Morgunblaðið - 03.07.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 03.07.1985, Blaðsíða 56
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. 100 yrðl- ingum safnað að Möðru- völlum Fyrstu F15- þoturnar „ÞetU er söguleg stund þegar við í dag tökum á móti fyrstu F15-þotununum. Með komu þeirra hingað er brotið blað i sögu flug- bersins hér á landi,“ sagði Kobert Jenkins ofursti á Keflavfkurflug- velli við komu fyrstu tveggja af þeim átján F15-þotum, sem ís- lenska ríkisstjórnin hefur gefið heimild til að sUðsetUr verið hér á landi. Nýju vélarnar leysa 12-Fant- om-þotum sem hér eru af hólmi. Stefnt er að því að F15-þoturnar taki við hlutverki sinu í nóvem- ber og að allar vélarnar 18 verði komnar til landsins í febrúar 1986. Hver þota kostar um einn milljarð ísl. kr. F15-þotur eru lítið eitt hrað- fleygari en Fantom-þoturnar en eru búnar fullkomnari ratsjám. Þær þurfa mun styttri flugbraut og klifra hraðar í flugtaki auk þess sem vélin er mun lágværari. Flugþol F15-þotu er um 70% meira en Fantom-þotur og þurfa þær því ekki að reiða sig jafn mikið á eldsneytisbirgðaflugvél- ina, sem alltaf fylgir þotunum á eftirlitsflugi. Útvegsmenn krefjast staðgreiðslutaxta á olíu „VEGNA þess hvernig málum um olíuverð lyktaði ( síðustu viku höfum við sent Verðlagsráði formlega beiðni þess efnis að LÍÚ verði látinn í té taxti yfir staðgreiðsluverð ol(unnar,“ sagði Kristján Kagn- arsson formaður LÍÚ í samtali við Morgunblaðið. MorgunblaSié/Július Tvær fyrstu F15-þoturnar komu til Keflavíkur f gær eftir tæplega fimm og hálfrar stundar flug frá Langley Air Force Base ( Virginíu. Á innfelldu myndinni eru Sam Babtist og John Slayton majorar ( bandaríska flughernum, en þeir flugu vélunum til landsins. Á VEGUM Kannsóknastofnunar landbúnaðarins er hafln rannsókn á möguleikum á nýtingu melrakka (íslenska villirefastofnsins) við framleiðslu verðmætra skinna- afbrigða með blöndun við aðrar tegundir. Rannsóknirnar fara fram á tilraunastöðinni á Möðru- völlum í Hörgárdal í Eyjaflrði og er þessar vikurnar verið að safna þangað um 100 yrðlingum víðs vegar af landinu. Stefán Aðalsteinsson, deildar- stjóri búfjárdeildar RALA, stjórn- ar rannsóknunum en þær eru unn- ar í samvinnu við ýmsa aðila. Stefán sagði í gær að menn teldu að verðmætir eiginleikar gætu fal- ist í melrakkanum, en hann væri fjölbreyttari að lit en ýmsir hefðu talið. Markmið rannsóknarinnar væri að prófa hvernig hægt væri að nota eigileika melrakkans i blöndun við innflutta refi. Erlendis er til dæmis framleitt verðmætt skinnaafbrigði sem nefnt er „gullna eyjan” með blönd- un pólarrefs, sem er af sama stofni og hvíti melrakkinn, við silfurref. Undanfarin tvö ár hafa melrakkayrðlingar verið fluttir út til refabónda i Noregi, en það verður ekki gert í ár, þar sem til- raunin á Möðruvöllum er hafin. Stefán sagði óvist hvaö kæmi út úr slíkri blöndun, þvi melrakkinn væri með lakari skinngæði en ali- refur. Væri hugmyndin sú að reyna að blanda honum við bláref með miklum feldgæðum, fram- rækta blendinga og ná aftur fram hvíta litnum til þess aftur að blanda við silfurref og fá fram „gullnu eyjar“-afbrigðið. Stefán sagði að mögulegt ætti að vera aö fá marktækar niður- stöður á ekki mjög löngum tima og taldi að fyrstu niðurstöður ættu að geta legið fyrir eftir þrjú ár. Framleiönisjóður landbúnað- arins hefur veitt RALA-styrk til aö hefjast handa við þetta til- raunaverkefni. „Nú þegar álagningin á svart- olíu hefur verið hækkuð og vextir teknir inn i verðið er þeim veittur gjaldfrestur sem ekki geta borgað. Hinir sem hafa nægt fé til að staö- greiöa olíuna greiða einnig vext- ina og borga þannig vaxtakostnað þeirra sem ekki geta greitt. Við teljum beiðni okkar vera sjálfsagða og eðlilega kröfu þeirra aðila sem hafa eitthvert fjármagn milli handa." Kristján Ragnarsson sagði að lokum: „Að okkar mati er Verð- lagsráði ekki stætt á öðru en láta okkur hafa þennan taxta. Annars er sá möguleiki útilokaður að svartolfa sé nokkru sinni stað- greidd.