Morgunblaðið - 21.05.1985, Síða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1985
Hið nýja skip, Fúsi SH 161, á siglingu. Morgunblaðift/Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður:
Nýtt fiskiskip sjósett
Fáskftonfirti. 15. maí.
FÖSTUDAGINN 10. maí var sjósett nýtt fiskiskip á Fáskrúðsfirði og hlaut
nafnið Fúsi SH 161. skipið er byggt í skipasmíðastöð Guðlaugs Einarssonar.
Er þetta tréskip og er það 8,5 rúmlestir og útbúið á hefðbundnar fiskveiðar
fyrir þessa stærð.
Siglingatæki í skipinu eru öll af
JRC-gerð. Aðalvél er Ford, 80
hestöfl. Kjölur að skipinu var
lagður 15. janúar 1985 og er því
rétt um 4 mánuðir frá því smíði
hófst og þar til skipið var afhent
eigendum sínum. Eigandi þess er
Pétur Ingi Vigfússon, Hellissandi.
Heildarkostnaður skipsins er 2,1
milljón. Hönnun skipsins var gerð
af Sigurði Einarssyni, Reykjavík,
og er þetta 7 þilfarsskipið sem
byggt er af svipaðri gerð (línu).
Skipið fór héðan frá Fáskrúðsfirði
í gær, áleiðis til heimahafnar
sinnar, sem er á Rifi. Albert.
Akranes:
Aukin framleiðsla Akurs
hf. á einingahúsum
Akraaeai, 17. nuí.
TRÉSMIÐJAN Akur hf. á Akranesi
befur á undanfornum árum aukið
mjög framleiðslu á timbureininga-
húsum og eru nú nokkur í byggingu
á Akranesi og í nágrenni.
Að sögn Stefáns Teitssonar, for-
stjóra Akurs hf., eru rösk tvö ár
frá því að þeir reistu fyrsta ein-
ingahúsið en nú hafa verið byggð
um 30 hús, flest á Akranesi en
einnig á nokkrum öðrum stöðum.
Húsin hafa frá upphafi verið
klædd með fúavarinni furu og
stærð þessara húsa er frá 80—160
m1 2.
— Við seljum yfirleitt húsið
reist á grunni sem kaupandi legg-
ur til og tekur það verk að öllu
jöfnu 4—5 daga, segir Stefán, en
einnig er nokkuð algengt að við
Árekstur í
Miklatorgi
Á sunnudag klukkan 14.30 varð
árekstur á Miklatorgi. Kona, sem ók
Volvo Amazon-bifreið í innri hring,
hugðist beygja suður Skógarhlíð
þegar dökkleit fólksbifreið lenti á
bifreið hennar. Ökumaður var einn-
ig kona og skoðuðu þær bifreiðarn-
ar, en sáu engar skemmdir á Volvo-
inum, þó lukt hefði brotnað á hinni
bifreiðinni.
Skömmu síðar sá konan að
hægri hurð Volvo-bifreiðarinnar
hafði skemmst. Lögreglan í
Reykjavík biður ökumann dökk-
leitu bifreiðarinnar vinsamlega að
gefa sig fram.
skilum þeim alveg tilbúnum. Eig-
endur eru þá fluttir inn að 2—3
mánuðum liðnum.
Aðspurður um vanda húsbyggj-
enda við að standa í skilum nú á
síðustu og verstu tímum, sagði
Stefán: — Við könnumst við það
vandamál og það er óhætt að segja
að alvarlegasti hluturinn er þegar
Húsnæðismálastofnunin er að
fresta greiðslum á lánum. Þá fara
allir samningar úr böndunum.
Þetta er stofnun sem á að vera
hægt að treysta á. Það er mjög
algengt að frestun verið á greiðsl-
um. A tímabili voru í gildi reglur
hjá Húsnæðismálastofnun sem
heimiluðu greiðslu lána fyrr til
fólks sem væri að byggja eininga-
hús. Þessar reglur hafa nú verið
afnumdar sem að mínu mati er
spor afturábak því að þessi hús
eru yfirleitt byggð með meiri
hraða.
Trésmiðjan Akur átti 25 ára af-
mæli á síðasta ári og hefur verið
eitt öflugasta byggingarfyrirtæki
á landinu á undanförnum árum.
Má geta þess að á 14 árum byggðu
þeir og afhentu fullbúnar 180
íbúðir í fjölbýlishúsum á Akra-
nesi. Á siðustu árum hefur bygg-
ingarvöruverslun fyrirtækisins
vaxið mikið og þjónusta við bygg-
ingariðnaðinn aukist mjög.
