Morgunblaðið - 09.08.1985, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985
líi
þó ein 10 megawött af rafmagni úr
jarðgufu og sér þannig fyrir
nokkrum hluta af orkuþörf i
Lhasa. Þetta er ein af fáum starf-
andi jarðgufuvirkjunum i heimi,
en Kínverjar eiga það sameigin-
legt með lslendingum, að vera að
þróa þessa tækni.
Þegar komið var til Lhasa síðla
dags var farið í heimsókn á heim-
ili í borginni og fræðst um hag
íbúanna. Margt kom þar undar-
lega fyrir sjónir, þröngbýli og
fleira, en hreinlætisaðstaðan varð
nú sem fyrr einna eftirminni-
legust.
Snemma næsta morgun var svo
aftur haldið út á flugvöllinn.
Reyndar olli það nokkrum vanda
að farmiðar okkar til Lhasa höfðu
vegna misskilnings orðið eftir í
Chengdu og þarna gilti sú regla að
til þess að geta keypt miða frá Tíb-
et þurfti maður að sýna farmið-
ann til Tíbet, en flugmiða var að-
eins hægt að kaupa aðra leið i
einu. Þetta bjargaðist samt allt og
það var ekki laust við að okkur
létti svolítið þegar þotan tókst á
loft og við horfðum niður í tíb-
etsku dalina, erfiðri en ógleyman-
legri ferð var lokið. Framundan
beið okkar þægilegt hótel í
Chengdu, með heitu vatni og lang-
þráðu baði.
2000 ára gömul
vatnsveita
Á föstudeginum var farið út
fyrir Chengdu og skoðuð 2000 ára
gömul áveitumannvirki, sem bera
vott um mikla hagkvæmni og þró-
aða verkfræðikunnáttu Kínverja
fyrr á öldum. Áveita þessi er ein
helsta undirstaða hins mikla land-
búnaðar sem stundaður er á þessu
svæði. í bakaleiðinni var komið
við hjá svinabónda nokkrum og
fræðst af honum um þær skipu-
lagsbreytingar sem gerðar hafa
verið á síðustu árum í kínverskum
landbúnaði og virðast hafa stór-
aukið tekjur bænda og annarra
sem starfa við landbúnað. Bóndi
þessi hefur margfaldað fram-
leiðslu sína á undanförnum árum,
enda fær hann nú sjálfur að njóta
þess ef vel gengur. Sonur hans ek-
ur vörubíl sem bóndinn á og starf-
ar því við flutninga, en það kallast
flutningur að kaupa vörur á einum
stað, flytja þær á annan og selja
þær þar. Bændur þurfa að borga
leigu af landinu í korni, en fram-
leiðslu umfram það geta þeir selt
sjálfir.
Snemma morguns næsta dag,
var flogið suður á bóginn til ferða-
mannaborgarinnar Guilin, sem
mjög er rómuð fyrir fegurð og
sérkennilegt landslag. Þessi borg
hafði um margt vestrænna yfir-
bragð en aðrar borgir sem við
komum til í Kína og virtist fólk
almennt búa við betri kjör. Margir
virtust hafa uppgötvað það að
hægt er að græða peninga á ferða-
mönnum sem eru með fullar hend-
ur fjár, á kínverskan mælikvarða
að minnsta kosti. Það var því mik-
ið af alls konar götusölum sem
seldu smáhluti, íspinna og ávexti á
uppsprengdu verði. 1 þessu sam-
bandi má kannski geta þess að
sumir hlutir hafa tvenns konar
verð í Kína. Annars vegar er verð
fyrir Kínverja en hins vegar fyrir
útlendinga. Þannig kostar flaska
af kínverskum bjór 1,50 yuan fyrir
Kínverja, en 2,80 yuan fyrir út-
lendinga og gildir þetta verð um
allt landið.
Þennan dag var farið í stóran
dropasteinshelli, sem greinilega er
vinsæll ferðamannastaður því
þarna var krökkt af útlendingum.
Hellirinn er lýstur upp með lituð-
um ljóskösturum og setur það
svolítið ævintýralegan blæ á hann
en um leið varð hann svolítið
gervilegur að sjá. Um kvöldið hélt
varaborgarstjórinn í Guilin hópn-
um velheppnaða veislu, þar sem á
boðstólum voru ýmsir sérréttir
þessa svæðis, meðal annars var
borinn fram lítill grís steiktur í
heilu lagi, að ógleymdum froska-
löppum sem við smökkuðum þarna
í fyrsta skipti og þótti hreint lost-
æti.
