Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986
55
Svipmynd á sunnudegi/RAISA GORBASJEV
Ný staða
Raisu Gorbasjev
fyrirboði
breytinga?
I>að er kunnara en frá þurfi að segja, að einhverra hluta vegna
hafa sovézkir valdamenn lengi verið þeirrar skoðunar, að eigin-
konur leiðtoga og annarra valdamanna ættu að láta sem minnst á
sér kræla. Nina Krusjef var á sínum tíma undantekning og vakti
það athvgli. Grunur lék á því, að Bresnev hefði verið kvæntur, að
minnsta kosti komst upp um að hann ætti dóttur. Aftur á móti
hvfldi þvflík leynd yflr hjónabandsstöðu Andropovs, að menn
höfðu ekki hugmynd um, að hann væri kvæntur, fyrr en ekkjan
birtist við útforina. Eiginkona Chernenkos sást að því er bezt er
vitað einu sinni opinberlega og síðan við jarðarför manns síns.
1ÉP
Mikhail og Raisa Gorbasiev.
Nú hefur skipt um. Kona
Mikhails Gorbasjev, Raisa, hef-
ur komið fram á sjónarsviðið og
safnað að sér eftirtekt hvar sem
hún fer. Meðal annars er hún
ólík þeim hugmyndum, sem
menn á Vesturlöndum gera sér
um sovézkar leiðtogakonur — og
oft með réttu — sem hafa verið
kauðalega klæddar og lítt mann-
blendnar. Raisa er vel klædd,
glæsileg og glaðleg í viðmóti.
Hún fór með manni sínum í um-
talaða ferð til Bretlands í fyrra,
áður en hann tók við flokksleið-
togaembættinu. Blaðamenn og
ýmsir aðrir sem fylgdust með
heimsókninni áttu varla nógu
sterk orð til að lýsa því, hversu
viðfelldin og skemmtileg hún
væri. „Hún er hámenntuð og
gáfuð kona, laus þó við allan
menntahroka. Hún er afar fróð
og víðlesin," var haft eftir brezk-
um aðstoðarmanni Thatchers
sem fór með henni í skoðunar-
ferðir meðan þau Mikhail og
Margaret ræddu alþjóðamál.
Þó er af hálfu Sovétmanna
gætt hófsemi. En þetta bendir til
ákveðinnar hugarfarsbreytingar
hjá Gorbasjev og öðrum i foryst-
unni. Blöð í Sovétríkjunum hafa
nokkrum sinnum birt af henni
stórar myndir þegar hún hefur
verið með manni sínum við ein-
hverjar athafnir. Enn hafa sov-
ézkir fjöimiðlar þó ekki gengið
svo langt að nafngreina hana.
Blaðamenn á Vesturlöndum
hafa sagt að þau Gorbasjevhjón
væru vís með að stela senunni
frá þeim sælu Reaganhjónum, ef
svo færi að fundi yrði komið á
með þeim.
Þegar forsætisráðherrahjón
Indlands, Rajiv og Sonia
Gandhi, fóru í opinbera heim-
sókn til Sovetríkjanna fyrir fá-
einum vikum, þóttu þær frúr
samrýndar og fór vel á með
þeim. Vestrænir fréttamenn
lofsungu fjölbreytilegan klæða-
burð Raisu Gorbasjev og þótti
hún bera af Soniu hvað þægilegt
viðmót snerti. Nokkuð gaman
var hent að því, að daginn eftir
að Raisa hafði farið með Soniu
Gandhi í skoðunarferð um
Moskvuborg þvera og endilanga,
kom Lidia, kona Andreis Grom-
yko, allt i einu til skjalanna og
annaðist kynnisferðir daginn
eftir. En Lidia Gromyko hefur
fram til þessa verið ein af hinum
dæmigerðu felufrúm sovézkra
valdamanna, þótt mönnum væri
kunnugt um tilveru hennar.
