Morgunblaðið - 09.08.1985, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1985
45
„Öll stig mikilvaeg“
— segir Einar Vilhjáimsson um Evrópukeppnina
• Narve Hoff
Nýr norskur
spjótkastari
Þau óvæntu úrslit uröu á norska
meistaramótinu t frjálsíþróttum
um helgina aó þar sló í gegn nýr
spjótkastari, Narve Hoff, sem
kastaöi 83,54 m etra og sigraöi
bæöi Reidar Lorentzen, sigurveg-
arann í keppni Noröurlandanna
og Sovétríkjanna, og Per Erling
Olsen, sem á yfir 90 metra.
Narve Hoff haföi kastaö ná-
kvæmlega 80 metra í sumar. Hann
hefur keppt í spjótkasti í 11 ár, frá
17 ára aldri, en aldrei hlotiö verð-
laun á norska meistaramótinu
utanhúss. Hins vegar hefur hann
oröiö Noregsmeistari í langstökki
án atrennu innanhúss síöustu þrjú
árin. Hans bezta í langstökkinu eru
3,33 metrar. Þá hefur hann stokkiö
2,00 metra í hástökki og leikið
undanfarin sjö ár í 1. deildinni
norsku í blaki.
Per Erling Olsen varö annar í
spjótkastinu á meistaramótinu
meö 77,50 metra og Lorentzen
þriöji meö 73,34. Báöir hafa kast-
aö talsvert lengra í ár, Lorentzen
88,54 og Olsen 83,22.
„ÉG FINN mikinn mun á mór dag
frá degi núna og ég held aö ég
hafi ekki verið eins góöur í
olnboganum frá því í Svíþjóö á
dögunum," sagöi Einar Vil-
hjálmsson í gær, en Einar veröur
í eldlínunni ásamt félögum sínum
í íslenska landsliöinu í frjálsum
íþróttum sem þátt tekur í Evr-
ópubikarkeppninni sem fram fer
á Laugardalsvelli nú um helgina.
.Eg fékk fjórar sprautur í
olnbogann á þriöjudaginn og hef
ekki snert spjótiö síðan þá en óg
finn aö ég er mun betri. Mér gekk
erfiölega aö rétta úr olnbogaliön-
um og þaö má segja aö meö þess-
um sprautum hafi hjöruliðnum ver-
iö breitt í kúluliö þannig aö nú á ég
aö geta beitt mér. Þaö minnkar
auövitaö hjá manni sjálfstraustiö
þegar manni hefur ekki tekist aö
beita sér í langan tíma en þaö er
alveg Ijóst aö fimm stigin, sem
veitt eru fyrir fyrsta sætiö, veröa
ekki gefin billega.
Keppnin í spjótkastinu gæti orö-
iö mjög spennandi og óg er staö-
ráöinn í því aö sigra en þaö er
Svíinn Dag Wennlund eflaust líka.
Keppnin veröur öll mjög spenn-
andi og skemmtileg því bæöi Svíar
og Belgar eru staöráönir í því aö
komast upp úr þessum riöli og því
má búast viö hörkukeppni í mörg-
um greinum. Ef viö eigum góöan
dag og höfum stuöning áhorfenda
ættum viö aö geta sigrað Dani og
þaö er alltaf skemmtilegt. Dag
Wennlund er kominn hingaö til
þess aö hefna ófaranna gegn mér í
fimm keppnum sem viö háöum í
Svíþjóö t vor en þar sigraði ég
hann alltaf þannig aö þaö ætti aö
veröa gaman á Laugardalsvelli um
helgina."
— Hvernig líst þér á aöstööuna
núna eftir að lagfæringarnar hafa
verið geröar?
„Þaö er auövitaö alveg Ijóst aö
íslenska þjóöin á ekki frjálsíþrótta-
aöstööu sem er sambærileg viö lít-
inn háskólabæ í Bandaríkjunum og
erum viö því aftarlega á merinni
hvaö aöstööuna varöar en á hinn
bóginn þýöir ekkert aö vera nei-
kvæöur og þaö ber aö þakka þaö
framtak borgarinnar aö sjá svo um
aö mótiö geti fariö hér fram. Þessi
viðgerö er bráöabirgöaviögerö og
því miöur held ég aö þó svo þetta
líti vel út í dag sé endingin ekki
mikil þannig aö þaö má segja aö
verið sé aö kasta peningum á glæ
meö þessu þar sem þetta nýtist
ekki lengi. Ég vil þó taka þaö skýrt
fram aö framtak borgarinnar er
lofsvert."
— Hvaö er framundan hjá þér í
námínu?
„Ég er kominn meö BS-gráöu í
liffræði og hef sótt um skólavist í
Austin, Texas til aö Ijúka þar mast- -
ergráöu og ég byrja aftur þar
næsta vor. Öll valnámskeiö mín til •
þessa hafa veriö í tauga- og þjálf-
unariifeölisfræöi og þaö nám nýtist
mér mjög vel í íþróttum því þaö.
hefur hjálpaö mér aö svara mörg-
um spurningum um hver tilgangur-
inn er með ákveðnum æfingum.
Æfingaáætlun mín er aö meira eöa
minna leyti byggö upp frá ári til árs
en auövitaö merkir maöur framfar-
ir á ákveönum sviöum á milli ára.
Þaö er aftur frekar hægt aö vera
meö langtíma uppbyggingu hjá
yngra fólki og þá er hægt aö stefna
að því aö fólkiö veröi í sem bestri
æfingu á ákveönum degi en auö-
vitaö spilar margt annað þar inn í
því þó svo allt sé gert á vísinda-
legan hátt eru margir óvissuþættirí'
og nægir þar aö nefna sálarástand
manna á tilteknum tírna."
— Áttu sem sagt von á
skemmtilegri keppni í Laugardal
um helgina?
„Já alveg virkilega skemmtilegri
keppni. Eins og ég sagöi áöan
leggja Svíar og Belgar mikla
áherslu á aö komast upp úr þess-
um riðli og í þeirri keppni eru öll
stig mikilvæg. Svo ætlum viö aö
reyna aö leggja Dani og þar verður
örugglega einnig mikil keppni,"
sagöi Einar Vilhjálmsson.
Einar Vilhjálmsson
Lop^laii
er ohress
með lögreghma
/
Ostjóm, spilling, sambandsleysi, skilnings-
t ip skortur. Þetta em orðin sem lögregluþjónn
í Reykjavík hefur í samtali við Samúel um
innviði Reykjavíkurlögreglunnar.
ERUÞAU í GÓÐU F0RMI?
»
w
Ungfrú Hollywood
flippar út í blautbols
keppni á Ibiza
Ingólfur Tommi Jón Unnnr Halldór Sigrún Þorsteinn
Guðbrandss. Hjaltason Steinsson Ásgrímsson Stefánsd.
SAMÚEL sfyr sjö íslendinga
UM ÞAÐ HVERNIG ÞEIR FARA
AÐ ÞVÍ A£) VERA í F0RMI
sigrun porsxeinn w—s.
>n Stefánsd. Pálsson
/omuel
* aa
NYR OG HRESS A SOLUSTOÐUM UM ALLT LAND