Sunnudaginn 23. júní var farið í
5 klukkutíma siglingu niður eftir
ánni sem rennur við Guilin og nut-
um við sólar og sérkennilegs út-
sýnis sem einkennist af strýtu-
mynduðum fjöllum.
Morguninn eftir var enn farið í
útsýnisferð um bæinn, en um
miðjan dag var flogið til Kanton.
Þaðan var ekið í um 4 klukkutíma
til Shenzhen.
Shenzhen
Shenzhen er eitt af hinum svo-
kölluðu „sérstöku efnahagssvæð-
um“ í nágrenni við Hong Kong. Á
þessu svæði er mikið af erlendum
fyrirtækjum starfandi og í gangi
ýmsar tilraunir af hálfu heima-
manna er snerta útflutning og
efnahagsstefnu. Sérstök vega-
bréfa- og tollskoðun er inn á þetta
svæði.
Þarna eru Kínverjar að gera
ýmsar tilraunir með markaðskerf-
ið og nota þessi svæði til þess að
stofna fyrirtæki með útlendingum
og einnig er útlendingum heimilt,
og þeir meira að segja hvattir til,
að stofna fyrirtæki á þessum
svæðum án eignaraðildar Kín-
verja. Fyrirtæki þessi njóta ým-
issa ívilnana, til dæmis er leiga á
landi og verksmiðjuhúsnæði lág,
skattaívilnanir eru miklar og
fyrirtæki sem framleiða vörur
sem skortur er á í Kína fá stærri
innflutningskvóta í Kína en önnur
fyrirtæki. Litlar hömlur eru á því
að flytja verulegan hluta hagnað-
ar úr landi, fyrirtæki þurfa ekki
að óttast verkföll og þótt launin
séu talsvert hærri en almennt í
Kína, þá er sá kostnaður lítill
samanborið við flest önnur lönd. 1
staðinn fyrir allt þetta fá Kínverj-
ar þekkingu, starfsfólk þessara
verksmiðja kynnist háþróaðri
tækni, sem síðan getur nýst við
aðra framleiðslu, Kínverjar kynn-
ast utanríkisverslun og mynda
viðskiptatengs! sem hjálpa þeim
að efla önnur viðskipti sín.
Á þessu svæði hefur á örfáum
árum risið yfir 300.000 manna iðn
aðarborg, þar sem fyrir fimm ár
um var 10.000 manna bær. Þarn
hafa verið reist mörg háhýsi oj
sáum við meðal annars stærsti
byggingu Kína sem er 80 hæð;
skrifstofubygging. Þarna er einnig
verið að byggja upp ferðamanna-
iðnað í samvinnu við Hong Kong-
búa og hafa verið reist þarní
nokkur stór og íburðarmikil hótel
og gistum við á einu slíku. Erlenc
fyrirtæki geta með örskömmurr.
fyrirvara flutt inn í tilbúið verk-
smiðjuhúsnæði, en gífurlegai
byggingarframkvæmdir voru
þarna í gangi.
{ hádegisverði, sem varaborgar-
stjórinn í Shenzhen hélt hópnum
daginn eftir, var nánar útskýrl
fyrir okkur hver væri hugmyndir
með þessu svæði og hvernig að
málum væri staðið. Áður höfðum
við farið í verksmiðju sem fram-
leiðir smátölvur og önnur raf-
eindatæki fyrir kínverskan mark-
að og til útflutnings.
Tengslin við Hong Kong eru
mikil, þannig er til dæmis hægt að
sjá Hong Kong-sjónvarpið í
Shenzhen og mikill fjöldi fólks fer
daglega á milli.
Síðar þennan dag, þriðjudaginn
25. júní, hélt hópurinn svo fót-
gangandi yfir brúna til Hong
Kong, þaðan sem haldið var í lest
inn í miðborgina. Var þar með lok-
ið 16 daga viðburðaríkri og fróð-
legri kynnisferð um Kína, sem
seint mun líða þátttakendum úi
minni.
Hópurinn dvaldist síðan tvo sól-
arhringa í Hong Kong. Þaðan var
flogið að kvöldi 27. júní með Hong
Kong flugfélaginu Cathay Pacific
til Frankfurt, með millilendingu )
Saudi-Arabíu. Heim var komið frá
London siðdegis á föstudegi eftir
24 tíma ferðalag.
Höfundur er formaður /Eskulýðs-
sambands íslands og i sæti í stjóri
Heimdallar.
LAUGAVEGI37
Sfmi 12861