Morgunblaðið - 09.08.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 198ö
3
Sala á drifskaftshlífum hefur
fjórfaldast á tveimur árum
— segir Guðmundur Eiríksson hjá Vinnueftirliti ríkisins
„ÞVÍ verður ekki neitað að útbúnað-
urinn á dráttarvélinni var ólöglegur,
en rétt er að láta það koma fram að
ekki var ætlast til að drengirnir
tvcir, 11 og 12 ára gamlir, væru við
dráttarvélina," sagði Guðmundur
lljartarson bóndi á Grænhóli í Ölf-
usi í samtali við Morgunblaðið.
„Sonur minn var að vinna þetta
verk og var einfær um það. Við
hjónin vorum fjarverandi en
drengirnir tveir áttu að fara í fjár-
húshlöðu og raða þar heyböggum.
Þeir höfðu ekki fengið bein fyrir-
Dágott í Hofsá
Ágæt veiði hefur verið í Hofsá
lengst af í sumar og eru nú komn-
ir um 600 laxar á land úr ánni.
Hafa brúnir veiðiréttareigenda
og stangaveiðimanna lyfst til
muna, því ördeyða hefur verið í
ánni síðustu sumur. All mikið er
sagt gengið af laxi í ána og veiðist
hann um alla á. Veiði þessi er
ekki síst merkileg fyrir þær sakir
að nokkuð var liðið á júlí er veið-
in hófst í Hofsá. Laxinn er nær
allur smár, 4—6 pund, en einn og
einn vænni koma á land öðru-
hvoru.
Selá aðeins á eftir
Um 270 laxar eru komnir á
land úr Selá, þannig að hún er
ögn á eftir systur sinni Hofsá.
Kunnugir telja þó að veiðin sé
minni en efni standa til, því mik-
ill lax er genginn í ána. Sem
dæmi má nefna að á þriðja
hundrað laxar hafa gengið um
teljarann í Selárfossi, en aðeins á
þriðja tug þeirra hafa veiðst enn
sem komið er. Laxinn í Selá er
næstum allur smár eins og i
Hofsá, þannig fékk eitt „hollið"
um daginn 34 laxa, stærstu lax-
arnir voru þrír 12—13 punda lax-
ar. Hinir voru flestir 4—6 punda.
Vesturdalsá gefur ekki eftir
Vopnafjarðarveiðin er ef til vill
best í Vesturdalsá, þar hafa
veiðst um 160 laxar á tvær og
hálfa dagstöng. Allt síðasta
sumar veiddust aðeins um 40
fiskar í ánni, en nú er nóg af fiski,
aðallega sprækum smálaxi.
Deildará lífleg
Um 140 laxar hafa veiðst í
Deildará í Þistilfirði og er það
meiri veiði en samanlagður afli
nokkurra síðustu ára. Eins og í
Vopnafirði er það smálaxinn sem
ber uppi aflann. Mikill lax er
genginn í ána.
Laxá hin mikla komin
yfir 1500
Nú eru komnir um eða yfir 1500
laxar úr Laxá í Aðaldal og frá
hádegi laugardags og fram til há-
degis miðvikudags veiddust um
200 laxar á svæðum Laxárfélags-
ins, eins er veiði farin að glæðast
mikið á öðrum svæðum. Það hef-
ur vakið athygli Laxármanna, að
all mikið er af stórum laxi í ánni.
26 punda flugulax veiddist fyrir
skömmu í Vitaðsgjafa og 25
pundari geispaði golunni á
Hólmavaðsstíflu. Auk þess hafa
menn séð fleiri en einn lax sem
eru óumdeilanlega í 30 punda fé-
laginu, eða jafnvel enn stærri, en
slíkir fiskar voru eitt sinn eigi
fátíðir i Laxá, en lítið hefur orðið
vart við þá á seinni árum. Þá má
geta þess, að enn er mikið af laxi
að ganga og líflegt dag hvern
fyrir neðan Æðarfossa. Rúmlega
. mánuður er eftir af veiðitiman-
um, Laxá stefnir því í eitt af sín-
um bestu sumrum.
Stjórn verksmiðjunnar hefur
undirritað samninga um kaup og
kjör starfsmanna en þeir eru 30
talsins og skiptast milli fimm fag-
félaga. Samningarnir eru að
mestu sniðnir eftir þeim sem í
gildi eru i ríkisverksmiðjunum.
Fulltrúar VSl aðstoðuðu við
samningagerðina.
Formaður stjórnar Steinullar-
verksmiðjunnar er Árni Guð-
mundsson en framkvæmdastjóri
er Þorsteinn Þorsteinsson.
