Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 60
ffttttttfrlftfetfe
SIAÐFEST lAflSTRAIIST
KEILUSALURINN
OPINN 9.00-00.30
SUNNUDAGUR 9. JUNI 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Fær Stálfélagið 40
milljóna ríkisábyrgð?
Fjármálaráðherra óskar eftir slíkri heimild, en
segir að ekkert liggi fyrir um að hann noti hana
ALBERT Guðmundsson fjármálaríðherra hefur óskað eftir því við þingflokk
SjálfsUeðisflokksins að frumvarp um beimild til fjármálaráðherra til að veita
stálvölsunarverksmiðju á Reykjanesi 40 milljón króna ríkisábyrgð verði að
lögum á þessu þingi. Eins og kunnugt er lýsti Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra því yfir í vetur, að hann teldi engan rekstrargrundvöll fyrir slíkri
verksmiðju, og sagðist hann því leggjast gegn því að slík ríkisábyrgð yrði
veitt.
Albert Guðmundsson sagði við
blaðamann Morgunblaðsins að
þótt hann fengi heimildina í hend-
ur væri ekki þar með sagt að hann
myndi notfæra sér hana. Hann
sagðist einungis vilja hafa þessa
heimild, ef þeir Stálfélagsmenn
kæmu fram með ný gögn, sem
tækju af öll tvímæli um að verk-
smiðjan gæti borið sig. Ella yrði
Fálkadrápið á Tjörnesi:
Þrír Húsvíkingar í
haldi lögreglunnar
- arnarhreiðrinu f Kvígindisfirði
sparkað fram af klettasyllu
TVEIR ungir Húsvíkingar voru í haldi lögreglunnar í fyrrinótt eftir að
uppvíst varð að þeir höfðu skotið fjóra fálka á Tjörnesi og geymt í frystihólfi
frystihúss á Húsavík um all langt skeið, eins og skýrt var frá í blaðinu í gær.
Þriðji maðurinn var handtekinn í gærmorgun grunaður um aðild að fálka-
drápinu og var hann í haldi lögreglunnar í gær.
Ljóst er orðið, að sögn Þrastar i ar því að þarna hafi komið að
Brynjólfssonar, yfirlögregluþjóns
á Húsavík, að fleiri menn tengjast
málinu með einum eða öðrum
hætti. Yfirheyrslur stóðu fram yf-
ir miðnætti á föstudagskvöldið og
hófust aftur snemma í gær, laug-
ardag.
Ekki var talið ólíklegt að krafist
yrði gæsluvarðhalds yfir einhverj-
um mannanna þriggja en rann-
sókn málsins var haldið áfram
undir stjórn Rannsóknarlögreglu
ríkisins.
Vestur á Barðaströnd er orðið
fullvíst, að arnarhreiðrið yst í
Kvígindisfirði, sem einnig var
sagt frá í blaðinu í gær, hefur ver-
ið skemmt af mannavöldum, að
sögn Stefáns Skarphéðinssonar,
sýslumanns á Patreksfirði. Stefán
gerði sér ferð að hreiðrinu aðfara-
nótt laugardagsins og sagði við
heimkomuna að enginn vafi væri
á, að laupnum hefði verið sparkað
fram af klettasyllu í nesinu, sem
ernirnir gerðu sér bústað í.
„Það var engar fæðuleifar að sjá
í laupnum og enga eggjaskurn en
honum hefur verið sparkað þarna
fram af,“ sagði Stefán í samtali
við blm. Morgunblaðsins. „Það var
heldur ekki að sjá þarna nýleg
spor utan ein, sem líklegast eru
eftir Reyni Bergsveinsson, er
fyrstur varð var við að þarna hefði
eitthvað óeðlilegt gerst. Mig grun-
MoreunblaðiA/RAX
FÁLKARNIR FJORIR
Þessir fálkar fundust í frystihólfi
á Húsavík. Þrír menn höfðu í gær
verið handteknir vegna málsins.
menn á báti,“ sagði sýslumaður.
Hann sagðist vonast til að augu
manna opnuðust nú fyrir því, að
arnarhreiður og fálkahreiður
þyrfti að vernda sérstaklega, ef
takast ætti að varast frekari
spellvirki. Rannsókn málsins
verður haldið áfram vestra og eru
allar upplýsingar vel þegnar af
sýslumanni og lögreglu á Pat-
reksfirði.
ekki um neina ríkisábyrgð að
ræða.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra sagði af þessu tilefni:
„Ég hafði engin afskipti af þessu
máli á þingflokksfundinum.
Fjármálaráðherra óskaði eftir því
að hann fengi þessa heimild, en
hann gat þess jafnframt að það
lægi ekkert fyrir um að hann
myndi nota hana. Ég treysti því að
fjármálaráðherra notfæri sér ekki
þessa heimild nema hann hafi
sönnur fyrir því að fyrirtækið geti
staðið undir sér. Ég hef enga trú á
að þetta fyrirtæki geti staðist."
Sverrir sagðist hafa áhuga á að
hér yrði reist stálbræðsluverk-
smiðja og völsunarverksmiðja
tengd henni en stálvölsunarverk-
smiðja ein sér gæti aldrei staðist
rekstrarlega — það sagðist hann
hafa kannað til þrautar.
