Morgunblaðið - 21.05.1985, Qupperneq 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAl 1985
Blönduós:
Nýtt útiyistarsyæði
18.1
ARIÐ 1982 voru unnin frumdrög ad skipulagi útivistarsvKdis fyrir Blöndu-
óshrepp. Þetta verk vann Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt. Svæði það
sem hér um ræðir er jörðin Vatnahverfi í Engihlíðarhreppi skammt norðaust-
an við Blönduós. Skipulag þetta fjallar um gerð golfvallar, skógrækt, göngu-
og trimmleiðir, siglingar, veiðar, skíða- og skautaiðkun.
Ilópurinn sem keppti í fyrstu opinberu skotkeppninni á Höfn.
Skotkeppni á Hornafirði
Höfi, HornafírAi, 10. mtí.
SKOTFÉLAG A-Skaftafelissýslu hélt sitt fyrsta skotíþróttamót fimmtudag-
inn 9. maí síðastliðinn. Skotfélagið, sem stofnað var síðastliðið haust hefur
haft æfingar innanhúss seinni hluta vetrar og hafa þær farið fram í Veiðar-
færagerð Hornafjarðar.
Á mótinu var mesti mögulegi
stigafjöldi 500 stig eftir 5x10 skot
með einskota skammbyssum.
Keppendur voru 8 talsins, held-
ur færri en búist var við þar sem
fjöldi á æfingum hefur verið mun
meiri. Þrír efstu menn urðu Sig-
urður Guðnason með 422 stig,
Gunnar Þ. Þórarnarson með 415
I vetur fjallaði byggingamála-
nefnd J.C. Húnabyggðar um þetta
verkefni og boðaði í vor til al-
menns borgarafundar um málefni
þetta. Til þess að hafa framsögu
um skipulag útivistarsvæðisins
voru fengnir Snorri Björn Sig-
urðsson sveitarstjóri, Reynir
Vilhjálmsson landslagsarkitekt og
Þorvaldur Ásgeirsson golfkennari.
Framsögumönnum bar saman
um það að Vatnahverfi væri kjörið
útivistarsvæði. Þarna væri fjöl-
breytt landslag, ræktuð tún, mel-
öldur og vötn. Þorvaldur Ásgeirs-
son gekk meira að segja svo langt
að segja að svæðið væri með þeim
ákjósanlegustu sem eitt sveitarfé-
lag gæti lagt golfiðkendum til. Það
kom fram hjá Snorra Birni að
gerð útivistarsvæðis væri framtíð-
arverkefni og yrði að vinnast í
samvinnu við frjáls félagasamtök.
Fyrsta verkið væri að girða svæð-
ið og planta trjám.
Á fundinum kom fram mikill
áhugi á að hefjast sem fyrst
handa um gerð útivistarsvæðis í
Vatnahverfi og var tillaga sem
lögð var fram á fundinum, þar
sem skorað er á hreppsnefnd
Blönduóshrepps að setja fjármagn
til útivistarsvæðisins á fjárhagsá-
ætlun fyrir árið 1986 samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum.
JS.
stig og Friðrik Snorrason með 377
stig.
Mótið fór vel fram og voru menn
ánægðir með árangurinn, flestir
að minnsta kosti. Þetta mun vera
fyrsta opinbera skotíþróttamótið,
sem haldið er hér í sýslu og er það
von manna í skotfélaginu að fram-
hald megi verða á. — Haukur.
©
INNLENT
Friðarferðir farnar
um Evrópu
- Ráðamenn þjóðanna svara spurningum
FIMM hópar fólks lögðu upp í friðarferðir frá Stokkhólnri til nær allra
landa í Evrópu 12. maí sl. Markmið ferðanna er að leggja fyrir ráðamenn
þjóðanna, forsætisráðherra og utanríkisráðherra, fimm spurningar, sem
þeir eru beðnir að svara. Spurningarnar miða allar að því að tryggja
jarðarbúm betra Iff í framtíðinni í sátt og samlyndi. Svörin, sem friðarhóp-
arnir fá frá ráðamönnum, verða síðan afhent framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna á Stokkhólmsráðstefnunni 27. maí nk., en löndin eiga öll
aðild að Sameinuðu þjóðunum.
Samvinnudagurinn í
Stykkishólmi 12. maí
StjkkMbóimi, 12. nuf.
í MORGUN kl. 10 opnaði Kaupfélag Stykkishólms samvinnudag í félags-
Jieimilinu í Stykkishólmi. Þetta er um leið kynning á vörum og íslenskri
framleiðslu, sem var mjög fjölbreytt og athyglisverð.
Þarna eru sýndar vörur frá um sama hlutinn erlendan þótt
Goða, frá Mjólkursamsölunni, 3-K
húsgögnum, Grænmetisverslun-
inni, Innréttingum frá Selfossi og
iðnvamingi frá húsgagnaverksm.
á Hvolsvelli. Þarna voru einnig
kynntar mjólkurvörur frá Búðar-
dal, sem sagt íslensk framleiðsla
víða af landinu. Það fóru ekki
framhjá neinum þær gífurlegu
framfarir sem eru í íslenskum iðn-
aði á seinni árum, þróunin, sem
sjálfsagt heldur áfram á fullri
ferð og sýnir hvað íslendingar
geta og það er ekki langt í land að
við verðum okkur nógir og þurfum
ekki að leita langt yfir skammt til
’erlendra þjóða. Það er ekki langt
síðan og man ég vel þá tíð þegar
allt var aðeins gott, sem kom frá
útlöndum. Menn keyptu þá stund-
hægt væri að fá hann unnin af ísl.
aðilum og er gaman að sjá hversu
þessi viðhorf eru að þurrkast út úr
vitund fólksins. Já, íslendingar
geta margt og eru alveg sam-
keppnisfærir við aðra.
