Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
Dagskrárgerð Lista- og skemmtideildar:
Þrjú leikrit, fram-
haldsþættir og sjón-
varpsmynd á árinu
LISTA- og skemmtideild Sjónvarpsins hefur nú lokið við gerð áætlunar um
leikritagerð í þessu ári. Þegar hafa verið tekin upp tvö verkefni, þættirnir
„Hvaðan komum við“, sem voru sendir út nýlega, og leikrit Steinunnar
Sigurðardóttur, „Bleikar slaufur", sem verður sent út í haust.
Að sögn Hinriks Bjarnasonar
forstöðumanns LSD verður í byrj-
un sumars unnið að gerð sex fram-
haldsþátta undir vinnuheitinu
„Fastir liðir“. Handrit þáttanna er
eftir Helgu Thorberg og Eddu
íssöluskáli á
„Hallærisplanið44
BORGARSTJÓRN hefur staðfest
leyfi byggingarnefndar fyrir íssölu-
skála á „Hallærisplaninu“, við Aust-
urstræti.
Það var íshöllin sf., Hjarðar-
haga 45, sem sótti um leyfi til
bygginganefndar til að setja
íssöluskála úr timbri á lóðinni nr.
2 við Austurstræti (á Hallæris-
planinu svonefnda). Fyrirhuguð
stærð skálans er 13 fermetrar.
Björgvinsdóttur, en leikstjóri er
Gísli Rúnar Jónsson. Þessir þættir
verða sendir út hálfsmánaðarlega
frá því í október fram til áramóta.
Eftir sumarfrí er ætlunin að taka
upp leikrit eftir Nínu Björk Árna-
dóttur sem heitir „Líf til ein-
hvers“, það verður sent út í sept-
ember. I sumar verður einnig unn-
ið að gerð barnaefnis fyrir vetr-
ardagskránna.
í haust verður gerð klukkutima
sjónvarpsmynd eftir handriti Ág-
ústs Guðmundssonar, sem nefnist
„Ást í kjörbúð". „Þetta er létt og
skemmtilegt verk sem flestir ættu
að hafa ánægju af,“ sagði Hinrik.
Þar með er verkefnaskrá LSD
tæmd, en mannafli og fjármagn
sjónvarpsins setur þær skorður að
aðeins er hægt að vinna að leikrit-
um og sjónvarpsmyndum á tíma-
bilinu maí til september, að sögn
Hinriks.
Fegrunarviku aö Ijúka
Fegrunarviku lýkur í Reykjavík í dag, en þó munu sérstakir hreinsun-
arbflar fara um Laugarnes- og Langholtshverfi milli klukkan 10 og 12 á
mánudag, milli klukkan 13 og 15 í Bústaða- og Fossvogshverfi og milli
klukkan 15 og 17 verða hreinsunarbflarnir í Austur- og Vesturbæ. Að
sögn Péturs Hannessonar hjá hreinsunardeild borgarinnar hafa undir-
tektir borgarbúa verið mjög góðar og á einum stað voru um 30 tonn af
rusli fjarlægð. Piltarnir á myndinni voru við vinnu sína í Fógetagarðin-
um í vikunni og höfðu svartan ruslapoka á milli sín, en borgin hefur
dreift þúsundum slíkra að undanförnu.
Útboð á 40 íbúðum í verkamannabústöðum á 14 stöðum:
Lægstu tilboð að meðaltali
83 % af kostnaðaráætlun
TÆKNIDEILD Húsnæðisstofnunar ríkisins hefur undanfarnar vikur boð-
ið út byggingu fjölda verkamannabústaða fyrir stjórnir verkamannabú-
staða víðsvegar um landið. Þegar hafa verið opnuð tilboð í 40 íbúðir á 14
stöðum. Lægstu tilboð hafa verið á bilinu 70—94%. Samanlögð lægstu
tilboð í öllum þessum útboðum eru 17,5 milljónir kr., eða 17% undir
kostnaðaráætlun Húsnæðisstofnunar. Þetta er sú upphæð sem sparast
myndi ef lægstu tilboðum yrði tekið, en vitað er að í einstaka tilvikum
verður það ekki gert.
I Hveragerði var boðin út bygg-
ing 4 íbúða í tveim parhúsum. 10
tilboð bárust, öll undir kostnað-
aráætlun, og reyndust tilboð
Höskuldar Halldórssonar í Hvera-
gerði lægst, 3.469 þús. kr. (78,1%)
í annað húsið og 3.435 þús. kr.
