Morgunblaðið - 07.06.1985, Síða 56
OPINN 10.00-02.00
HLEKKURIHBMSKEÐJU
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Breska stórfyrirtækið Rio Tinto Zink:
íhugar þátttöku
í kísilmálmiðju
BRESKA stórfyrirtækiö Rio Tinto
Zink sendir hingað nú á sunnudag
sex manna sendinefnd, sem mun
eiga viðræður við stóriðjunefnd, og
skoða aðstæður á Reyðarfirði, með
þann möguleika í huga, að gerast
samstarfsaöili íslendinga um bygg-
ingu og rekstur kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði.
Samkvæmt því sem Birgir Is-
leifur Gunnarsson, formaður stór-
iðjunefndar, upplýsti blaðamann
Morgunblaðsins um í gær, þá er
þetta í þriðja sinn sem fulltrúar
þessa fyrirtækis koma hingað til
viðræðna við stóriðjunefnd. Komu
Boeing 767
með hreyfil-
bilun lenti
í Keflavík
160 farþegar um borð
TVEGGJA hreyfla þota af gerð-
inni Boeing 767, frá flugfélaginu
Trans World Airlines, með 160
farþega innanborðs lenti á
Keflavíkurflugvelli kl. 14.05 í
gær, eftir að flugstjórinn hafði
uppgötvað að gangtruflanir voru
í öðrum hreyflinum. Vélin var á
leiðinni frá Frankfurt til St. Lou-
is í Bandaríkjunum.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var aldrei
nein hætta á ferðum, en flug-
stjóranum þótti öruggara,
þegar hann uppgötvaði bilun í
hreyfli í grennd við ísland, að
lenda þar. Skömmu síðar lenti
Júmbó 747 á Keflavíkurflug-
velli til þess að taka þá far-
þega, sem voru með hinni vél-
inni, en þegar hún var að und-
irbúa sig fyrir flugtak kom í
Ijós að loft hafði lekið úr
hjólbarða þannig að gera
þurfti við hjólbarðann áður en
vélin gat farið frá Keflavík.
Þeirri viðgerð var lokið laust
fyrir miðnætti og var Júmbó-
vélin farin í loftið upp úr mið-
nætti, með um 370 farþega
innanborðs.
þeir hingað tvisvar í fyrra, en
Birgir ísleifur sagði að áhugi
þeirra hefði dofnað eftir það. Nú
hefði áhugi þeirra hins vegar
vaknað á nýjan leik, og þeir kæmu
hingað til þess að kynna sér frekar
það sem þeir skoðuðu í fyrrasum-
ar.
Birgir ísleifur lagði áherslu á að
hér væri ekki um eiginlegar samn-
ingaviðræður. Hann sagðist þó
telja að það væri álitlegur kostur
fyrir okkur, ef af samvinnu við
þetta fyrirtæki gæti orðið. „Þetta
er mjög stórt og voldugt fyrirtæki.
Það veltir þúsundum milljóna
punda á ári og er með rekstur víða
um heim. Þetta er mjög fjölþættur
rekstur, en mest eru þeir í ýmis
konar málmvinnslu."
Sendinefndin dvelur hér út
næstu viku og kannar tæknilega
þætti, svo og ýmsa þætti varðandi
áætlanir fyrirhugaðrar verk-
smiðjubyggingar.
■ 4
j I \ \
í fuglabjargi nútímans
Morgunblaðid/Rún&r Aðalsteinsson
Gluggaþvottur á háhýsum er ekkert áhlaupaverk að því er virðist. En með því að nýta sér gamla og góða
sigtækni og laga hana að aðstæðunum, þá gengur verkið fljótt og vel fyrir sig.
Getum ekki beðið án
aðgerða öllu lengur
— sagði Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra eftir viðræður hans og Shultz
„ÞVÍ miður er alltof lítið að
fregna af þessum fundi,“ sagði
Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra, er hann var spurður um
viðræður sínar síðdegis í gær við
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, um skipaflutn-
inga varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli.
íslensk skipafélög önnuðust
þessa flutninga til skamms tíma,
en um nokkurt skeið hefur
bandaríska skipafélagið Rainbow
Navigation setið eitt að þeim í
skjóli bandarískra verndarlaga
frá 1904.
Geir Hallgrímsson situr nú
fund utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagsríkja í Estoril
í Portúgal og fóru viðræður hans
og Shultz fram að loknum fyrsta
fundi ráðherranna. „Við ræddum
ágreiningsefnið," sagði Geir, „og
Shultz lofaði að gera endanlega
grein fyrir því hvernig málið yrði
lagt fyrir bandaríska þingið fyrir
mánaðamótin. Ég lýsti yfir
óánægju minni yfir seinagangi
þessa máls af hálfu bandarískra
stjórnvalda og skýrði utanríkis-
ráðherra frá því, að við gætum
ekki beðið án aðgerða af okkar
hálfu öllu lengur. Við skiptumst
á upplýsingum og munum vera í
sambandi hvor við annan áður en
mánuðurinn er liðinn."
