Morgunblaðið - 09.08.1985, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 1986
Morgunblaöiö/Bjarni Eiríksson
• Birgir Einarsson sækir hér aö Skagamarkinu an eins og svo oR í leiknum bjargar Davíö Kristjánsson
glæsilega.
Valsmenn meistarar
VALSMENN uröu í gærkvöldi is-
landsmeistarar i „gamalmenna-
keppninni" eins og formaöur KSÍ,
Ellert B. Schram, komst aö oröi
þegar hann afhenti Hermanni
Gunnarssyni bikarinn aö loknum
leik Akraness og Vals á Kópa-
vogsvelli. Þaö var Hermann
Gunnarsson sem skoraöi eina
mark leiksins þegar aöeins rétt
tæp mínúta var liðin af síðari
hálfieik.
Leikurinn var allur frekar rólegur
en þó sáust mjög skemmtilegir
kaflar hjá báöum liðum. Valsmenn
sóttu meira fyrstu mínúturnar og
þá átti Hermann meöal annars
gott skot sem Davíö markvöröur
Skagamanna varöi vel.
Matthías Hallgrímsson átti einn-
ig gott marktækifæri hinum megin
eftir aö hafa verið kolrangstæöur
en skot hans fór í varnarmann og
framhjá.
Besti maöur vallarins, Jón
Gunnlaugsson, ÍA, átti siöan skalla
eftir hornspyrnu sem hafnaöi í
þverslá Valsmarksins. Rétt undir
KA-Njarðvík
í kvöld
FYRSTI leikurinn í 12. umferö 2.
deildarkeppninnar í knattspyrnu
fer fram á Akureyri í kvöld.
Þar mætast KA og Völsungur og
hefst leikurinn kl. 19.00.
lok fyrri hálfleiks átti Hermann
mjög glæsilegt skot meö vinstra
fæti frá vítateigslínu en Davíð
Kristjánsson varöi mjög vel.
Valsmenn hófu siöari hálfleikinn
meö fallegri sókn sem lauk meö
fallegu marki lan Ross gaf þá stór-
glæsilega sendingu á Helga Bene-
diktsson sem gaf failega fyrir
markið þar sem Hermann Gunn-
arsson kom á fleygiferö og sneiddi
knöttinn glæsilega í bláhornið. Vel
aö verki staöiö hjá Valsmönnum
og aöeins 53 sekúndur liönar af
síöari hálfleik.
Skömmu síöar átti Hermann aö
gera annaö mark en Davíð var ekki
á sama máli og bjargaöi meistara-
lega meö úthlaupi. Ross átti fast
skot sem lenti á hælnum á Her-
manni og breytti um stefnu en enn
var Davíö vel á veröi og varöi.
Þegar um fimmtán mínútur voru
eftir fór markakóngur Skagans,
Jón Gunnlaugsson, fram, en hann
lék aö þessu sinni í öftustu vörn.
Þessi breyting dugöi þó ekki til og
Valsmenn sigruöu. Þegar ein mín-
úta var til leiksioka munaöi þó ekki
nema hársbreidd aö Skaga-
mönnum tækist aö jafna metin.
Þröstur Stefánsson átti þá firna-
fast skot en Siguröur Haraldsson
varöi meistaralega. Hann hélt þó
ekki knettinum sem barst til Björns
Lárussonar sem skaut, en því miö-
ur fyrir Skagamenn fór boltinn
framhjá markinu og leiknum þar
meö lokiö.
Jón Gunnlaugsson var besti
maöur vallarins. Aörir sem léku
áberandi vel hjá ÍA voru Davíð í
markinu og þeir Þröstur og Björn.
Hjá Val var Jón Gíslason traustur í
vinstri bakveröinum og Ross er
mikill „spilari" og Hermann er stór-
hættulegur viö mark andstæö-
inganna.
Haukar
meistarar
HAUKAR uröu ( gær íslands-
meistarar í 2. deild kvenna þegar
þær sigruöu Víking í hörku-
spennandi leik á Selfossi. Fram-
lengja þurfti leikinn og
vítaspyrnukeppni dugöi ekki til
aö knýja fram úrslit þannig aö
gripiö var til bráöabana.
Valdís Birgisdóttir skoraöi fyrir
Víkinga en Jóhanna Pálsdóttir fyrir
Hauka. Ekkert mark var gert í
framlengingunni. j vítaspyrnu-
keppninni skoruöu þær Hrafnhild-
ur Gunnarsdóttir og Ragnheiöur
Júlíusdóttir fyrir Hauka en Inga
Lára Þorsteinsdóttir og Mínerva
Alfreðsdóttir fyrir Víking.
Helga Sigvaldadóttir tryggöi
síöan Haukum sigur í bráöabanan-
um eftir aö Víkingsstúlku mistókst
aö skora.
