Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985
59
Sá maður var Halldór Vilhjálms-
son, hinn ógleymanlegi skólastjóri
á Hvanneyri. Guðlaug hafði verið
alin upp í lofgerð og aðdáun á
Halldóri, en slíkur hafði vitnis-
burður föður hennar verið um
þennan sérstæða mann. Átti Guð-
laug því til að læða fram athuga-
semdum er voru andóf gegn per-
sónudýrkun Lúðvíks og föður
hennar. Hafa ber í huga, að þessar
athugasemdir voru bornar fram á
þeim árum er íslensk skáld voru
hætt að yrkja sálma um ofur-
menni og harla rík andstaða hafði
myndast að sjá liðna tíð í hilling-
um.
Allt um það einkenndust sam-
skipti Lúðvíks og Guðlaugar öll af
gagnkvæmri tillitssemi, einlægni
og hreinskilni. Það er sannfæring
þess er hér ritar, að enginn í Bif-
röst hafi átt trúnað og traust Lúð-
víks Gestssonar sem Guðlaug hús-
móðir Samvinnuskólans á staðn-
um.
í Bifröst kynntist Lúðvík
Gestsson mörgu fólki og margvís-
legu. Fjölmennasti hópurinn var
að sjálfsögðu nemendur skólans er
þá voru um níutíu talsins. Lúðvík
hafði sérstaka ánægju af að taka
nemendur tali og undirrituð vita
að nemendurnir nutu þess einnig í
ríkum mæli. Lúðvík var maður
hreinskiptinn og greindi bæði frá
því er honum féll vel í fari nem-
enda og einnig hinu er honum
hugnaðist ekki. 1 síðara tilvikinu
urðu einkum ritstjórar þeirra
blaða, sem út voru gefin á skóla-
heimilinu, fyrir barðinu á honum.
Lúðvík þoldi enga Iágkúru í stíl og
efnismeðferð. Hann taldi sjálfgef-
ið að ritstjórar blaða á mennta-
setri vönduðu mál sitt og tækju
einungis það til umfjöllunar er
orðið gæti til ávinnings og göfgun-
ar.
Starfsfólk Bifrastar, ófátt, varð
honum á annan veg handgengið.
Þar átti hann vinum að mæta,
enda vinur og hollvættur sjálfur.
Þeir urðu ófáir í hópi starfsliðsins
er áttu þess kost að læra hjá Lúð-
vík bókband og eignast á þann
hátt hagnýtt tómstundastarf.
Ekki verður því haldið fram að
hann hafi líkst svo Hrollaugi, syni
Rögnvaldar jarls af Mæri, er nam
lönd á Suðausturlandi og á þar
fjölda afkomenda enn í dag, að um
Lúðvík hefði mátt segja, að hann
hefði haft það skap er engin styrj-
öld fylgir. Með þessu er ekki verið
að halda því fram að Lúðvík
Gest.sson hafi kosið að eiga í ill-
deilum og útistöðum. Fjarri fer
því. Hinu má ekki gleyma að Lúð-
vík var maður skapmikill, jafn-
framt því sem hann var viðkvæm-
ur og auðsærður, þegar þannig
stóð á. Lúðvík vissi það manna
best sjálfur að hann var ekki laus
við mannlegan breyskleika. Hann
hafði á langri ævi kynnst mörgu,
lifað meira en tvenna tíma. Þá
hafði hann notið hvors tveggja,
sælu og harms. Sælan var tengd
hinu marga frábæra fólki er hann
hafði átt samskipti við á lífsleið-
inni. Sælan var líka tengd ætt-
mönnum hans, eiginkonu hans,
Björgu Einarsdóttur frá Ekru í
Stöðvarfirði, og sonunum hans
tveim. Harmurinn mesti var lát
eldri sonar hans, Einars Guð-
björns Þorbjarnar, er dó af slys-
förum 27. mars 1955, aðeins tvít-
ugur að aldri. Harmurinn og sökn-
uðurinn við að missa Brá, eins og
Lúðvík kallaði alltaf þennan dýra
son, varð meiri og stærri en orð
geta lýst. Þá varð það líka Lúðvík
harmsefni að hafa ekki reynst
jafn heill og sterkur og hann hefði
kosið.
