Morgunblaðið - 07.06.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
í garðinum
Þær eru aldeilis skemmtilegar
auglýsingarnar meö borgarstjór-
anum okkar á rás tvö, þar sem
konan í næsta húsi er að klippa
limgerðið og fær allt í einu svarta
lokka á skæriri. Davíð rís þá upp
úr sínu beði og segir: Það gerir
ekkert til það er nefnilega fegrun-
arvika í Reykjavík. Davíð upplýsti
í morgunþætti rásar eitt í gær að
hann hafi viljað hafa texta aug-
lýsingarinnar svo: Það gerir ekk-
ert til frú ég er nefnilega að fara
úr hárum. Það er gott til þess að
vita að eiga gamansaman borgar-
stjóra. Ég hef þá trú að slíkum
manni gangi miklu betur að starfa
með borgarbúum en hinum er líta
tilveruna grafalvarlegum augum.
Ég held annars að ég komist ekki
hjá því að minnast ögn á fyrr-
greinda fegrunarviku.
Því fegrunarvikan hefur ekki
bara sett svip sinn á auglýsinga-
tíma ríkisfjölmiðlanna heldur og
dagskrána almennt, þannig er nú i
ráði að landslagsarkitekt mæti til
skrafs og ráðagerða í síðdegisút-
varpi rásar eitt á næstu dögum.
Mun sá ágæti fagmaður vafalaust
luma á gagnlegum ábendingum er
varða fegrun umhverfisins. Bíð ég
spenntur eftir þeim fræðslupistl-
um, enda í þeim stóra hópi borg-
arbúa er nú standa í lóðafram-
kvæmdum.
HíLskúrsheLsið
Sú fegrunaraðgerð hefir kennt
mér eina þarfa lexíu, i)á að hér
3tendur gjarnan valið hjá hús-
byggjendum milli tveggja kosta.
Annar er sá að geyma smíði
biikkbeljugeymslunnar og laga
i>ess í stað garðinn, jafnvel með
tilstyrk fagmanna sem ar mun
larsælli lausn þegar frá líður.
Hinn að reisa bílskúrinn í fyrstu
iotu og láta ekki bara garðinn bíða
heldur og parketið á gólfið og
jafnvel gluggakisturnar; allar
hurðir og eldhúsinnréttinguna.
Það er nefnilega ::taðreynd að
meðal bílskúr í dag kostar ekki
minna en 400 þúsund. Ég minnist
þess að þegar ég þybbaðist við að
reisa bílskúrinn þá var viðkvæðið
hjá verkfræðingnum ... en hvar
eigum við að koma inn hitaveit-
unni og kalda vatninu. Var þess
jafnvel farið á leit við mig að hita-
veituinntakið væri í stofunni. nei
góðir hálsar það myndi birta fyrr
\rfir lóðum manna í nýbyggðuin
hverfum ef opinberir aðilar, arkit-
ektar, verkfræðingar og húsbyggj-
endur lyfti af sér bíiskúrsokinu og
jafnvel kæmust ýmsir undan
hamrinum ef kofinn sá væri ekki
til staðar.
Nóg um það.
Þegar ekið er frá einu helsta
oýbyggingarhverfinu Grafarvogi
yfir Gullinbrúvu þar sem nú
standa yfir miklar veglegar fegr-
unaraðgerðir, blasir við nær sam-
felldur ruslahaugur allt frá Vogi
og út að Elliðavogi. Sannkallað
augnayndi fyrir íbúa hins nýja
hverfis, mætti ekki hreinsa svolít-
ið til þarna Davíð og jafnvel
planta fljótsprottnun trjám?
Svo endar hver ...
Ég fæ ekki skilið við ykkur les-
endur góðir án þess að minnast á
endurtekin þátt sjónvarpsins frá
‘82 um skáldið Bellman. Þáttur
[æssi var á dagskrá á miðviku-
dagskveld og í umsjón Sigurðar
heitins Þórarinsson. En þessir
sungu: Heimir Pálsson, Gunnar
Guttormsson, Gísli Helgason,
Árni Björnsson og Hjalti Jón
Sveinsson. Sá söngur yljaði um
hjartarætur og minnti á þá stað-
reynd að enn liggur máski svo sem
ein taug íslenskrar þjóðarsálar til
frænda vorra á Norðurlöndunum.
Þegar sú taug slitnar alveg er eins
gott að flytja beint til Dallas.
ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / S JON VARP
utef i.......k.
Clark Gable í hlutverki bTint Mitchell meó indíinum.
