Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
Halldór Ásgrímsson í opinberri heimsókn í Kanadæ
*
Hagur Islendinga ef Kan-
adamenn senda betri
frystan fisk á markað
HljómplaUn „Kirkjan syngur" kom nýlega út og var biskupi íslands afhent fyrsta eintakið á kóramótinu, sem lýkur
í dag. I fremstu röð frá vinstri eru herra Pétur Sigurgeirsson, biskup, Guðrún Sigurðardóttir, formaður Kirkjukóra-
sambands íslands, Haukur Guðlaugsson, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Helgi Ólafsson og séra Örn Bárður
Jónsson, fulltrúi Skálholtsútgáfunnar.
Móti kóra og organista að ljúka
Á ÞRIÐJA hundrað manns, bæði
kórfólk og organistar, taka nú þátt í
hinu árlega móti sem haldið er á
vegum söngmálastjóra Þjóðkirkj-
unnar. Að þessu sinni er mótið, sem
er hið 11. í röðinni, haldið í Reykja-
vík en hin 10 hafa öll farið fram í
Skálholti.
Mótinu lýkur í dag, sunnudag,
en þá verður messað í Langholts-
kirkju þar sem biskup Islands
herra Pétur Sigurgeirsson mun
predika og þjóna fyrir altari
ásamt sr. Hjalta Guðmundssyni
og sr. Pjetri Maack. Þátttakendur
mótsins sjá um söng, kórstjórn og
orgeileik og munu um 20 organ-
leikarar koma fram.
í messunni verða m.a. fluttir
sálmar úr Mattheusarpassíunni
eftir Bach og messutón eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, sem frumflutt
var í fyrra.
HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra, sem verið hefur í
opinberri heimsókn í Kanada, verð-
ur um helgina á fslendingaslóðum í
Winnepeg . Á mánudag mun hann
eiga viðræður við Fraser, sjávarút-
vegsráðherra Kanada, áður en hann
heldur til Washington.
„Viðræður mínar við menn hjá
Northern Sea og menn í Nova
Scotia voru aðallega um það á
hvern hátt við getum aukið sam-
vinnu okkar við Kanadamenn. Það
var mjög fróðlegt, því þar er ekki
sá stuðningur hins opinbera við
útveginn sem ég hélt. Þannig er
Northern Sea, sem er mjög stórt
fyrirtæki með 15-16 togara, 80% í
eigu einkaaðila.“ Halldór sagði að
meðal útvegsmanna í Nova Scotia
væri einhugur um að skera á öll
tengsl ríkisins við fyrirtækin.
Northern Sea er nú að fara að
breyta öllum sínum togurum, og
fer a.m.k. hluti þeirra breytinga
fram á Akureyri, einnig ætlar
fyrirtækið að taka upp íslenskar
vinnsluaðferðir.
„Kanadamenn hafa mikinn
áhuga á frekara samstarfi. í Nova
Scotia er margt mjög athyglisvert,
þeir eru t.d að fara að veiða síld,
eru búnir að veiða um 100.000
tonn, alla með hrognum. Þannig
fer hún á Japansmarkað. Einnig
er gert út á humar og skel, þannig
að þar er mikil breidd í sjávarút-
vegi.“ Á Nýfundnalandi eru miklu
meiri erfiðleikar að sögn Halldórs.
Stærsta útvegsfyrirtækið á þeim
slóðum, Fisheries Products Inc., er
að langmestu leyti í eigu ríkisins.
Á mánudag mun Halldór síðan
hitta Fraser sjávarútvegsráðherra
að máli. „Við eyddum allmörgum
klukkutímum daginn sem ég kom í
viðræður, en við eigum enn mikið
eftir og veitir ekki af mánudegin-
um. Að mínu mati höfum við alls
ekki unnið nægilega mikið með
Kanadamönnum, við hugsum
frekar um þá sem keppinauta en
samstarfsmenn. Það hlýtur jú
alltaf að vera okkar hagur að
Kanadamenn setji betri frystan
fisk á markað, því ef varan versn-
ar kaupa færri fisk og öfugt. Það
skiptir okkur alla máli að auka
markaðinn í Bandaríkjunum og
víðar, og þar getur samstarfið ver-
ið mjög mikilvægt.“ Halldór mun í
Washington hitta að máli for-
stjóra íslensku fiskvinnslufyrir-
tækjanna vestanhafs og ræða
málefni ferðarinnar við þá. „Eftir
þá fundi held ég að það verði betra
að leggja mat á árangur ferðar-
innar í heild,“ sagði Halldór.
Árétting
Vegna yfirlýsingar á bls. 20 í
Morgunblaðinu í gær um að Haf-
skip ætli að stefna ritstjóra og
ljósmyndara Helgarpóstsins vill
Morgunblaðið árétta, að þar er
um fréttatilkynningu og yfirlýs-
ingu frá Hafskip hf. að ræða.
Byggingarleyfið samþykkt
BORGARSTTJÓRN Reykjavíkur
staðfesti á fundi sínunt á (ostudag
endursamþykkt byggingarnefndar á
byggingarlevn fjölbýlishússins nr.
3—9 við Stangarholt. Félagsmála-
ráðherra hafði áður fellt fyrri leyfi
borgarinnar fyrir umræddu húsi á
þeirri forsendu að byggingarmagn
væri of mikið á lóð fjölbýlishússins.
Sigurður E. Guðmundsson (A)
og Sigurjón Pétursson (Abl.) lýstu
andstöðu við samþykkt byggingar-
nefndar en Hilmar Guðlaugsson
(S), formaður byggingarnefndar,
gerði grein fyrir málinu. Sagði
hann að úrskurður félagsmála-
ráðherra byggðist eingöngu á
mæliblaði sem ekki hafði verið
samþykkt og var óútgefið og sýndi
umræddan byggingareit sem tvær
lóðir. Byggingarnefnd hefði hins-
vegar samþykkt þetta sem eina lóð
og væri skoðun hennar óbreytt nú.
Það hefði þó verið talið rétt að
afturkalla mælingablaðið og gefa
út nýtt sem sýndi svæðið sem eina
lóð til að fullnægja öllum forms-
atriðum. Samþykkt byggingar-
nefndar var staðfest í borgar-
stjórn með 12 atkvæðum sjálf-
stæðismanna, gegn 7 atkvæðum
fulltrúa Alþýðubandalags, Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks, en
fulltrúar Kvennaframboðs sátu
hjá.
Síðasti
heirnaleikur
Islands
í heimsmeistarakeppninni er gegn
Spanverjum
á Laugardalsvelli 12. junink.
Nú þurfa íslendingar aö standa saman í baráttunni og mæta á völlinn
Forsala aðgöngumiða er hafin
í bifreíð á Lækjartorgi, í versl. Oðni á Akranesi,
Sportvík Keflavík og á Akureyri hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar
0PIONEER
FLUGLEIÐIR
jtak
íþróttamiöstööinni
Laugardal
X
nt-
cekni
Auðbrekku 22,
Fiskbúðin
Sæbjörg
K9 5peinn*<tíabari
BAKAR
KONDITORI — K AF F I