Morgunblaðið - 09.06.1985, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNt 1985
57
Nettó skuldastaða við útlönd og nettó vaxtagreiðslur
af erlendum lánum í hlutfalli af vergri þjóðarframleiðslu
63
58^0%
48,3%
)o% 3: 2,0%
31, 6% 31,8%
5 l% —6,
7% 2, 9% 3,( 3,9% V r%
Erlendar
skuldir
Vaxtagreiðslur
1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984
Heimíld: Þjóöhagsstofnun, Seölabanki Islands bráðdb.
Þorskaflinn og skuldakvaðirnar
Meðfylgjandi tafla sýnir nettó skuldastöðu og nettó vaxtagreiðslur af
erlendum lánum 1978—1984. Davíð Sch. Thorsteinsson komst svo að orði
á aðalfundi Iðnaðarbankans 12. apríl sl. um þessa skuldastöðu: „Ástand-
ið er orðið það alvarlegt, að á síðasta ári, árinu sem lýðveldið varð 40
ára, vantaði meira en 2 milljarða króna til þess að andvirði alls þorsk-
afla okkar íslendinga nægði til að greiða umsamdar afborganir og vexti
af erlendum skuldum okkar." Því má við bæta að þessar skuldakvaðir
eru í raun útflutningur á almennum „kjörum", að því marki sem lánin
hafa gengið til neyzlu eða óarðbærrar fjárfestingar.
lífsmáta þjóðarinnar, er að megin-
hluta sótt til sjávarútvegsins; aus-
in af þeirri auðlind sem fiskimiðin
umhverfis landið eru.
• Án þessarar auðlindar værum
við enn í fjötrum fátæktar. Án
hennar teldumst við ekki til vel-
megunarþjóða. Þessa auðlind þarf
því að varðveita og nýta hyggi-
lega.
Það er meira en illt í efni þegar
svo er sorfið að þessari undir-
stöðugrein í þjóðarbúskap okkar
og lífskjörum sem raun ber vitni
um.
Gamalt máltæki segir að hæg-
ara sé að kenna heilræðin en
halda þau. Það felur í sér mikil
sannindi. En oft var þörf en nú er
nauðsyn að þjóðin leggist á eitt
um að styrkja stöðu sjávarútvegs í
landinu, bæði veiða og vinnslu.
Kjör starfsstétta í sjávarútvegi og
þjóðarinnar í heild verða ekki bet-
ur bætt á annan hátt en þann að
efla arðsemi í sjávarútvegi.
• Veiðisókn þarf að miða við
veiðiþol helztu nytjafiska. Því að-
eins gefa nytjafiskar landsmönn-
um hámarksafrakstur í framtíð-
inni að stofnstærð þeirra megi ná
hámarki við eðlileg skilyrði í líf-
ríki sjávar.
• Veiðisókn þarf að miða við það
að ná sem mestum afla með sem
uiinnstum tilkostnaði.
• Efla þarf markaðsstöðu okkar
og laga vinnslu að kröfum helztu
markaðssvæða.
Ef snúa á dæminu við, sjávar-
útvegsfyrirtækjum í hag, þarf til
að koma sterkt almenningsálit,
sem fylgir málum þeirra fast eftir.
Sterkt almenningsálit er eini
»áttavitinn“ sem stjórnmálamenn
óttast nægilega — til að láta
hendur standa fram úr ermum í
þeim þáttum pólitískrar stjórn-
sýslu, sem varða þessa undirstöðu-
grein, sjávarútveginn.
Erlendar skuldir
og viðskiptahalli við
umheiminn
Við erum lítil þjóð og vegum
ekki þungt á vogarskálum um-
heimsins. Og þó! Okkur hefur tek-
izt á a.m.k. tveimur sviðum að
gera okkur gildandi gagnvart út-
lendum:
• Nettó skuldastaða okkar við út-
lönd, sem var 32% í hlutfalli af
þjóðarframleiðslu 1978, þegar
vinstri stjórn hóf „björgunar-
störf" í þjóðarbúskapnum, er nú
komin upp í 63%. Vaxtagreiðslur
af þessari skuld, sem vóru 2,7% af
þjóðarframleiðslu 1978, nema nú
6,5% hennar.
• Viðskiptahallinn við útlönd er
nánast viðvarandi. Hann komst
hæst í tæpar 7.000 m.kr. 1982, sem
var um 10% af þjóðarframleiðslu.
