Morgunblaðið - 09.08.1985, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.08.1985, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985 Nokkrar undirstöðureglur og leiðbeiningar Hvað er tennis? • Úlfur Þorbjörnsson varð blandsmeistari í fyrra en hann tekur ekki þátt í mótinu aö þessu sinni. í TILHFNI þess aö íslandsmótiö í tennis fer fram nú um helgina höfum viö fengiö Árna T. Ragn- arsson til þess aö taka saman allra helstu reglur í þessari íþrótt. Þetta er meöal annars gert til þess að þeir sem áhuga hafa á að fylgjast meö mótinu en hafa litla þekkingu á reglun- um sem þar gilda geti notið þess betur aö fylgjast meö. Rétt er að geta þess að Árni er um þessar mundir að Ijúka við aö þýöa tennisreglurnar á ís- lensku. Uppgjöf: Viö uppgjöf stendur þú fyrst haegra megin viö stubbinn (en þaö er lína sem sker endalínuna og markar miöjuna á henni) og aftan viö endalinuna. Þú mátt ekki stíga á eöa inn fyrir endalín- una fyrr en eftir aö þú hefur sleg- iö í boltann. Þú átt aö senda boltann yfir netiö á ská yfir í gjafreitinn vinstra megin. Viö hverja uppgjöf færö þú tvö tæki- færi til aö hitta á réttan reit, þ.e. fyrri gjöf og seinni gjöf. Snerti boltinn netkantinn viö gjöf, en lendir síöan í réttum reit, telst gjöfin vera ómark og má því endurtaka hana. Mistakist bæöi fyrri og seinni gjöf hefur gefand- inn tapaö stiginu. Viö næstu gjöf stendur þú vinstra megin viö stubbinn og sendir boltann á ská yfir i gjaf- reitinn hægra megin og siðan gefuröu alltaf til skiptis til vinstri og hægri, þar til lotunni er lokiö. Leikmenn skiptast á um aö gefa aöra hverja lotu. Varpaö er hlutkesti um þaö hvor leikmanna byrjar aö gefa upp. Skipt er um vallarhelming eftir hverjar tvær lotur í setti á oddatölum saman- lagt (t.d. 2:1, 3:2 o.s.frv.), þó í fyrsta skipti eftir fyrstu lotu i hverju setti (þ.e. viöstööuna 1:0). Ekki er skipt um hliö í lok setts nema þaö endi á oddatölu (þ.e. ekki skipt viö 6:4, en skipt viö 6:3). Stigaútreikningur: Tennisleikur er oftast 3 sett. þ.e. sá vinnur, sem fyrst tekst aö vinna 2 sett. í stórmótum er leik- urinn þó oft haföur 5 sett. Hvert sett er 6 lotur (game), þ.e. sá leikmaöur, sem fyrst vinn- ur 6 lotur, hefur unniö settiö. Hann veröur þó aö vera a.m.k. 2 lotum yfir andstæöingi sínum (t.d. 6-4 eöa 7-5) til þess aö sett- iö teljist unniö. Ef staöan er jöfn, 5-5, í setti, er leikin viöbótarlota og staöan veröur 6-5. Eftir næstu lotu er settiö annaö hvort unniö (7-5) eða staöan er jöfn (6-6). Ef staöan er jöfn, 6-6, er ott notast viö s.k. oddalotu (tie-break), sem er lota þar sem keppendur skiptast á um aö gefa, þannig aö annar þeirra gefur fyrst einu sinni, síöan hinn tvisvar og síöan skiptast þeir á um aö gefa tvisvar í röö þar til oddalotan vinnst og þar meö settiö. Keppendur skipta um vallarhelming eftir hver 6 unnin stig. Keppt er í oddalotu þar til annar keppenda hefur skoraö 7 stig og er a.m.k. 2 stigum yfir (t.d. 7-5, 10-8 o.s.frv.). Lota (game): Sá leikmaöur, sem fyrst vinnur fjögur stig i lotu og er þar aö auki 2 stigum yfir andstæöingnum, hefur þar meö unnið lotuna. Sé hann ekki 2 stigum yfir eftir fyrstu 4 stigin, er haldiö áfram þar til annar hvor vinnur lotuna meö því aö komast 2 stigum yfir. Útreikningur fyrir stigin