ÚRSLITAKEPPNI 5. flokks á fslandsmótinu í knattspyrnu hófst á KR-velli í gærkvöldi.
KR sigraói Þrótt 11—0, FH sigraói Hött, 6—0, Grindavík og Þór Ak. geróu jafntefli, 3—3 og Fram
sígraöi Val 5—2.
Keppnin heldur áfram í kvöld og þá mætast KR og Höttur og Fram og Grindavík í B-riöli. í A-riöli
leika Valur og Þór Ak. og FH og KR. Fyrri leikirnir hefjast kl. 18.00 og síöari kl. 19.10.
EM í sundi:
Eðvarð setti
þrjú íslandsmet
EÐVARÐ Þór Eövarðsson setti í
gær þrjú glæsileg íslandsmet á
Evrópumeístarakeppninni í sundi
sem fram fer um þessar mundir í
Búlgaríu. Eövarð synti 200 m
baksund á 2:06,20 sekúndum og í
sama sundi fékk hann millitím-
ann 1:00,45 eftir 100 m sund og er
það einnig íslandsmet. Hann
komst í B-riöil úrslita með þess-
um árangri og þar náöi hann aö
setja þriöja íslandsmetið er hann
synti á 2:05,77, sem er besti
árangur sem náöst hefur á Norö-
urlöndunum í þessari grein.
Magnús Ólafsson setti einnig Is-
landsmet í gær. Hann synti 100 m
skriösund á 52,80 sekúndum og
bætti þar meö Islandsmet Finns
Garöarssonar frá því 1972 sem var
55,50.
Ragnheiöur Runólfsdóttir keppti
í 100 m baksundi og synti hún
vegalengdina á 1:10,81 sem er
skammt frá hennar besta tíma.
I dag keppir Ragnar í 400 m
skriðsundi og Bryndís keppir í 100
m flugsundi. Ragnheiöur keppir
einnig í dag, í 100 m bringusundi.
Vaskurvann
FYRSTI leikur úrslitakeppni 4.
deildar fór fram á Akureyri í gær-
kvöldi. Vaskur sigraöi þar Sindra
6—1.
Mörk Vasks geröu Valdimar
Júlíusson, 3, Tómas Karlsson, 2,
og Jónas Baldursson eitt. Mark
Sindra geröi Elvar Grétarsson.
Staöan í hálfleik var 3—0 fyrir
Vask.
Morgunblaöiö/Þorkell
• Trine Solberg var mætt á æfingu (Laugardalnum í gær.
„Aðstæður góöar“
— segir Trine Solberg, spjótkastari
„AÐSTÆÐUR hér eru mjög góöar
að mínu mati,“ sagói Trine Sol-
berg hin glæsilega norska spjót-
kastsstúlka er hún var að æfa á
Laugardalsvelli í gær, og gaf sér
stutta stund frá æfingum til að
ræða vió blaöamann Morgun-
blaðsins.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
kem hingaö til Islands og er gaman
aö vera komin hingaö. Mig hefur
lengi langaö til aö heimsækja land-
iö. Aöstæöur til spjótkastskeppni
eru góöar og þessi hæga gola er
góö til aö kasta spjóti og vonandi
að þaö veröi sama veöur á laug-
ardag er keppnin fer fram,“ sagöi
Trine. Hún á þríöja bestan árangur
sem náöst hefur í spjótkasti
kvenna í heiminum i ár. Hún kast-
aöi 68,94 metra i keppni Noröur-
landa og Sovétríkjanna fyrir
skömmu og sigraöi örugglega.
Trine, sem er 19 ára, hóf aö æfa
spjótkast er hún var 12 ára gömul.
Þaö kæmi því ekki á óvart aö sett
yröi vallarmet í Laugardal á laug-
ardaginn, vallarmetiö á finnsk
stúlka sem kastaöi 57,00 metra
fyrir nokkrum árum. En ætlar Trine
sér aö setja vallarmet?
„Þaö er aldrei hægt aö segja til
um þaö fyrirfram, en ef aöstæöur
veröa góöar, getur allt gerst,“
sagöi þessi geöuga stúlka.
Norömenn senda sitt sterkasta
kvennaliö til þátttöku í mótinu, þar
sem auk Trine keppir Ingrid Krist-
iansen, einhver mesta hlaupakona
heims. Hún setti í fyrra heimsmet í
5 km hlaupi og var fyrst kvenna til
aö hlaupa vegalengdina á innan
viö 15 mínútum. Hún setti einnig
heimsmet i maraþonhlaupinu í
London í fyrra er hún hljóp á 2,21
klukkustund.
Allt norska liöiö kom í gær nema
Ingrid Kristiansen, hún kemur til
landsins i dag.