Morgunblaðið - 21.05.1985, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1985
65
Bjarmi og Birgir Viðar
sigruðu í Grófar-rallinu
*
- Omar og Jón lentu í öðru sæti
Kedavík, 19. maí.
AKSrrURSÍÞRÓTTAFÉLAG Suðurnesja gekkst fyrir Grófar-ralli á laugar
daginn þar sem ekið var víðsvegar um Suðurnesin. Sigurvegarar urðu Bjarmi
Sigurgarðarsson og Birgir Viðar Halldórsson i Talbot árgerð ’81. í öðru sæti
urðu þeir bræður Omar og Jón Ragnarsoynir á Toyota Corolla GT.
Það gekk á ýmsu í Grófar-rall- og Gestur Friðjónsson, braut drif-
ínu. Eknir voru um 300 km um
Suðurnesin og af þeim voru sér-
leiðir 105 km. Þetta svæði er vel
fallið til þess að iðka aksturs-
íþróttir, allskyns vegarslóðar
teygja sig um skagann, langir og
stuttir, og auðvitað misgreiðfærir.
Margar sérleiðirnar þóttu frekar
grófar.
19 bílar voru skráðir til leiks en
þrír mættu ekki.
Hraðinn var strax í byrjun
keyrður upp og baráttan mikil. Af
þessum sextán bílum sem lögðu af
stað luku fjórir ekki keppni. Kom
þar mest á óvart að bíll með rás-
númer eitt, Birgir Þór Bragason
ið á Reykjanesleiðinni. Einn hætti
vegna vandræða með olíuþrýsting-
inn og tveir óku útaf á ísólfsskála-
leiðinni.
Það kom strax í ljós að baráttan
kæmi til með að standa á milli
Bjarma/Birgis og Ómars/Jóns.
Þessir ökumenn skáru sig nokkuð
úr fyrir öruggan akstur og stöð-
ugleika. Bjarmi er fantagóður
ökumaður og á eftir að verða í eld-
línunni á komandi mótum. Ekki er
bíll hans af lakara taginu, Talbot
Sunbeam með 240 hestafla vél,
kraftmesti bíllinn í rallinu. Liðu
þeir Ragnarssynir fyrir það að vél
þeirra er helmingi minni og mun-
Bifreið Bjarma og Birgis Viðars á fullri ferð á einni sérleiðinni.
„Stefndum að
sigri og engu öðru“
Bjarmi og Birgir Viðar voru svo sannarlega sigurvegarar mótsins. Á frá-
bærum bfl, með góða aðstoðarmenn og feiknagóðir bflstjórar. Komu úrslitin
þeim á óvart?
„Nei, alls ekki. Við stefndum að
sigri og engu öðru.“
— Hverju þakkið þið sigurinn?
„Við þökkum auðvitað öllu fyrir.
Bílnum, þjónustuliðinu og svo
auðvitað okkur sjálfum. Þetta
gekk allt upp.“
— Hvernig voru sérleiðirnar?
„Þær voru töluvert grófar á
köflum. Við keyrðum hratt fyrri
hlutann en slógum svo af eftir við-
gerðarhlé. Ákváðum að klára
keppnina án þess að sprengja
dekkin."
„Vélin of kraftlítil“
- segir Jón Ragnarsson
Ómar og Jón eru alltaf fastir gestir
efsta). Ég spurði Jón hvort hann væri
„Ég er mjög sáttur við árangur-
inn. Þetta gekk eins og best verður
á kosið. Sérleiðirnar voru mjög
skemmtilegar, svolítið grófar á
köflum, en maður verður að sætta
sig við það. Við einfaldlega höfum
ekki völ á betra hér á landi."
— Nú hefur maður heyrt að
vandamál ykkar sé alltof kraft-
laus vél.
„Já, það er rétt. Okkar vanda-
mál er það að vélin er of kraftlítil.
Leiðrétting
Villur hafa slæðst inn í grein
mína „Ekkert líf án ljóða“ í Mbl.
18. mai og sumar meinlegar.