(72,2%) í hitt. Fjögur tilboð bár-
ust í byggingu 2 íbúða í raðhúsi á
Fáskrúðsfirði, öll undir áætlun.
Smiðjustígur 2 á Fáskrúðsfirði
átti lægsta tilboðið, 5.808 þús. kr.,
sem er 84,3% af kostnaðaráætlun.
Á Eskifirði er fyrirhugað að
byggja 2 íbúðir í parhúsi. Þar átti
Tréverk sf. á Reyðarfirði lægsta
tilboðið, 4.311 þús. kr. (71,9%) en
bæjarstjórnin hefur ákveðið að
taka hærra tilboði frá heima-
manni eins og sagt hefur verið frá
hér í blaðinu.
Á Stöðvarfirði á að byggja 4
íbúðir í 2 parhúsum, í tveimur
áföngum. 7 tilboð bárust í verkið,
öll nema eitt undir kostnaðaráætl-
un. Framtak sf. á Reyðarfirði átti
lægstu tilboðin í báða áfangana,
4.564 þús. kr. (83,9%) og 5.258 þús.
kr. (87,3%). Átta verktakar buðu í
byggingu 2 íbúða 1 parhúsi í
Grundarfirði og voru allir undir
áætlun. Tilboð Sigurðar Elín-
bergssonar í ólafsvík var lægst,
4.155 þús. kr., sem er 82,7% af
kostnaðaráætlun.
Lægsta tilboðið í þessum útboð-
um verkamannabústaða var í
byggingu einbýlishúss í Bæ i
Andakílshreppi í Borgarfirði og
var þar jafnframt mesti munur á
tilboðum. Byggingafélagið Borg
hf. í Borgarnesi átti lægsta boðið,
2.219 þús. kr., sem er 70,5% af
kostnaðaráætlun. Helmingur
þeirra 6 tilboða sem gerð voru í
verkið voru yfir áætlun, þau
hæstu um 5% yfir. Friðrik Jóns-
son sf. á Sauðárkróki átti lægsta
tilboðið í byggingu tveggja einbýl-
ishúsa í Varmahlíð í Seyluhreppi í
Skagafirði, 5.602 þús., sem er
86,6% af kostnaðaráætlun. Sex af
átta tilboðum í verkið voru undir
áætlun. í Þorlákshöfn á að byggja
tvær íbúðir í parhúsi. Sjö verktak-
ar voru um boðið, allir undir
kostnaðaráætlun, en tilboð Storð-
ar hf. í Þorlákshöfn var lægst,
3.645 þús. kr. (76,4%).
Stærsta verkið í þessari röð út-
boða stjórna verkamannabústaða
var bygging fjölbýlishúss á ísa-
firði með 9 íbúðum. 6 verktakar
vildu taka verkið að sér og voru
tilboð þeirra á bilinu 86—93% af
kostnaðaráætlun. Tilboð Guð-
mundar Þórðarsonar á ísafirði
var lægst, 15.886 þús. kr., sem er
86,1% af áætlun. I Sandgerði var
boðin út bygging 4 íbúða í fjölbýl-
ishúsi. öll 4 tilboðin sem bárust
voru undir kostnaðaráætlun, en
tilboð Braga Guðmundssonar í
Garði var lægst, 8.971 þús. kr., og
er það 82,1% af áætlun. Tréverk
hf. á Bíldudal bauð eitt fyrirtækja
í byggingu tveggja íbúða í parhúsi
þar á staðnum. Tilboðið var 5.051
þús. kr., sem er 92,8% af kostnað-
aráætlun Húsnæðisstofnunar.
Stjórn verkamannabústaða í
Vík í Mýrdal bauð út byggingu 2
íbúða í parhúsi og bárust 3 tilboð í
verkið, öll undir kostnaðaráætlun.
Lægst var tilboð byggingafélags-
ins Klakks í Vík, 4.215 þús. kr.,
sem er 83,2% af áætlun. Axel
Ström í Kópavogi átti lægsta til-
boðið í byggingu tveggja einbýl-
ishúsa á Eyrarbakka, 5.510 þús.
kr., sem er 85,7% af kostnaðar-
áætlun. 6 verktakar buðu í verkið
og voru allir nema einn undir
áætlun. Síðast voru opnuð tilboð í
byggingu tveggja fbúða í parhúsi á
Vopnafirði. Tvö tilboð bárust,
annað var nánast samhljóða
kostnaðaráætlun, en hið lægra
4.678 þús. kr., sem er 93,8% af
áætluninni.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Við upphaf kynningarínnar í gær. Davíð Oddsson borgarstjóri opnaði
sýninguna kl. 10 og er hann hér á miðri mynd ásamt sýningargestum í
Umferðarmiðstöðinni.
