Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 26
26
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 9. JPNÍ 1985
Bindindisfélag
ökumanna:
Ökuleikni
og reiðhjóla-
keppni í sumar
Bindindi.sfélag ökumanna veróur í
sumar meö keppni í ökuleikni og
reiðhjólaakstri vítt og breitt um
landið.
Fyrsta keppnin fer fram við
Hús verslunarinnar í Reykjavík
laugardaginn 15. júní kl. 14.00, en
þriðjudaginn 11. júní verða keppn-
isbrautirnar vígðar með pressu-
keppni sem hefst kl. 20.00. Þar
koma fram fulltrúar allra dag-
blaðanna og rikisfjölmiðlanna og
keppa bæði á reiðhjólum og bílum.
Um 1500 ökumenn hafa tekið
þátt í ökuleikni til þessa og er hún
nú haldin í áttunda sinn. Þetta er
hins vegar i fyrsta sinn sem efnt
er til reiðhjólakeppni og er hún
haldin í tilefni alþjóðaárs æsk-
unnar.
Þátttakendur í reiðhjólakeppn-
inni þurfa að hafa náð niu ára
aldri og hafa hjólið sitt i lagi.
Keppendur i ökuleikni þurfa að
hafa ökuleyfi og skoðunarhæfan
bil.
1 ökuleikni verður keppt i karla-
og kvennariðli. Veittir verða verð-
launapeningar fyrir 3 efstu sætin i
hvorum riðli. Úrslitakeppni verð-
ur haldin 7. september og verða
verðlaunin auk íslandsmeistara-
titils, bikar og utanlandsferð.
Þeim sem tekst að aka villulaust i
gegnum þrautaplanið i úrslita-
keppni hlýtur Mazda 626 bifreið i
verðlaun.
Þeir sem hljóta þrjú efstu sætin
í reiðhjólakeppninni fá öryggis-
tæki á reiðhjól. Auk þess fá allir
keppendur happdrættismiða og
verður dregið um tvö DBS reiðhjól
í haust. Það er Fálkinn sem gefur
þessi verðlaun.
Þátttökugjald i reiðhjólakeppn-
inni 50 kr. og í ökuleikni 250 kr.
Eskifjörður:
Jón Kjartansson
á rækjuveiðar
Ivfkinrdi, 6. jáni.
NÚ ER IJNNIÐ að því að setja frystipressur og frystitæki í nótaskipið Jón
Kjartansson frá Eskifirði. Ætlunin er að skipið fari til rækjuveiða og verður
rækjan stærðarflokkuð og heilfryst um borð. Þá verður einnig sett í skipið
karfahausingavél og slógdráttarvél fyrir karfa. Ætlun útgerðarinnar er að
skapa skipinu verkefni milli loðnuvertíða, en hingað til hefur það verið
aðgerðarlaust og bundið í höfninni þann tíma.
Sem dæmi um slæma nýtingu
skipsins er, að árið 1984 fiskaði
skipið 21.050 tonn af loðnu og í það
fóru 97 úthaldsdagar. Það gefur
augaleið að skapa þurfti skipinu
önnur verkefni meðan loðnan ekki
veiðist. Var rækjuveiðin vænleg-
asti kosturinn, ásamt möguleikan-
um á frystingu karfa. Þess á milli
verður skipið gert út til loðnuveiða
fyrir verksmiðjuna hér, eins og
verið hefur. Fyrir utan uppsetn-
ingu frystitækjanna verður önnur
lest skipsins einangruð.
Jón Kjartansson kom hingað til
Eskifjarðar 1978 og hét áður
Narfi. Var þá búið að breyta hon-
um í nótaskip og byggja yfir hann.
Síðan hefur skipið aðallega verið
gert út sem nótaskip og til kol-
munnaveiða utan eina vertíð sem
það var á þorskveiðum og saltaði
aflann um borð og voru þá settar í
það flatningar- og hausingavélar.
