Morgunblaðið - 09.08.1985, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985
Hestamót Skagfirðinga á Vindheimamelum:
Sýning fimm
íslandsmeistara
hápunktur mótsins
_________Hestar
Valdimar Kristinsson
Þrátt fyrir að ekki viðraöi vel i
Vindheimamelum um verslunar-
mannahelgina mættu hátt í eitt
þúsund manns á hestamót Skag-
firðinga og er það svipaður fjöldi
og ávallt mætir á þetta mót. Segir
þetta nokkuð um þær vinsældir
sem kappreiðarnar njóta á þessum
stað og virðist ekkert lát i.
Þátttaka i kappreiðum var
með lélegra móti nú að undan-
skildum skeiðgreinunum en þar
voru margir góðir vekringar
mættir til leiks og var keppnin
bæði jöfn og spennandi. Tímar
voru góðir í öllum greinum og þá
sérstaklega í brokkinu! Keppt
var í 800 metrum og náðist nú
besti tími sem náðst hefur að
undanskildu gildandi íslands-
meti.
í harðnandi samkeppni um
áhorfendur brugðu Skagfirð-
ingar á það ráð að fá til sýningar
íslandsmeistara í tölti fimm sið-
astliðin ár og hefur það vafa-
laust örvað aösóknina. Hér var
um að ræða einstæðan viðburð,
að fá þessa hesta saman til sýn-
ingar samtímis og brugöust þeir
ekki vonum manna. Þessir ís-
landsmeistarar eru Björn
Sveinsson á Hrímni frá Hrafna-
gili, Olil Amble á Fleyg frá
Kirkjubæ, Þórður Þorgeirsson á
Snjalli frá Gerðum, Binar öder
Magnússon á Tinnu frá Flúðum
og Orri Snorrason á Kóral frá
Sandlæk. Glæsilegastur af fimm
glæsilegum var án efa Hrímnir
frá Hrafnagili sem að margra
mati hefur aldrei verið eins góð-
ur og nú. Sýning þessara hrossa
var i einu orði sagt frábær og
óvíst hvenær hestaunnendum
býðst annað tækifæri á að sjá
þessa hesta saman.
Gæöingar Skagfirðinga voru
lítið spennandi aö þessu sinni
með góðum undantekningum þó.
Vert er að geta eins þeirra sem
er Blær frá Sauðárkróki eign
Guömundar Sveinssonar sem sat
hestinn sjálfur. Þessi hestur hef-
ur reyndar verið sýndur áður svo
ekki var þarna uppgötvuð ný
stjarna eða eitthvað slíkt en
hann bar af sem gull af eiri.
Einnig má geta hryssunnar sem
sigurvegarinn f eldri flokki ungl-
keppti á en hún heitir Lissý
og er frá Vatnsleysu, glæsilegt
hross sem vert er að gefa gaum.
Einnig voru fleiri álitleg hross í
unglingakeppninni. Greinilegt er
að Skagfirðingar spara ekki
góðu hrossin undir ungdóminn
og er það vel.
Kappreiðarnar voru ágætar
eins og fyrr er getið og skeiðuðu
þrír hestar undir 23 sek. í 250
metra skeiði og þrír hestar
hlupu undir 60 sek. í 800 metra
stökki og eru það að öllum lík-
indum bestu tímar sumarsins á
þessari vegalengd. En það voru
blessaðir brokkararnir sem
komu manni hvað mest á óvart
og einn þeirra, Neisti Guðmund-
ar Jónssonar, brokkaði 800 metr-
ana á 1.29,1 mín. og gott ef það
er ekki besti tíminn sem náðst
hefur á þessari vegalengd síðan
Léttir setti metið forðum daga á
Fornustekkum.
En úrslit mótsins urðu sem
hér segir:
A-flokkur gcðinga
1. Blær frá Sauðárkróki, eigandi og
knapi Guðmundur Sveinsson Skr,
8,33. (Blær var jafnframt valinn
glæsilegasti hestur mótsins.)
2. Þyrill frá Hafsteinsstöðum, eig-
andi og knapi Skafti Steinbjörnsson,
8,11.
3. Blesi úr Skagafirði, eigandi Jósa-
fat Þ. Jónsson, knapi Ingimar Jóns-
son, 8,06.
B-flokkur gæðinga
1. Krapi úr Skagafirði, eigandi
Sveinn Jóhannesson, knapi Björn
Sveinsson, 8,35.
2. Bylgja frá Vatnsleysu, eigandi Jón
Friðriksson, knapi Anna Þóra Jóns-
dóttir, 8,17.
3. Geysir úr Skagafirði, eigandi Jón
Olgeir Ingvarsson, knapi Jóhann
Magnússon, 8,13.
llnglingar 12 ára og yngri
1. Helgi Ingimarsson á Blakk úr
Skagafirði, 8,59.
2. Stefán Friðriksson á Flótta úr
Skagafirði, 8,25.
3. Elvar Einarsson á Tvisti úr Skaga-
firði, 7,99.
Unglingar 13—15 ára
1. Björn Jónsson á Lissý frá Vatns-
leysu, 8,27.
2. Ingólfur Helgason á Létti úr
Skagafirði, 8,03.
3. Halldór B. Gunnlaugsson á Gusti
úr Skagafirði, 8,00.
