Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 63
MORGUNBLAÐID. ÞRIÐJUDAGUR 21. MAf 1985
63
Berjist gegn vandanum
en bætið ekki á hann
Palli skrifar:
Skyldi bjórfrumvarpið verða tii
að skapa einingu innan flokkanna
á Alþingi okkar íslendinga?
Þegar talað er um áfengismál og
eiturlyf er unglingavandamál að-
alumfjöllunin í því sambandi. Það
gleymist jafnan að geta þeirra
sem skapa vandann.
Við skulum ætla, að á Alþingi
íslendinga sé þessi vandi ekki
fyrir hendi. Við skulum ætla, að
þeir sem þar sitja séu flestir
komnir af unglingsárunum. Hvers
vegna leggjum við ofurkapp á að
bjarga mönnum úr lífsháska? Er
það ekki þeirra eigið mál, frjáls-
ræði, að hver og einn ráði ferðum
sínum og gjörðum? Hvers vegna
gera heilbrigðisyfirvöld tilraunir
til að hefta útbreiðslu sjúkdóma?
Hvers vegna eru menn oft settir í
einangrun vegna hættu á smit-
sjúkdómi sem þeir kunna að hafa
borið með sér til landsins? Eru
þetta ekki frjálsir menn og hvað
er þá að óttast? Hvers vegna eru
hömlur á innflutningi matvæla?
Vegna smithættu?
Af hverju er allt þetta kapp lagt
á að útrýma sjúkdómum á sama
tíma og verið er að tala um áfeng-
issýki og miklum fjármunum eytt
í byggingu meðferðarheimila,
sjúkrastöðva og taugadeilda?
Hvers vegna gengur ríkisvaldið
í fararbroddi með að flytja þenn-
an lífshættulega sýkil inn í land-
ið? Eigum við svo að bæta gráu
ofan á svart með því að bæta
bjórnum við drykkjubölið? Ég vil
síður en svo dæma þá menn sem
ánetjast hafa áfengisbölinu. Þeir
hafa ekki skapað vandann. En það
er löggjafarvaldið og milliliða-
gróðabraskararnir sem bera alla
ábyrgð á vandanum.
Enginn ofdrykkjumaður mælir
heilshugar með sterkum bjór,
heldur þvert á móti, því þeir
þekkja vandamálið. Þeir þyrftu að
láta meira í sér heyra. Þeir geta
látið skoðun sína í ljósi hræsnis-
laust, því í mörgum fyrrverandi og
núverandi drykkjumönnum
blunda bestu sálir þessa lands. Al-
þingismenn! Látið fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu um bjórfrum-
varpið. Ég trúi því að þjóðin beri
gæfu til að vísa þeim vágesti frá.
Berjist gegn vandanum en bætið
ekki á hann.
Lítil kveðja til
ríkisstjórnarinnar
Jóhann Þórólfsson, Norðurbrún ,1
skrifar:
Hvað ætlar ríkisstjórnin lengi
að horfa upp á það hvað þjóðin er
illa á vegi stödd án þess að gera
einhverjar ráðstafanir? Hvað um
efnahagsmálin?
Ég held að tími sé til kominn að
ráðherrar vakni af værum blundi
og fari að gera eitthvað að gagni í
stað þess að vera með endalausar
ráðagerðir, en framkvæma ekki
neitt. Það væri skömm að segja að
það sætu duglegir menn við stýrið,
enda kannski eðlilegt, þar sem
framsóknarmenn hafa völdin.
Þeir þyrftu nú að fá að fara að
hvíla sig. Það þurfa kjósendur að
tryggja við næstu kosningar. Það
getur enginn stjórnað með þeim,
reynslan í gegnum árin sýnir það
bezt og sízt af öllu Sjálfstæðis-
flokkurinn.
Já, rikisstjórnin hefur svo sem
verið dugleg við eitt í efnahags-
málum, þ.e. að ráðast á þá lægst
launuðu og rýra kaup þeirra
stórkostlega svo verkafólk nær
engan veginn endum saman nema
með lánum á lán ofan.
Ríkisstjórnin er rausnarleg við
að halda veizlur á kostnað
skattgreiðenda. Þar standa þeir
sig vel ráðherrarnir. En þá er það
líka upp talið.
Jæja, nú sný ég við blaðinu og
ræði um vandamál foreldra, ekki
unglinga, eins og margir vilja hafa
það. Unglingarnir eru miklu betri
en foreldrarnir, sem eru að ala þá
upp.
Ef unglingar gera það sem þeir
ekki mega er það uppeldinu að
kenna. Hvaða uppeldi fá þau börn
þar sem bæði hjónin drekka og eru
á böllum og í partíum lon og don
framundir morgun? Koma svo
blindfull heim og fara oft að rífast
og jafnvel slást. Svo bætir ekki úr
skák að börn og unglingar fá að
horfa á stríðsmyndir og annan
óþverra í sjónvarpinu, eins og víða
er. — Ég held að foreldrar ættu að
fræða börn sín um frelsarann og
kristindóminn og kenna þeim góða
siði — kenna þeim faðir vorið og
bænir. Það væri betra veganesi en
að glápa á sjónvarp og myndband.
Æskan á aö erfa landið og til
þess að henni vegni vel þarf hún
að fá gott uppeldi. Þar þurfa for-
eldrar og skólar að taka sig á og
kenna meira um trúmál. En æsk-
an í dag er góður efniviður.
Skrýtinn
vinsældalisti
S.R. og G.T. skrifa:
Við erum hér tveir Duran
Duran-aðdáendur og viljum taka
undir þær fyrirspurnir af hverju
„Save a Prayer" og „Some like it
hot“ komust ekkert áfram á vin-
sældalista rásar 2. Við vitum um
fleiri, fleiri krakka sem kjósa
þessi lög á listann. Þetta er farið
að verða svolítið undarlegt og
meiriháttar skrýtið.
★ Skrifborð ★ Skjalaskápar
★ Tölvuborð ★ Veggeiningar
^ ★ Norsk gæðavara ★ Ráðgjöf við skipulagningu
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
Látið JOKI vinna verkið
með styrk og lipuró
JOKI færibandamótorar vinna nær hvaða verk sem
er án erfiðis, án hávaða, án afláts.
Lokaðir, olíukældir og sjálfsmyrjandi útiloka þeir
bæði raka og óhreinindi.
Þess vegna er hreinsun auðveld og allt viðhald ein-
falt og ódýrt.
I verksmiðjum, verslunum eða fiskvinnslustöðum
eru JOKI færibandamótorar trygging fyrir hreinlæti
og hagkvæmni í rekstri. JOKI er fáanlegur með
stiglausri hraðastillingu.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN SELJAVEGI 2 SfMI 242S0 REYKJAVlK
Ódýzlr varahlutir
í bíla og vmnuvélar
Við seljum aðeins viðurkennda vara-
hluti írá virtum íramleiðendum -
vönduð vara sem notuð er aí bíla- og
vinnuvélaverksmiðjum víðs vegar um
heiminn.
• Stimplar og slííar • Stimpilhringir
• Pakkningar • Vélalegur • Knastásar
• Tímahjól og keðjur • Ventlar
• Olíudœlur • Undirlyítur o.fl.
ÞJÓNSSOH&CO
Skeifunni 17, Reykjavík
S: 84515 og 84516 .
o o