Kári
mæli um að vera ekki þarna nærri,
en það var alls ekki ætlast til þess
af húsbændum þeirra. Sá sem vann
verkið var ekki í neinni hættu."
Morgunblaðið hafði samband við
Vinnueftirlit ríkisins til þess að
spyrjast fyrir um hvernig eftirliti
með vélum og tækjum í landbúnaði
væri háttað. Guðmundur Eiríksson
hjá Vinnueftirlitinu sagði að þetta
væri þriðja árið sem efirlit færi
fram í landbúnaði. „Við komumst
því miður ekki yfir að hafa eftirlit
með nema um 10% sveitabæja á ári
vegna mannfæðar. Einnig gerir
það okkur erfitt um vik að flestar
vélar eru ekki í notkun nema hluta
af árinu.“
Aðspurður sagði Guðmundur að
dráttarvélin og allt sem henni til-
heyrir væru hættulegustu vélarnar
sem notaðar eru í landbúnaði, þá
sérstaklega drifsköft, þ.e. drifyfir-
færsla frá dráttarvélinni í tækið.
Guðmundur sagði að árið 1983
hefði Vinnueftirlitið sent bækling
til allra búa á landinu með yfir 100
ærgildi samkvæmt tölvuútskrift
frá Búnaðarfélagi Islands. Bækl-
ingurinn nefnist „Öryggi við notk-
un drifskafta" og er þar bent á
réttan hlífabúnað og rétta teng-
ingu drifskafta auk leiðbeininga
um viðhald.
í fyrra var siðan sendur spurn-
ingalistinn „Spurningar um örygg-
isatriði í landbúnaði" til allra
bænda. Á forsíðu bæklingsins seg-
ir: „Spurningarnar eru ætlaðar
bændum til að auðvelda þeim að
framkvæma eigin úttekt á öryggis-
málum við búrekstur sinn. Bændur
eru hvattir til að lagfæra strax það
sem ábótavant kann að reynast.
Haldið listanum til haga og endur-
takið úttektina reglulega." 1 þess-
um bæklingi eru m.a. spurningar
um hlífabúnað og segir í kaflanum
um hann: „Allir hreyfanlegir hlut-
ar drifbúnaðar, sem þannig eru
staðsettir að þeir gætu valdið
hættu, skulu vera búnir hlífum.
Notið þennan búnað aldrei hlífa-
lausan."
Guðmundur sagði að þessi drif-
skaftaslys væru mjög alvarleg.
Sköftin snerust um 540 snúninga á
mínútu og væru því afar hættuleg
bæði fyrir menn og skepnur. Þess
vegna væri mjög áríðandi að allir
notuðu hlífar á þennan búnað.
„Sem betur fer hefur þessi áróð-
ur Vinnueftirlitsins ekki verið til
einskis, því við höfum fregnir af
því að sala á drifskaftahlífum hafi
fjórfaldast á síðastliðnum tveimur
árum,“ sagði Guðmundur Eiríksson
að lokum.
Árni Guðmundsson formaður stjórnar verksmiðjunnar hleypir straumi á
rafbræðsluofninn. Með honum á myndinni eru starfsmenn verksmiðjunnar.
Saudárkrókur:
Framleiðsla á steinull
hefst á næstu dögum
Sauðárkrókur, 7. ágúst
SENN LÍÐUR að því að framleiðsla hefjist í Steinullarverksmiðjunni á
Sauðárkróki. Föstudaginn 26. júlí sl. var straumi hleypt á rafbræðsluofn
verksmiðjunnar en hann bræðir hráefnið í steinullina sem er basaltsandur
og skeljasandur. Fyrsta bráðið kom úr ofninum fimm dögum síðar en
eiginleg framleiðsla á steinull hefst eftir nokkra daga.
Á sumargrillið:
SVáfrir 700gr-
61M
vtðis grillpylsur
^9800 á 19500 prk8’
tSoðsverð Spennandi grillpinnar
kryddlegið kjöt og safaríkar steikur.
Kjúklingar á
óbreyttu verði
íslensk
krækiber
Hamborgari
með brauði
AÐEINS
^^.00
W i^^kpr.stk.
AÐEINS
Drangeyjarlundi ^ ,00
V \ glænýr
Hamflettur
Glæsilegur
Salatbar
Skemmtilega gimilegur
í Mjóddinni
Lax og aftur lax
...enda^^s 298
Grafinn lax-
Reyktur lax
í sneiðum
790,
l sxJv b Glæsilegt úrval i fiskborði
Opið til kl. 21 íMjóddinni
VÍÐIR
- en til kl. 19 í Starmýri
og Austurstræti
AUSTURSTRÆTI 17 - STARMYRI 2
MJÓDDINNI