Morgunblaðið - 09.08.1985, Side 13
MÓftCtflfflLAOlP, WÍGÍÓgr ^985
13
Samkvæmt könnun, sem hið virta þýska tímarit STERN gekkst fyrir nýlega kom í Ijós að
MAZDA 626 ryðgar minnst allra bíla, sem seldir eru í Þýskalandi. Ennfremur sýndi könnun,
sem gerð var af vegaþjónustu Félags bifreiðaeigenda í Vestur-Þýskalandi að MAZDA 626
bilar minnst allra bíla í millistærðarflokki þar í landi.
Eins og allir vita gera Þjóðverjar afar strangar kröfur til bíla um gæði og góða aksturseigin-
leika. Það er því engin furða að MAZDA 626 ER LANG MEST SELDI JAPANSKI BÍLLINN
í ÞÝSKALANDII.
Við eigum nú nokkra af þessum úrvalsbílum til afgreiðslu strax úr síðustu sendingu, á sér-
lega hagstæðu verði.
XJöfóar til
XJL fólks í öllum
starfsgreinum!
Norræna húsið:
Pia Schutz-
mann sýnir
grafíkmyndir
PIA Schutzmann, danskur myndlist-
armadur opnar sýningu á grafík-
myndum í anddyri Norræna hússins
í dag kl. 14.00.
Pia Schutzmann hefur fengist
við myndlist síðan 1970 er hún þrí-
tug að aldri fékk inngöngu á
Lista-akademíuna i Kaupmanna-
höfn segir í fréttatilkynningu frá
Norræna húsinu. Þar stundaði
hún nám næstu sjö árin.
I fyrstu vann Pia aðallega við
grafík og teikningar, en á seinni
árum hefur hún snúið sér að olíu-
málverki og höggmyndum. Enn er
hún þó einkum þekkt sem grafík-
listamaður i Danmörku og víðar
en hún hefur sýnt grafíkverk sín á
öllum Norðurlöndunum fyrir utan
ísland, og á ýmsum öðrum stöðum
i Evrópu.
Sýningin verður opin á venju-
legum opnunartima Norræna
hússins. Henni lýkur 22. ágúst.
í sýningarsal Norræna hússins í
kjallaranum stendur nú yfir sýn-
ing á verkum Jimmy Boyle og
Gateway-hópsins og er hún opin
alla daga kl. 14.00 til 19.00. Þeirri
sýningu lýkur á sunnudagskvöldið.
Skyndibitastaður
Tómasar rís við
Reykjanesbraut
Fyrirhugað er að nýr skyndibita-
staður, sem Tómas A. Tómasson er
að reisa þar sem áður var Fáksheim-
ilið við Reykjanesbrautina, verði
opnaður 2. nóvember nk.
Byggingunni miðar vel áfram og
var verið að steypa plötuna í gær.
Á skyndibitastaðnum verður að
sögn Tómasar lögð áhersla á
skjóta þjónustu og svipaðar veit-
ingar og tíðkast á slíkum stöðum,
hamborgara, kjúklinga og því um
líkt. Veitingastaðurinn mun taka
um eitt hundrað manns í sæti og
verður á einni hæð með risi.
Grunnflöturinn verður um 50 fer-
metrar en heildarstærð hússins
verður á fjórða hundrað fermetrar
að risinu meðtöldu.
Útlitsteikning af staðnum sem mun
taka um 100 manns í sæti.
Litógrafía eftir Piu Schutzmann
M62I
BILAR MINNST
RYÐGAR MINNST!
mazpa
Sterkari en
gerist og gengur
—'"-'L " JL '' -
Ný 8000 fm. MAZDA sölu- og þjónustumiðstöð
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23 sími 812 99