Morgunblaðið - 09.06.1985, Qupperneq 7
MÓRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9.JÓNÍ 1985
•'tf
Fjórðungsmótið í Reykjavík
Fjórir stóðhestar sýnd-
ir með afkvæmum
— hátt í fjögur hundruð hross verða í keppni á mótinu
UM ÁITATÍU kynbótahross munu væntanlega mæU til leiks á Fjórdungsm-
óti sunnlenskra hesUmanna í Reykjavík samkvæmt upplýsingum sem feng-
ust hjá Þorkeli Bjarnasyni hrossarækUrráðunaut. Þar af eru fjórir stódhest-
ar sýndir með afkvæmum, þeir Skór 823 frá Flatey, Högni 884 frá Sauðár-
króki, Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði og Fönix 903 frá Vfk.
Fimm til sex hryssur verða sýnd- síðastnefndu ræktunarbúin hafa
ar með afkvæmum og í flokki ein-
staklinga skiptist fjöldinn niður
sem hér segir: Stóðhestar sex vetra
og eldri eru fjórir, fimm vetra hest-
ar fjórir og fimm fjögra vetra folar.
Þrjátíu og tvær hryssur sex vetra
og eldri hafa unnið sér þátttökurétt
á mótinu, níu fimm vetra hryssur
og þrettán fjögurra vetra. Athygli
vekur hversu mörg fjögurra vetra
hross verða á mótinu.
Að sögn Þorkels er ekki frágengið
hverjir verði fengnir til liðs við
hann og Helga Eggertsson og Stef-
án Tryggvason sem dæmdu í for-
skoðuninni, en tveimur mönnum
verður bætt við. Sagði Þorkell
fjölda kynbótahrossa svipaðan og á
mótinu á Hellu ’81 en gæta verði að
því, að lágmarkseinkunnir væru
talsvert hærri nú og sagðist hann
búast við góðri sýningu á mótinu. 1
sambandi viö forskoðunina sagði
Þorkell það hafa komið sér á óvart
hversu fáir hafi orðið við tilmælum
sínum um að skila vel útfylltum
ættartölum með hrossunum við for-
skoöun og er sýnt að grípa verður
til þess ráðs í framtíðinni að vísa
þeim hrossum frá dómi sem ekki
fylgir viðunandi ættarskrá.
I sýningu ræktunarbúa verða
hross frá Reykjum í Mosfellssveit,
Gufunesi, Bjarnastöðum i Grims-
nesi, Laugarvatni og Kirkjubæ, tvö
áður verið með í slíkum sýningum
en að sögn aðstandenda munu koma
fram ný hross að þessu sinni.
í samtali við framkvæmdastjóra
mótsins, Gísla B. Björnsson, kom
fram að gæðingar verða rúmlega
nfutíu og unglingar í kringum átta-
tíu. í töltkeppni mótsins hafa tfu
keppendur náð settu lágmarki á
þessu ári, 85 stigum, en vitað er um
allnokkra sem eiga þessi stig frá
fyrri árum sem verður tekið gilt.
Gat Gísli þess að í ráði væri að
halda sérstakt mót, Silkiprentsmót,
í stað Suðurlandsmótsins, sem hætt
var við, og þar gæfist mönnum
kostur á að reyna viö þetta lág-
mark. Varðandi kappreiðarnar
sagði Gísli að ekki hefðu mörg
hross náð lágmarkseinkunnum á
þessu ári en benti á að árangur frá
síðasta ári væri tekinn gildur.
Að siðustu vildi Gfsli geta þess að
lokaskráningardagur fyrir allar
keppnisgreinar væri mánudagurinn
10. júnf.
Morgu nblaöiö/V aldi mar
Gísli B. Björnsson framkvæmdastjóri Fjórðungsmótsins framan við hina
nýopnuðu skrifstofu. í baksýn sést vinnandi fólk sem er fjölmennt þessa
dagana i mótssvæðinu.
Tryggvi
sýnir í
Slunkaríki
IgaTirti, 6. jíní.
TRYGGVI Ólafsson listmálari
opnaði málverkasýningu í Slunka-
ríki, sýningarsal Myndlistarfélags-
ins á ísafirði, í dag.
Á sýningunni eru fjórtán verk —
tfu akrýlmyndir, þrjár klippimynd-
ir og eitt sáldþrykk. Flestar eru
myndirnar unnar í ár og f fyrra.
Tryggvi hefur undanfarið sýnt í
sýningarsal ASÍ f Reykjavík en þar
sem flestar myndirnar seldust þar
er hér nánast um nýja sýningu að
ræða.
Tryggvi sagði í samtali við frétta-
ritara Morgunblaðsins að það væri
alltaf gaman að koma i svona sjáv-
arpláss, skoða bátana og upplifa
æskudagana á Neskaupstað. Áætl-
að er að sýningin standi til 20. júní,
en Tryggvi heldur sjálfur utan
nokkru fyrr en hann hefur búið í
Kaupmannahöfn undanfarinn ald-
arfjórðung.
Állar myndirnar eru til sölu og
að sögn Tryggva hefur hann lækkað
verðið nokkuð frá því sem það væri
í Kaupmannahöfn, þar sem hann
gerði sér liósa grein fyrir efna-
hagsvanda Islendinga nú.
Stöðugar sýningar hafa verið í
Slunkaríki frá opnun þess. Á undan
Tryggva sýndi ung, bolvísk lista-
kona, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir,
textílverk, sem vöktu verðskuldaða
athygli. Salurinn er nú fullbókaður
út allt árið. _ (j|far
Viö bjóöum í sumar einstaklega ódýrar ferðir til
Salzburg í Austurríki. Flogið er út í beinu leiguflugi á laugardagskvöldum
-fyrstaferöin verðurfarin 29.júní og sú síðasta 17. ágúst.
FLUG OG BÍLL
Salzburg er sérlega heppilegur áfangastaður þeirra
sem hyggjast aka um Evrópu á bílaleigubíl - borgin er á
ekki aðeins falleg sjálf, heldur er hún frábærlega vel 1
staðsett. (allar áttir liggja góðir vegir um stórfenglegt í\
landslag - til Munchen eru um 150 km, til Feneyja um 11
350 km, til Prag um 380 km, til Vinar um 300 km svo
nokkur dæmi séu tekin um hinar stuttu vegalengdir.
0g vegna hagstæðra samninga við Avis bílaleiguna í 1
Austurríki er verðið frábært. Hjón með 3 börn greiða
aðeins kr. 52.000 fyrirflug og bílaleigubíl í tvær vikur.
(Ekki innifalið: Tryggingar, söluskattur og flugvallar-
skattur.)
aðKornastáoay'
um að heimsækja^
Frábært veganesti
Allir .Flug og bil* farbegar
okkar fá einstaklega veglegt
veganesti við brottför:
Euroguide-1200 blaðsíðna
doðrant fullan af upplýsing-
um um leiðir, gistingu, þjóð-
hætti, landslag, merkisstaði í
i Evrópu - sannkallaö parfa-
þing á þjóðvegum megin-
landsins.
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SIMAR 21400 8 23727