Ekki er þó mikið vitað um
Raisu Gorbasjev. Talið er að hún
sé 51 árs gömul og að þau hjón
eigi tvö börn. Aðeins er vitað
hvert annað er, Irina, sem er
læknir á þrítugsaldri, gift
starfsbróður sinum, ónafn-
greindum. Þau eiga 4ra ára
gamla dóttur, Oksana. Einnig er
álitið, að Raisa hafi numið heim-
speki við háskólann í Moskvu og
að þar hafi þau hjón kynnzt.
Hún er nú sögð kennari við há-
skólann.
Raisa Gorbasjev talar lýta-
lausa ensku að sögn og þegar
þau hjónin voru í fyrrnefndri
Bretlandsheimsókn sýndi hún
mikinn áhuga á bókmenntum.
Meðan maður hennar átti ein-
hvern daginn tveggja klukku-
stunda fund með Margaret
Thatcher á sveitasetrinu Chequ-
ers skoðaði hún bókasafnið og
ræddi af áhuga og þekkingu um
bókmenntir.
Fljótlega eftir að Gorbasjev
tók við starfi flokksleiðtoga í
Sovétríkjunum þóttust menn sjá
merki þess, að ýmsar breytingar
væru í vændum. Framkoma og
talsmáti Gorbasjevs er nútíma-
legur og laus við þá stirfni og
alvöru sem hefur einkennt þá
Kremlarbændur. Það er ekki þar
með sagt að stefnubreyting sé í
vændum í innan- eða utanríkis-
málum; það bendir út af fyrir sig
ekkert til að hann sé frjálslynd-
ari en fyrirrennarar hans. Þó
segja vestrænir diplómatar, að
hann sé ólíkur þeim í samskipt-
um og sé nútímamaður — að
vísu sovézkur nútímamaður. Og
yfirbragðið hefur óumdeilanlega
breytzt. Það eitt að „leyfa“ frú
Gorbasjev að vera stöðugt í
fylgd með manni sínum og meira
að segja taka af henni myndir,
er engin smáræðis breyting —
að vísu á sovézkan mælikvarða.
En kann að vera fyrirboði ein-
• hvers sem dýpra risti.
Samantekt: Jóhanna
Kristjónsdóttir
Frá 100. fundi Félags þroskaþjálfa, sem jafnframt var hátíðarfundur í tilefni af 20 ára afmæli félagsins.
Félag þroskaþjálfa 20 ára
HINN 17. maí sl. hélt Félag þroskaþjálfa upp á að 20 ár eru liðin frá
stofnun félagsins. Var sérstakur afmælisfundur haldinn að Borgartúni 6
og var þaö jafnframt 100. félagsfundurinn frá upphafi. Stóð Heilbrigðis-
ráðuneytið síðan fyrir móttöku á sama stað í tilefni afmælisins.
Félagið var stofnað 18. maí
1965 og hét þá Félag gæslu-
systra. Fyrsti formaður þess var
Gréta Bachman.
Samkvæmt lögum um þroska-
þjálfa frá árinu 1977, er þroska-
þjálfum ætlað að starfa að þjálf-
un, uppeldi og umönnun þroska-
heftra. Til að mæta þessum kröf-
um hefur vægi uppeldisgreina í
námsefni Þroskaþjálfaskóla ís-
lands aukist á kostnað heilbrigð-
isgreina. Líta þroskaþjálfar nú
fremur á störf sín sem uppeld-
isstörf en störf á sviði hjúkrunar
og heilsugæslu.
Þeir teljas hinsvegar nokkuð
skorta á að fyrir liggi skýr af-
mörkun á starfssviði þeirra, en
vona að úr þvi verði bætt með
reglugerð, sem væntanleg er um
þessi mál, segir í fréttatilkynn-
ingu, sem félag þroskaþjálfa
sendi frá sér í tilefni afmælisins.
Núverandi stjórn Félags
þroskaþjálfa skipa: Árni Már
Björnsson formaður, Kristján
Sigurmundsson ritari, Sólveig
Theodórsdóttir gjaldkeri, Sús-
anna Þorvarðardóttir og Erna
Einarsdóttir meðstjórnendur.