Morgunblaðið - 09.06.1985, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ1985
____Blaðamaður Morgunblaðsins segir frá heimsókn________
í Opna háskólann í Bretlandi, sem talinn er eitt merkasía framtak
Breta á sviði félags- og menntamála á síðari árum
HASKOLINN
hann hefur breytt lífi margra
Hver man ekki eftir hnellnu
hárgreiösludömunni henni
Ritu í kvikmyndinni vinsælu
„Educating Rita“, sem tók
upp á því í óþökk kærastans,
að leggja stund á bókmenntir
við Opna háskólann. Ástæðan,
sem hún gaf á slæmri Lund-
únamállýsku fyrir þessu uppá-
tæki sínu, var sú að hún vildi
þroska sig andlega. Hvflík fá-
sinna! Og hvernig fór? „Rita“
er ein af fjölmörgum Bretum,
sem notið hafa þessa merka
framtaks landa sinna á sviði
menntamála, sem er Opni há-
skólinn. En markmið hans er
að gera öllu fulltíða fólki kleift
að verða sér úti um menntun
án tillits til þjóðfélagsstöðu
eða undirbúningsmenntunar.
Eins og gerðist með Ritu hefur
þessi menntunarmöguleiki
gjörbreytt lífí margra þeirra,
sem hafa lagt það á sig að
stunda nám jafnhliða fullu
starfi, eins og flestir nemend-
ur Opna háskólans gera. „Frá
því að skólinn var stofnaður
árið 1969 hefur fólk úr hinum
ólíkustu starfsgreinum stund-
að hér nám,“ segir John Deel-
ey upplýsingafulltrúi háskól-
ans, þegar við ræðum þessi
mál í aðalstöðvum Opna há-
skólans í bænum Milton
Keynes, sem er nýtt bæjarfé-
lag norðaustur af Lundúnum.
Við eigum okkar raun-
verulegu „Ritu“, bætir
hann við hlæjandi,
„sem vann fyrir sér sem
hárgreiðsludama en
eftir nám hér fekk starf sem
starfsmannastjóri hjá góðu fyrir-
tæki. Ég get nefnt fleiri dæmi eins
og af gluggapússaranum, sem fór
út í tölvunám og sjötugu ömmuna,
sem auðgaði líf sitt með námi í
listum og kennarann, sem nam við
Opna háskólann og varð svo síðar
rektor hans eða flugmanninn í
konunglega breska flughernum
sem ...
Nemendurnir eru fulltíða
skattborgarar, sem
flestir hafa enga
undirbúningsmenntun
Opni háskólinn er að mörgu
leyti líkur þeim háskólum, sem við
þekkjum, en hann hefur líka mikla
sérstöðu, sem felst í því eins og
áður segir að nemendurnir eru all-
ir fulltíða, frá tuttugu og eins árs
upp í áttrætt, en flestir eru um
þrítugt. Þeir vinna langflestir
fulla vinnu með náminu og þurfa í
mörgum tilvikum að sjá fjölskyldu
farborða.
Námið fer fram heima í frí-
stundunum og fá nemarnir sent
heim til sín kennsluefni, sem eru
bækur og ýmis verkefni, snældur
til að hlusta á, og siðast en ekki
síst sér útvarps- og sjónvarpsstöð-
in BBC um sérstakar útsendingar,
sem nemendur hvar sem er á land-
inu geta fylgst með. Þá eru sér-
stakar kennslumiðstöðvar stað-
settar á víð og dreif um landið,
sem veita tilsögn og leiðbeiningar
við námið. Einnig eru starfandi
sumarskólar, sem nemendur geta
sótt í fríum sínum.
Engrar undirbúningsmenntun-
ar er krafist fyrir inngöngu í Opna
háskólann en um 40% þeirra, sem
stunda við hann nám hafa ekki þá
menntun, sem krafist er við venju-
lega háskóla.
Stúdentar ráða sjálfir náms- _
hraðanum og þeir geta tekið svo
að segja hvaða námskeið sem er í
þeim fjölmörgu greinum, sem
kenndar eru.“
OH-námið opnar leiðir inn
í aðra breska háskóla
Hvernig er námið uppbyggt?