Lúðvík Gestsson var maður
gjafmildur. Hann hvarf frá Bif-
röst með nokkuð jöfnu millibili að
hitta vini sína syðra, eiga með
þeim fagnaðarstundir og færa
þeim gjafir. Þessar ferðir voru
Lúðvík unaðartími og gleðigjafi.
Hinu er ekki að ieyna, að sá maður
sem aftur kom til Bifrastar var
ekki að sama skapi sæll og fullur
fagnaðar. Hinar ánægjulegu ferð-
ir felldu því miður oft skugga á
heimkomuna. En skugga- og upp-
gjörstíminn stóð ekki lengi. Að
fáum dögum liðnum var aftur haf-
ist handa, hvort sem það nú var
bókbandið á vetrum eða fegrun
umhverfisins á sumrum. Þá var
harmurinn horfinn og gleðin og
fögnuðurinn ríkti að nýju.
Hver sá er nú gengur um garða
í Bifröst sér enn merki hins mikla
eljumanns. Sjá má bækurnar
mörgu í bókasafni skólans, þeirra
á meðal hinn mikla fjölda ljóða-
bóka annars vegar og hins vegar
skrúðgarðana mörgu er Lúðvík
myndaði högum höndum. Þá er
hins ógetið, er verður síst ómerki-
legra er fram líða stundir, en það
eru bækurnar mörgu víðs vegar
um landið er bera vitni um alúð og
natni bókbindarans.
Ef til vill naut Lúðvík sín aldrei
betur en í tengslum við hrossaeign
og jarðarkaup Guðlaugar. Þá var
gaman að lifa, þegar hrossunum
fjölgaði og til hins kom að tryggja
húsmóður staðarins jörð, sem
hana hafði allar stundir dreymt
um. Aldrei var Lúðvík sporléttari
en þá og fúsari til hvers konar
þjónustu og fyrirgreiðslu. Lúðvík
fylgdist af sérstökum áhuga með
því er hrossunum fjölgaði á Jafna-
skarði og búið var þar í haginn
fyrir börn og barnabörn skóla-
stjórahjónanna.
Af tvennum þræfti er hin tregandi heimþrá
spunnin,
sem talar upp úr rauftum svefni vors blófts.
Úr óminnisfyrnsku, um farveg aldanna
runnin,
vor fortíft leitar oss uppi og kveður sér hljóðs.
En þaft er á mótum minninga og drauma
sinna,
sem mannsins heimþrá skal sína ættjörð
finna.
Því draumur og minning er leiftin til sama
lands
og landið er uppruni, saga og framtíð hans.
Og vei þeim, sem ei virftir skáldskap þann,
sem veruleikinn yrkir kringum hann,
og stendur ógn af skáldsins tungutaki.
Þvi, sjá, hann fléttar einnig örlög þín,
vift örlög bræftra þinna í kvæftin sín.
Þeir búa allir undir sama þaki.
Því heim var stefnt — og frjáls skaltu einnig
ferfta,
mitt fagra land, og megi þín unga þjóð
um eilifft þeirri veröld aft lifti verfta,
sem vígir drengskap og réttir sín hetjuljóð.
Og megi vor arfur í ætterni, máli og sögum,
fslandi verða leiðsögn á komandi dögum.
Sá sem pennanum stýrir skrif-
aði langt mál um Lúðvík Gestsson,
rakti ævi hans í tilefni sjötíu og
fimm ára afmælis Lúðvíks 22.
febrúar 1972. Sú ritsmíð birtist í
íslendingaþáttum dagblaðsins
Tímans, sem var fylgirit blaðsins.
