Morgunblaðið - 13.06.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚNl 1985
21
Menntaskólanum að Laugarvatni var slitið 8. júní. Að þesmi sinni braut-
skráðust fri skólanum 25 stúdentar. Þeir sjist hér isamt Kristni Krist-
mundssyni skólameistara.
Menntaskólinn að Laugarvatni:
25 stúdentar
brautskráöust
MENNTASKÓLANUM að Laugar-
vatni var slitið í þrítugasta og annað
sinn laugardaginn 8. júní. Frá skól-
anum brautskráðust að þessu sinni
25 stúdentar, 14 úr miladeild, 5 úr
edlisfræöideild og 6 úr náttúru-
fræöideild. Hæstu einkunn á stúd-
entsprófi hlaut Sigurður Kristinsson,
ágætiseinkunn 9,25. Sigurður er úr
eðlisfræðideild.
í skólaslitaræðu Kristins
Kristmundssonar, skólameistara,
kom- meðal annars fram að aðsókn
að skólanum fer nú vaxandi eftir
nokkra lægð undanfarin ár. { vet-
ur var kennt í fyrsta sinn í þrem
bekkjardeildum í fyrsta bekk, en
þar hófu 68 nemendur nám. Utlit
er fyrir svipaða aðsókn næsta vet-
ur. Kvað Kristinn þetta vera til
marks um vaxandi vinsældir
heimavistarskóla. Af nýjungum í
skólastarfi nefndi skólameistari
einkum stórfellda tölvuvæðingu
skólans, en skólinn hefur fengið
alls 14 nýjar tölvur auk ýmiss
annars búnaðar og notendaforrita.
Tölvur þessar eru af gerðunum
Apple Ile og IBM PC. Að vanda
mættu margir gamlir nemendur
Skólameistari afhenti dúx skólans,
Sigurði Kristinssyni, viðurkenningu
fyrir nimsirangur.
afmælisárganga til skólaslita og
færðu skólanum stórveglegar
gjafir.
Davíð
Gísli Halldórsson í hlutverki sínu í Draumi i Jónsmessunótt
Leikfélag Reykjavíkur:
Allra síðustu sýningar á
Draumi á Jónsmessunótt
SÍÐUSTU aukasýningar á Draumi i
Jónsmessunótt eftir William Shake-
speare verða næstkomandi föstu-
dags- og laugardagskvöld. Mikil að-
sókn hefur verið að leikritinu síð-
ustu daga og er þessum sýningum
því bætt við.
Sögusvið leiksins er skógur rétt
fyrir utan bæ, sem ber nafnið
Aþena. Bæði álfar og menn koma
við sögu; íbúar Aþenu eiga í erjum
innbyrðis og við álfana. Einnig er
ástin stór þáttur í leikritinu.
Draumur á Jónsmessunótt er
sýndur í þýðingu Helga Hálfdan-
arsonar, undir leikstjórn Stefáns
Baldurssonar. Grétar Reynisson
gerði leikmyndina og Jóhann G.
Jóhannsson stjórnar tónlist.
(rr fréltatilkvnningu)
BESTU UPPSKRIFTIRNAR ’8 5
Kæru
þá tttakendur,
þiö kaffærðuö
dómnefhdina
okkar!
(takkfyrír!)
Nú hafa dómnefndarmenn haft uppi svunturnar í heilan
mánuð og látið hendur standa fram úr ermum.
Peir þurftu að leggja undir sig tilraunaeldhúsið okkar í
Osta- og smjörsölunni og eldhús Kokkaskólans
að auki, því uppskrif tafj öldinn sem barst fór langt fram
úr okkar björtustu vonum.
Drjúgan tíma tekur að útbúa, smakka og dæma slíkan
fjölda rétta, og þar sem dómnefndin er afar
vönd að verkum sínum sjáum við okkur ekki annað fært
en að fresta úrslitunum eitthvað fram í júlí -
en þá kemur dómnefndin upp úr kafinu.
Með von um skilning og biðlund.
Osta- og smjörsalan.