Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 4
4
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 9. JtJNÍ 1985
~ Monfunblaðiö/Gils
A Markarfljótsaurum
Félög innan Skógrsktarfélags íslands vöktu athygli á starfsemi sinni á
ýmsan hátt í gær. Verkefnin voru mismunandi eftir aóstæðum á hverj-
um staö. Á dögunum tóku 17 Landeyingar til hendinni og settu niöur
tré á Markarfljótsaurum.
Sjálfsvíg færri hér en á
hinum Norðurlöndunum
— samkvæmt norrænni könnun er náði yfir árin 1880—1980
SJÁLFSVÍG eru færri á tslandi en
svo verið undanfarna öld, að því t
Jónsdóttir og Páll Sigurðsson skrif;
Sjálfsvíg hér á landi voru fæst
á árunum 1921 til 1930 eða 6,7
árlega á hverja 100 þúsund íbúa
en flest á árunum 1961 til 1970
eða 10,1 á hverja 100 þúsund íbúa.
Ef borin eru saman tvö fimmtíu
ára tímabil, 1880—1930 og
1931—1980, kemur í ljós, að með-
altal fyrra tímabilsins var 8,5
sjálfsvíg á hverja 100 þúsund
íbúa en meðaital síðara tímabils-
ins 10,1 sjálfsvíg á ári á hverja
100 þúsund íbúa. Mætti út frá þvi
i hinum Norðurlöndunum og hefur
kemur fram í grein, sem Guðrún
í nýjasta hefti Læknablaðsins.
draga þá ályktun, segir i grein
Guðrúnar og Páls, að um ein-
hverja aukningu hafi verið að
ræða.
Athugun þeirra var liður í
tveimur norrænum athugunum,
sem hófust 1978 og lauk 1983. I
fyrsta lagi var athuguð tíðni
sjálfsviga á Norðurlöndum frá
1880 til 1980 og svo voru kannað-
ar hugsanlegar skekkjur í skrán-
ingu sjálfsvíga og áhrif þeirra á
samanburðinn milli landanna.
Sveiflur í sjálfsvígum á þessu
tímabili eru verulegar. í byrjun
þess virðast sjálfsvíg hafa verið
tíð í Danmörku en heldur fátíð í
hinum löndunum og er Finnland
áberandi lægst, að því er segir i
greininni. Siðan segir: „Næstu
fimmtíu árin verður sú breyting,
að tiðnin lækkar í Danmörku en
hækkar í Finnlandi og Svíþjóð.
Eftir 1920 fylgjast þessar þjóðir
nokkurn veginn að. Noregur og
ísland fylaast nokkuð að allan
tímann, en Island þó alltaf heldur
hærra, en í lok tímabilsins er
enginn munur."
Ekki samstaða um
niðurskurð ríkisútgjalda
ný tekjuöflun því nauðsynleg, sagði Þorsteinn Pálsson
ÞAÐ NÁÐIST ekki samstaöa innan ríkisstjórnarinnar um niöurskurð ríkis-
útgjalda til aó mæta vanda í húsnæóismálum. Þess vegna og eins vegna hins
að ekki kom til greina af hálfu Sjálfstæðisflokksins að auka erlend lán, er sú
leið farin að hækka söluskatt og leggja á eignarskattsauka til öflunar fjár til
húsnæðiskerfisins. Þetta var megininntak ræðu Þorsteins Pálssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins, þegar hann svaraði gagnrýni á hugmyndir
stjórnarflokkanna í skattamáhim, á Varöarfundi síðastliðið fimmtudags-
kvöld. Á fundinum hafði hann framsögu, ásamt Friðriki Sophussyni, varafor-
manni Sjálfstæðisflokksins um stjórnmálaástandið.
Þorsteinn Pálsson benti á að
söluskattslækkun og lækkun að-
flutningsgjalda og tolla leysir ekki
vanda þeirra sem þegar eru búnir
að byggja og standa nú frammi
fyrir miklum greiðsluerfiðleikum.
Einnig hefði sú leið kallað á niður-
skurð á öðrum sviðum ríkisút-
gjalda, en um það var ekki sam-
komulag, eins og áður segir.
Ásælni ríkissjóðs á fjármagns-
markaði hefur þrýst vöxtum upp
og því er innlend lántaka ekki
möguleg. Því er nauðsynlegt að
grípa til þeirra ráða sem fyrirhug-
uð eru. Eignarskattsauki og hækk-
un söluskatts (húsnæðisgjald)
koma fyrst og fremst við þá sem
betur eru settir.
