Morgunblaðið - 09.08.1985, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985
15
Mornunbla^irt *rkt*lI
l)a)>.skipunin ai) þessu sinni var ai> ri vta arfa í sanioij'inlcya reitnum. Vrt því vcrki loknu þustu allir inn
o); fciu;u kiikur oj> kakó.
MiirituhhlnAfö Þorkclí
VCrkstjórarnir llcl|;a oj; Kristín svndu fáda ina snarra'ói >ui siorf sin m; voru bórnunum mikil fvrirmynd.
Scó yfir skóla);aróana í l.aiujanlal. I'arna cr nój; aó bila oj; brcnna. M'.rtrunlilaóió Is.rki ll
Morgunblaftið/Þorkell
Níels Carl tók upp radísur. Hann er sjálfsagt kominn til Þýskalands núna.
Vcrkstjórarnir ætluðu að passa upp á garðinn hans á meðan.
„Leiðinlegast
að reyta arfa“
— Stutt spjall við Níels Carl Carlsson, 10 ára
Níels Carl Carlsson, 10 ára gam-
all, var að taka upp radísur þegar
blaðamann bar að garði hans.
„Ég er nefnilega að fara til
Þýskalands með pabba og
rnömrnu." Þarna kom skýringin.
Hver hugsar þá um garðinn
þinn fyrir þig á meðan þú ert er-
lendis?
„Þær gera það stelpurnar. Verk-
stjórarnir."
Ertu búinn að vera lengi í skóla-
görðunum?
„Ég byrjaði i sumar, í byrjun
júní, og hef mætt svona annan
hvern dag.“ Hann bætti síðan við:
„Ég var líka í fyrrasumar."
Ertu lengi í einu?
„Yfirleitt svona 2 klukkutíma,
en það mesta sem ég hef verið eru
3 klukkutímar," svaraði Níels
Carl.
Þú vilt frekar vera hér að reyta
arfa en spila fótbota.
„Já. Mér finnst ekkert sérstak-
lega gaman í fótbolta og hér er
fínt að vera, svona stundum a.m.k.
Við reytum ekki bara arfa.“
Er ekki alltaf gaman?
„Oftast. Það er svo gaman að
fylgjast með þessu. Skemmtileg-
ast er að taka upp en það leiðin-
legasta er að reyta arfann."
Hvað finnst þér best af því sem
þú ræktar?
„Mér finnst blómkálið ofsalega
gott og líka rófurnar," svaraði Ní-
els að bragði og hélt áfram að taka
upp radísurnar sínar.
„Gaman að
taka upp“
— Jóhanna Bjarnadóttir, 8 ára
inn metnað og leggja sig alla
fram við að gera garðana sína
sem fallegasta."
Af hverju hafa strákarnir
svona lítinn áhuga á þessu ai.n-
ars staðar?
„Ég veit ekki,“ svarar Helga.
„Þeir virðast hafa fleiri áhuga-
mál, æfa fótbolta og slíkt. Sum-
um finnst þetta líka stelpulegt."
Hafa börnin gott af þessu?
„Auðvitað. Þau skynja náttúr-
una og umhverfið öðruvísi en
áður. Læra að bera virðingu
fyrir gróðri og öllu lífríkinu og
bera ábyrgð með því að hugsa
um eigin garð sjálf. Leikirnir og
gönguferðirnar geta líka frætt
þau heilmikið. Um daginn fór-
um við til dæmis í Náttúru-
gripasafnið, einn daginn fórum
við í Elliðaárdalinn að hreinsa
rusl. Þetta er mjög þroskandi
allt saman," svöruðu stöllurnar.
Hafa skemmdarvargar ekkert
látið á sér kræla?
„Ekki í sumar, en það kom
fyrir í fyrra að einhverjir
óknyttastrákar gerðu sér lítið
fyrir og eyðilögðu fyrir hinum.
Við höfðum upp á þeim og þeir
hafa ekki gert neitt slíkt af sér
síðan."
Svona í lokin, stúlkur, hver
verður uppskeran að lokum? Af
hverju samanstendur salatið?
„Það samanstendur af radís-
um og næpum, rófum, hvítkáli
og blómkáli að ógleymdu græn-
kálinu."
ÞAÐ var greinilega nóg af arfa til
að reyta þennan kökudag í Laug-
ardalnum en vinnugleðin var samt
mikil. Enda biðu kökurnar bara
eftir því að vera borðaðar.
Ein alduglegasta stelpan var Jó-
hanna Bjarnadóttir, aðeins 8 ára
gömul, en gaf hinum eldri sko ekk-
ert eftir.
Finnst þér ekkert leiðinlegt að
reyta arfann?
„Ég veit það ekki. Nei, nei.“
Ertu búin að vera hér í allt
sumar?
„Já, alveg frá því í júní. Mér
finnst mjög gaman að vera hér og
þó maður verði stundum drullugur
á höndunum þá bara þvær maður
sér vel á eftir,“ svaraði Jóhanna.
Stelstu nokkurn timann til að
borða arfann?
„Nei, nei,“ svaraði sú stutta og
fékk þetta ekki litla hláturkast.
Hvað finnst þér skemmtilegast?
„Bara allt saman. Mér finnst
gaman að taka upp.“
Er ekki gaman að koma með
grænmeti heim til pabba og
mömmu?
„Jú, við höfum borðað það
heima og finnst það mjög gott.“
Er garðurinn þinn fínn?
„Já, hann er þarna. B 1 heitir
hann. Ég er með blóm og svoleiðis
líka til að gera hann fínni."
Ætlarðu að vera hér næsta ár?
„Kannske," var svarið.
Morgunblaöið/Þorkell
Jóhanna Bjarnadóttir rétt mátti vera að þvf að brosa enda nægur arfi til að
reyta þennan fímmtudag.