Hann var enn 6% á sl. ári og verð-
ur sennilega litlu minni í ár.
Raunar má nefna þriðja vanda-
málið, verðbólguna, sem allir eru á
móti í orði en flestir krefjast þó á
borði, ef marka má víxlhækkun-
arhugsunarháttinn, sem lætur
enn á sér kræla í ríkum mæli.
Hallinn á þjóðarbúskapnum
sýnist allnokkur. Hallinn á ríkis-
búskapnum sömuleiðis. Nýkrónan,
sem steypt var úr hundrað gam-
alkrónum, siglir hraðbyri að kaup-
gildi niður á „núll“ forvera síns.
Undirstöðuatvinnuvegur þjóðar-
innar, sem velmegun hennar eru
að meginhluta sótt til, stendur á
rekstrarlegum brauðfótum. Og
það sem menn sjá helzt til ráða,
a.m.k. sumir hverjir, er að hefja
enn einn darraðardansinn á ís-
lenzkum vinnumarkaði.
Vandamál eru viðfangsefni, sem
hægt er að vinna sig út úr, ef rétt
er að málum staðið. Vinnutækin,
sem þarf til verksins, eru ekki
slagorð, stéttastríð né lýðskrum.
Þau flokkast frekar undir raunsæi
og samtaka róður þjóðfélagsþegn-
anna út úr brimgarðinum, áður en
fleyið steytir á sundrungarsker-
inu.
Saga okkar næstu misseri, þar á
meðal sá þáttur sem fjallar um
framangreind mál, er að vísu enn
óskráð. En við komumst ekki hjá
því að skrifa hana. Við hönnum
eigin framtíð á líðandi stund og
næstu vikum og mánuðum. For-
skriftina að þeirri framtíð eigum
við ekki að sækja til hávaðaseggja,
sem reynslan hefur margfellt í
skóla tilverunnar. Við höfum þeg-
ar fengið nóg af kollsteypum.
, HAPPDRÆTTI
SJ ALFSTÆÐISFLOKKSIN S
Dregið 15. júní
Vinsamlega geriö skil
zzr**
*/*r.
Ilátiuwéla
marhaðurinn
Smiðjuvegur 30 E-gata,
Kópavogur Sími 77066
^SIáttuvélar
fyrir allar stærðir garða
Jaa0 Landsins mesta úrval viöurkenndra sláttuvéla.
0 Liprir sölumenn veita faglegar ráöleggingar.
f0 Árs ábyrgö fylgir öllum vélum.
0 Öruggarleiöbeiningar um geymslu og meöferö sem tryggir langa endingu.
9 Cóö varahluta- og viögeröarþjónusta.
Yfir 20 tegundir sláttuvéla
Fisléttir Flymosvifnökkvar. sem hægt er að leggja saman og hengja upp á
fvegg eftir notkun 0 Rafsvifnökkvar 0 Bensinsvifnökkvar fyrir litla og
meöalstóra grasfleti 0 Atvinnusláttuvélar fyrir fína grasfletijafnt sem
sumarbústaöalóöir 0 Snotra með aflmiklum 3.5 hestafla mótor 0
Hjólabúnaður stillanlegur meö einu handtaki 0 Meö eöa án grassafnara.
Westwood garðtraktorar
Liprir, sterkir og fjölhæfir. 7,5—16 hestafla mótor. Margvíslegir fylgihlutir
fáanlegir. Henta vel fyrir sveitarfélög og stofnanir.
Crittall gróöurhús
Margar stæröir. Einnig vermireitir.
Verslið þar sem úrvalið er mest og þjónustan er best.
flffiEgy f Flymof flfflHlT
Westwood
Viö aukum
bjönmtuna
og opnum blóma- og
gjafavöruverslun í gróðurhúsinu
viö Hraunbrún
Mikið úrval af pottaplöntum,
afskornum blómum og
alls konar gjafavörum.
Verið velkomin til okkar
* Blómabúðin
v/Hraunbrún • 220 Hafnarfirdi • Sími 54740
Opið 9—21 alla daga.
Ljósmyndastofa Reykjavíkur
er á horni Hverfisgötu
og Snorrabrautar
Öll almenn ljósmyndaþjónusta
Hverfisgötu 105, 2. hæð. Sími 621166.
Verið velkomin