Fyrir Alþingi liggja tvö frum-
vörp sem miða að því að rétta
þeim hjálparhönd sem eiga í vand-
ræðum vegna húsakaupa eða
-bygginga. Annars vegar frum-
varp um greiðslujöfnun fasteigna-
veðlána einstaklinga og hins vegar
frumvarp um sérstaka fjáröflun
til húsnæðismála, þar sem eign-
arskattsauki er lagður á og sölu-
skattur hækkaður. Fyrra frum-
varpinu eru ætlað að leiðrétta
misgengi milli lánskjaravísitölu
og launa, með þvi að lengja lán ef
vísitalan hækkar meira en laun.
Þorsteinn Pálsson, áréttaði að
meginhluti þessa misgengis hefði
verið komið fram á árinu 1982 og
fyrrihluta 1983. Misgengið hefur
hins vegar haldið áfram, af tveim-
ur ástæðum. I fyrsta lagi vegna
samdráttar í efnahagslífinu, sem
rýrt hefur þjóðartekjur og í annan
stað vegna þess að viðskiptahalli
er við útlönd. Neikvæður jöfnuður
viðskipa við útlönd er ekkert ann-
að, en fyrirfram greiðsla launa,
sem rýrir ráðstöfunartekjur í
framtíðinni. Afnám vísitölubind-
ingar launa er því ekki völd að því
að laun hafa ekki haldið í við
lánskjaravísitölu.
Friðrik Sophusson, varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sagði að
ríkisstjórninni hefði ekki tekist
allt það sem að var stefnt. Fyrir-
tæki, einkum í sjávarútvegi eru
veikari nú en á síðasta ári og eru
því verr í stakk búin til að mæta
skakkaföllum. Þá undirstrikaði
Friðrik að sjálfstæðismenn gætu
ekki átt sæti í ríkisstjórn sem
næði ekki árangri.
Það hefur sorfið til stáls á Al-
þingi og í ljós kemur hvort Sjálf-
stæðisflokkurinn kæmi þeim
frumvörpum í gegn sem þeir
leggja megináherslu á. Samþykkt
þeirra er ein forsenda árangur í
efnahagsmálum.
Fram kemur um athugun á
sjálfsvígum á íslandi sérstaklega,
að „hæsta árið er 1966, 37 sjálfs-
víg, og hæsta árið fyrir karla er
einnig 1966, 31 karl. Hæsta árið
fyrir konur er 1980: tíu konur.
Lægst eru árin 1885 og 1896, einn
karl og einn kona. Lægsta árið
síðan 1966 er 1971, níu karlar og
tvær konur... Á íslandi urðu
verulegar sveiflur á tímabilinu
1966—1980, en tíu ára tímabilið
1961—1970 er hærra en tímabilið
1971—1980 og í lok þess tímabils
er Island orðið lægra en Noregur
fyrir einstök ár.“
Hvað varðar aldur þeirra, sem
fremja sjálfsvíg hér á landi, eru
íslenskar tölur fyrir aldursflokk-
ana 20—24 ára (tímabilið
1966—1980) mjög lágar. I grein-
inni segir: „Tölulegur fjöldi í ald-
urshópnum 15—19 ára var mest-
ur árin 1974 og 1978, þrjú tilvik
hvort ár, allt karlar. Allt tímabil-
ið 1966-1980 frömdu 17 karlar
sjálfsvíg á þessum aldri og ein
kona. í aldurshópnum 20—24 ára
var hæsta hlutfallið árið 1978 en
þá frömdu fjórir karlar og ein
kona sjálfsvíg. í þessum aldurs-
hópi öllum, 20—24 ára, frömdu 31
karl og fjórar konur sjálfsvíg á
þessu fimmtán ára tímabili."
Nærri 300 þúsund blómum,
runnum og trjám plantað
í Reykjavík í sumar
ÞESSA dagana og vikurnar er
unnið af miklu kappi við að planta
sumarblómum, runnum og trjá-
plöntum víðs vegar um Reykjavík,
í skrúðgarða, við götur og torg og á
opnum svæðum, auk þess sem
miklu af trjám er plantað í útlönd
borgarinnar. Lætur nærri að í
sumar verði plantað um 300 þús-
und sumarblómum, runnum og
trjám af tugum tegunda á vegum
Reykjavíkurborgar. Meira en
fimmtíu milljónum króna verður
varið til þessara verkefna á þessu
ári, segir í frétt frá garðyrkjustjóra
Reykjavíkur.
Starfsmenn garðyrkjustjóra
Reykjavíkur planta í sumar um
150 þúsundum sumarblóma af 26
tegundum og i fjölda litaaf-
brigða víða um borgina. Jafn-
framt verður plantað um 24 þús-
und trjám og runnum. Runnat-
egundirnar eru 26 en trjátegund-
irnar um 20. Sumarblómafjöld-
inn er að þessu sinni svipaður og
verið hefur undanfarin ár, en
talsvert meira verður nú plantað
af trjám og runnum en fyrr.