Að sögn Stefáns Teitssonar er
höfuðvandi fyrirtækisins í dag
skortur á rekstursfé. En eru bjart-
ari tímar framundan? — Já, ef
verðbólga fer minnkar og jafn-
vægi kemst á í efnahagsmálunum
rísa atvinnuvegirnir upp aftur,
sagði Stefán Teitsson að lokum.
- JG.
Alþingi verði ekki
slitið án lausnar á
húsnæðismálunum
Umræðugnindvöllurinn „fyrir
lausn á ríkjandi neyðarástandi í hús-
næðismálum", sem þingflokkar
stjórnarandstöðunnar afhentu
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráðherra og Þorsteini Pálssyni, for-
manni Sjálfstæðisflokksins, í gær-
morgun, er svohljóðandi:
„Þingflokkar í stjórnarandstöðu
á Alþingi vilja hér með vara
hæstvirta ríkisstjórn og þing-
meirihluta við því að slíta þingi,
án þess að leysa ríkjandi neyðar-
ástand í húsnæðismálum.
Við viljum minna formenn
stjórnarflokkanna á, að orsakir
þessa neyðarástnds eru m.a.:
— skert greiðslugeta lántakenda
vegna afnáms vísitölubindingar
launa en ekki lána, sem forsætis-
ráðherra hefur kallað mistök,
— hækkun raunvaxta I kjölfar
„vaxtafrelsis", sem formaður
Sjálfstæðisflokksins kallaði
„tímamótaákvörðun".
Við teljum, að forystumönnum
stjórnarflokkanna beri skylda til
að beita sér fyrir því, að fyrir
þessi mistök verði bætt, án frekari
tafar. Afkoma þeirra fjölmörgu
fjölskyldna, sem nú eiga eignir
sínar undir uppboðshamrinum, er
í húfi.
Þingflokkar stjórnarandstöð-
unnar hafa náð samkomulagi um
breytingartillögur við frumvarp
ríkisstjórnarinnar um greiðslu-
jöfnun húsnæðislána. Aðalatriöi
þeirra tillagna er að stjórnvöld
viðurkenni undanbragðalaust
þann umframreikning, sem lántak-
endum hefur verið gert að greiða,
vegna misgengis launa og láns-
kjara og hækkunar raunvaxta,
umfram verðbólgu.
I breytingartillögum stjórnar-
andstöðunnar felst m.a.:
að auk byggingarsjóða ríkisins
nái greiðslujöfnunin einnig til
banka og lífeyrissjóða,
að réttur lántakenda verði
skilgreindur og viðurkenndur,
án tillits til vanskila eða mats
embættismanna,
að útreikningur „greiðslu-
marks" miðist við
kauptaxtavísitölu,
að vextir verði lækkaðir,
að veittur verði sérstakur
skattaafsláttur, skv. nánari
reglum (réttur til skattaaf-
sláttar takmarkist við tiltekna
skuldlausa eign lántakenda).
Þessar tillögur stjórnarandstöð-
unnar um lausn á ríkjandi neyðar-
ástandi, eru lagðar fram með von
um að samkomulag geti tekist á Al-
þingi um þessar eða aðrar sam-
bærilegar aðgerðir, fyrir þing-
lausnir.
Um fjáröflun í þessu skyni vill
stjórnarandstaðan taka það fram,
að hún er ekki til viðtals um nýjar
erlendar lántökur.
Þess í stað vísa stjórnarand-
stöðuflokkarnir til áður framlagð-
ra fjáröflunartillagna, við af-
greiðslu fjárlaga og með sérstök-
um frumvarps- og tillöguflutningi
á Alþingi.
Auk þess lýsa stjórnarandstöðu-
flokkarnir sig reiðubúna til að
leita samkomulags við stjórnar-
flokkana um aðrar innlendar fjár-
öflunarleiðir, hvort heldur er með
skattlagningu og/eða tilfærslum
innan ramma fjárlaga.
Aðalatriðið að okkar mati er, að
Alþingi verði ekki slitið fyrr en
lántakendur hafi fyrir því full-
nægjandi tryggingu, að lausn sé
fundin á ríkjandi neyðarástandi.
Undir yfirlýsinguna skrifa:
Svavar Gestsson f.h. Alþýðu-
bandalagsins, Jón Baldvin
Hannibalsson f.h. Alþýðuflokks-
ins, Guðmundur Einarsson f.h.
Bandalags jafnaðarmanna og
Guðrún Agnarsdóttir f.h. Sam-
taka um kvennalista.
Flokksstjóm Alþýðuflokksins:
3,5 milljörðum verði
árlega varið til hús-
næðismála af fjárlögum
FLOKKSSTJÓRN Alþýðunokksins
samþykkti þann 18. þ.m. eftirfarandi
ályktun „um aðgerðir vegna neyðar-
ástands í húsnæðismálum“.
