Morgunblaðið - 07.06.1985, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 07.06.1985, Qupperneq 7
7 MORCUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985 Mótettukór Hallgrímskirkju: Söngferð um Norðurland Mótettukór Hallgrímskirkju held- ur tvenna tónleika á Norðurlandi um næstkomandi helgi. Laugardaginn 8. júní syngur kórinn í Húsavíkurkirkju og hefj- ast hljómleikarnir kl. 17:00. Á sunnudaginn verða tónleikar í Ak- ureyrarkirkju og hefjast þeir einnig kl. 17:00. Fyrri hluti efnisskrárinnar er verk og raddsetningar eftir inn- lend tónskáld. Þar á meðal Þorkel Sigurbjörnsson, Jón Nordal, bræð- urna Hörð og Jón Hlöðver Ás- kelssyni og Róbert Abraham Ottósson. Seinni hluti dagskrárinnar spannar tónlist frá 16. öld til okkar daga. Sungin eru verk er- lendra meistara og má þar nefna Johann Seb. Bach, Alessandro Scarlatti, Heinrich Shútz, Leon- ard Lechner, Mendelssohn og Ant- on Bruckner. Einsöngvari er Sólrún Braga- dóttir sópransöngkona, sem nú stundar nám við tónlistardeild Bloomington-háskólans í Ulinois í Bandaríkjunum. Stjórnandi Mót- ettukórsins er Hörður Áskelsson. mm ■ ■ ■ Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt stjórnandanum, Herði Askelssyni. Steinþór Sigurðsson listmálari, Guðrún Magnúsdóttir fulltrúi og Ólafur Kvaran listfræðingur við eitt verka Gunnlaugs Scheving. Sumarsýning Norræna hússins: Sýning á sjávarmyndum eftir Gunnlaug Scheving SUMARSÝNING Norræna hússins er að þessu sinni tileinkuð sjávarmynd- um Gunnlaugs Scheving. Á sýningunni eru 40 verk Gunnlaugs, sem öll tengjast sjómennsku og spanna allan hans listferil allt frá 1929 fram til 1972. í sýningarskrá skrifar Matthías Johannessen um kynni sín af Gunnlaugi Scheving og vunar meðal annars í bók sína um Gunnlaug. Þar kemst Gunnlaugur svo að orði um sjávarmyndir sín- ar. „Þetta er engin hetjudýrkun, sagði hann, ef þú heldur það. Eg vel þessar fyrirmyndir úr lífi og starfi sjómanna einungis vegna þess að mér finnst gaman að vinna með þær. Sjórinn kemur hreyf- ingu í myndirnar, það verður þarna eitthvert samspil sævarins, bátsins og mannsins. Einhver hrynjandi, já, eitthvert drama. Sumir halda að ég geri mennina svona stóra til að vega upp á móti smæð þeirra. En þetta er myndr- ænt atriði, eins og ég sagði áðan. Ég teikna á ákveðinn flöt og fylli hann út, eins og mér þykir fallegt. Þegar maðurinn er stór, verður myndin mónúmental. í baráttunni við náttúruöflin er maðurinn allt- af stór.“ „Myndefnið sjór og sjómennska er honum hugleikið frá upphafi," sagði Ólafur Kvaran, listfræðing- ur, sem skipar sýningarnefndina ásamt Steinþór Sigurðssyni, list- málara. „Á sýningunni má sjá breytingar á túlkun myndefnisins og hægt er að rekja á skemmtileg- an hátt ákveðna þróun í verkunum frá mismunandi tímaskeiðum." Myndirnar á sýningunni eru fengnar að láni frá einstaklingum, stofnunum og söfnum og lagði sýningarnefndin metnað sinn í að hafa upp á myndum sem ekki hafa verið sýndar áður. Sýningin verð- ur opnuð sunnudaginn 9. júní og verður opin alla daga frá kl. 2 til 7 fram til 1. ágúst. Skyndihappdrætti Sjálfstæðisflokkins — dregið 15. júní: Fyrirspurnir um störf og baráttumál flokksins SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efnir i þessu vori eins og endranær til happ- drættis. Happdrætti flokksins er löngu kunnur og fastur liður í flokksstarfinu og ein mikilvægasta