“ Sveinn Björnsson formaður Verðlagsráðs vildi ekki tjá sig um málið og kvað ómögulegt að segja til um hvenær beiðni LIÚ yrði tek- in fyrir í Verðlagsráði. „Tilmæli Landsambandsins verður að at- huga vel lagalega og því þori ég I ekki að segja til um hver verði | niðurstaða Verðlagsráðs." Tillaga frá Shultz um tilhögun varnar- lidsflutninganna: „Þarfnast nánari skýringa“ — segir utan- ríkisráðherra GEIR Hallgrímssyni, utanríkis- riðherra, barst ( gær svar George Shultz, utanríkisráó- herra Bandaríkjanna, um með hvaða hætti stjórnvöld vestra hyggjast standa að sjóflutning- um til varnarliðsins frá Banda- ríkjunum til Keflavfkur. Málið veröur rætt í ríkisstjórninni á næstu dögum, að þv( er Geir Hallgrímsson sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins. „í bréfi sínu lýsir Shultz horfum í málinu og setur fram ákveðna tillögu um lausn þess,“ sagði Geir. „Sú tillaga þarfnast nánari skýringa og þar til þær eru fengnar og málið hefur verið rætt f rfkis- stjórninni tel ég ekki rétt að fjalla um það opinberlega að sinni.“ Bónussamningar fiskvinnslufólks lausir: Kröfur í 30 liðum hafa verið lagðar fram í Eyjum GILDISTÍMI bónussamninga verkalýðsfélaga fyrir hönd flskvinnslufólks er útrunninn frá og með 1. júl(, vfða í stærstu verstöðvum á landinu. Þannig er háttað með alla bónussamninga á Vestfjörðum, f Vestmannaeyjum, á Akra- nesi vfða á Norðurlandi og á Austfjörðum. Hins vegar var bónusamningi í Reykjavík ekki sagt upp. Fyrsti samningafundur verka- lýðsfélagsins í Vestmannaeyjum og atvinnurekenda verður 1 Vest- mannaeyjum f dag og hefur félag- ið lagt fram kröfur í 30 liðum, sem einkum fjalla um breytingar á stöðlum, að sögn formanns verka- lýðsfélagsins, Jóns Kjartanssonar. Með sjö daga fyrirvara geta verkalýðsfélögin boðað bónus- stöðvun, en ekki er hægt að fara f verkfall, þótt bónussamningar séu lausir. Samningunum var sagt upp með sex mánaða fyrirvara um síðustu áramót, en f nóvembersamningum ASÍ og VSÍ á síðasta ári varð það að samkomulagi að ekki væri hægt aö segja upp samningnum fyrr en um áramótin. Jón Kjartansson sagði að bón- uskerfið sjálft væri 20 ára gamalt og færu þeir fram á leiðréttingar á þvi, sem ættu ekki að kosta at- vinnurekendur mikið að þeirra mati. „Fiskvinnslufólk er geysi- lega óánægt og ef til vill ætlar það að reyna að hefna þess í héraði sem hallaðist á Alþingi. Þetta kerfi er ómanneskjulegt og við viljum reyna að gera það mann- eskjulegra. Við hljótum að ein- beita okkur að samningum hér heima f héraði, eins og hægt er. Reynslan af þessum stóru sam- flotum er slík að þeir sem minna mega sín virðast sffellt verða und- ir. Nóg var bjartsýnin fyrir samn- ingana í sumar við VSf, en það kom annað á daginn,“ sagði Jón Kjartansson ennfremur. Vinnustaðafundir eru f gangi f frystihúsunum á Akranesi þessa dagana. Var einn f gær, annar f dag og sá þriðji verður á morgun. „Það eru háværar raddir um það meðal fiskvinnslufólks að losna við bónusinn og fá bara almenni- legt tímakaup. Kröfurnar hafa aukist svo mikið, án þess að komið hafi verið til móts við fólkið. Til dæmis er fiskurinn mikið orma- meiri nú en hann var,“ sagði Sig- rún Clausen, formaður verka- kvennadeildar verkalýðsfélagsins á Akranesi. „Svo virðist vera að okkur sé alltaf fórnað, eins og var f sfðustu samningum,“ sagði hún ennfremur og bætti því við að staðan væri þó óviss meðal annars vegna sumarfria sem nú standa yfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.