Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 33
MORQ UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985
33
Hinn eldhressi Reynir Pétur
kom eins og ferskur vindblær á
skjánum inn á hvert heimili í
landinu. Var þessari kvartsáru,
væluþjóð — þ.e. eins og hún birt-
ist í fjölmiðlunum — góð lexía.
íþróttahús vantar austur í Sól-
heimum og Reynir Pétur gerir
eitthvað í málinu. Leggur á sig
langa göngu til að safna með því
fé og hvetja fólk til að leggja lið.
Afskaplega var gott að heyra í
honum í spjalli hans við Omar
Ragnarsson. Auk þess virðist
Reynir Pétur svo miklu næmari
á marga hluti f umhverfinu en
við meðaljónarnir, sem vísast
höfum ruglað radarinn með alls
kyns klissíum og aðvífandi
þrýstingi. Þetta næmi á blæ-
brigðin gægðist víða fram í at-
hugasemdum hans, fyrir nú utan
þetta frábæra skynbragð á tölur
og fjarlægðir.
„Svo fara Vestfirðir að skilja
við okkur og þá vona ég að þeir
velji sér fallegan fána,“ sagði
Reynir Pétur er hann talaði um
gerð þjóðfánanna. Ekki svo að
skilja að maður trúi því að Vest-
firðir muni á næstunni segja sig
úr lögum við hinn helming
landsins og sigla sinn sjó. En
næmt eyra Reynis Péturs nemur
kannski tóninn í umhverfinu og
mishljóminn í hinni íslensku
samfélagssinfóníu. Og tölvuheili
hans dregur af því svipaða álykt-
un og Egill heitinn Skalla-
grímsson:
„Ætla eg að þar myndi vera
hrundingar eða pústrar eða bær-
ist að um síðir að allur þing-
heimur berðist." Egill þóttist
vita að varla yrðu menn sáttir á
hvernig skipta skildi silfrinu, ef
hann dreifði því yfir þingheim.
Og hvað heyrir næmt eyra raun-
ar nú þúsund árum síðar? Óþarfi
að líta frekar til þessa lands-
hluta en landsins alls. Hvar-
vetna hefur velmeinandi fólk
unnið hörðum höndum að því
undanfarna einn til tvo áratugi
að skipta íslendingum i smáar
stríðandi einingar, sem hver um
sig sér bara svolítinn hring í
kring um sig sjálfa og talar eins
og hún sé rétt um það bil að
segja sig úr lögum við alla hina.
Við sjáum flokka þéttbýlisfólks
andspænis sveitafólki, unga and-
spænis öldruðum, kvennaflokka
andspænis karlahópum, lands-
byggðarfólk andspænis höfuð-
borgarfólki, einstæða andspænis
hjónafólki, umkomulausa and-
spænis aðstöðufólki, opinbera
starfsmenn andspænis almennu
launafólki, o.s.frv. Næmt eyra
heyrir vopnagnýinn. Er kannski
nokkuð skrytið þótt af því sé
dregin sú ályktun að einhverjir
séu um það bil að segja skilið við
hina eða hrindingar og pústrar
að hefjast?
Að þessari lagkökuskiptingu í
okkar samfélagi hefur af alúð
verið unnið, og hún vandlega
reyrð í lagasetningar þegar ein-
hver hópurinn gerir hróp að al-
þingismönnum eða bara alþing-
ismanninum „sinum". Og nú eru
allir að verða komnir á sína
sneið í lagkökunni, afmarkaða
frá hinum meó einangrandi rétt-
indasultu, og svo um búið að lítil
hætta sé á að smitist í gegn.
De Gaulle sagði eitthvað á þá
leið þegar fram af honum gekk
sundrungin í Frakklandi, áður
en hann tók til hendi: „Hvernig á
að stjórna þjóð sem þarf að
framleiða yfir 240 þúsund mis-
munandi ostategundir?" Já,
hvernig á að stjórna fámennri
þjóð sem er að skipta sér upp í
smáparta? Ætli brestirnir séu
ekki bara í grunninum sem allt
hvílir á? Að það sé stjórnarskrá-
in með kosningalöggjöfinni sem
skiptir þessu fáa fólki niður í svo
smáar púðurhlaðnar einingar?