er dálítiö einkennilegur í tennis, þar sem fyrir fyrsta stig sem maöur vinnur fær maöur 15 punkta, eftir annaö stig hefur maöur 30 punkta, eftir þriöja stig 40 punkta, en eftir þaö hættir maöur aö reikna punkta, því þá er annaö hvort lotan unnin eöa þaö er jafnt 40-40. Eftir þaö bæt- ir maöur ekki viö sig punktum heldur er maður annaö hvort „yf- ir“, þaö er „jafnt" (deuce) eöa lot- an er unnin. Dæmi (leikmenn A og B): A: B 15(v) 0(t) 30(v) 0<t) 30(t) 15(v) 40(v) 15(t) A vinnur eöa þá aö þetta gæti litiö þannig út: A: B 0(t) 15(v) 15<v) 15(t) 30(v) 15(t) 30(t) 30(v) 40(v) 30(t) 40(t) 40(v) yfir (v) (t) jafnt (t) (v) yfir (v) (t) unniö (v) (t) í svigum er getiö hvor leik- manna vann (v) og hvor tapaöi (t) umræddu stigi. „Yfir“ hefur einn- ig veriö kallað „forskot" og „jafnt" hefur stundum veriö kall- aö „djús“ (deuce). Leikmaöur sá sem gefur upp, á aö kalla upp stööuna eflir hvert stig. Leikaöferö: j tennis gefst töluveröur tími til aö hugsa um leikaöferö, þ.e. hvernig leika eigi til aö ná sem beztum árangri. Leikaöferöin fer aö sjálfsögöu mikiö eftir skap- gerö leikmanns, veikleikum hans og styrkleika, en ekki síöur eftir sömu þáttum hjá andstæöingn- um. Tennisleikarar skiptast þó oft í tvo meginhópa; þá sem spila hvasst (agressívt) og reyna stöð- ugt aö sækja og vinna þannig stig, og þá sem leggjast fremur í vörn (defensivt), reyna aö leika fyrst og fremst af öryggi og bíöa færis eöa þess, aö andstæðing- urinn geri mistök. Þeir sem nota sóknaraöferöina reyna aö skapa sér tækifæri til aö komast aö neti til aö gera út um boltann meö loftskoti (vollí eöa smass), en þeir, sem aöallega reyna aö verj- ast, halda sig aö mestu viö eöa aftan viö endalínu og nota grunnslög af öryggi (oft yfirskrúf- uö) og skjóta framhjá andstæö- ingi viö net eða „lobba“ yfir hann. Flestir sameina þó aö einhverju leyti þetta tvennt og gengur því leikurinn oft út á þaö, aö reyna aö ná frumkvæðinu í leiknum til aö komst aö neti og gera út um stigiö, án þess aö taka of stóra áhættu sjálfur. Lykillinn aö góö- um árangri í tennis er því oft fólg- inn í því aö geta sameinaö þetta svo vel fari, en ekki bara í því aö veröa tæknilega betri og betri. Þannig geta stundum tennisleik- arar unniö sér „betri“ andstæö- inga meö því aö spila mikiö uppá veikleika þeirra eöa meö annarri árangursríkri aöferö. Þannig má aö sumu leyti líkja tennisleik viö fjárhættuspil, þar sem nauösyn- legt er aö taka vissa áhættu, en þó innan hæfilegra marka. Aö lokum er rétt aö vitna í orö Magnúsar Andréssonar um tenn- isleik (skrifuö uppúr 1930): „Tennis er öllum íþróttum skemmtilegri — tennis veitir gleöi og hvíld og holla og hæfi- lega hreyfingu, sé rólega leikiö, en sé kapp í leiknum, getur erfiö- iö oröiö engu minna en í úrslita- orustu á knattspyrnuvellinum. Góöur tennisspiiari er fljótur aö hugsa. Hann sér strax beztu möguleikana til aö fá sigur. Feg- urð, kraftur og vit sameinast í góöum tennisleik " Sigrum við Dani? SIGRA íslenzku frjálsíþrótta- mennírnir Dani þegar Islendingar og Danir mætast í karlaflokki í Evrópubikarkeppninni á Laugar- dalsvelli 10.