„Handan Missourimóðu“
— bandarískur vestri frá 1951
■■■■ Bandarískur
99 25 vestri frá árinu
— 1951, „Handan
Missourimóðu“, er mynd
kvöldsins í kvöld og hefst
hún klukkan 22.25. Leik-
stjóri er William Well-
man og með aðalhlut-
verkin fara Clark Gable,
Ricardo Montalban, John
Hodiak og Adolphe Menj-
ou.
Söguþráðurinn er á þá
leið að loðdýraveiðimaður
einn í Klettafjöllunum
vingast við indíánahöfð-
ingja og gengur að eiga
indíánastúlku. Helst þá
friður með veiðimönnum
og rauðskinnum um hríð
þar til herskár höfðingi
tekur við völdum. Þýðandi
er Kristmann Eiðsson.
Kvikmyndahandbókin
okkar gefur myndinni
tvær og hálfa stjörnu af
fjórum mögulegum og
segir jafnframt að þetta
sé frekar óvenjulegur
vestri frá því um 1920.
Skonrokk
■■i^H Skonrokk verð-
91 00 ur á sínum stað
1 “* í sjónvarpinu
klukkan 21.00 í kvöld.
Umsjónarmenn eru Har-
aldur Þorsteinsson og
Tómas Bjarnason.
Haraldur sagði í sam-
tali við Mbl. að fyrirhugað
væri að spila þrjú íslensk
lög í þættinum auk ann-
arra erlendra. Hljóm-
sveitin Oxsmá leikur lagið
„Kittý" sem er eftir þá fé-
laga. Oxsmá skipa sex
strákar og flytja þeir að-
allega sveiflukennt rokk
og ról. Hljómsveit þessi
fór af stað fyrir alvöru
fyrir u.þ.b. þremur árum
og hafa þeir spilað á tón-
leikum víða hér á landi.
Bubbi Morthens kemur
í Skonrokk í kvöld með lag
af nýjustu plötu sinni.
Lagið ber nafnið „Frosin
gríma". Einnig verður lag
með spaugaranum, Jóni
Ólafssyni, en hann er
einnig dagskrárgerðar-
maður á rás 2.
Hljómsveitin Oxsmá
„Úr blöndukútnum“
— á Ijúfum kyöldnótum
■■■■ Þáttur Sverris
9935 Páls Erlends-
*— sonar, „Úr
blöndukútnum" verður á
dagskrá útvarpsins, rásar
l, klukkan 22.35 og verður
að þessu sinni á ljúfum
kvöldnótum með rólegu
sniði, eins og Sverrir Páll
orðaði það í samtali við
Mbl.
„Þátturinn verður hæg-
ur og rólegur og spiía óg
m. a. af nýlegri plötu ;>ar
sem Bob James spilar á
allskonar rafeindahljóð-
færi, útsetningar eftir
átjándu aldar tónskáldið
franska, Rameau. Þetta er
klassísk músík sem hann
útsetur fyrir rafeinda-
hljóðfæri og er tónlistin
afar ljúf og falleg," aagði
Sverrir Páll.
„Ég mun spila eitthvað
með 22 ára gömlum
bandarískum trompett-
leikara, Wynton Marsalis,
og er hann einn af skær-
ustu stjörnum Bandaríkj-
anna í trompettleik bessa
dagana. Ilann hefur bæði
lagt fyrir sig nútímatón-
iist alveg eins og gamla
klassíska tónlist. Síðan
mun Hollendingurinn
Thijs van Leer koma við
sögu í þættinum. Hann
ætlar að spila gamalt lag,
The Tango, á flautu með
stórri hljómsveit, og er
lagið eftir hann sjáifan.
Leer var í hljómsveitinni
„Focus" hér í gamla daga
og nú fyrir stuttu kom út
plata er ber nafnið „Foc-
us“ en þar eru að verki
Leer og vinur hans úr
Focus, Jan Akkerman.
Akkerman er gítarleikari
en þeír félagar voru fræg-
astir á sínum tíma fyrir
lagið „Hokus Pókus" sem
eflaust margir kannast
við, og er hálfgerðui*
brandari út af fyrir sig.
Einnig kemur Pat Meth-
eny-flokkurinn í þáttinn
líka,“ sagði Sverrir Páll.
Lögregluháskólinn
■■■■ Bresk heimild-
91 30 armynd um
A ■— þjálfun nýliða í
bandarisku alríkislögregl-
unni, FBI, er á dagskrá
sjónvarpsins klukkan
21.30 í kvöld. Hann ber
nafnið Lögregluháskólinn.
Mynd þessi er úr einu at-
riða myndarinnar en þeir
sem þar þjálfast þurfa að
ganga undir erfiða þjálf-
un.
Þýðandi er Bogi Arnar
Finnbogason.
UTVARP
FÖSTUDAGUR
7. júní
/.00 Veðurfregnir. Fiéttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
fimi. Tilkynningar.