„Flokksstjóm Alþýðuflokksins
varar ríkisstjórn og þingmeiri-
hluta við því að slíta Alþingi, án
þess að leysa ríkjandi neyðarástand
í húsnæðismálum.
Helztu orsakir þessa neyðar-
ástands eru: Skert greiðslugeta
lántakenda vegna afnáms vísitölu-
bindingar launa en ekki lána, sem
forsætisráðherra hefur kallað mis-
tök. Og hækkun raunvaxta í kjölfar
vaxtafrelsis, sem formaður
Sjálfstæðisflokksins kallaði tíma-
mótaákvörðun.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
leggur til að gerðar verði eftirfar-
andi ráðstafanir:
I Fjáröflun
1. 3,5 milljörðum króna verði varið
árlega til húsnæðismála af fjár-
lögum næstu árin.
2. Tekna verði aflað með:
— Launaskatti, er verði skilað
til byggingarsjóðanna.
— Stighækkandi eignarskatts-
auka næstu 2 ár, skv. tillögum
Alþýðuflokksins.
— 5% af bindifé Seðlabankans
verði varið til húsnæðismála.
— Hagnaði Seðlabankans og
refsivaxtafé verði varið í sama
skyni.
— Veltuskatti af verzlun og þjón-
ustu verði varið til húsnæðis-
mála.
•Þessir tekjustofnar skilja 3,5 millj-
örðum til húsnæðismála.
II Leidrétting á
lánskjörum eftir 1982
1. Greiðslubyrði húsnæðislána
hækki ekki umfram hækkun
kaupgjalds á hverjum tíma.
2. Endurskoðaður verði grunnur
lánskjaravísitölu.
3. Umframgreiðslur lántakenda
vegna misgengis launa og
lánskjara sl. 3 ár verði leiðréttar
með:
— lengingu lánstíma
— skuldbreytingum í banka-
kerfi
— sérstökum skattafslætti
— vaxtalækkun.
III Útlánastefna og lánskjör
• Tillögur Alþýðuflokksins um
fjáröflun duga til að standa undir
eftirfarandi útlánastefnu og láns-
kjörum:
1. 60%lán úr Byggingasjóði ríkis-
ins þegar á næsta ári til þeirra
sem byggja í fyrsta sinn.
2. Bankar og lífeyrissjóðir veiti
langtímalán fyrir því sem á
vantar í 80% lánahlutfall.
3. Forgangslán tii fyrstu íbúðar
verði takmörkuð við stærðar-
mörkin 90—110 mJ, eftir fjöl-
skyldustærð.
4. Sérstakur skattafsláttur verið
veittur þeim, sem byggja eða
kaupa í fyrsta sinn.
5. Lánin verði afborgunarlaus
fyrstu 3 árin og greiðslusbyrði
léttari fyrstu árin.
6. Lán til kaupa á eldri fbúðum
nemi a.m.k. 50% af lánum til
nýbygginga, bundið því skilyrði
að útborgun fari ekki yfir 50%
og eftirstöðvar verði til lengri
tíma.
7. Veitt verði verkamannabú-
staðalán til kaupa á eldri íbúð-
um og fleir valkostir viður-
ke'nndir í félagslegum íbúðab-
yggingum, með stuðningi við
búseturéttarbreytinguna.
8. A.m.k. þriðjungur árlegrar
íbúðaþarfar verði leyst á fé-
lagslegum grundvelli."
Skoðanakönnun DV:
Sjálfstæðisflokkurinn
eykur fylgi sitt í borginni
8JÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi 12 borgarfulltrúa kjörna af 15 ef nú
væri kosið til borgarstjórnar samkvæmt skoðanakönnun DV, en niðurstöður
þessar birti blaðið í gær. Alþýðuflokkur fengi einn borgarfulltrúa, Alþýðu-
bandalag 1 og Kvennaframboð 1. Nú eru borgarfulltrúar 21 og Sjálfstæðis-
flokkur með 12, Alþýðuflokkur 1, Alþýðubandalag 4, Kvennaframboð 2 og
Framsóknarflokkur 2.
1 könnun blaðsins voru 600
reykvískir kjósendur spurðir.
Óákveðnir voru 182 eða 30,3% og
69 svöruðu ekki eða 11,5%. Ef að-
eins er tekið tillit til þeirra, sem
tóku afstöðu, skiptast hlutföllin
sem hér segir samkvæmt DV:
Nú Kosningarnar
Alþýðuflokkur 6,6% 8%
Framsóknarflokkur 4,0% 9,5%
Bandalag jafnaðarmanna 1,7% —
Sjálfstæðisflokkur 69,9% 52,5%
Alþýðubandalag 10,9% 19,0%
Kvennaframboð 6,6% 10,9%
Flokkur mannsins 0,3% —