fjiröflun flokksins. Að sögn Kjartans Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Sjilfstæðisflokksins, er happdrættið nú með nokkuð öðru sniði en verið hefur til þessa þ.e.a.s. { Reykjavík. Þar var nú farin sú leið að senda flokksmönnum og velunnurum flokksins happdrættismiðana í formi gíró-seðla sem ekki hefur verið gert iður. Þessi útsendingaraðferð ætti að auðvelda mönnum mjög að gera skil í happdrættinu. Mjög stuttur tími er til stefnu fyrir menn að taka þitt í happdrættinu, dregið verður í því 15. júní nk. Kjartan kvaðst vilja leggja mikla iherslu i að virk þitttaka flokksmanna í happdrættinu skipti flokkinn miklu fjirhagslegu mili. f bréfi fri formanni, varaformanni og fram- kvæmdastjóra flokksins, sem fylgir með happdrættismiðunum, segir meðal ann- ars: „Á nýafstöðnum landsfundi flokksins kom glöggt fram hinn mikli styrkur og samhugur sem ein- kennir Sjálfstæðisflokkinn. Á þeim málefnagrundvelli sem lagður var á þessum fundi mun flokkurinn heyja baráttu sína næstu misserin. Hvernig sú barátta tekst getur haft mikil áhrif á afkomu og hag allra landsmanna um langan tíma. Stefna Sjálfstæðisflokksins um samvinnu stéttanna, sameiginlega framfarasókn og framtak einstakl- inganna getur lagt grundvöll að nýju tímabili uppbyggingar og kjarabóta. Stefna vinstri flokkanna um stéttaátök og sundrung þjóðar- innar leiðir hinsvegar til nýrrar holskeflu verðbólgu og þar með versnandi lífskjara. Sjálfstæðis- flokkurinn heitir á þig að leggja sér lið í sameiginlegri baráttu okkar fyrir bættu þjóðfélagi með hags- muni allra stétta fyrir augum, eins og segir í fyrstu stefnuyfirlýgingu flokksins." Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri, sagði, að með happ- drættismiðunum væri öllum send fyrirspurn og blað til þess að svara henni á. Spurt væri hvar mönnum fyndist flokknum takast best og o happdrætti Sjálfstæöisflokksins w W Verð kr. 150.- hvað helst bjátaði á í flokksstarfinu og varðandi baráttumál flokksins. Þetta væri nýjung varðandi happ- drættið og væri vonast eftir því að sem allra flestir flokksmenn sæju sér fært að svara þessum fyrir- spurnum, en svör við þeim gæfu for- ystu flokksins mikilvæga vfsbend- ingu um vilja flokksmanna. Svör óskast send Sjálfstæðisflokknum, Valhöll, Háaleitisbraut 1. Að lokum endurtók framkvæmda- stjórinn þá von sína að sem allra flestir, sem fengið hafa senda happ- drættismiða um land allt, bregðist skjótt við og taki þátt í happdrætt- inu og veiti þar með flokknum það nauðsynlega fjárhagslega brautar- gengi sem hann þarf á að halda. Að venju er aðeins dregið úr seldum happdrættismiðum og vinningarnir eru glæsiiegir ferðavinningar sam- tals að verðmæti tæp ein milljón króna. í Reykjavík er skrifstofa happdrættisins í húsi Sjálfstæðis- flokksins, Valhöll, Háaleitisbraut 1. Þar er opið frá kl. 8.00 á morgnana til kl. 22.00 á kvöldin. SOL oa FJOR B B U R I N N Austurstræti 17, símar 26611 — 23510 Megum við bjóða þér það bezta á Ítalíu — Spáni og Portúgal rowU/A Feröaskrifstofan UTSÝN STÓRKOSTLEGT TÆKIFÆRI FYRIR ÞIG í 6 manna hópi býðst þér 3000 kr. kynningar- afsláttur fyrir feröaféiagana og frítt fyrir þig í 2 vikur í sól og sumaryl! Gildir aðeins næstu daga fyrir nýjar pantanir á fáum óseldum sætum til Ítalíu, Spánar og Portúgai. Þú finnur ánæaiuna í Fríklúbbsferö meö Útsýn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.