Því í ósköpunum megum við ekki
öll eiga jafnan hlut í þessum um-
hyggjusömu þingmönnum og
rikisstjórn? Hafa þá alla í einu
íslensku kjördæmi og ætlast til
þess að þeir beri umhyggju fyrir
öllum jafnt, ekki bara litlum
hópi? Taki á eftir málefnum og
með velferð allra i huga. Ekki
ætti það að vera erfiðara en í
ísrael, þar sem búa um 4 millj-
ónir manna með margföldu
utanaðkomandi böli á við okkur,
að fylkja öllum saman — í eitt
kjördæmi. Bandalag jafnaðar-
manna hefur einmitt haft eitt
kjördæmi á sinni stefnuskrá —
þótt þeir séu kannski eitthvað
farnir að huga að uppskiptingu
núna. Mætti kannski finna botn-
inn og tjasla í grunninn áður en
hver siglir sína leið.
Ein tegund af klofningi með
vorri þjóð virðist nú á hvers
manns vörum. Ekki veit ég hver
er höfundurinn, en hver tekur
upp eftir öðrum: „Á ísiandi búa
orðið tvær þjóðir, hinir auðugu
og þeir fátæku! Gjarnan vísað í
breikkandi tekjumismun. Svo er
gáð að rökunum fyrir þessum
sannleika. Þá kemur svolítið
skondið í ljós. Þrátt fyrir tekju-
mismun þá virðist láglauna-
fólkið eiga jafnmiklar eignir og
hinir tekjuhærri. Þetta kemur
fram í skrá hjá ríkissaksóknara,
þar sem hjónum í landinu er
skipt niður í alls 26 tekjubil eftir
vergum tekjum. En eignirnar
virðast í stórum dráttum þær
sömu á hvaða tekjubil sem litið
er, allt frá 140 þúsund kr. og upp
í 700 þús. króna árslaun á árinu
1983 ( sem blaðamanni NT
reiknaðist til að væru um
175—875 þús. króna tekjur 1984).
Það er nefnilega nokkuð sama í
hvaða tekjuflokk farið er, eign-
irnar eru ósköp svipaðar og
fjöldi þeirra sem eiga nægilega
miklar eignir til að þær komi til
eignaskatts nokkurn veginn jafn
stór miðað við heildarfjöldann.
Það verður ekki fyrr en komið er
yfir 700 þúsund króna og upp í
miiljón króna árslaun 1983 að
eignir vaxa.
Allur obbinn af fólkinu með
tekjur frá 140 þúsund til 700
þúsund á árinu 1983 á drjúgar
eignir. Um 94% í hverjum tekju-
flokki átti skuldlausa eign. Upp
á 1,7 milljón krónur hjónin á
tekjubilinu 530—700 þús. kr. á
ári og upp á 1,6 þau láglauna-
hjón sem töldu fram 170—175
þúsund króna tekjur. Munurinn
á eignalegri stöðu virtist ótrú-
Iega lítill, og svo geta menn velt
fyrir sér hvernig á því stendur.
Hver sem niðurstaðan verður
gæti maður kannski látið sér
detta í hug að klofningurinn í
íslensku samfélagi sé einhvers
staðar meiri en milli eignalausra
og eignafólks. Með nútímatækni
mætti kannski setja öll þjóðar-
brotin í samfélaginu inn í tölvu
og keyra út saman nokkra þætti,
t.d. íbúðastærðir og landshluta
o.s.frv. og byrja á því að reyna að
leiða fyrst saman þá sem flest
eiga sameiginlegt og sætta
burtséð frá gömlum klissíum.
Svona rétt til þess að einhverjir
hópar villist ekki fyrir misskiln-
ing út úr íslensku samfélagi.
Ekki treystir Gáruhöfundur sér
til að reikna á við Reyni Pétur og
gefst því hreinlega upp hér.