Vísast hér til þeirrar ritsmíðar er
kom fyrir almenningssjónir svo
nærri afmæli Lúðvíks sem mögu-
legt reyndist.
En sá sem pennanum stýrir á
sérstæðar endurminningar um
Lúðvík sem ekki voru þá á blað
festar. Þau þrettán ár er við vor-
um í kallfæri hvor við annan urðu
óvenjulegur tími. Bar margt til
þess. Lúðvík Gestsson varð að sér-
stæðri sagnapersónu í Bifröst, en
þær sagnir munu ekki tíundaðar
hér. Hitt er víst og satt að sam-
skiptin urðu svo náin að með ólík-
indum má telja.
Lúðvík Gestsson sagði, að sá
sem hér skráir færi illa með bæk-
ur. í stað þess, eins og aðrir les-
endur bóka, að lesa þær niður í
kjölinn voru bækurnar lesnar
niður úr kjölnum. Þetta var Lúð-
vík bæði furðuefni og ásökunar-
efni. Bækur skrásetjarans fékk
Lúðvík allar í blöðum og varð ekki
auðvelt að binda inn slíkar bækur.
Þó gafst Lúðvík ekki upp fyrr en
hann hafði bundið bókaræksnin
inn og búið þeim hið traustasta
band.
Margar urðu ferðir skrásetjar-
ans í bókbandsstofu Lúðvíks á ár-
unum þrettán. Var þá dvalið þar
lengi og rætt um hin ólíklegustu
málefni. Skrásetjarinn lá á þess-
um árum í fræðum rómversk-
bandaríska fræðimannsins Mer-
icia Eliades, breska fræðimanns-
ins James Barrs og franska
kristmunksins Pierre Teihard De
Chardins, svo örfáir séu nefndir.
Þegar lokið var einni bók var efni
hennar tíundað á bókbandsstofu
Lúðvíks Gestssonar og það tekið
til ítarlegrar umræðu. Best man
skrásetjarinn viðbrögðin við bók-
um hins rómversks-bandaríska
fræðimanns Mercia Eliades, ekki
síst riti hans hinu mikla um
Shamanismann, fyrirbæri heim-
skautasvæðanna fyrst og fremst
að dómi höfundarins, svo og bók-
um franska kristsmunksins Pierre
Teihard De Chardins og þá alveg
sérstaklega Fyrirbærið maðurinn
er skrásetjarinn hafði lesið bæði í
enskri og norskri þýðingu. Um all-
ar bækur er skrásetjarinn las var
rökrætt í bókbandsstofu Lúðvfks
Gestssonar og þá var Lúðvík svo
sannarlega ekki hlutlaus hlust-
andi heldur hóf að ræða um hin
margyíslegustu efni báðum til
ánægju og umhugsunar.
Skrásetjarinn hefur átt marga
viðmælendur um dagana en engan
sem Lúðvík Gestsson. Fyrir hinar
mörgu stundir á vinnustofu hans
ber sérstaklega að þakka við leið-
arlok.
Guði og Kristi falinn lifir Lúð-
vík Gestsson. Þökkuð er hjálp
hans, framlag og líf hans allt.
Guð blessi ástvini hans, skyld-
fólk og tengdafólk.
Lúðvík hvarf inn í sólina og vor-
ið í meira en tvennum skilningi.
Guðmundur Sveinsson
tiuðlaug Einarsdóttir
sumarblóma og garðplöntu
markaður
undir einu þaki
Úrval af
gullfallegum
garöplöntum,
sumarblómum og
runnum
Það er þess viröi aö líta
á garöhúsgögnin okkar
Auk þess öll helstu
garöáhöld, fræ og áburö
Allir vita aö úrvaliö af
afskornu blómunum er
hjá okkur________________
Komiö, skoðið og þiggið ilmandi
kaffisopa.
opíö
alla daga
k|. 8-21 V|Ð mKlATOm