Morgunblaðið - 20.08.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985
49
Guðmundur Jón-
asson - Minning
Fæddur 1. ágúst 1935
Dáinn 10. ágúst 1985
Nú þegar við félagarnir á Bæj-
arleiðum sjáum á bak einum fé-
laga er okkur efst i huga þakklæti
fyrir samfylgd góðs drengs er á
engan hallaði en var ljúfur og kát-
ur í allri viðkynningu.
Guðmundur Jónasson fæddist í
Reykjavík 1. ágúst 1935 og var því
nýorðinn fimmtugur er hann lést.
Guðmundur stundaði verslunar-
störf á yngri árum en fyrir um 25
árum gerðist hann leigubifreiðar-
stjóri, fyrst hjá Steindóri en frá
1963 hefur hann ekið á Bæjarleið-
um. Guðmundur hafði flest það til
brunns að bera sem einn bifreið-
arstjóra getur prýtt. Hann var
frábær málamaður og þvi oft
fenginn til að aka útlendingum.
Hann hafði ljúfa lund og skapstill-
ingu í besta lagi, en slíks er oft
þörf í okkar starfi.
Guðmundur kvæntist þýskri
konu og átti með henni 3 börn.
Þau slitu samvistir.
Eins og sjá má af framanrituðu
hafði Guðmundur öll efni til að
verða hinn mesti auðnumaður í
lífi sínu en hann hlaut þau örlög
að ganga á unga aldri til liðs við
þann herkonung er alls krefst af
liðsmönnum sínum, en gefur gör-
óttar sælustundir í staðinn.
Mátti Guðmundur áður en yfir
lauk greiða í ferjutoll flest það
sem einhvers er vert í þessu lífi,
hjónaband, börn og lífsþrótt mest-
allan.
Það varð vinum og samstarfs-
mönnum Guðmundar sár raun að
þegar loks virtist rofa til tók hann
þá veiki sem flesta dregur til
dauða á okkar tíð. Var það frekar
stutt orrusta en hörð og gátu lykt-
ir ekki orðið nema einar.
Við Bæjarleiðamenn hljótum að
þakka góð kynni og minnumst
væns félaga, sem var glaður og
reifur til hins síðasta.
Blessuð veri minning hans.
F.h. Starfsmannafélags Bæj-
arleiða, Rósant Hjörleifsson.
t
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og úttör móöur okkar,
tengdamóöur, fósturmóður, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Hundastapa.
Sigurbjörg Guömundsdóttir, Magnús Guömundsson,
Eövarö Guömundsson, Þórunn Bergþórsdóttir,
Ólöf Guömundsdóttir, Ólafur Egilsson,
Katrín Guðmundsdóttir, Gunnar S. Steingrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
DÝRFINNU ODDFRIDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavík.
Hrefna Pedersen,
Soffía Bjarnadóttir, Jóhann M. Kjartansson,
Kristinn O. Oddsson,
Egill Bjarnason,
börn og barnabörn.
t
Þökkum innilega hlýhug og aöstoö viö andlát og útför bróöur okkar,
BALDVINS SVEINSSONAR
fró Álfatröóum.
Sérstakar- þakkir færum viö læknum og hjúkrunarliöi Sjúkrahúss
Akraness fyrir frábæra umhyggju í veikindum hans.
Guöbjörg Sveinsdóttir,
Karl Sveinsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andiát og
útför
HELGASTEFÁNSJÓSEFSSONAR,
Smáratúni 15,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-4, Borgarspitalanum.
Gyöa Helgadóttir,
Þóra Helgadóttir, Njáll Skarphéðinsson,
Björn Helgason, Þóra M. Guöleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
KJARTAN PÁLLKJARTANSSON,
málarameistari,
Bragagötu 31B, Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 21. ágúst kl.
15.00.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á minningarsjóði Land-
spítalans.
Reynir Kjartansson, Kristín Hauksdóttir,
Kjartan Kjartansson, Guórún Guómundsdóttir,
Sigríöur Kjartansdóttír, Þorvaldur Ólafsson,
barnabörn og barabarnabörn.
BRIMRÁSA RVIKA 16.8-23.8.
FYRSTA FLOKKS ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Á FRÁBÆRU VERÐI
rrTnrnmT]
r; kTTUirr rr;n
BYGGINGAVÖRUSALA
SAMBANDSINS
Suðurlandsbraut 32 Reykjavík simi 8 20 33
í BYGGINGAVÖRUVERSLUN SAMBANDSINS SUÐURLANDSBRAUT 32,
FER FRAM KYNNING Á ÁLSTIGUM,TRÖPPUM OG PÖLLUM.