Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JtJNl 1985
51
gera ráð fyrir því, að viðkomandi
stúdent leggi fram fræðilega full-
nægjandi ritgerð eða vísindalega
rannsóknarskýrslu í greininni eft-
ir að hafa aflað sér nánar tiltek-
innar punktatölu fyrir fræðilegar
rannsóknir, sem hann hefur unnið
eingöngu að í að minnsta kosti
þrjá mánuði samfleytt eða þá
samsvarandi tíma í hlutarann-
sóknum.
Rík áhersla lögð á
endurmenntun og miðlun
nýrrar þekkingar
Sá þáttur í starfsemi Opna há-
skólans, sem mest hefur vaxið að
undanförnu, er þó á sviði endur-
menntunar fólks og miðlunar
nýrrar þekkingar á ýmsum svið-
um. Þetta er gert með því að halda
stutt námskeið og vinna að vissum
afmörkuðum rannsóknarverkefn-
um, en það er Breska endurmennt-
unarstofnunin, sem komið var á
fót árið 1977, sem semur mest allt
námsefnið fyrir þessi námskeið.
Sum þeirra lúta að fræðslu á sviði
félagsmála og er á þeim leitast við
að gefa fólki betra innsæi í ýmis
vandamál daglegs lífs og hvernig
eigi að takast á við þau. Þá eru
önnur námskeið ætluð kennurum,
þar sem fer fram raunhæf þjálfun
bókhaldi og fjármálastjórn, vali á
starfsliði, svo eitthvað sé nefnt.
Með þessu inóti gefst fyrirtækjum
á einkar ódýran og sveigjanlegan
hátt tækifæri á að veita forsvars-
mönnum sínum 'betri þekkingu á
því allra nýjasta á sviði stjórnun-
ar og skipulagningar."
Það hvarflaði að hinum íslenska
blaðamanni, þegar hann heyrði og
las síðar þessa lýsingu á skipulagi
og námstilhögun skólans, að slík-
ur skóli gæti átt erindi hér á landi,
þar sem byggðin er dreifð og æðri
menntastofnanir aðeins í stærstu
þéttbýliskjörnunum. Auk þess,
sem fáir möguleikar eru fyrir
dreifbýlisfólk til endurmenntunar
eða sækja stutt námskeið, nema
að fara langan veg.
Sérstaklega er athyglisvert
hvernig sjónvarpið er nýtt sem
fræðslumiðill, en Bretar eru
óumdeilanlega meðal fremstu
þjóða heims í gerð hvers kyns
heimildar- og fræðsluefnis fyrir
sjónvarp.
Kennslugögn fjölbreytt:
Bækur, mynd- og
hlustunarefni
Hinir fjórir meginþættir í
kennslukerfi Opna háskólans
ásamt lauslega áætlaðri hlut-
framhaldsstigi til undirbúnings
hærri prófgráðu eru verkefnin
meira í mynd ritgerða um ákveðna
þætti námsefnisins, sem byggist á
tilraunum eða sjálfstæöum rann-
sóknum, auk söfnunar upplýsinga
og úrvinnslu þeirra.
Persónuleg tilsögn á náms-
stöðvum og í sumarskólum
Þótt kennsluefnið sé þannig úr
garði gert, að það eigi að hvetja til
sjálfsnáms, er mönnum jafnframt
gefinn kostur á persónulegum
leiðbeiningum og tiisögn í námi.
Þegar námsmaður byrjar kjarna-
nám sitt við haákólann fær hann
sérstakan leiðbeinanda sér til
trausts og halds, sem á að vera
honum til aðstoðar við hinn aka-
demíska hluta námsins og kennir
honum að nota kennslufyrirkomu-
lag háskólans á réttan hátt. Þessir
kennarar eru yfirleitt fengnir til
starfa hjá öðrum breskum háskól-
um og æðri menntastofnunum, og
hafa þetta 12—20 stúdenta til að
leiðbeina og kenna í einu.
Opni háskólinn hefur komið sér
upp alls 260 námsstöðvum víðs-
vegar á Bretlandseyjum, þar sem
stúdentum er leiðbeint við námið.
Þessar námsstöðvar eru yfirleitt
til húsa í einhverjum æðri sér-
Sérstakar kennslumiðstöðvar
eru é víð og dreif um landiö, þar
sem nemendum er veitt einka-
tilsögn viö námið.
Þaö er Breska útvarpsfélag-
iö, BBC, sem vinnur kenns-
luþættina í sjónvarpinu, en
kennarar Opna háskólans
búa þá til flutnings. Skólinn
hefur sjálfur yfir aó ráóa
mjög fullkomnum búnaöi og
aðstööu til slíkrar bátta-
geróar. [
Hverju svokölluðu kjarnanám-
skeiði skólans fylgja vikulegir
skýringarþættir í hljóövarpi og
sjónvarpi.
Kennsluefni er sent heim til
nemendanna og þar stunda
þeir nám sitt í fristundunum,
eftir vinnu.
