Morgunblaðið - 03.07.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.07.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1985 ffclk f fréttum L Hugvitsmaðurinn er hannaði bflinn fyrir sölumarkað, Kristján Gunn- arsson. Dýrfirski Dúi Það er ekki bara þorskurinn og ýsan sem menn hafa handa á milli vestur á fjörðum, þeir bregða ýmsu fleiru fyrir sig í atvinnuskyni. Eitt af því er bílaframleiðsla. Það kom fram í vetur í fjöl- miðlum að einhverskonar jap- anskt efnahagsundur væri i upp- siglingu á Þingeyri í Dýrafirði. Fréttaritari Mbl. fór á flakk og heimsótti Hallgrím Sveinsson á Hrafnseyri, sem mun vera upp- hafsmaður að þessu fyrirbrigði. „Að sjálfsögðu var þetta fyrst og fremst orðaleikur. Blm. fann þetta upp og okkur fannst þetta góður brandari. En öllu gamni fylgir einhver alvara og það hef- ur sem sé verið stofnað til bíla- framleiðslu undir nafninu „Dýr- firski vörubíllinn Dúi“. Bíllinn er leikfangabíll úr tré og er bæði stýranlegur og fjaðrandi. Hver bíll hefur sitt sérstaka skrán- ingarnúmer og er ekki fram- leiddur nema einn blll með hverju númeri. Fólk getur pant- að Dúa með alvöru bílnúmeri fjölskyldunnar. Auk þess fylgir með bílnum skoðunarvottorð og þá geta krakkarnir leikið skoð- unarmann og skoðað bíla í ná- grenni sinu likt og þeir gera hjá bifreiðaeftirlitinu." — Hvernig varð hugmyndin að Dúa til? „Við komum saman nokkrir djúpt hugsandi menn á Þingeyri og nágrenni og stofnuðum með okkur félag áhugamanna um at- vinnumál. Þetta endaði með því að ég var gerður út af örkinni sem nokkurskonar Smart- spæjari til að njósna um leik- föng krakka á Þingeyri, því ákveðið hafði verið að stofna leikfangaver ksmiðj u. Þetta þróaðist svo þannig að ég fór að leika mér í bílaleik með krökkunum og fékk nokkrum sinnum lánaðan vörubíl hjá stráknum í næsta húsi, en hann hafði einmitt smíðað þann bíl í handavinnu hjá Gunnari Friðfinnssyni kennara. Þarna kviknaði á perunni hjá mér og hugmyndin af Dúa varð til. Við fórum og fengum til liðs HorgunblaAi&/Hulda Bflarnir hafa reynst krökkunum fyrir vestan hinir ágætustu í vegagerð. við okkur hugvitsmanninn Kristján Gunnarsson frá Hofi í Dýrafirði til að hanna bílinn fyrir markað. Grunnhugmyndin er frá dýrfirskum strákum, því þeir fóru að smíða slíka bíla upp úr seinna stríði. Starfsmenn eru fjórir talsins núna í fullu starfi sem vinna við þessa framleiðslu og nokkrir eru í hlutastarfi. Ætlunin er að framleiða það mikið af Dúa að hann komist i hvert hérað á iandinu innan skamms tíma. Draumurinn er svo að færa sig upp á skaftið og prófa hvort hann getur ekki spjarað sig erlendis, og við stefn- um að því að byrja á Færeyjum og Grænlandi." Þórður Sigmundsson að leik með Dún win». Gleraugu fyrir ástfangna Þessi glernugu eru sérstnklegn gerð fyrir elskend- ur. Dúfurnnr kyssn hver nðrn í gríð og erg og þnr sem við getum ekki birt glernug- un í lit má getn þess nð glernugun eru nð sjálfsögðu rnuð. Hvers vegna að klæða sig? Þnð er eiginlegn óþnrfl að klæðnst silki, nylon, ull eða bómull þegar maður býr í heitu landi og hægt er að tattovera allan líkamann. Það finnst líkiega þessu fólki. Tíu ár frá kvennaári Itilefni þess að 10 ár eru liðin frá því að Sameinuðu þjóðirnar stofnuðu til sérstaks Alþjóðlegs kvennaárs 1975, hittust nokkrar reykvískar konur til að rifja upp atburði þess árs og hins svokall- aða Kvennaáratugar sem lýkur um næstu áramót. Margar þeirra áttu þátt í að- gerðum sem settu svip sinn á Kvennaárið svo sem með setningu löggjafar, fundum, ráðstefnum og undirbúningi og framkvæmd Kvennafrísins 24. október 1975. Flestar þeirra hafa síðan mjög látið jafnréttismál til sín taka ým- ist á vettvangi stjórnmála, á fé- lagslegum vettvangi, í fjölmiðlum og reyndar allstaðar sem því varð viðkomið. Þegar ljósmyndara bar að garði á heimili Bergljótar Halldórsdótt- ur á Dunhaga 19 fyrir skömmu voru eftirtaldar konur viðstaddar: (Talið frá vinstri, standandi): Guðrún Erlendsdóttir, Kristín Bjarnadóttir, Birna Stefánsdóttir, Þóra Kristjánsdóttir, Dagný Lár- usdóttir, Ragnheiður Torfadóttir, Inga Halldórsdóttir og Ragnhild- ur Helgadóttir, Jónina Gísladótt- ir, Bergljót Halldórsdóttir, Erna Ragnarsdóttir, Sigurlaug Bjarna- dóttir, Auður Auðuns, Anna Borg, Inga Jóna Þórðardóttir, Katrín Fjeldsted og aftan við hana Sig- ríður Snævarr, Sigrún Davíðs- dóttir, Sigrún Marinósdóttir, Auð- ur Ragnarsdóttir, ólöf Benedikts- dóttir, Björg Ellingsen og Björg Einarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.