Hvað um það, gaman var að
sjá glaðlegt óvílsamt andlitið á
honum Reyni Pétri á skjánum
heima hjá sér. Það bætir og
hressir. Sömu helgi vænkaðist
hagur Strympu enn við góðan
hlátur við að njóta hressandi
glaðværðar hennar Guðrúnar
Stephensen sem bætti enn einni
frábærri kerlu í hlutverkasafn
sitt í „Valborg og bekkurinn" í
Þjóðleikhúskjallaranum.
„Vandamál" aldraðra hverfa
sem dögg fyrir sólu þegar Val-
borg syngur af hjartans lyst:
Að sjást og vera saman,
er saklaust og gaman.
Að sjást og vera saman,
er samfélagslist.
Við hér okkur hlýjum,
nú hlær sól úr skýjum.
Að sjást og vera saman
og sífellt geta hist.
Peningamarkaðurinn
GENGIS-
SKRANING
7. júní 1985
Kr. Kr. Toll-
Kin. KL 09.15 Kaup Sala ffe»«i
IDollari 4I350 41,470 41,790
lSLpund 52,680 52433 52484
Kul dollari 30,171 30459 30,362
1 liönsk kr. 3,7719 3,7829 3,7428
1 Norslt Itr. 4,6895 4,7031 4,6771
lSanskkr. 4,6670 4,6806 4,6576
IFLmark 6,4903 64092 6,4700
1 ft. franki 4/1353 4,4481 4,4071
1 Belg. franki 0,6711 0,6731 0,6681
lSv. franki 16,1005 16,1472 15,9992
1 lloll. fryllini 11,9977 12,0325 11,9060
IV-Kmark 134241 134634 13,4481
1ÍL lira 0,02119 0,02125 0,02109
1 Austurr. ach. 1,9246 1,9302 1,9113
1 l’ort. esrndo 0,2370 04377 04388
ISp.peseti 04383 04390 04379
1 Jap. yen 0,16642 0,16690 0,16610
1 Irakt pund 42442 42,465 42,020
SDR. (SémL
dráttarr.) 414304 414501 414085
1 Bel(>. franki 0,6680 0,6699
INNLÁNSVEXTIR:
Sparisjóð*b*kur------------------ 22,00%
SpsritjóðsrMkningar
með 3ja mónaða uppsðgn
Alþýðubankinn................ 25,00%
Búnaöarbankinn............... 23,00%
Iðnaðarbankinn1*............. 23,00%
Landsbankinn................. 23,00%
Samvinnubankinn.............. 23,00%
Sparisjóðir3!................ 23,50%
Útvegsbankinn................ 23,00%
Verzlunarbankinn............. 25,00%
með 6 mónaöa uppsðgn
Alþýðubankinn................ 28,00%
Búnaöarbankinn............... 26,50%
iönaöarbankinn1*............. 29,00%
Samvinmibankinn.............. 29,00%
Sparisjóðir3*................ 27,00%
Útvegsbankinn................ 29,00%
Verzlunarbankinn............. 29,50%
með 12 mónaða uppsðgn
Alþýöubankinn................ 30,00%
Landsbankinn................. 26,50%
Útvegsbankinn................ 30,70%
með 18 mónaða uppsðgn
Búnaöarbankinn............... 35,00%
Innlónsskirteini
Alþýðubankinn................ 28,00%
Búnaðarbankinn............... 29,00%
Samvinnubankinn.............. 29,50%
Sparisjóöir.................. 28,00%
Útvegsbankinn................ 29,00%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lónskjaravisitðlu
með 3ja mónaða uppsðgn
Alþýöubankinn................. 1,50%
Búnaðarbankinn................ 1,00%
lönaðarbankinn1).............. 1,00%
Landsbankinn.................. 1,00%
Samvinnubankinn................ 1,00%
Sparisjóðir3'................. 1,00%
Útvegsbankinn................. 1,00%
Verzlunarbankinn.............. 2,00%
með 6 mónaða upptðgn
Alþýöubankinn................. 3,50%
