Morgunblaðið - 13.06.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JtlNl 1985
Greenpeace-samtökin:
„Oskamm-
feílið bragð“
EINS OG fram hefur komið í fréttum, lýsti íslenska ríkisstjórnin því yfir 30.
maí síðastliðinn að leyft yrði að veiða 200 hvali hér við land auk 10 búrhvela
og 10 hnúfubaka frá 1986—89 í rannsóknaskyni þrátt fyrir þá ákvörðun
alþjóða hvalveiðiráðsins að stöðva allar hvalveiðar frá og með árinu 1986, en
íslendingar ákvaðu að virða þá samþykkt.
Umhverfissamtökin Greenpeace ennfremur á því hvað Islendingar
hafa brugðist ókvæða við þessari
yfirlýsingu. I fréttatilkynningu
frá samtökunum kemur fram að
þau telji ekki að fjögurra ára veið-
ar muni auka við þekkingu manna
á þeim hvalastofnum sem veiddir
verða, ekki síst í ljósi þess að
rannsóknir síðastliðinna fjörutíu
ára hafa alls ekki dugað til að
færa mönnum þá vitneskju sem
sóst hefur verið eftir. „Þetta er
óskammfeilið bragð til að hleypa
íslandi framhjá ákvörðun Al-
þjóðahvalveiðiráðsins," er haft
eftir talsmanni Grænfriðunga,
Michael Nielsen.
Greenpeace-samtökin furða sig
ætli sér að gera við allt kjötið sem
af þessum hvölum fæst. Eins og
stendur er megnið flutt út til Jap-
an en samkvæmt samningi sem
Japanir og Bandaríkjamenn gerðu
með sér á dögunum mega Japanir
ekki flytja inn hvalkjöt frá öðrum
löndum eftir að samþykkt Al-
þjóðahvalveiðiráðsins hefur geng-
ið í gildi. Þau telja því líklegt að
íslenska sendinefndin sem verið
hefur í Kanada og Bandaríkjunum
í fylgd með Halldóri Ásgrímssyni
sjávarútvegsráðherra muni ætla
sér að ná einhverjum samningum
við Bandaríkjamenn um þessi mál.
BIKR og DV:
Úrslit sparaksturskeppni
Sparaksturskeppni BIKR (Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur) og DV
var haldin sl. sunnudag. Var eingöngu íslenskum bifreiðaumboðum boðin
þátttaka. Kepptu 14 bifreiðar frá 6 umboðum. Keppt var í flokkum, sem
miðuðust við rúmtak véla bifreiðanna. Akstursleiðinni, sem var 200 km,
var skipt í fímm áfanga með mismiklum meðalhraða á hverjum, eftir
gæðum vegarins og umferðarþunga. Meðalhraðinn í keppninni var 56
km/klst.
Úrslit urðu, sem hér segir:
Flokkur 0—1000 cc — 1/100:
1. Þorbergur Guðmundsson,
Birgir Halldórsson, Suzuki
Swift, 3,825 lítrar. 2. Úlfar Hin-
riksson, Sigurður Sigurðsson,
Suzuki Swift,3,844. 3. ómar Þ.
Ragnarsson, Jón R. Ragnarsson,
Daihatsu Charade, 4,122, 4. Jós-
ep Kristjánsson, Guðbrandur
Bjarnason, Suzuki Alto, 4,374. 5.
Egill Jóhannsson, Þorleifur S.
Ludvigson, Daihatsu Charade,
4,461. 6. Eyþór S. Birgisson,
Georg Georgsson, Fiat Uno,
4,753.
Flokkur 1001-1300 cc:
1. Stefán Kristjánsson, Magnús
Þorgeirsson, Ford Escort, 4,555.
2. Valter R. Kristjánsson, Bald-
vin Garðarsson, Opel Kadett,
5,767.
Flokkur 1301-1600 cc:
1. Sigurþór Margeirsson, ólafur
Sæmundsson, Peugeot 205, 4,817.