7Æ5 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir.
Morgunorð: — Anna Marla
Ögmundsdóttir, Flateyri, íal-
ar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Börn eru besta tólk" eftir
Stefán Jónsson. Þórunn
Hjartardóttir les (13).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tiikynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr. j.Tónleikar.
10.45 „Það er svo margt að
minnast á“. Torfi Jónsson
sér um páttinn.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
izao Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 „Hákarlarnir" eftir Jens
Björnebo. Dagný Kristjáns-
dóttir þýddi. Kristján Jóhann
Jónsson les (5).
14.30 Miödegistónleikar.
a. Hugleiðing um tvö Islensk
pjóðlög eftir Johan Svend-
sen. Fllharmónlusveitin I
Ösló leikur; Kjell ingebretsen
stjórnar.
b. Sinfónla nr. 1 I g—inoll
op. 7 eftir Carl Nielsen. Sin-
fónluhljómsveit danska út-
varpsins leikur; Herbert
Blomsterberg stjórnar.
15.15 Sextett Júrgens Franke
leikur létt lög frá liðnum ár-
um.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
-,6.20 A sautjándu ' tundu. Um-
sjón: Sigrlður Haraldsdóttir
og Þorsteinn J. Vilhjálmsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Ragnheiður Gyöa
Jónsdóttir
17.35 Frá A til B. Létt spjall um
umferðarmál. Umsjón: Bjðrn
M. Björgvinsson og Tryggvi
Jakobssen. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvðldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19j40Tilkynningar.
Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Fyrstu kynni Halldórs
Laxness af sóslalisma. Sig-
urður Hróarsson segir frá
fyrstu skrifum skáldsins, sem
lituð eru þeim kynnum.
b. Kórsöngur — Hamrahllð-
arkórinn cyngur undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur.
c. I miðju straumkastinu.
Helga Finarsdóttir les fyrsta
lestur af fjórum um llf og
störf Helgu Nlelsdóttur Ijós-
móður, úr bókinni „Fimm
konur" eftir Vilhjálm S. Vil-
hjálmsson. Umsjón: Helga
Agústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum. Atli
Heimir Sveinsson kynnir
Klarinettukonsert oftir Askel
Másson.
22.00 Hestar. Þáttur um hesta-
mennsku I umsjá Frnu Arn-
ardóttur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Úr blöndukútnum —
Sverrir Páll l'rlendsson.
(RÚVAK)
23.15 Hljómleikar Evrópu-
bandalags útvarpsstöðva
1985. Hátlðarhljómleikar I
SJÓNVARP
19.15 A dðfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19SeS Krakkarnir I hverfinu
Kanadlskur myndaflokkur
um hversdagsleg atvik I llfi
nokkurra borgarbarna.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Hættum aö reykja
Umsjónarmaður Sigrún Stef-
ánsdóttir.
FÖSTUDAGUR
7. júnf
21.00 Skonrokk
Umsjónarmenn Haraldur
Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.30 Lögregluháskólinn
Bresk heimildamynd um
þjálfun nýliða I bandarfsku
alrlkislðgreglunni, FBI. Þýð-
andi Bogi Arnar Finnboga-
son.
22.25 IHandan Missourimóöu
(Across the Wide Missouri)
3andarlskur vestri frá 1951.
Leikstjóri William Wellman.
Aðalhlutverk: Clark Gabie,
Ricardo Montalban, John
Hodiak og Adolphe Menjou.
Loðdýraveiðimaður I Kletta-
fjöllum vingast vlö indlána-
höfðingja og gengur að eiga
indlánastúlku. Helst þá friður
með veiöimönnum og rauð-
skinnum um hrlð þar til
lierskár höföingi tekur við
völdum.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
23.50 Fréttir I dagskrárlok
Marlukirkjunni I Lúbeck 25.
mars sl. Flytjendur: Ernst-
Erich Stender, organleikari,
Drengjakór Marlukirkjunnar.
Kammerkór og Hljómsveit
útvarpsins I Hamborg; Hans-
-Jurgen Wille stjórnar. Flutt
veröa tónverk eftir Franz
Turner, Dietrich Buxtehude
og Johann Sebastian Bach.
Umsjón: Guðmundur Gilss-
on.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
7. júnl
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Einar Gunnar
Einarsson og Siguröur Sverr-
ísson.
14.00—16.00 PÓSthðlfiö
Stjórnandi; Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi; Jón Ölafsson.
Þriggja mlnútna tréttir sagð-
ar klukkan 11.00, 15.00,
16.00, 17.00.
Hlé.
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
(Rásirnar samtengdar að
lokinni dagskrá rásar 1.)