Morgunblaðið - 09.08.1985, Page 17

Morgunblaðið - 09.08.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985 17 Textílveisla Myndllst Bragi Ásgeirsson Fjórði norræni þríæringurinn (Textiltriennalen) gengur nú á milli Norðurlanda og eftir að hafa gist Noreg hefur hann lagt undir sig báða sali og ganga Kjarvalsstaða. Það var um margt snjöll hug- mynd að kynna á þennan hátt nú- tíma textíla með sýningu, er stöð- ugt væri í gangi í einhverju Norð- urlandanna. Stokka svo upp spil- in þriðja hvert ár. Sýningarnar hafa tekið nokkr- um breytingum með tímanum, og þannig er þessi sýning, sem nú er í gangi, hin fágaðasta og best upp setta, enda liggur hér að baki mikil vinna og dugnaður. Það sem öðru fremur hefur ein- kennt Þríæringinn frá upphafi er fjölbreytni hans og umburðar- lyndi gagnvart nýjum straumum innan vefjarlistar. Viðhorfin eru hér stöðugt að taka á sig nýja mynd, þannig að skilin á milli málverks, skúlptúrs, hugmynda- fræðilegrar listar og textíls verða æ minni. Á þessari sýningu virðist hafa verið lögð áherzla á fjölbreytni tækni- og stílbragða — hvers konar efni eru virkjuð umfram vefinn, og stundum virðist vefur- inn beinlínis notaður í hreinan skúlptúr til þess að geta fallið undir hugtakið textíl. Samkvæmt þessu mætti allt eins vísa til strengjamynda ým- issa myndhöggvara, t.d. Ásmund- ar og Barböru Hepworth, sem ættu ekki síður að geta heyrt undir textíla samkvæmt nútíma viðhorfum! En öll leit og allar til- raunir eiga rétt á sér og njóta fyllstu virðingar og skilnings, og það á ótvírætt við textíla sem annað. Tilfinningar gerendanna gagnvart miðlinum koma ósjald- an mjög skemmtilega fram og gætu tæpast komið frá iðkendum annarra greina myndlistar. Hér á ég við sérstakar tilfinningar gagnvart áferð efnisins, svo sem kemur ágætlega fram í collage- myndum Hólmfríðar Árnadóttur og í myndinni „Plate" eftir þær Ástrid Lövaas og Kirsten Wagle. Sú mynd er ákaflega einföld og um leið formsterk í einfaldleika sínum. Þéttpressaðar fellingar í dúk mynda áferð, er minnir á tréplötu. Á þennan hátt kemur fram sér- stök tilfinning víða, sem einungis getur verið komin frá næmri hönd textíliðkandans, er hefur haft dúka og vef milli handanna. Tæknibrögðin á sýningunni eru þannig mörg, og sem dæmi nefni ég Installasjón Doretheu Volkart Nordahl, blandaða tækni Sigur- laugar ióhannsdóttur, Applikation Eila Rantanen, sáldþrykk Wenche Kvalstad Eckhoff, skúlptúr Ingrid Lund, málað silki Birgitte Lund, handþrykk Paikki Priha, saumur Piila Saksela, batík Anne Kvam ásamt hinum hefðbundnu útgáf- um sígildrar vefjalistar og hnýt- inga, sem á stundum er útfært I gerviefni. Margar þessara mynda, sem ég nefni af handahófi, eru athyglisverð verk og mjög ólík að gerð. Hér kemur einnig til marg- vísleg myndhugsun, því að á sýn- ingunni eru myndir, sem líkjast hreinum málverkum (Helena Hyyryláinen), skúlptúrum (Ulla Synnöve Anker Aurdal „Spánskur gluggi“ 1983. Mana Vikman) og hugmynda- fræðilegri list (Anna Cristiansen og Sirrka Vuori). Allt þetta hefur komið fram á fyrri sýningum Þríæringsins, en aldrei áður fengið jafn skilmerki- lega upphengingu þannig að hvert verk nýtur sín til fulls. Husnæðið gerir það þó að verk- um, að erfitt er að framfylgja þessum stefnumörkum i sumum tilvikum. Skoðandinn getur þvf beitt rökfræðilegri hugsun gagn- vart hverju einstöku verki, án þess að myndir allt í kring séu að grípa inn í