Morgunblaðið - 09.08.1985, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985
Morgunbladið/Martin Holmes
Finnskur rallökumaöur slasast
Finnski atvinnurallökumaðurinn Ari Vatanen slasaðist alvarlega í rallkeppni í Argentínu um sl. helgi, er
Peugeot-keppnisbíll hans fór fjórar veltur eftir að hafa endastungist á mikilli ferð er bfllinn lenti í hvarfi á leið
niður brekku. Bfllinn gjöreyðilagðist eins og sjá má en Vatanen fótbrotnaði illa og meiddist mikið á brjósti og í
baki. Að sögn forráðamanna Peugeot er óljóst hvort Vatanen geti tekið þátt í rallakstri í framtíðinni vegna
meiðslanna, en talið er að það taki a.m.k. hálft ár fyrir hann að ná sér. Vatanen hefur verið í fremstu röð meðal
rallökumanna á undanförnum árum, varð m.a. heimsmeistari 1981. Keppnin sem óhappið varð í var liður í
heimsmeistarakeppninni og vann Timo Salonen á Peugeot hana örugglega.
Of fjár fyrir endurminningar
New York. AP.
BANDARÍSKA útgáfufyrirtækið
Harper and Row hefur sam-
þykkt að greiða David A.
Stockman, fyrrum fjárlagastjóra
Bandaríkjanna, „meira en 83
milljónir ísl. kr.“, tvær milljónir
dollara, fyrir endurminningar
hans, sem munu að mestu fjalla
um stjórnmál og stjórnmála-
menn.
Harper and Row-fyrirtækið,
sem er 168 ára gamalt, hefur
ekki fyrr greitt jafn mikið
fyrir eina bók en Edward L.
Burlingame, einn af frammá-
mönnum þess, segir að bókin
sé „endurminningar eða hug-
leiðingar manns, sem reyndi
upp á eigin spýtur að breyta
rás sögunnar." Gert er ráð
fyrir, að bókin komi út næsta
vor.
Stockman, sem lét af emb-
ætti í fyrri viku, var ekki allt-
af á sama máli og Reagan for-
seti um fjárlagastefnuna og
kom af þeim sökum oft til
harðra deilna þeirra í milli.
Dave Stockman
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
I.FgftHf
RISAEÐLURNAR OG
ÚTRÝMING ÞEIRRA
— ER LAUSNIN FUNDIN?
SMÁSAGA EFTIR
BERTHOLD BRECHT
BRAGI ÁSGEIRSSON
RÆÐIR VIÐ UNGA
MYNDLISTARMENN
GREIN UM KVIKMYNDA-
LEIKKONUNA GRETU
GARBO
JltofflNllllIflífrÍfe
...........—.........-.
Vöndað og menningarleg helgarlesning
ákaWosu^eöatPÍó^.
Stórútea'a ^
JS5S > ****
30% 09 5.„x,r endast
birgb'r &
lögetag
KaWusum-
öðKaup
Gróöu
rhúsinu
Viö Sigtön-s,rnar