Vondar prentvillur eru: „pabbi
þinn“ f stað pabbi, „Valdimars"
fyrir Valdimarssonar, „þrælkum"
í stað þrælum. Verri er mislestur
minn á ártali undir ljóði Gunnars
Gunnarssonar: 1919 fyrir 1913.
Ljóðið er semsé skrifað í póesíbók
Guðfinnu sex árum fyrr en ég
hugði og sætir enn meiri tíðindum
fyrir bragðið. Upphaflega var það
ort á dönsku. Af tímaruglinu leið-
ir, að Guðfinna er ranglega kölluð
ar nú um annað eins í jafn harðri
keppni og þessari.
Endanleg röð efstu manna lítur
þannig út:
1. Bjarmi Sigurgarðarsson og
Birgir Viðar Halldórsson á
Talbot 81. 60,27 mín.
2. ómar Ragnarsson og Jón Ragn-
arsson á Toyota Corolla GT 84.
61,04 mín.
3. Ásgeir Sigurðsson og Pétur
Júlíusson á Escort 2000 74.
63,07 mín.
4. Eiríkur Friðriksson og Þráinn
Sverrisson á Escort RS2000 77.
62,46 mín.
5. Óskar ólafsson og Árni óli
Friðriksson á Escort RS2000 74.
66,51 mín.
Tekin var upp sú nýbreytni að
veita besta þjónustuliðinu verð-
laun og hlaut sveit sigurvegar-
anna þau. Þá voru og veitt verð-
laun fyrir bestu framkomuna og
hlaut þau Þráinn Sverrisson fyrir
að fella sig og Eirík úr þriðja sæt-
inu niður í það fjórða.
— EFl
é 91
ÍUKÍ^q^tWl
Morgunblaöid/Einar Falur
Þeir Bjarmi (Lh.) og Birgir Viðar fagna sigri í Grófarrallinu.
f einu af efstu sætunum (venjulega því
sáttur við árangurinn í Grófar-rallinu.
Það sést best á því að bíllinn sem
vinnur er með mun kraftmeiri vél
en við. Auðvitað háir þetta okkur.“
— Ætlið þið að halda áfram á
þessum bíl?
„Já, það eru allar Ifkur á þvf að
við verðum á þessum bíl í sumar.
Við ætluðum að vera búnir að fá
kraftmeiri vél í hann en það geng-
ur eitthvað brösuglega svo við
verðum bara að þrauka í sumar og
reyna svo að gera eitthvað stórt
seinna," sagði Jón að lokum.
húsfreyja. Hún var 1913 ógift
stúlka í Krossavík og gegndi þar
aldrei húsfreyjustörfum, heldur
hóf sinn hjúskap i Brunahvammi
1917. Á þetta benti Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor mér, en
hann hefur af mestri alúð kannað
skáldferil og verk Gunnars. Verst
þykir mér þó, hafi ég valdið góð-
kunningja mínum Sveini Skorra
leiðindum með birtingu ljóðsins,
áður en honum gafst tóm til að
gera vandaða fræðilega grein fyrir
því á prenti. Það var ekki
ásetningssynd, heldur í granda-
leysi gert. Ég bið hann velvirð-
ingar.
Einar Bragi
y.
UNDRAVERÐ
NYjUNG
Nú geturþú kvattgamla sjónvarpiðþittmeðgóðrisamvisku þvíað
gjörbreytt tækni hefur tekið við.
Nýi flati, ferhyrndi skjárinn frá Sharp stækkar myndflötinn og það
er engu líkara en að stofan þín breytist í lítinn kvikmyndasal.
• 54 cm (21,25“) flatur,ferhyrndurskjársem gefurframúrskarandi
skarpan og eðlilegan lit, •16 rása prógrammerað minni, • IC rafeinda
stillikerfi, • góður4 watta hátalari. • verð aðeins
3l,500*-stgr.
Einnig fáanlegt með fjarstýringu og sérstakri videórás.
Tryggðu þér stefnumót sem fyrst við nýja undratækið frá
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999