„Háskólinn býður upp á þrjú
kennslusvið í greinum, sem kennd-
ar eru til lokaprófs eða í fram-
haldsnámi á sérsviði — nám til
BA- eða BS-prófgráðu, nám til
MA-prófs eða til æðri mennta-
gráðu, og svo er um hlutanám að
ræða, þar sem námsmenn geta lát-
ið innritast í stuttan tíma til náms
í vissum hluta einhverrar greinar.
Á BA-stigi er um tvenns konar
menntagráðu að ræða, BA-próf
(Bachelor of Arts) og BA (Hon-
ours), sem eru veittar samkvæmt
punktakerfi. Sá námsmaður, sem
lýkur eins árs námskeiði í ein-
hverri grein með góðum árangri
eða a.m.k. viðunandi árangri, hlýt-
ur þá einn punkt. Sex slíkir punkt-
ar nægja þá til þess að hljóta al-
menna BA-gráðu, en átta punktar
veita námsmönnum BA-Hon-
Aðalstöövar Opna háskólans í
Milton Keynes, sem er nýtt bæj-
arfélag norðvestur af Lundúnum.
Á myndinni sést sá hluti aðal-
stöðvanna, þar sem BBC hefur
aðsetur.
ours-gráðu. Námsmenn eiga þess
kost að útskrifast eftir þrjú ár, ef
þeir geta tekið tvö námskeið á ári.
Og þeir námsmenn, sem þegar
hafa aflað sér æðri menntunar að
hluta til annars staðar, geta við
inngöngu í OH fengið viðurkennda
allt að þrem punktum fyrir fyrra
nám, sem þeir hafa lokið með góð-
um árangri. Allir nýstúdentar há-
skólans hefja þó nám sitt á því að
taka eitt af alls fimm námskeiðum
í kjarna, en það er eins konar
fornám eða inngangur að háskóla-
náminu, en krefst engrar undir-
stöðumenntunar í þeim fögum,
sem kennd eru. Eftir að nemendur
hafa náð þessu grunnstigi, geta
þeir ákveðið sjálfir heildar-
námsbraut sína með því að velja
námskeið í hvaða greinum, sem
þeir helst kjósa og boðið er upp á í
hinum sex deildum háskólans,
hugvísinda-, félagsfræði-, stærð-
fræði-, vísinda-, tæknifræði-, og
kennslufræðideild. Sem stendur
eru fyrir hendi rúmlega 140 mis-
munandi námskeið, sem boðið er
upp á við háskólann, auk þess eru
svo önnur námskeið, sem veita
hálfan punkt þeim stúdentum,
sem ljúka þeim.
Þeir námsmenn, sem útskrifast
með menntagráðu í einhverri
grein frá Opna háskólanum, fá
inngöngu í aðra breska háskóla, ef
þeir hafa hug á framhaldsnámi.
Háskólinn gefur mönnum einn-
ig færi á að stunda hluta náms í
hinum ýmsu greinum til BA-prófs,
en hér er um að ræða um 100 nám-
skeið, sem standa í 10 mánuði
hvert. Á þessum námskeiðum er
tekið fyrir að hluta það efni í hin-
um ýmsu greinum, sem kenndar
eru til BA-prófs. Þeir námsmenn,
sem Ijúka slíkum námskeiðum
með viðunandi prófárangri, fá
skírteini í hendurnar, sem er
áfangi að punkti í fullu námi til
BA-stigs í greininni.
Framhaldsnám við Opna há-
skólann byggist svo til eingöngu á
rannsóknarstarfi. Fyrsta brautin í
slíku framhaldsnámi til undirbún-
ings fyrir MSc-gráðu, sem háskól-
inn hóf kennslu á, var á sviði æðri
kennslufræði og félagsfræði.
Áþekkt framhaldsnám í stærð-
fræði undir BSc-próf var tekið upp
í fyrra. Hinar þrjár menntagráð-
urnar, sem Opni háskólinn veitir
BPhil (Bachelor of Philosophy),
MPhil (Master 'of Philosophy) og
PhD (Doctor of Philosophy) —