2. Sigurður Kristófersson, Guð-
mundur Kristófersson, Volvo
340, 5,062. 3. Kjartan Blöndal,
Karl ísleifsson, Fiat Regatta,
5,518. 4. Guðm. Oddgeir Indriða-
son, Sigurður Ingimarsson, Suz-
uki Fox, 6,209.
Flokkur 0—1300 Diesel:
1. Sigurjón ólafsson, Skúli
Skúlason, Daihatsu Charade,
3,720.
Skotmaðurinn í Vagnhöfða:
Var að prófa
kindabyssu
Gaf sig fram við Rannsóknarlögregluna
MAÐUR gaf sig fram við Rannsókn-
arlögreglu ríkisins í gær og játaði að
hafa skotið úr byssu í gegn um vegg á
verkstæði við Vagnhöfða í Reykjavík á
þriðjudagskvöldið. Maðurinn kvaðst
hafa skotið úr kindabyssu og ekki gert
sér grein fyrir afíeiðingunum, hefði
talið að byssan væri ónýt.
Maðurinn var staddur á bifreiða-
verkstæði þegar hann skaut þremur
skotum í vegg milli verkstæðisins og
bifreiðaverkstæöis hinum megin.
Þar var maður að störfum þegar
byssukúlur þeyttust í gegn um vegg-
inn í nokkurri hæð fyrir ofan höfuð
hans. Maðurinn gerði lögreglunni
viðvart um atburðinn.
Vorhappdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Dregið eftir 2 daga
Morgunblaðinu barst í gær svo-
hljóðandi fréttatilkynning:
„Nú eru aðeins 2 dagar þar til
dregið verður í Vorhappdrætti
Sjálfstæðisflokksins, því dráttur
fer fram næstkomandi laugar-
dagskvöld. Vinningar eru 22 sól-
arlandaferðir og aðrar ferðir
víða um heim. Stuðningsmenn
flokksins hafa ætíð brugðist
skjótt við þegar til þeirra hefur
verið leitað og er þess vænst að
svo verði enn. Þeir, sem fengið
hafa heimsenda miða og eiga
enn ógerð skil eru vinsamlega
beðnir að gera skil sem fyrst því
það auðveldar það mikla starf,
sem fólgið er í framkvæmd
happdrættisins. Þá skal það sér-
staklega tekið fram, að þeir sem
óska að láta sækja andvirði
heimsendra miða hafi samband
við afgreiðslu happdrættisins í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, og
síminn er 82900. Afgreiðslan er
opin til kl. 10 í kvöld og annað
kvöld."
VÍÐIR
Nauta
Hamborgari
ca. 80 gr.
(rtu.
Allt á
útigrillið
Salaíaressing
í ÚRVALI
Grillolía - Grillkrydd
Grillkol -Grillbakkar
Uppkveikjulögur
pr.stk.
með
brauði
Nauta
Grillborgari
ca. 140 gr.
Helmingi stærri
þykkur, safaríkur og
kryddaður. Tilbúinn á grillið.
pr.stk.
brauði
Sumar
Kryddlegið
lambakjot
Lambagrillteinn
Paprika Paprlka
Svínagrillteinn
Svinakjöt " Svinakjöt - Svinakjöt Svinakjöt-Svinakjöt.
- Ananas - Ananas Ananas - Ananas -
Kryddlegiö Kryddlegió
Laukur neutakjöt nautakjöt
Nautagrillteinn
Kebabgrillteinn
Kryddlegió Kryddlegió
svínakjöt nautakjöt
Kryddlegið Kryddlegió
nautakiöt lambakjót
Paprika
Agurka
Agúrka Paprika
Paprika
*
ÚTIMARKAÐUR
Stórlækkað verð
Tómatar Agúrkur
89 .00 pr.kg. 68 .00 pr. kg.
Núerhver síðastur
að kaupa kjötið
á gamla verðinu...
Pylsugrillteinn
Bacon
Pylsugrillteinn
Bacon-Pylsa-Bacon
Folaldagrillteinn
w Paprika-
Laukur-Kjöt-Paprika
Lambageiri
Opið til kl. 20 í Mjóddinni
en til Id. 18 í Starmýrí
og Austurstræti.