Morgunblaðið - 09.06.1985, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ1985
Marguerite Duras i unga aldri
ásamt bróður sínum.
Marguerite eins og hún lítur út f dag; eftir bókmenntasig-
urinn i síðastliðnu iri getur hún horft beint inn í framtíð-
ina.
Hin aldna dama, skild, rithöfundur, og kvikmyndagerðar-
maður, hugsar milið við gerð myndar sinnar „Söngur Ind-
lands“.
skáld ástríðna og minninga
in smávaxna
Marguerite
Duras hefur
um margra
ára skeið
borið höfuð
og herðar
yfir allt það
fólk sem telur sig tilheyra fram-
úrstefnunni í Frakklandi. Hún
er fjölhæf, enda teygjast áhuga-
mál hennar í margar áttir: hún
hefur skrifað skáldsögur, hún
hefur samið sviðsverk og hún
hefur skrifað kvikmyndahandrit
og gert myndir á eigin vegum, en
sennilega er handrit hennar að
„Hiroshima, Mon Amour" hið
þekktasta.
Skrifar metsölubók
á gamals aldri
Duras nýtur ómældrar virð-
ingar meðal franskra mennta-
manna fyrir glæsileg tilþrif með
pennann. Hún hefur alltaf farið
eigin leiðir, hún prófar sig áfram
og reynir nýtt form og nýjan stíl
þegar henni finnst við eiga.
Leikritahöfundurinn og skáldið
Samuel Beckett telur hana
merkasta núlifandi rithöfund
Frakka; sömu sögu er að segja
um heimspekinginn Maurice
Blanchot og Gastan Picon, einn
fremsta bókmenntagagnrýnand-
ann.
Marguerite Duras stendur nú
á sjötugu. Ár eftir ár skrifaði
hún bækur en aldrei náði hún
hylli almennings. Það var fyrst
árið 1984 að bók eftir hana
komst á metsölulista, en það var
skáldsagan Elskhuginn (L’Am-
ant) Gagnrýnendur hylltu hana
sem fyrr, en það merkilega gerð-
ist, bókin seldist í stærra upp-
lagi en þann bjartsýnasta þorði
að dreyma um.
Duras stendur fastar á þvi en
fótunum að engin bók geti verið
merkileg nema höfundurinn tak-
ist á við eigið sjálf, en einmitt
að gerir hún í þessari nýju bók.
þessari einföldu sjálfsævisögu
greinir Duras frá fyrsta ástar-
ævintýri sínu sem hún upplifði
fimmtán ára, en hafði áhrif á
allt hennar líf.
Sagan gerist í Indókína árið
1930. Ástarparið er harla
óvenjulegt og engar líkur á að
það fái að njótast. Hann er 35
ára gamall Fransmaður af auð-
ugum ættum; hún fimmtán, fá-
tæk, þar að auki kínversk. Þú
getur rétt ímyndað þér hið lík-
amlega og andlega ofbeldi sem
blossar upp þegar faðir hans
tekur til sinna ráða.
Rúmri hálfri öld síðar blundar
þessi ástríða enn í Marguerite
Duras. Hún segist aldrei hafa
getað gleymt þessum manni og
sú staðreynd fær að fljóta með í
bókinni: áratugum síðar hringir
hann í hana og segist elska hana
þar til hann deyi.
Of mikill bóhem
fyrir flokkinn
Líf Marguerite Duras hefur
svo sannarlega verið viðburða-
ríkt og stormasamt, og á það
ekki síður við á hinum opinbera
vettvangi heldur en í einkalífinu.
Ævisaga hennar gæti hæglega
kallast Andstreymi.
Ung giftist hún lítt þekktum
frönskum rithöfundi, Robert
Anthelme, og eignuðust þau son,
en leiðir þeirra skildi. Hún gekk
í franska Kommúnistaflokkinn á
unga aldri, rétt eins og svo
margt menntafólk af hennar
kynslóð. En hún var rekin úr
flokknum fyrir að vera of mikill
bóhem; flokknum þótti hún ekki
hegða sér almennilega.
