæö eru
hvorki meira né minna en 70.000.- krónur á ári og kannski
enn meira á einhverjum hávaxta-tromp-bonusreikningum.
Vextirnir einir duga sennilega til þess áö standa undir
öllum rekstri á bílnum; bensíni, tryggingum, olíu
og öllu saman.
Það er von að þú segir
ÉG VERÐ FYRIR ÞETTA VERÐ.
Gódan daginn!