150 metra skeið
1. Glaumur frá Sauðárkróki, eigandi
Árni Jóhannsson, knapi Jón Pétur
Ólafsson, 15,2 sek.
2. Seifur frá Keldulandi, eigandi
Leifur Þórarinsson, knapi Tómas
Ragnarsson, 15,7 sek.
3. Menja frá Hæli, eigandi Aðal-
steinn Aðalsteinsson, knapi Styrmir
Snorrason, 15,7 sek.
250 metra skeið
1. Leistur frá Keldulandi, eigandi
Hörður G. Albertsson, knapi Sigur-
björn Bárðarson, 22,4 sek.
2. Börkur frá Kviabekk, eigandi og
knapi Tómas Ragnarsson, 22,8 sek.
3. Vani frá Stóru-Laugum, eigandi og
kanpi Erling Sigurðsson, 22,8 sek.
250 metra unghrossahlaup
1. Lótus frá Götu, eigandi Kristinn
Guðnason, knapi Róbert Jónsson, 18,2
sek.
2. Gustur frá Holtsmúla, eigandi
Gísli Einarsson, knapi Þurý Bára
Birgisdóttir, 18,3 sek.
3. Frá frá Norður-Hvammi, eigandi
og knapi Helgi Eiríksson, 19,6 sek.
350 m stökk
1. Tvistur frá Götu, eigandi Hörður
P1
; . *\ -
C.
Þrír efstu unglingar 12 ára og yngri. Frá vinstri Helgi Ingimarsson á
Blakki sem sigraði, Stefán Friðriksson á Flótta og Elvar Einarsson á
Tvisti. Við hlið þeirra stendur Sveinn Guðmundsson sem bar verðlaunin
í þessa ungu sveina.
Morgunbladid/Valdimar
Það var mikil upplifun fyrir mótsgesti að sjá fslandsmeistara í tölti síðustu fimm árin samankomna í sérstakri
sýningu en þeir eru frá vinstri talið: Orri Snorrason á Kóral. Einar öder Magnússon á Tinnu, Þórður
Þorgeirsson á Snjalli frá Gerðum, Olil Amble á Fleyg frá Kirkjubæ og Björn Sveinsson á Hrímni, eigulegir
hestar svo ekki sé meira sagt.
Guðmundur Sveinsson tekur hér við verðlaunum og hamingjuóskum frá
formanni hestamannafélagsins Stíganda sem er jafnframt faðir Guð-
mundar. Verðlaunin eru veitt fyrir frammistöðu gæðingsins Blæs sem
vann A-flokk gæðinga og var valinn glæsilegasti hestur mótsins.
G. Albertsson, knapi Anna Dóra
Markúsdóttir, 24,3 sek.
2. Neisti úr Landeyjum, eigandi
Hörður G. Albertsson, knapi Erling-
ur Erlingsson, 24,3 sek.
3. Nasi úr Borgarfiröi, eigandi Elías
Kristjánsson, knapi Jósafat Þ. Jóns-
son, 24,6 sek.
800 metra stökk
1. Örn frá Uxahrygg, eigendur Guð-
mundur og Inga Haröarbörn, knapi
Erlingur Erlingsson, 58,7 sek.
2. Lýsingur frá Brekku, eigandi Fjóla
Runólfsdóttir, knapi Róbert Jónsson,
59,0 sek.
3. Tvistur frá Götu, eigandi Hörður
G. Albertsson, knapi Anna Dóra
Markúsdóttir, 59,6 sek.
800 metra brokk
1. Neisti frá Hraunbæ, eigandi og
knapi Guðmundur Jónsson, 1.29,1
min.
2. Alur úr Skagafirði, eigandi og
knapi Finnbogi Guðmundsson, 1.32,6
min.
3. Brimur úr Skagafirði, eigandi
Ólafur örn Þórðarson, knapi Erna
Jóhannesdóttir, 1.44,9 mfn.
Auk keppni í ofantöldum
greinum voru fjórir hestar
reyndir í 300 metra skeiði, sem
ekki hefur verið keppt í um ára-
tuga skeið. Var kynnt að Is-
landsmet í þessari grein hafi
verið sett 1929. Þrír hestar lágu í
þessum spretti, Vani Erlings
Sigurðssonar á 27,1 sek. Gormur
Sigurbjörns Bárðarsonar á 28,3
sek. og Sörli Jóninu Hjartardótt-
ur sem Kári Ottósson sat á 29,5
sek. Allir undir gamla mettím-
anum og verður nú fróðlegt að
sjá hvort þetta verður staðfest
sem íslandsmet. En hvort sem
það verður eður ei þá verður
þetta að teljast góður árangur og
greinilegt að þetta er kjörvega-
lengd fyrir Vana hans Erlings.
Að síðustu má benda Skag-
firðingum á að gera mætti móts-
skrána betur úr garði þvf ekki
var getið fæðingarstaðar hjá
neinum þeirra hesta sem í
keppni voru.
Björn Jónsson á Lissý frá Vatnsleysu. Sigurvegarar í unglingakeppni
13-15 ára.
Skeiðhesturinn Vani naut sfn til fulls í 300 metra skeiðinu og bætti hann
rúmlega fimmtíu ára gamalt met á þessari vegalengd. Tómas Ragnarsson
fylgir honum vel eftir á ungum skeiðhesti sem Erling, knapinn á Vana, er
eigandi að.