—11. ágúst? Ef að lík- um lætur fæst ekki úr því skoriö fyrr en í síöustu greinum keppn- innar, jafnvel ekki fyrr en eftir síöustu grein, boöhlaupiö. GÓÐUR árangur náöist í kringlu- kasti á frjálsíþróttamóti í Laug- ardal á þriðjudag. Eggert Boga- son, FH, náði sínum næstbezta árangri, kastaöi 58,44 metra í karlaflokki. Þorsteinn Þórsson, ÍR, var í ööru sæti meö 46,46 metra, sem er hans bezti árangur og Hallgrímur Jónsson. HSÞ, sem Takmark karlalandsliösins í keppninni er aö sjálfsögöu aö leggja Dani aö velli í innbyröis keppni, og veröur um sérstakan stigaútreikning aö ræöa í þessu sambandi og jafnóöum tilkynnt hvernig staöan í keppni íslendinga og Dana er eftir hverja grein. Á þessari stundu lítur allt út fyrir er á sextugsaldri, kastaöi 41,24 metra. í kvennaflokki kastaöi Guörún Ingólfsdóttir, KR, 52,42 metra, sem er hennar þriöji bezti árangur frá upphafi. Margrét Óskarsdóttir, ÍR, kastaði 44,20 metra, sem er hennar bezti ár- angur. aö um tvísýna keppni islendinga og Dana geti oröiö aö ræöa. Af eölilegri þjóörækni er þaö takmark islenzku frjálsíþróttamannanna aö vinna Dani, og möguleikarnir virö- ast fyrir hendi. En erfitt getur oröiö fyrir ís- lensku frjálsíþróttamennina eina sér aö vinna sigur á Dönum. Stuöningur áhorfenda gæti hins vegar ráöiö úrslitum í haröri og miskunnlausri keppni viö erki- fjendurna. Baráttan veröur afar hörö og hvert stig til eöa frá getur þýtt tap eöa sigur gegn Dönum. Þvt ekki aö taka þátt í bardagan- um viö Dani? Keppnin veröur tví- sýn en meö góöum stuöningi gætu strákarnir okkar hiö óborganlega; sigraö Dani. Gott í kringlu Margir með landsliðinu til Sviss MÚ þegar hafa um 50 manns bók- aö sig í hópferö Samvinnuferöa- Landsýnar á úrslitakeppni heims- meistaramótsins í handknattleik í byrjun næsta árs. Þaö er því greinilegt aö íslensku landsliös- mennirnir fá góðan stuöning i Sviss. Hópferöin er öllum opin. Flogiö veröur þann 25. febrúar í beinu leiguflugi til Bern, þar sem tveir af þremur fyrstu leikjum íslenska liðs- ins fara fram. Síöan veröur okkar mönnum fylgt eftir milli keppnis- staða, fylgst meö undanúrslitum og úrslitaleiknum sjálfum, og flogiö heimleiöis aö honum loknum þann 8. mars. Flug, gisting, akstur milli keppn- isborga, miöar á leiki og íslensk fararstjórn er innifalin. Þeir sem áhuga hafa á feröinni ættu aö panta hjá Samvinnuferöum-Land- sýn hiö fyrsta, því Ijóst er aö miö- arnir veröa fljótir aö fara! (Fréttatilkynning) jj8 \W ?■ • Oddur Sigurötson KR fær án efa haröa kappni í 400 matra hlaupinu um helgina. Oddur fær góða keppni Oddur Sigurösson fær góöa keppni frá sænskum og balgísk- um hlaupurum í Evrópubikar- keppninni. Oddur satti í fyrra Norðurlandamat f 400 matra hlaupi og á langbeztan árangur keppenda, an á mótum í Evrópu í sumar hefur hann fengiö haröa keppni frá Svíanum Erik Josjö og Belqíumanninum Rene Harmans. Óddur er mjög haröur keppnis- maöur og hefur marsinnis staöiö sig stórkostlega í landskeppnum og Evrópubikarkeppnum, stundum gert hiö ótrúlega eins og í fyrra, er hann vann upp 10—15 metra for- skot Hollendinga í 4x400 metra boðhlaupi í landskeppni vlö Wales og Holland. Tryggöi Oddur is- lenzku sveitinni sigur í hlaupinu með stórkostlegum spretti. Gam- an ætti aö veröa aö fylgjast meö Oddi i keppni 10. og 11. ágúst og ugglaust veldur hann engum vonbrigöum frekar en fyrri daginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.