„Ég mun gera ríkisstjórninni
grein fyrir viðræðunum við
Shultz þegar heim er komið,"
sagði Geir Hallgrímsson, „þann-
ig að okkar aðgerðir i málinu
liggi sem fyrst fyrir ef annað
dugar ekki.“
43 milljónir á gjald-
eyrisreikningum
INNLENDIR gjaldeyrisreikningar
eru nú um 40 þúsund talsins og voru
innstæður á þeim um síðustu áramót
um 43 milljónir dollara, sem jafn-
gildir þriðjungi af gjaldeyrisforða
Pólverja meinað að koma inn í landið:
Utlendingaeftirlitið telur að
hann hafi ætlað að setjast að
Venslafólk hans hér á landi segir að hann hafi aðeins ætlað að heimsækja ættingja
PÓLVERJI sem kom hingað til lands í fyrradag, um Kaupmannahöfn, frá
Póllandi án vegabréfsáritunar, var í gærmorgun sendur áleiðis til Kaup-
mannahafnar á nýjan leik, eftir að útlendingaeftirlitið hafði synjað honum
um landvistarleyfi. Ástæður útlendingaeftirlitsins fyrir synjuninni eru þær,
samkvæmt því sem Jóhann G. Jóhannsson hjá útlendingaeftiriitine segir
að útlendingaeftirlitið lítur ekki þannig á að maðurinn haf ætlað að koma
hingað til skammtímadvalar, sem ferðamaður, heldur haf hann hugsanleg,
ætlað að setjast hér að. Pólverjinn á hér nokkra vensiaroenn
•irihann sagði í gær að mannin-
uiri hefði verið synjað um vega-
bréfsáritun síðast í maf, I sam-
ráði við dómsmálaráðuneytið.
„Það er töluvert um það, að fólki
sé neitað um áritanir hingað,"
sagði Jóhann, og baett, vib að át,-
lendingaeftirlitið gæti varr litið á
það sem fyrirhugaða heimsókn
þegar sótf væri um dvalárleyfi
fyrír manninn til 6 mánaöá.
Þorvaldur Valsson, loftskeyta-
maður er kvæntur pólskri konu,
sem er ein þriggja mágkvenna
Pólverjans hér á landi. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær: „Okkur finnst þessi fram-
koma útlendingaeftirlitsins
hneisa. Þessi maður var hingað
kominn einungis til þess að heim-
sækja okkur, en ekki tii þess aö
setjast. hér að með óiögtegun,
hætti. Þetta.er mannréttmdamái
fyrir okkur. að við fáum að um-
gangast fjölskyldu okkar “
Þorvaldur sagði að Pólverjinn
heföi komið hingað án vegabréfs-
áritunar einfaldlega vegna þess
að upplýsingar um synjun hefðu
borist svo seint, að ekki hefði tek-
ist, að láta hann vita í Póllandi,
þótt, ítrekaöár tiiraunir hefðu
veriö gerða* tí3 þess.
Kona Þorvaittev heríw búift á
ísiandi i 4 ár, öníSBr systion 5 8 ás
og mágkona þeirra hefuv verið
hér í eitt tx, pr húr. hfefuv ekki
.dvalarieyfs.
Sj» nanai viðtai við
Þorvald Valsson á bls. 2.
landsins og 6,7 % af heildarinnlánum
í bönkunum.
Þetta kom fram í ræðu, sem Jón
Sigurðsson, forstöðumaður Þjóð-
hagsstofnunar, flutti á aðalfundi
Sölusambands íslenzkra fiskfram-
leiðenda í gær.
Tveir þriðju af þessum gjaldeyr-
isinnstæðum eru á reikningum
einstaklinga, en um 25 til 30% á
reikningum fyrirtækja. Af þessum
gjaldeyri eru nú 75% í dollurum,
9% í v-þýzkum mörkum, 7% í
pundum og 9% í dönskum krónum.
Forsetinn
til Noregs
í haust
Ósló, 5. júní. Frá Jan Erik Lanre, fréturitara
MorminhlaAmnii.
FORNFT'i isiands Vigdú: Finnboga-
dóttir, verður gestkomand' f Björg
vir i lok september. Mun hur halde
gestafyrirlestui á „lörnmennta
vilnt' , sem sagnlrædt og heimspeki
deila Björgviniarhaskoo gengsi
fyrir.
Fyrirlestur Vigdísar fjallar um
stöðu húmanískra fræöa á 21. öld-
ínni.