og trufla athygli hans. Þetta þykir mér aðal sýningar- innar að þessu sinni, og væntan- lega nýtur hún sömu vinnubragða á honum stöðunum. Sú stefna textílfólksins að sprengja ramma hefðbundinna vinnubragða hefur skiljaniega verið gagnrýnd af ýmsum iðkend- um annarra greina myndlistar. Það er einnig ótvírætt að vefjar- list hefur sín sérkenni. Ég segi myndlist, vegna þess að þegar best lætur, getur myndvefnaður verið hrein og sterk myndlist, jafnvel í sinu hefðbundnasta formi. Undarlegt er það og skýtur óneitanlega skökku við, ef vefj- arlistarkonum á að vera allt leyfilegt, en hins vegar telst það innrás í ríki textílgreinarinnar, ef ofið er beint eftir málverki. Ég sé nefnilega ekki betur, en að mjög margt af þvi, sem gerend- urnir eru að fást við á þessari sýningu, sé mjög í ætt við það, sem nafnkenndir myndlistar- menn hafa þegar gert, þ.e. málar- ar, myndhöggvarar, teiknarar og hugmyndafræðilegir listamenn. Hér mætti kannski einnig biðja um jafnrétti! Eftir að rýnt hefur verið lengi og vel á hin aðskíljanlegustu tæknibrögð, er það auganu næst- um léttir að líta á einstaka hefð- bundið verk. Og víst eru hinar hvítu, einföldu myndir Grethe Sörensen fin vefjarlist og hinar mögnuðu myndir Ulla Magnusson staðfesta, að hið hreina tvívíða og sigilda form bíður einnig upp á mikla möguleika. Ýmislegt dettur textílfólkinu í hug og þannig má sjá listilega prjónaða peysu fyrir fjórhöfða einstaklinga eftir Siirka Könönen, sem vekur mjög til umhugsunar. Margt situr eftir í minni mínu cftir skoðun sýningarinnar, og eink- um vil ég vísa til myndanna „Bunk- er“ eftir Ane Henriksen, sem er einfaldur og frumlegur vefnaður, „Spánskur gluggi“ eftir Synnöve Anker Aurdal, sem er fallegur vefnaður, er hittir skynrænt í mark, „Röd nerve" eftir Britt Smelvær, sem byggist á fjaðra- formi í vissum stígandi — mynd- in er ljóðræn og leiðir hugann að svörtum fjöðrum Daviðs Stef- ánssonar í kristaltærum hrynj- andi og „Wall of Voodo" eftir Kar- en Aurora Lindell, sem er sterkt og lífrænt „vibrerandi" verk. Þetta er stór og mikil sýning, yfir henni er svipur fágunar og ögunar, og það er styrkur hennar. Mikil prýði er af skúlptúrtextíl Þórdísar Sigurðardóttur frá Sámsstöðum, er reistur hefur verð úti á túni. Væntanlega hlýtur þessi sýn- ing verðskuldaða athygli. Britt Smelvær „Röd nerve“ 1982/3. flfofgMiiMiifrffr Metsölublaó á hverjum degi! Morgunbladid/Júlíus Er vinstri um- ferð á Melatorgi? EINS OG kunnugt er var hægri um ferð tekin upp á íslandi 26. maí 1968. Samkvæmt umferðar- merki því sem sjá má á með- fylgjandi mynd virðist þessi regla þó ekki gilda á Melatorgi í Reykjaík, því eins og sjá má benda örvarnar mönnum að aka til vinstri inn á torgið. Það var Júlíus Sigurjónsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, sem veitti þessu ósamræmi at- hygli, er hann átti leið um torgið nýlega. Hann vissi hins vegar að hægri umferð gildir hér á landi og lét því ekki glepjast. Er von- andi að sama gildi um aðra öku- menn. MITSUBISHI L 300 4x4 laldriff) 8 sæta mini bus meö torfærueiginleika. Kjörinn bíll fyrir vinnuflokka og stórar fjölskyldur. Verö frá kr. 763.900.- Lokaöur sendibíll meö renni- huröum á báöum hliöum og stórum dyrum á afturgafli. Lipur og sparneytinn sendibíll. Ákjósanlegur til vöruflutninga. \ Verö frá kr. 564 000 - A[u|HEKLAHF | Laugavegi 170 -172 Sirni 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.