Morgunblaðið - 13.06.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTITDAGUR 13. JÚNÍ 1985
fclk í
fréttum
Norsku vinningshafaniir Daniel Ripe, Jon Eivin Skrede,
Jim Rnne Skrede og Magne Froystad. Með þeim á mynd-
inni er Pal Hansen hjá Norska dagblaðinu sem meira og
minna hafði veg og vanda af undirbúningi og vinnshi í
keppninni.
Morgunblaðið/RAX
Sá sem þama er að kasta er Magne Froystad sem varð
sigurvegari Noregs (keppninni.
Vinningshafar
í skeifukastkeppni
í Noregi
Hlutu íslandsferð í verðlaun
Hér á landi voru staddir fyrir
nokkru vinningshafarnir í
skeifukastkeppni sem haldin var
vítt og breitt um Noreg. Alls voru
þátttakendur um 30.000 og fór
keppnin ekki einungis fram í Nor-
egi heldur var norskum nemum í
Diisseldorf og norskum hermönn-
um bæði í Líbanon og á Miami
gefinn kostur á að spreyta sig.
Skeifukastkeppnin fer þannig
fram að viðkomandi aðili stendur í
10 metra fjarlægð frá litlum staut
sem skeifurnar eiga að lenda á eða
sem næst. Þegar staðið er í 10
metra fjarlægð er skeifunum kast-
að og sá ber sigur úr bítum sem
hefur sem flestar skeifur við
stautinn.
Það var norska dagblaðið sem
stóð fyrir mótinu og voru fram-
ieiddar um 200.000 skeifur af til-
efninu.
Fyrstu verðlaun voru ferð til ís-
lands og okkur á Morgunblaðinu
fannst viðeigandi að bjóða ís-
landsförunum á hestbak sem þeir
kunnu vel að meta. Það var helst
blaðamaður, sem skikkaður var
með og aldrei hafði á lífsleiðinni
komið á hestbak, sem gekk um
með frosið bros þann daginn. Það
verður ekki fleira tíundað frá
þessum reiðtúr á prenti.
Leiklist á
Reynisfjalli
undanförnum árum hafa
nokkur íslensk ungmenni ver-
ið við nám í leiklistardeild
New York University og í
fyrra voru þar fimm íslend-
ingar. Einn aðalkennari skól-
ans er Kevin Kuhlke og í
sumar kemur hann hingað til
lands og verður með leik-
smiðju á Reynisfjalli ásamt
tvíburunum Hauki og Herði.
„Reynisfjall er heldur
óvenjulegur staður en hentar
þessu námskeiði mjög vel.
Kevin er mikið fyrir að vinna
upp í sveit þar sem ekkert
utanaðkomandi dreifir athygl-
inni og með því að láta þátt-
takendur námskeiðsins hafast
við á einum stað þarf ekki að
setja tímamörk á vinnuna sem
þar fer fram,“ sagði María Ell-
ingsen, sem sér um undirbún-
ing námskeiðsins. „Reynisfjall
stendur fram í sjó og fyrir
framan það gnæfa Reynis-
drangar. Skammt frá bjarg-
brúninni stendur 350 fermetra
hús sem við höfum til umráða
fyrir námskeiðið og er í því
rúmgóður salur fyrir inni-
vinnu. í húsinu getum við
rúmað alla þátttakendur.
Fjallið er flatt að ofan og því
hægt um vik að vinna úti þeg-
ar þannig viðrar."
Að sögn Maríu beinist at-
hygli Kevins einkum að því að
tengja rödd og líkama leikar-
ans, losa um þann kraft sem
hann býr yfir og brjóta upp
vanaform með spuna og „im-
pulsvinnu". Út frá þessu verð-
ur síðan unnið með texta úr
sígildum verkum.
„Þótt Kevin Kuhlke sé að-
eins þrítugur er þekking hans
og reynsla mjög víðtæk. Hann
hefur margsinnis unnið með
Jerzy Grotowski og hefur orð-
ið fyrir miklum áhrifum af
honum. Kevin hefur leikið með
leikfélögum í New York og
víðar, meðal annars sýnt með
Teatron í La Mama E.T.C. og
með Mabou Mines í Public
Theatre. Kevin hefur kennt
leiklist og spuna á námskeið-
um í Bandaríkjunum og Evr-
ópu og síðustu tvö ár hefur
hann kennt við New York Uni-
versity.
„Við sem stundum nám er-
lendis viljum endilega deila
því sem við erum að læra og fá
fólk eins og Kevin hingað
heim þegar það stendur til
boða og vonum bara að vel
takist til svo framhald geti
orðið á slíku samstarfi."
Þá koma bræðurnir Haukur
og Hörður hingað gagngert
Hárprúðar stúlkur
Um þessar mundir er sítt hár fremur óalgeng sjón og flestir vilja
fremur eyða tímanum í annað en að kemba sitt langa hár.
1 Bretlandi eru fjölmargar stúlkur með hár niður á mitti eða
neðar. Þar var nýlega haldin keppni um hárprúðustu stúlkuna og í
henni þótti ekkert tiltökumái þó hárið næði niður fyrir hné.
Sú sem bar sigur úr bítum heitir Elisabeth Harling og hvort sem
iesendur trúa því eða ekki, mældist hár hennar 165,5 sentimetra
langt. Eiisabeth er fjóra klukkutíma að þvo og þurrka hárið og eftir
lengdinni að dæma er það ekki ótrúlegt.
I barnaflokki sigraði Leigh-Anna Probert, en hennar hár reynd-
ist 85 sentimetra langt.
Sætur
ilmur
frægðarinnar
Að ilma vel er kappsmál
margra, ekki síst frægu
stjarnanna úti í heimi. Joan Coll-
ins þykir afar fönguleg enda legg-
ur hún mikið upp úr því að angan
hennar sé sem best. „Þegar ég var
16 ára varð mér ljóst hversu miklu
gott ilmvatn gat áorkað. Ég hent-
ist inn í eina verslun Selfridges í
London og spurði afgreiðslukon-
una hver vær besti ilmur í heimin-
um; ég ætlaði að fá hann, takk
fyrir!"
Ungfrú Collins beitir sérstakri
tækni til að ilma vel, og hér gefur
hún aimúganum nokkur holl ráð
þar að lútandi.
1. Eftir að hafa baðað mig ýri ég
allan líkamann með kölnarvatni,
til að fá grunnilm. Síðan úða ég
ilmvatni bak við eyru, á úlnliði og
olnbogabót. Þar hitnar ilmvatnið
og blandast líkamslyktinni.
2. Það er mjög alúðleg kveðja að
úða ilmvatni á bréfsnepil og senda
þeim sem þú vilt að muni eftir þér.
Þú mátt vera viss um að sá hinn
sami rennur á lyktina.
3. Á ferðalögum sprauta ég ilm-
vatni í rúmfötin mín og þegar ég
dvelst á hótelum, úða ég lyktinni
um allt herbergið, til að mér líði
eins og heima hjá mér.
4. Ég geng alltaf með hálsklút
sem lyktar af uppáhaldsilmvatn-
inu mínu og hárburstinn minn fær
líka gusu, því þá lyktar hárið einn-
ig-
5. Heima hjá mér sprauta ég
ilmvatni á púðana í dagstofunni,
gluggatjöldin og silkiblómin. Ei-
lítil angan af baðhandklæðunum
sakar heldur ekki.