Hún segist hafa gengið í
Kommúnistaflokkinn (árið 1945)
vegna þess að það virtist vera
eini flokkurinn sem höfðaði til
fólks á hennar línu. Stefna
Kommúnistaflokksins höfðaði til
hennar vegna rómantíkurinnar,
það var eitthvað svo sakleysis-
legt, bjart og gott yfir henni.
„En við áttum að vita betur,"
segir hún, „réttarhöldin árið
1933 og hreinsanirnar í Moskvu
hefðu átt að vera víti til varnað-
ar“.
Marguerite styður nú Sósíal-
istaflokkinn, enda er hún góð-
vinur Francois Mitterrand for-
seta. En ekki bara það, hann er
hennar mesti aðdáandi. Það
spillir heldur ekki fyrir vin-
skapnum að Marguerite notar
hvert tækifæri sem gefst til að
gagnrýna og úthúða Kommún-
istaflokknum hinum franska.
Hún segir að kommúnismi
virki sem sterkur segull á allt
það fólk, sem einhverra hluta
vegna er illa við sig sjálft og er
óánægt með líf sitt og hatist
þess vegna út í allt og alla.
Andstreymi
Marguerite Duras þekkir
hörku lifsbaráttunnar af eigin
raun, í þeim efnum er raunar
fátt sem hún kann ekki að segja
frá. Þegar hefur verið minnst á
vonbrigðin í einkalífi hennar,
skilnaðinn; skáldverk hennar og
kvikmyndir fengu ætíð góðar
viðtökur hjá gagnrýnendum, en
þá var líka upptalinn sá hópur
sem vissi af þeim.
Hún barðist í marga áratugi
við áfengissýki. Sá barningur
bar árangur árið 1964 þegar hún
ýtti loks frá sér flöskunni, næst-
um því að eilífu; en hún byrjaði
að drekka á nýjan leik tíu árum
síðar. Fyrir þremur árum lá hún
nærri dauða en lífi vegna
skorpulifrar. Hún lagðist inn á
Ameríska spítalann í París og
fór í stranga meðferð, lá milli
heims og helju I þrjár vikur,
þjáðist af „delirium tremens".
Marguerite segir að hún hefði
ekki þolað meira en þessar þrjár
vikur, einn dagur I viðbót hefði
gert útaf við sig. „Mér fannst
skáldgáfan hafa yfirgefið mig
fyrir fullt og allt,“ segir hún.
En það var ekki langur tími
liðinn frá því hún komst burt af
Ameríska spítalanum þar til
hún byrjaði að kljást við söguna
sem þróast hafði með henni
lungann úr ævi hennar: það tók
hana aðeins fjóra mánuði að
festa ástarsöguna um kínversku
stúlkuna saklausu og franska
auðmanninn á pappír.
„Elskhuginn" er sautjánda
skáldsaga hennar og sú fyrsta
sem selst svo orð sé á gerandi.
Friðsamlegt ævikvöld
Ævikvöldið líður friðsamlega
hjá Marguerite Duras. Hún býr
ýmist í strandhúsi í Norður-
Frakklandi eða sveitakofa fyrir
utan París, sem hún hefur haft á
leigu í hartnær fjörutíu ár. Hún
býr með Yann Andrea, sem gaf
út bók um baráttu Marguerite
við drykkjusýkina fyrir tveimur
árum. Bókin ku hafa komið
mörgum kunningjum hennar og
vinum á óvart, gott ef ekki
hneykslað fram í tær og aftur í
hæl, því ekki vissu allir að þessi
aldna dama ætti við drykkju-
vandamál að stríða.
Marguerite Duras horfir'nú
aðeins fram á veginn. Hún hafði
betur í baráttunni við Bakkus og
hennar nýjasta bók selst. Hún
var slíku alls ekki vön, en það
gleður hana. Þótt hún sé komin á
áttræðisaldur fáum við áreiðan-
lega að heyra til hennar áður en
langt um líður, enda segir hún
sjálf að engin bók hennar hafi
verið jafn auðveld í smíðum og
einmitt Elskhuginn; og bætir við
aö hún eigi enn margt i poka-
horninu.
Kndursagt: HJÓ