Þessar plöntur koma allar úr
ræktunarstöð borgarinnar í
Laugardal. Þar er alið upp mikið
af blómum, runnum og trjám
fyrir útivistarsvæði borgarinnar
og stofnana hennar. Stöðin selur
hins vegar ekki plöntur til al-
mennings.
Auk þessarar ræktunar er
plantað miklu af trjáplöntum,
mest birki, furu og greni, en
einnig ösp og víði, í útlönd borg-
arinnar, þ.e. Heiðmörk, holtin
ofan byggðarinnar í Breiðholti
og Grafarholtsland, sem innan
tíðar mun verða svipað útlits og
skógarsvæðin í Öskjuhlíð. Þessi
verkefni eru bein skógræktar-
verkefni. Plöntur til þeirra koma
úr stöð Skógræktarfélags
Reykjavíkur í Fossvogi. Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur nýtur
árlegs styrks frá Reykjavíkur-
borg og starfsmenn þess stýra
þessari gróðursetningu, en
flokkar unglinga frá borginni
vinna verkið, sem er kostað af
Rey kj avíkurborg.
Starfsmenn garðyrkjustjóra
taka mikinn þátt í fegrunarvik-
unni sem nú stendur yfir. Að
undanförnu hafa starfsmenn
garðyrkjustjóra farið um öll
borgarhverfi frá Lækjartorgi
inn að Barónsstíg og hugað að
því sem betur má fara í umhirðu
húsa og lóða. Sé einhverju ábóta-
vant, hefur ábendingum þar um
verið komið á framfæri við íbúa
og þess farið á leit, að úr yrði
bætt. Fólk hefur yfirleitt tekið
þessum ábendingum mjög vel,
enda ríkir mikill og vaxandi
skilningur meðal borgarbúa á
nauðsyn þess að ganga vel og
snyrtilega um. Þessu ábend-
ingar- og leiðbeiningarstarfi
verður haldið áfram í allt sumar
og fyrir haustið á að vera búið að
fara með þessum hætti um alla
borgina.
Borgarbúar hafa tekið mjög
vel þeirri málaleitan borgaryf-
irvalda að allir taki nú höndum
saman um að fegra og prýða höf-
uðstaðinn. Meðan á fegrunarvik-
unni hefur staðið hefur mikill
fjöldi fólks haft samband við
skrifstofu garðyrkjustjóra og
leitað ráða um gróður og garða,
enda hefur garðyrkjustjóri haft
sérstaka símatíma til ráðgjafar í
tengslum við fegrunarvikuna.
Skrifstofa garðyrkjustjóra mun
áfram veita borgarbúum allar
þær leiðbeiningar, sem hún
megnar, þótt fegrunarvikunni
sjálfri fari senn að ljúka, enda er
það von borgaryfirvalda að fegr-
unarvikan hafi orðið til þess að
opna augu fólks enn betur en áð-
ur fyrir nauðsyn þess að ganga
jafnan vel um borgina, hvort
sem er opinber svæði eða einka-
lóðir.
Undanfarna daga hefur sím-
í Laugardalnum rekur Reykjavíkurborg uppeldisstöó fyrir plöntur. Þar er
komið á legg miklu af margs konar trjáplöntum og runnum, auk fjölda
sumarblóma. Þessa dagana er verið að planta trjám og sumarblómum
víðs vegar um borgina, borgarbúum til ánægjuauka. Hér er Lilja Stef-
ánsdóttir verkstjóri í uppeldisstöðinni í Laugardal í broddi fylkingar
starfsmanna í stöðinni með kassa af sumarblómum, sem samdægurs voru
komin á sinn stað í blómabeði við Austurvöll.
inn á skrifstofu garðyrkjustjóra
verið rauðglóandi frá morgni til
kvölds og dag hvern hafa hringt
tugir manna til þess að leita
ráða um ræktun og gróður. Und-
irtektir borgarbúa nú í fegrun-
arvikunni eru enn einn vottur
þeirrar hugarfarsbreytingar
sem orðið hefur í Reykjavík und-
anfarin ár gagnvart hvers konar
ræktun. Nú orðið lætur fólk það
verða meðal fyrstu verka sinna
eftir að flutt hefur verið inn f ný
hús, að ganga frá lóðinni. Þessa
sér líka stað í borginni. Heilu
hverfin eru nú gróðri vafin.
Þá virðist fegrunarvikan í
Reykjavík einnig hafa vakið
mikla athygli utan höfuðborgar-
innar. Fjöldi bæjarfélaga úti um
land hefur haft samband við
garðyrkjustjóra og forvitnast
um fegrunarvikuna. Má þess
vegna búast við því að á næst-
unni fylgi ýmis bæjarfélög for-
dæmi höfuðborgarinnar og efni
til sérstaks fegrunarátaks.