Rútudagur-
inn í gær
INNLEND ferðakynning undir
heitinu „Rútudagurinn“í tilefni
þess að 50 ár eru liðin frá því að
sérleyfisakstur hófst á íslandi var
haldin í Umferðarmiðstöðinni 1
gær.
Það var félag sérleyfishafa
sem í samvinnu við fjölmarga þá
er að ferðamálum starfa stóð að
þessari kynningu. Davíð
Oddsson borgarstjóri opnaði
kynninguna í gærmorgun.
Um 40 bifreiðir voru til sýnis
við Umferðarmiðstöðina, bæði
nýjar og gamlar, stórar og litlar.
Kynntir voru ferðamöguleikar
um landið inni í Umferðarmið-
stöðinni. Auk þess voru fjölmörg
skemmtiatriði á Rútudeginum
— Bjössi bolla kom í heimsókn,
lúðrasveit lék og vinsælir rútu-
söngvar voru sungnir. Þeir sem
tóku sér ferð með sérleyfisferð-
um í gær fengu ferðina á hálf-
virði í tilefni dagsins.
Vestmannaeyjar:
Lyftarinn
sökkti
trillunni
Vestmannaeyjuni. 7. júní.
SÍÐDEGIS í dag varð það óhapp að
rafmagnslyftari stakkst fram af Bæj-
arbryggjunni hér og lenti ofan á trill-
unni Ama Páls VE. Tríllan sökk með
það sama með lyftarann innanborðs
en engin meiðsli urðu á mönnum.
Lyftarinn var að sækja fiskikar
á bryggjuna, sem hallar niður í
móti, þegar hann rann skyndilega
af stað og skipti engum togum að
hann hafnaði á þilfari trillunnar.
Til allrar hamingju var fallið ekki
hátt, hálfur annar eða tveir metr-
ar. Ökumanni lyftarans tókst að
forða sér í tæka tíð, svo hann fór
ekki með niður. Um borð í Árna
Páls var sjómaður að landa en
honum tókst sömuleiðis að komast
undan.
Lyftaranum var náð í land með
krana síðdegis en trillan er enn á
kafi. Ekki er vitað enn hvort hún
hefur skemmst mikið.
— hkj
Bfltúrinn end-
aði 1 hofnmni
HANN VARÐ endasleppur, bfltúr-
inn, sem 17 ára Eyrbekkingur bauð
kærustunni sinni í upp úr kvöldmat
á föstudagskvöldið. Hann fékk bfl-
prófið 22. maí síðastliðinn.
Eftir að hafa ekið Lödunni sinni
um götur þorpsins nokkra hríð lá
leiðin niður að höfn. Grunur leik-
ur á að hratt hafi verið ekið, að
sögn lögreglunnar á Selfossi, því
þegar komið var fram á bryggjuna
tók bíliinn sjálfur völdin. Skipti
engum togum að hann hafnaði á
grindverki en rann síðan fram af
bryggjukantinum og ofan í sjó.
Unga parinu tókst að bjarga sér
til lands og voru þau flutt blaut og
hrakin á sjúkrahúsið á Selfossi.
Ekki varð þeim meint af volkinu
og fengu því að fara heim fljót-
lega. Bíllinn, árgerð 1980, er hins-
vegar talinn ónýtur.
Vægir kippir
í Flóanum
JARÐSKJÁLFTAKIPPIR fundust
á Suðurlandi í fyrrinótt. Voru þeir
vægir, en fundust þó á einhverjum
bæjum í Flóa, þar sem fólk vakn-
aði.
Bíll lenti í
Kópavogslæk
ALVARLEGT umferðarslys varð við
Kópavogsiækinn um fimmleytið á
laugardagsmorguninn. Bfll úr
Reykjavík var að koma frá Hafnar-
firði með fjóra unga menn þegar
ökumaðurinn missti stjórn á bflnum
á brúnni yfir lækinn. Lenti bfllinn
utan í grindverki yfir brúna og kast-
aðist síðan útaf veginum og hafnaði í
læknum.
Fjórmenningarnir voru fluttir á
slysadeild en ekki var í gær vitað
gjörla um meiðsli þeirra. Bíllinn
er talinn ónýtur, skv. upplýsingum
Kópavogslögreglunnar. Enginn
fjórmenninganna var ölvaður.
INNLENT