Búnaöarbankinn................ 3,50%
lönaöarbankinn11.............. 3,50%
Landsbankinn.................. 3,00%
Samvinnubankinn....... ....... 3,00%
Sparisjóðir3>................. 3,50%
Útvegsbankinn................. 3,00%
Verzlunarbankinn.............. 3,50%
Ávítana- og hlaupareikningar:
Alþýöubankinn
— ávísanareikningar......... 10,00%
— hlaupareikningar.......... 17,00%
Búnaöarbankinn................ 10,00%
lönaöarbankinn................ 8,00%
Landsbankinn..................10,00%
Samvinnubankinn
— ávisanareikningur......... 10,00%
— hlaupareikningur............8,00%
Sparisjóöir...................10,00%
Útvegsbankinn.................10,00%
Verzlunarbankinn..... ........ 10j»%
Stjömureikningar
Alþýöubankinn2*............... 8,00%
Alþýðubankinn..................9,00%
Safnlón — heimilislón — IB-lón — piúslón
með 3ja til 5 mónaða bindingu
lönaöarbankinn................ 23,00%
Landsbankinn.................. 23,00%
Sparisjóöir................... 23,50%
Samvinnubankinn............... 23,00%
Útvegsbankinn................. 23,00%
Verzlunarbankinn..... ........ 25,00%
6 mónaða bindingu eða lengur
lönaóarbankinn............... 28,00%
Landsbankinn................. 23,00%
Sparisjóöir.................. 27,00%
Útvegsbankinn................ 29,00%
1) Mónaðartega er borin saman órsóvðxtun
ó verðtryggöum og óverðtryggöum Bónus-
reikningum. Aunnir vextir verða leiðréttir í
byrjun nasta mónaðar, þannig að óvðxtun
verðt mtöoð við það reikningsform, sem
hærri óvðxtun ber ó hverjum tíma.
2) Stjörnureikningar eru verðtryggðir og
geta þeir sem annað hvort eru eldri en 84 óra
eða yngri en 16 óra stofnað slíka reikninga.
Innlendir gjaldeyrisreikningar
Bandaríkjadollar
Alþýöubankinn.................8,50%
Búnaðarbankinn................8,00%
lönaöarbankinn................8,00%
Landsbankinn..................7,50%
Samvinnubankinn...............7,50%
Sparisjóðir...................8,00%
Útvegsbankinn.................7,50%
Verzlunarbankinn..............8,00%
Sterlingspund
Alþýðubankinn................ 9,50%
Búnaöarbankinn............... 12,00%
Iðnaöarbankinn............... 11,00%
Landsbankinn.................11,50%
Samvinnubankinn..............11,50%
Sparisjóöir.................. 11,50%
Útvegsbankinn................ 11,50%
Verzlunarbankinn.............12,00%
Vestur-þýsk mðrk
Alþýöubankinn.................4,00%
Búnaöarbankinn................5,00%
lönaóarbankinn............... 5,00%
Landsbankinn..................4,50%
Samvinnubankinn...............4,50%
Sparisjóöir.................. 5,00%
Útvegsbankinn.................4,50%
Verzlunarbankinn............. 5,00%
Danskar krónur
Alþýöubankinn................ 9,50%
Búnaöarbankinn............... 10,00%
lönaðarbankinn............... 8,00%
Landsbankinn................. 9,00%
Samvinnubankinn.............. 9,00%
Sparisjóöir.................. 9,00%
Utvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
ÚTLÁNSVEXTIR:
Almennir víxlar, forvextir.
