Morgunblaðið - 09.06.1985, Síða 52
flf
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNt 1985
fara fullri vinnu auk þess að þurfa
að greiða að minnsta kosti 1.000
pund eða 50 þúsund krónur fyrir 6
ára skóiagöngu?
í könnun, sem var gerð árið
1980, þar sem leitað var svara við
þessari spurningu, kom meðal
annars fram, að 67% nemenda
vildu sanna það fyrir sér að þeir
gætu aflað sér framhaldsmennt-
unar. 58% nemenda nefndu eins
og “Rita“, löngun til að þroska
sjálfa sig. 48% sögðust hafa þörf
fyrir ný áhugamál og meiri til-
breytingu. 41% sögðust leggja
stund á nám, sem tengdist áhuga-
sviði þeirra. 49% vildu bæta við
sig auknu námi til að tryggja
stöðuhækkun. 34% vildu auka við
þekkingu sína og skilning á því
starfi, sem þeir þegar voru í og
ræðum um einstök mál, auk þess
sem kennslan fer fram á tilrauna-
stofum í þeim greinum, sem þess
krefjast.
Konur í meirihluta
Tala nýstúdenta, sem innritaðir
voru á síðastliðnu ári var tæplega
20 þúsund en umsækjendur voru
rúmlega helmingi fleiri. Sökum
minnkandi fjárframlaga til há-
skólans eru líkindi til þess að tala
nýstúdenta, sem teknir eru inn
eigi eftir að fara minnkandi.
Eftir að nýstúdentar hafa látið
innritast hafa þeir þriggja mán-
aða kennslutímabil til þess að
komast nokkurn veginn að raun
um, hvort þeir ráða yfirleitt við
námið, jafnframt því að stunda
fulla vinnu. Innritunargjaldið er
50 sterlingspund fyrir hvert nám-
skeið eða um 2.500 krónur. Ekki er
krafist frekari greiðslu af háifu
námsmanna, fyrr en þeir hafa
ákveðið að halda áfram fullu
námi. Reynslan sýnir, að um það
bil einn fjórði hluti fyrsta árs
stúdenta, sem innritast á kjarna-
námskeið háskólans hætta námi
nokkuö fljótlega, en um 90%
þeirra, sem ekki gefast upp ljúka
námsárinu og öðlast einn punkt
eftir að hafa lokið tilskildum próf-
um.
Árlega útskrifast um 5.000 stúd-
entar og af þeim hafa konur verið
í meirihluta. Á þessu ári voru þær
49% nemenda. Eins og áður segir
koma nemendur úr hinum ýmsu
starfsstéttum. Á fyrstu árum há-
skólans voru kennarar og faglærð-
ir handiðnaðarmenn í miklum
meirihluta. Ef við tökum árið í
fyrra voru húsmæður langstærsti
hluti umsækjenda eða 17,2%,
kennarar reyndust vera 11%,
skrifstofufólk 11%, tækni-
menntaðir menn 9,6%, verkamenn
og starfsfólk í verksmiðjum, af-
greiðslufólk og almennt skrif-
stofufólk um 30% allra umsækj-
enda. Fólk sem er atvinnulaust og
fólk á eftirlaunum er sá hópur
umsækjenda, sem fer vaxandi með
hverju ári og voru þeir alls 14,5%
umsækjenda.
Það nám innan Opna háskólans,
sem mesta aðsóknin hefur verið að
er listanám svo og félags- og
kennslufræði. En sífellt eykst
fjöldi þeirra, sem stundar tækni-
nám hvers konar og fer áhugi á
tölvunámi vaxandi og sama er að
segja um námskeiðin í viðskipta-
greinunum.
Löngun til andlegrar
útvíkkunar
Hvaða hvatir liggja að baki því
að menn vilja leggja á sig þetta
aukna erfiði að stunda nám sam-
HASKOLINN
Á sumarnámskeiðunum eru
haldnir fyrirlestrar, néms-
hópar starfa og komið á
frjálsum umræðum um ein-
staka mál.
31% sögðust telja að við námið
ykjust framavonir þeirra og 27%
töldu að meira nám þýddi betri
tekjur og loks voru 9% nemenda í
námi við Opna háskólann til að
þjálfa sig fyrir nýtt starf.
Það er líka forvitnilegt að vita
hvað atvinnurekendum finnst um
OH-nám starfsmanna sinna. Um
þetta voru 80 atvinnurekendur
víðsvegar í Bretlandi spurðir.
Kom í ljós, að fáir voru á móti því
að starfsmenn þeirra stunduðu
nám við OH. 45% kváðust ánægðir
með þetta framtak, 42% sögðust
nokkuð ánægðir en höfðu þó nokk-
urn fyrirvara á svari sínu. Þeir
sem voru neikvæðir, sögðust vera
hræddir um að starfsmennirnir
ynnu ekki störf sín sem skyldi
vegna of mikils vinnuálags en aðr-
ir litu á björtu hliðarnar og töldu
að námið gæti haft örvandi áhrif á
starfsmennina og þeir fram-
kvæmdu sitt verk betur á eftir.
Hluti nemendanna er styrktur til
námsins af atvinnurekendum sín-
um.
Niðurskurður á fjárframlög-
um til skólans veldur úlfúð
Opni háskólinn í Bretlandi á sér
fáa líka, en þrátt fyrir mikið og
gott brautryðjendastarf hafa yfir-
völd verið að draga úr fjárfram-
lögum til skólans, sem þýðir að
færri nemendur komast inn og að-
búnaður versnar. Þegar við rædd-
um við forsvarsmenn skólans kom
í ljós mikil gremja vegna þessara
ráðstafana og voru menn hvattir
til að sameinast gegn þessum
niðurskurði, sem á síðastliðnu ári
nam 3,5 milljónum punda og búast
mátti við 4 milljóna punda niður-
skurði þetta árið og 6 milljónum
árið 1986.
Hvað sem þessu líður er það
staðreynd að Opni háskólinn i
Bretlandi hefur þegar sannað gildi
sitt þar í landi og þótt víðar væri
leitað, en hann hefur átt veru-
legan þátt í þróun svipaðra
kennsluaðferða í allmörgum öðr-
um löndum.
Texti: Hildur Einarsdóttir
Upptaka á kennsluefni fyrir
sjónvarp í myndveri Opna
háskólans. Að þessu sinni
var verió aó taka upp þátt,
er fjallar um fyrirtækja-
stofnun.
Vorhappdrætti Sjálfstæðisflokksins
Dregiö 15. júní
22 glæsilegir ferdavinningar
að verðmæti kr. 940.000.-
Vinsamlega gerid skil á heimsendum midum
í Reykjavík er afgreiösla happdrættisins í
Valhöll, Háaleitísbraut 1.
Sími 82900, opiö í dag kl. 10 til 17 og á morgun kl. 13 til 17.
Sækjum — Sendum
Sjálfstæöisflokkurinn.
Vegaræsi
Eigum fyrirliggjandi rör í vegaræsi frá 12—48”,
efni galv., 1,25—1,5 og 1,65 mm.
Hjólbörur
Eigum ávallt fyrirliggjandi sterkustu hjólbörurnar
með trésköftum sem við höfum framleitt í 45 ár.
Póstkassar
Eigum fyrirliggjandi á lager inni- og útipóstkassa.
Nýja Blikksmiðjan hf.,
Ármúla 30 — Sími 81104