ólafur G. Einarsson formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
sagði er hann var spurður um af-
greiðslu þessa máls í þingflokkn-
um: „Sú breyting hefur orðið að
stjórn Stálfélagsins telur sig hafa
nú miklu meiri hlutafjárloforð en
hún áður gat greint frá og það
hefur breytt þeirri skoðun ráð-
herranna í þá veru að óhætt sé að
veita fjármálaráðherra þessa
lagaheimild, sem frumvarpið gerir
ráð fyrir. Þingflokkurinn hefur
því ekkert við það að athuga að
fulltrúar hans í fjárhags- og
viðskiptanefnd veiti sinn atbeina
til þess að malið fái lokameðferð í
nefndinni og síðan í þinginu. Það
liggur hins vegar ljóst fyrir, að
heimildin verður bundin ákveðn-
um skilyrðum, þannig að þó að
frumvarpið verði að lögum verður
Stálfélagið að uppfylla ákveðin
skilyrði áður en fjármálaráðherra
getur notfært sér heimildina."
AFRAM SÆMUNDUR
Hann Sæmundur Oskarsson sparkar boltanum einbeittur á svip, greini-
lega mikill áhugamaður um íþróttina.
Mikil röskun á starfsemi
sjúkrahúsanna í sumar
MIKIL röskun veröur á starfsemi sjúkrahúsanna í sumar vegna sumarleyfa
starfsfólks og erfiðleika á ráðningu afleysingafólks. Fjórum deildum verður
lokað í Landspítalanum vegna sumarleyfa starfsfólks og röskun verður á
starfsemi fleirí deilda. í Borgarspítalanum verða tvær lyflækningadeildir
lokaðar í 5 vikur hvor, ein skurðlækningadeild verður lokuð í 12 vikur og
endurhæfingardeildirnar á Grensási verða lokaðar að hálfu í 10 vikur.
Símon Steingrímsson forstjóri
Ríkisspítalanna sagði að rekstur
Ríkisspítalanna yrði í sumar með
svipuðum hætti og undanfarin
sumur. Fjórar deildir í Landspít-
alanum verða lokaðar í sumar sem
svarar sumarleyfistíma starfs-
fólks. Eru það ein handlækninga-
deild, ein lyflækningadeild, ein
bæklunarlækningadeild og ein
taugalækningadeild. Auk þess
verða takmarkanir á rekstri deild-
anna á Vífilsstöðum og Kristnesi.
Símon sagði að ástæður lokun-
arinnar væru þær að ekki væri til
faglært fólk til sumarafleysinga.
Strandaði þegar á því atriði, en þó
fólkið fengist væri ekki til fjár-
magn til að ráða það. Sagði Símon
að reynt væri að taka á móti bráð-
asjúklingum með svipuðu móti og
gert er en tekið fyrir innkallanir á
deildirnar á þessum tíma. Hann
sagði að ef til vill kæmi þessi rösk-
un sér verst fyrir bæklunarlækn-
ingadeildina, þar sem lengstu
formlegu biðlistarnir væru.
Sigurlín Gunnarsdóttir hjúkr-
unarforstjóri í Borgarspítalanum
sagði að meira væri lokað þar í
sumar en verið hefði undanfarin
sumur svo jaðraði við neyðar-
ástand í sjúkrahúsinu. Hún sagði
að tvær lyflækningadeildir yrðu
lokaðar í 5 vikur hvor, ein skurð-
lækningadeild yrði lokuð í 12 vik-
ur og endurhæfingardeildir á
Grensási yrðu að hálfu lokaðar í
10 vikur. Hún sagði að við bættist
að ekki hefði verið hægt að starf-
rækja deild með 30 sjúkrarúmum
frá því í fyrrahaust vegna skorts á
hjúkrunarfræðingum og sjúkra-
liðum.
Hún sagði að ástæðan fyrir
sumarlokun deilda væri fyrst og
fremst skortur á hjúkrunarfræð-
ingum og taldi hún að lág laun
væru aðalástæða þess að þeir
fengjust ekki til starfa.
Mótmælir uppsögnum
í kjötiðnaðarstöö SÍS
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ Framsókn hefur mótmælt uppsögn starfsmanna
í kjötiðnaðarstöð Sambandsins á Kirkjusandi þar sem ekki var farið eftir
starfsaldri við uppsagnirnar, að sögn Rögnu Bergmann, formanns Framsókn-
ar. Sambandið sagði upp 16 starfsmönnum í kjötiðnaðarstöðinni fyrir rúmri
viku, með þriggja mánaða uppsagnarfresti, vegna breytinga og hagræðingar,
þar af var 5 sagt upp vegna aldurs.
Ragna sagði að félaginu hefði
borist afrit af bréfi fyrirtækisins
til félagsmálaráðuneytisins þar
sem uppsagnirnar voru tilkynntar
og síðan hefðu tvær konur í félag-
inu, sem þarna unnu, haft sam-
band við sig vegna málsins. Sagði
hún að uppsagnirnar hefðu borið
heldur óvenjulega að. Uppsagnirn-
ar hefðu verið tilkynntar að
morgni og viðkomandi starfsfólki
síðan afhent uppsagnarbréf
tveimur klukkustundum síðar.
Ragna tók fram að ekki væri
hægt að efast um lögmæti upp-
sagnanna, en eigi að síður væri
nauðsynlegt að spyrna við fótum
þegar svona væri staðið að málum.
Þarna hefði konum verið sagt upp
störfum, sem væru búnar með
meirihluta starfsævinnar og hefðu
starfað þarna í mörg ár, og svo
væri þeim bara kastað, þó aðrar
ynnu áfram með mun styttri
starfstíma. Þessar konur gengju
ekki svo auðveldlega inn í önnur
störf, og því hefði félagið mótmælt
uppsögnunum.