Landsbankinn................. 28,00%
Útvegsbankinn................ 28,00%
Búnaöarbankinn............... 28,00%
lönaöarbankinn............... 28,00%
Verzlunarbankinn............. 29,50%
Samvinnubankinn.............. 29,50%
Alþýöubankinn................ 29,00%
Sparisjóðimir................ 29,00%
Viðskiptavíxlar
Alþýöubankinn.................31,00%
Landsbankinn................. 30,50%
Búnaöarbankinn............... 30,50%
Sparisjóóir.................. 30,50%
Samvinnubankinn...............31,00%
Verzlunarbankinn............. 30,50%
Útvegsbankinn................ 30,50%
Yfirdróttarlón af hlaupareikningum:
Landsbankinn................. 29,00%
Útvegsbankinn.................31,00%
Búnaöarbankinn............... 29,00%
lönaóarbankinn............... 29,00%
Verzlunarbankinn............. 31,50%
Samvinnubankinn.............. 30,00%
Alþýöubankinn................ 30,00%
Sparisjóöimir................ 30,00%
Endursel|anleg lón
fyrir innlendan markaö______________2645%
lón í SDR vegna útflutningsframl._10,00%
Skuldabróf, almenn:
Landsbankinn................. 30,50%
Utvegsbankinn.................31,00%
Búnaöarbankinn............... 30,50%
lönaöarbankinn............. 30,50%
Verzlunarbankinn............. 31,50%
Samvinnubankinn.............. 32,00%
Alþýöubankinn.................31,50%
Sparisjóöimir............... 32,00%
Viðskiptaskuldabróf:
Landsbankinn................. 33,00%
Utvegsbankinn................ 33,00%
Búnaöarbankinn............... 33,00%
Verzlunarbankinn............. 33,50%
Samvinnubankinn.............. 34,00%
Sparisjóðimir................ 33,50%
Verðtryggð lón miðað við
lónskjaravisitðlu
i allt aö 2% ár....................... 4%
lengur en 2V4 ár...................... 5%
Vanskilavextir....................... 42%
Á.._aLsil/inUpA4
uveroiryggo SKuiaaDreT
útgefin fyrir 11.08.'84........... 30,90%
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna rikisins:
Lánsupphæö er nú 300 þúsund krónur
og er lániö vísitölubundiö meö láns-
kjaravísitölu, en ársvextir eru 5%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess. og eins
ef eign sú, sem veö er í er lítllfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lifeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lifeyrissjóönum 168.000 krónur, en fyrir
hvern ársfjóröung umfram 3 ár bætast
viö lániö 14.000 krónur, unz sjóösfélagi
hefur náö 5 ára aöild aö sjóönum. A
timabilinu frá 5 til 10 ára sjóösaólld
bætast viö höfuöstól leyfilegrar láns-
upphæöar 7.000 krónur á hverjum árs-
fjóröungi, en eftir 10 ára sjóösaólld er
lánsupphæóin oröin 420.000 krónur.
Eftir 10 ára aöild bætast vió 3.500 krón-
ur fyrir hvern ársfjóröung sem liöur. Því
er í raun ekkert hámarkslán i sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
lánskjaravísitölu, en lánsupphæðin ber
nú 5% ársvexti. Lánstiminn er 10 til 32
ár aö vali lántakanda.
Þá lánar sjóöurinn meö skilyröum
sérstök lán til þeirra, sem eru eignast
sína fyrstu fasteign og hafa greitt til
sjóösins samfellt í 5 ár, kr. 460.000 til
37 ára.
Lánskjaravisitalan fyrir júni 1985 er
1144 stig en var fyrir mai 1119 stig.
Hækkun milli mánaöanna er 2,2%. Miö-
að er viö visitöluna 100 i júní 1979.
Byggingavísitala fyrir apríl til júní
1985 er 200 stig og er þá miöaö viö 100
í janúar 1983.
Handhafaskuldabréf í fastelgna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18-20%.
Sérboð Nafnvuxtlr m.v. Hðfuöatól*-
óverötr. verötr. Vurðtrygg. tmralur vaxta
Óbundið fé kjðr kjör tímabil vaxtuáéri
Landsbanki. Kjörkxik: 1) 7—31.0 1.0 3 mán.
Utvegsbanki. Abðl 22—33,1 1.0 1 mán. 1
Búnaöarb , Sparib: 1) 7—31.0 1.0 3 mán. 1
Verzlunarb., Kaskóreikn: 22-29.5 3.5 3 mán. 4
Samvinnub., Hóvaxtareikn: 22—30,5 1—3,0 3 mán. 2
Alþýöub., Sérvaxtabók: 27—33.0 4
Sparisjóðir. Trompreikn: Bundíöfé: 30.0 3,0 1 món. 2
lönaöarb., Bónusreikn: 29.0 3.5 1 mán. 2
Bunaðarb. 18 man. reikn 35,0 3,5 6 mán. 2
1) Vaxtaleiörétting (úttektargjald) er 1,7% hjá Landsbanka en 1,8% hja Búnaðarbanka