Morgunblaðið - 20.08.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST1985
3
Tvö verk Indriða G. Þorsteinssonar koma út á næstunni:
Ævisaga Kjarvals
og Þjóðhátíð 1974
í OKTOBEK, nánar tiltckiö þann
rimmtánda, kemur út ævisaga Jó-
hannesar S. Kjarvals listmálara en
þá veröur öld liðin frá fæðingu lista-
mannsins. Almenna bókafélagiö gef-
ur ritiö út, sem er í tveimur bindum,
en Indriði G. Þorsteinsson skráði
ævisöguna aö beiöni Reykjavíkur-
borgar.
Að sögn Kristjáns Jóhannsson-
ar forstjóra AB er hér ekki um að
ræða listaverkabók heldur er rak-
in ævi og listferill Jóhannesar. „Þó
er ekki hægt að fjalla um feril Jó-
hannesar nema með því að skír-
skota til verka hans og hefur
Frank Ponzi valið myndir í bókina
frá ýmsum tímabilum í ævi lista-
mannsins sem sýna hversu stíllinn
breyttist með árunum."
Hafsteinn Guðmundsson sér um
hönnun og útlit ævisögunnar sem
er um 600 blaðsíður.
Indriði G. Þorsteinsson kemur
Evrópumót félags-
liða í skák
víðar við sögu í bókaútgáfunni.
Hjá Menningarsjóði kemur út
bókin „Þjóðhátið 1974“, sem einnig
er rituð af Indriða en hann var
framkvæmdastjóri Þjóðhátíðar-
nefndar.
Að sögn Hrólfs Halldórssonar
forstjóra Menningarsjóðs er
verkið í tveimur bindum og unnið
að tilhlutan forsætisráðuneytis-
ins. „Indriði fjallar um undirbún-
ing þjóðhátíðarinnar, héraðshá-
tíðirnar sem haldnar voru og
minnist allra þeirra atburða er
tengdust þjóðhátíðarárinu, svo
sem öndvegissúlanna, hlaupsins
frá Ingólfshöfða til Reykjavíkur
og síðast en ekki síst opnun hring-
vegarins."
Hrólfur sagði enn fremur að
fyrirmynd væri að riti Indriða, því
þrjú slík hefðu áður komið út.
„Hér á ég við bækurnar sem gefn-
ar voru út eftir Þingvallahátíðirn-
ar, 1874, 1930, og 1944. Þær eru nú
allar ófáanlegar og þykja miklir
kjörgripir. Bókin um þjóðhátíðina
1974 verður með líku sniði og hin-
Indriði G. Þorsteinsson
ar fyrri meðal annars er hún í
sama broti.“
Hönnuður bókarinnar er Krist-
ín Þorgeirsdóttir en hún var einn-
ig hönnuður þjóðhátíðarinnar
1974 og teiknaði meðal annars há-
tíðarmerki afmælisins.
Barneign-
um fækkar
Á ÍSLANDI fæddust 450 færri börn á
árinu 1984 en 1963, en þaö ár fæddust
flest börn á íslandi eöa 4.581. Á árun-
um 1979—83 fæddust að meðaltali
4.400 börn árlega. íslendingar voru
240.606 um síöustu áramót, þar af
121.037 karlar og 119.569 konur. ís-
lendingum fjölgaði á árinu um 1,06%,
en fjölgunin var á árunum 1961—65
1,85%.
Á síðasta ári var 93.331 íslenskur
einstaklingur giftur, en fjöldi manna
yfir 14 ára aldri var 177.256. Hjóna-
vígslur á árinu voru 17 fleiri en í
fyrra, eða 1.413 talsins. Á árunum
1971—75 voru giftingar að meðaltali
1.730. Lögskilnaðir voru 449 á árinu
1984, eða 46 færri en 1983, en þá var
óvenju mikið um skilnaði.
Alls létust 1.584 íslenskir einstakl-
ingar á siðasta ári, en árið þar áður
var tala látinna 1.653. Meðalævi-
lengd íslenskra karlmanna var á
tveimur síðustu árum 73,96 ár, en
íslenskra kvenna 80,20 ár.
MYKJA
NÝR LcJÚFFENGUR KOSTUR
í ÍSLENSKU OSTAVALI
Búnaðarbank-
inn teflir fyrir
íslendinga
ÁKVEÐIÐ hefur verið aö Taflfélag
Búnaöarbankans taki þátt í Evrópu-
móti félagsliða í skák fyrir hönd fs-
lendinga. Er þetta í fyrsta skipti sem
íslendingar taka þátt í þessu móti,
sem nú er haldið í flmmta skipti.
Taflfélag Reykjavíkur átti
fyrsta rétt á þátttöku en gaf hann
frá sér. Skáksamband íslands
ákvað þá að þátttökurétturinn
gengi til Taflfélags Búnaðarbank-
ans. Keppnin er útsláttarkeppni
og hafa lið verið dregin saman í
fyrstu umferð. íslendingarnir
lenda á móti spænsku liði að nafni
Vulca frá Barcelóna, þar sem teflt
verður um miðjan september.
Lið Búnaðarbankans er þannig
skipað: 1. borð Margeir Pétursson,
2. Jóhann Hjartarson 3. Hilmar
Karlsson, 4. Bragi Kristjánsson, 5.
Jón Kristinsson, 6. Leifur Jó-
steinsson.
Lið Spánverja er ekki síður vel
skipað. 1. borð Rodriques, 2. Bell-
on, 3. Martin, 4. Medina, 5. Pisa, 6.
Nieto.
Sfldartorfa
við Grímsey
Grínwey, 19. ágúst.
FYRIR um hálfum mánuði urðu
menn varir við síldartorfur vestan
við Grímsey og hafa smábátaeig-
endur veitt nokkuð í beitu. Hér
kláruðu menn fiskveiðikvóta sinn
snemma í vor og hafa smábátaeig-
endur stundað handfæraveiðar
síðan. Hefur aflinn nær eingöngu
verið þorskur.
Ferðamannastraumurinn í sum-
ar hefur verið heldur í minna lagi
og er helst við rigninguna að sak-
ast. Heyskap er því enn hvergi
lokið en eftir tvo til þrjá þurrka-
daga ættu flestir bændur að vera
búnir að heyja.
Byggingu sundlaugarinnar mið-
ar vel áfram og ráðgert er að hún
verði fokheld í haust. Félagskonur
í Vörn, kvennadeild Slysavarnafé-
lags íslands á Siglufirði, komu í
heimsókn til Grímseyjar í gær og
færðu þær okkur rausnarlega pen-
ingagjöf sem verja skal til bygg-
ingar sundlaugarinnar.
Alfreö
MYHJA er sérlega mjúkur og bragðgóður smurostur, sem
nýtur sín einkar vel...
...með öllu ósaetu kexi og brauði
...sem innlegg í iieitar samlokur
...sem bragðauki í heitar súpur og sósur
...sem óragðgjafi í ídýfur.
MYBJA er í nýjum hentugum umbúðum og fæst í
tveim bragðtegundum. —-— ■— - -
/aran cr bcst
Smurostur með
skinkubitum
Smurostur með
pizzukryddi
* ' ^ •«-
SMUROSTUR
^EÐ PIZZUKRVDDI
'dngargiidi í 100 g er: prðt*||’!
c koívctní 1 g. stcinefniðlí5
^lsium 500 mg, orka 230
,n'leiðandi: Osia- og smjors^J"
Bitruhálsi 2.