Þegar skipið kom nýtt til landsins
var það síðutogari, síðar var því
breytt í frystitogara með hálfyf-
irbyggðu dekki, sem heilfrysti afl-
ann um borð. Svo var Narfa breytt
í skuttogara, og að síðustu byggt
yfir hann og hann gerður að nóta-
skipi. Nú er langt komið með að
setja rækju- og karfafrystitækin í
Jón Kjartansson og fer hann þá
strax til rækjuveiða uns loðnu-
vertíðin hefst í haust. Ævar
Bach-tónleikar
í Dómkirkjunni
RAGNAR Björnsson orgelleikari
heldur Bach tónleika í Dómkirkj-
unni á mánudaginn kemur. Þessir
tónleikar eru þeir sjöttu í röóinni af
Bach tónleikum, sem Félag ís-
lenskra organleikara, Kirkjukóra-
samband íslands og Söngmálastjóri
Þjóðkirkjunnar hafa staðið fyrir.
Að þessu sinni verða fjögur stór
verk á efnisskránni. Fantasía og
fúga í C-moll, trísónata nr. 6 í G-
dúr, Prelúdía og fúga í A-moll og
fantasía og fúga i G-moIl. Auk
þess verða sjö sálmaforleikir, fúg-
ur og fantasíur, en sumt af þessu
heyrist hér mjög sjaldan, eins og
segir í fréttatilkyningu frá að-
standendum tónleikanna.
Ragnar Björnsson hefur haldið
fjölmarga orgeltónleika hérlendis
og erlendis. Hann er einnig þekkt-
ur kórstjóri, hljomsveitarstjóri og
kennari.
Vakin er sérstök athygli á, að
þetta eru síðustu stóru tónleikarn-
ir, sem leiknir eru á núverandi
orgel Dómkirkjunnar, en nú í
Ragnar Björnsson orgelleikari
sumar verður hafist handa við að
setja þar upp nýtt orgel.
(Ur fréttatilkynningu.)
Togaranum
Ögmundi sökkt
VARÐSKIPIÐ Ægir dró togarann
Ögmund ÁR 3 á haf út og sökkti
honum á þriðjudaginn.
Togarinn Ögmundur var eitt
þeirra skipa sem fara átti með til
Englands f brotajárn í september
sl. á vegum Stálvíkur. Togarinn
slitnaði aftan úr lestinni og var á
reki þangað til starfsmenn Land-
helgisgæslunnar fundu hann og
drógu til lands.
Hann lá í Hvalfirði um nokkurt
skeið, en f janúar sl. var hann
dreginn að Eiðsvík við Geld-
ingarnes.
Gunnar Bergsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar sagði f sam-
tali við Morgunblaðið að ekki hafi
fengist leyfi hjá eigendum togar-
ans til að sökkva honum. Þeir af-
söluðu síðan eignarréttinum til
fyrri eiganda og var þá samið um
að Landhelgisgæslan sæi um að
sökkva honum. Áður hafði verið
reynt að selja Ögmund f brotajárn
en bað tókst ekki.
A þriðjudaginn var togarinn
Ögmundur svo dreginn á stað 62°
47,9 norður og 21° 27,8 vestur og
sökkt á 1124 metra dýpi kl. 14.21.
Tónleikar til
styrktar bókaút-
gáfu á blindraletri
TÓNLEIKAR til styrktar bókaút-
gáfu á blindraletri verða haldnir í
Iðnó mánudaginn 10. júní og hefjast
þeir kl. 20.30.
Þar flytur hljómsveitin Hálft í
hvoru, Arnþór og Gfsli Helgasynir
og Helgi E. Kristjánsson efni af
Ástarjátningu, nýútkominni
hljómplötu Gísla Helgasonar.
Elín Sigurvinsdóttir flytur lög
eftir Sigfús Halldórsson við undir-
leik höfundar, Kristfn Liljendal
syngur nokkur lög og kynnir á
tónleikunum verður Magnús ól-
afsson.
Allur ágóði rennur til styrktar
bókaútgáfu á blindraletri.
(Krétutilkynning)