Fjöldi manns sótti þessa sýn-
ingu og var straumur manna allan
daginn, bæði að skoða og kaupa.
Ásmundur Karlsson kaupfé-
lagsstjóri opnaði sýninguna með
nokkrum vel völdum orðum og
bauð fólk velkomið og kvaðst vona
að menn hefðu bæði gagn og
ánægju af heimsókninni. Síðan
var fólki boðið að skoða og bragða
á hinum ýmsu réttum, sem þarna
voru á boðstólum og notuðu sér
það margir. Þá var einnig tísku-
sýning sem vakti verðskuldaða at-
hygli. Ungmenni og börn héðan úr
bænum sýndu þar ýmsan fatnað,
sem framleiddur er hér á landi og
eins skófatnað, sem er unninn á
vegum Iðunnar. Boðið var upp á
Bragakaffi. Þá var þarna kynning
á samvinnuskólanum og námi þar
og voru fólki afhentir bæklingar
er sýna kennslu og árangur og
leiðbeina um skólann.
Þessi sýning var bæði vönduð og
stór í sniðum og mun vera sú
fyrsta sinnar tegundar hér í
Hólminum. Erfitt var að gera upp
á milli sýningardeilda, en hvað um
það, þessi sýning vel þess verð að
sækja hana og er þeim sem að
henni stóðu færðar þakkir.
Árni.
Nú þegar hafa tveir forsætis-
ráðherrar svarað öllum spurning-
unum játandi, þeir Olov Palme,
forsætisráðherra Svíþjóðar, og
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra íslands. „Ferðin er
farin í þeirri von að hún verði til
þess að gefa Stokkhólmsráðstefn-
unni um frið nýjan umræðu-
grundvöll," sagði Elísabet Gerle,
prestur frá Svíþjóð, en hún hafði
orð fyrir friðarhópnum, sem kom
hingað til lands. í hópnum eru
auk hennar fulltrúar frá Grikk-
landi, Danmörku, Portúgal, ít-
alíu, írlandi og íslandi. Héðan fór
hópurinn til Aþenu.
Spurningarnar fimm eru: „Ert
þú reiðubúinn að beita þér fyrir
löggjöf sem tryggir að varnar-
sveitir landsins, þar með taldir
„hernaðarráðgjafar", fari ekki af
yfirráðasvæði þínu í hernaðar-
tilgangi (nema til þátttöku í frið-
argæslusveitum Sameinuðu þjóð-
anna) ef allar aðrar aðildarþjóðir
SÞ skuldbinda sig til að gera slíkt
hið sama?
Ert þú reiðubúinn að stíga
skref til að tryggja að sett verði í
landi þínu bann við þróun, eign-
arhaldi á, geymslu og notkun
gjöreyðingarvopna sem ógna öll-
um lífsskilyrðum á jörðinni ef
allar aðrar aðildarþjóðir SÞ
skuldbinda sig til að gera slíkt
hið sama?
Ert þú reiðubúinn til að stíga
skref til að koma í veg fyrir að
þjóð þín leyfi miðlun vopna og
hernaðartækni til annarra þjóða
SÞ ef allar aðrar aðildarþjóðir SÞ
skuldbinda sig til að gera slíkt
hið sama?
Ert þú reiðubúinn til að vinna
að dreifingu jarðargæða þannig
að allir jarðarbúar eigi aðgang að
frumstæðustu lífsnauðsynjum
eins og hreinu vatni, fæðu, lág-
marksheilsugæslu og menntun?
Vilt þú vinna að því að tryggt
verði að deilumál þjóðar þinnar í
framtíðinni verði leyst á frið-
samlegan hátt eins og kveðið er á
um í 33. grein sáttmála Samein-
uðu þjóðanna, en ekki með hótun-
um eða valdbeitingu?"
í hverju landi um sig eru ráða-
menn auk þess spurðir spurninga
er varða frið og tengjast viðkom-
andi landi sérstaklega.
og áleggsveisla í hádeginu alla
virka daga.
Fiskhlaðbord Torfunnar
UPPI YSINGAh OG BOF>t)bANTANlP ' SlklA ' 34(
Eiiu- oy undanianr sumui verður Veitingahúsir l'orl-
an mee fiskhlartbori a bortstólum fyrii gesti sin» í
hádegine da» hveri sumai Á fiskhlartborðini eri
un 41" fiskrettK s.s síld skelfiskui karfi silungui o%
smokkfiskui svi fáeir da-m séi> nelnc Fiskhlað
borðu ei orrtu asuc lírtu- starlsem lorfunnat o»
hefui þai notu mikilb vmsælda ekk siz’ meða
erlendra ferðamanna Aðgangur að fískhlaðborrtim
kostai 49.' krónui fyrii einstakling o» alsláttui e>
veittui ni un hopn a< ræða. Á myndinn en
maireiðslumennirnn sen> hala vep og vaudi a fiski
hlartborrtini asam> vertinum, talið fra vinstri Frirtrik
Sigurrtsson Ori Baldursson op Óli Ilarrtarson