Þeim stúdentum, sem stunda
bréfaskólanám í tæknifræöi eöa
raungreinum, eru sendir pakkar
meó efni og búnaði, til þess að
þeir geti gert tilraunír í heima-
húsum, sér til glöggvunar.
í nýjum kennsluaðferðum, til að
baeta færni þeirra til að kenna.
Einn athyglisverðasti þátturinn
> þróun slíkrar endurmenntunar á
síðari árum verður þó að telja þau
námskeið, sem tekin hafa verið
upp við háskólann til endurmennt-
unar og þjálfunar manna á sviði
vísindarannsókna og iðntæki. En
það er ekki síður markmið Opna
háskólans að koma til móts við öra
tækniþróun.
Á sviði stjórnunar fyrirtækja
hefur háskólinn stofnað sérstaica
deild, “Open Business School“,
sem þjálfar meðal annars for-
svarsmenn fyrirtækja í stjórnun,
fallstölu þess tíma, sem meðal- I
stúdent eyðir í hvern einstakan |
námsþátt, eru þessir: Kerfisbund-
inn lestur námsefnis (65%), að
skoða og hlusta á myndsegul-
bands- og útvarpskennsluþætti
eða annað mynd- og hlustunarefní
(10%), ráðgjöf og tilsögn hjá
leiðbeinanda (15%) og svo verk-
legir þættir námsins, skrifleg
verkefni og próf (10%).
Mjög er vandað til alls kennslu-
efnis. Að sögn John Deeley eru
flestar námsbækurnar samdar af
kennurum Opna háskólans og
reynt að gera þær eins aðlaðandi
og mögulegt er. Sama er að segja
um útvarps- og sjónvarpsefni, en
svo til hvert einasta námskeið,
sem haldið er á vegum Opna há-
skólans, hefur sérstaka kennslu-
þætti í útvarpi og sjónvarpi sér til
stuðnings. Það eru kennarar Opna
háskólans í samvinnu við BBC,
sem vinna þessa fræðsluþætti og
eru um 240 sjónvarpsþættir fram-
leiddir árlega að jafnaði og 400
útvarpsþættir.
í aðalstöðvunum fer undirbún-
ingur og vinnsla þeirra fram og
fengum við að líta á aðstöðuna. Er
i hún afar fullkomin. Á skólinn sína
eigin upptökusali og allan búnað
en tæknilið kemur frá BBC.
Hver texti á námskeiðunum, og
er þá miðað við 32 vikna námskeið
og sem heill punktur er veittur
fyrir, er hafður það langur, að
námsmaðurinn er álitinn þurfa 2
| klukkustundir á dag vikulega til
i að tileinka sér hann og vinna úr
1 honum. Sjálfum textanum fylgja
i svo leiðbeiningar um þá kennslu-
og upplýsingaþætti i sjónvarpi og
útvarpi, sem fjalla nánar um það
efni, sem er að finna f texta.
Snældur eða litskyggnur eru hafð-
ar með til skýringar. Þeim stúd-
entum, sem eru við bréfaskólanám
í tæknifræði eða raungreinum, eru
sendir pakkar með efni og búnaði
til þess að þeir geti gert sínar til-
raunir í heimahúsum sér til
glöggvunar.
Verkefni, sem viðkomandi leið-
beinandi í hverri grein fer svo yfir
og metur til einkunna, geta ýmist
verið fólgin í því, að stúdentinn á
að svara stuttlega fjölmörgum
efnisspurningum, eða skrifa með-
ailanga ritgerð um ákveðna þætti
í námstextanum. Að þvf er yfir-
ferð eða einkunnagjöf varðar við
sumar af slíkum úrlausnum, er
tölva í aðalstöðvum háskólans lát-
in vinna það verk, en slík verkefni
eru þá oftast einhvers konar
spurningaröð eins og í krossa-
prófi, þar sem námsmaðurinn
verður að velja einn til þrjá mögu-
leika, sem eru næstir réttu svari.
Á námskeiðum háskólans á
námsskóla, menntaskóla eða fjöl-
brautaskóla viðkomandi héraðs
eða bæjar. í þessum miðstöðvum
bjóðast námsmönnum iækifæri til
að rökræða saman um námið og
einstök verkefni, og þegar menn
eru komnir lengra í námi, eru þeir
hvattir til að mynda með sér fasta
umræðuhópa til sjálfshjálpar í
námi.
Þeir námsmenn, sem eru í
kjarnanámskeiðum háskólans og
raunar einnig í sumum fram-
haldsnámskeiðum, eru skyldaðir
til þess að taka þátt f einu viku-
löngu sumarnámskeiði, þar sem
þeir koma saman á einn stað,
oftast í nærliggjandi háskóia, á
tímabiiinu júlí fram í september.
Það er kennaralið Opna háskól-
ans, sem leiðbeinir á þessum
sumarnámskeiðum. Þar eru
haldnir fyrirlestrar, námshópar
starfa og komið á frjálsum um-
f-
■